Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 8

Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Málþing í Laugarneskirkju Fátækt og ein- semd á Íslandi MÁLÞING um fá-tækt og einsemdá Íslandi verður haldið í Laugarneskirkju í dag klukkan 13 á vegum Fullorðinsfræðslu Laugar- neskirkju í samvinnu við Hjálparstarf kirkjunnar, Rauða kross Íslands, fræðsludeild Biskupsstofu og Öryrkjabandalag Ís- lands. Fimm fyrirlesarar tala á þinginu. Einn þeirra er Harpa Njáls félags- fræðingur. Hún var spurð hvað erindi hennar fjallaði um. „Ég ætla að fjalla um spurninguna hvernig megi saman fara góð lífskjör heillar þjóðar, mæld á mælikvarða þjóðartekna á mann, og fátækt meðal meðlima einstakra þjóðfélags- hópa. Ég ætla einnig að velta fyrir mér hvernig hægt sé að skýra í hverju hættan á fátækt felst.“ – Í hverju felst sú hætta? „Þar skoða ég stefnumótun stjórnvalda og er þá að leita eftir því hvort ástæða fátæktar sé falin í þjóðfélagslegum aðstæðum eða hjá einstaklingunum sjálfum. Í þessu erindi byggi ég á rannsókn- arvinnu um fátækt á Íslandi í lok tuttugustu aldar, viðtölum við fólk og reynslu minni í starfi sem um- sjónarmaður Hjálparstarfs kirkj- unnar en þar tók ég að mér tveggja ára tilraunaverkefni 1998 og 1999.“ – Hvað kom út úr þeirri rann- sókn þinni? „Hættan á að lenda í fátækt er falin í þeirri stefnumótun sem sett er með lögum og reglugerðum sem snúa t.d. að lífeyrisþegum, barnafólki, láglaunafólki og ein- stæðum foreldrum.“ – Er hættan þá aðeins að litlu leyti fólgin í líferni og viðhorfum einstaklingsins? „Mínar niðurstöður sýna að svo er aðeins að litlu leyti þótt auðvit- að megi alltaf finna undantekning- ar. Hvað t.d. lífeyrisþega varðar er það skýrt að það eru frítekju- mörk og skerðingarákvæði sem valda miklu um fátækt fólks. Með- al annars er hægt að nefna að milli 40 og 50% lífeyrisþega hafa fullan grunnlífeyri og tekjutryggingu. Innan við 20% eru með heimilis- uppbót til viðbótar sem gerir um 65 þúsund krónur á mánuði. Mjög lítið brot af fólki hefur full lífeyr- islaun sem eru rúmlega 70 þúsund krónur um þessar mundir. Þá má benda á að 43% öryrkja fengu engar greiðslur frá lífeyrissjóðum til að bæta tekjur sínar. Niður- stöður sýna líka að það hlutfall sem við verjum til velferðarkerf- isins af landsframleiðslu endur- speglar þessar niðurstöður. Þetta veldur því m.a. að lág laun frá rík- inu leiða til þess að fólk á í auknum mæli rétt á að leita til félagsþjón- ustu sveitarfélaga og hefur þá að- eins laun upp að viðmiðunarmörk- um félagsþjónustunnar. Á árunum 1995–1999 breyttust þau viðmiðunarmörk ekki fyrir Reykjavík, sem varð til þess að laun þessa fólks hækkuðu ekki í fjögur ár, sem aftur sýnir okkur að hópur fólks naut ekki þeirrar hag- sældar sem umtalað var í sam- félaginu að ríkti á þessum árum.“ – Er þarna komin skýringin á fátækt hluta þegnanna þrátt fyrir miklar þjóðartekjur? „Já, þannig hangir þetta saman. Hópar sem einhverra hluta vegna verða að hverfa af vinnumarkaði vegna sjúkdóma, örorku eða öldr- unar hafa ekkert annað á að treysta en lífeyrisgreiðslur. Vegna skerðingarákvæða og lágra launa eru kjör þessara hópa svo léleg að þau duga ekki til fram- færslu. Í rannsóknarstarfi mínu hef ég þróað greiningartæki til þess að mæla þetta, þ.e. neyslu- grunn sem samanstendur af grunnframfærsluþáttum sem fólk verður að hafa.“ – Er fátækt og einsemd algeng á Íslandi? „Fátækt og einsemd er algeng meðal ákveðinna hópa. Fátæktin leiðir af sér einsemd, vonleysi og uppgjöf vegna þess að fólk sér ekki fram á að aðstæður þess breytist. Það er rétt að nefna að fólk sem hefur börn á framfæri upplifir mikinn sársauka þegar það horfir upp á börn sín „koðna niður“ fyrir fátæktarsakir. Reynsla mín hjá Hjálparstarfi kirkjunnar sýndi glögglega að það er mikil fátækt hér í vissum hóp- um og að sú staðreynd hefur mikil áhrif og alvarlegar afleiðingar. Rétt er að minna á að allir geta lent í svona aðstæðum, svo sem vegna veikinda, fötlunar og ör- orku.“ – Hvað fleira verður rætt á mál- þinginu? „Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup Skálholtsstiftis, set- ur málþingið. Síðan verður fjallað um reynslu fatlaðra hvað snertir fátækt og einsemd og störf hjálp- arstofnana, t.d. Rauða krossins. Þá verður flutt erindi um nýjungar í safnað- arstarfi sem snúa að kærleiksþjónustu kirkjunnar og einnig ber að geta þess að Ágúst Þór Árnason heimspeking- ur flytur erindi sem hann nefnir: Eru efnaleg og félagsleg réttindi algild mannréttindi á borð við stjórnmálaleg og borgaraleg rétt- indi? Enn fremur sýnir Halaleik- hópurinn brot úr verkinu: Nakinn maður og annar í kjólfötum. Eftir framsöguerindi verða umræður undir stjórn séra Bjarna Karls- sonar.“ Harpa Njáls  Harpa Njáls fæddist á Suður- eyri við Súgandafjörð 1946. Hún bjó fyrir vestan til ársins 1978, starfaði við almenn fiskverkunar- og verslunarstörf, var tal- símavörður og tók að sér sauma- skap. Flutti til Reykjavíkur og tók á árunum 1980 til 1990 þátt í fjölda starfstengdra námskeiða, hér heima og erlendis. Hún stund- aði nám í öldungadeild Versl- unarskóla Íslands og í Fjölbraut- arskólanum í Breiðholti. Hún lauk BA-prófi í félagsfræði 1998 frá Háskóla Íslands og er nú langt komin með meistaranám í félags- fræði við H.Í. Harpa á tvær upp- komnar dætur og tvo dóttursyni. Fátækt er falin í stefnu- mótun Kominn tími til að pússa herklæðin. NOKKUÐ var rætt um fyrirhugaða markaðsvæðingu í raforkugeiranum á ársfundi Orkustofnunar á miðviku- dag, en endurskipulagning markað- arins er óhjákvæmileg því að Íslend- ingar þurfa að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um innri mark- að raforku fyrir 1. júlí árið 2002. Frumvarp til breytinga á raforku- lögum er í lokavinnslu og verður það væntanlega lagt fyrir Alþingi á næsta kjörtímabili. Þorkell Helgason orkumálastjóri sagði að gera mætti ráð fyrir að hlutverk Orkustofnunar ykist eftir að lögin tækju gildi. Samkvæmt nú- verandi lögum er aðalhlutverk henn- ar þríþætt. Í fyrsta lagi öflun grunn- þekkingar á orkulindum landsins. Í öðru lagi söfnun og miðlun upplýs- inga um orkubúskap og ráðgjöf til stjórnvalda um orku- og auðlinda- mál. Í þriðja lagi rágjöf og þjónusta við nýtingu orkulinda. Þorkell sagði að með breyttu fyrirkomulagi ætti að koma á skilyrðum fyrir sam- keppni í raforkugeiranum með sama hætti og verið væri að gera víða ann- ars staðar í heiminum. Raforkubú- skapnum yrði skipt í fjóra aðskilda þætti, annars vegar þætti sem væru til samkeppni fallnir eins og t.d. orkuvinnslu og orkusölu og hins vegar þá þar sem því yrði ekki kom- ið við eins og flutningi og dreifingu orku. Þar sem raforkulögin hafa ekki enn verið lögð fyrir Alþingi og sam- þykkt sagði Þorkell að ekki væri hægt að skýra frá ráðgerðu hlut- verki Orkustofnunar, t.d. varðandi eftirlit með þeim þáttum sem nefnd- ir voru að framan. „Engu að síður ætti að vera ljóst að stofnunin mun með raforkulögunum fá ný og stór- aukin stjórnsýsluverkefni,“ sagði Þorkell. „Þetta kallar eftir veruleg- um breytingum á starfsemi orku- málahluta Orkustofnunar.“ Orkumál og rannsóknir aðskilin Þorkell sagði að stóra spurningin væri hins vegar sú hvort aðskilja ætti orkumálahlutann frá orkurann- sóknarhlutanum í auknum mæli, eða jafnvel að fullu. Að sögn Þorkels koma tvær leiðir helst til greina. Annars vegar að halda núverandi fyrirkomulagi og þróa það áfram. Hann sagði að meg- inávinningurinn af því að halda sig við fyrirkomulagið frá 1997, en þá voru gerðar skipulagsbreytingar á stofnuninni, væri að þá væri verið að viðhalda heildstæðu umhverfi stofn- unarinnar, þannig að ráðgjöf og rannsóknir gætu haft stuðning hvort af öðru. Hann sagði að mikilvægt væri að átta sig á hvort þessi leið samrýmdist þeim nýju verkefnum sem stofnuninni yrðu væntanlega falin með nýjum raforkulögum. Hins vegar fullur aðskilnaður á orkumálahlutanum og orkurann- sóknahlutanum og einhvers konar einka- eða markaðsvæðing. Þorkell sagði að þessi leið hefði verið skoðuð árið 1995 til 1996 og þá hefði hug- myndin verið sú að orkufyrirtækin stæðu að fyrirtæki sem sæi um rannsóknarþáttinn, en hin eiginlega Orkustofnun yrði stjórnsýslustofn- un orkumála og stjórnandi orku- rannsókna af hálfu ríkisins. Að sögn Þorkels voru meginrökin gegn þess- ari leið ótti og andstaða við að tvístra þeirri öflugu rannsóknarheild sem byggð hefur verið upp á Orkustofn- un. Að auki hefðu orkufyrirtækin ekki verið reiðubúin til þess að standa að stofnun orkurannsókna- fyrirtækis. Hann sagði að ávinning- urinn af þessari leið væri sá að með henni væri sneitt hjá hugsanlegum árekstri í hinu tvíþætta starfi Orku- stofnunar, rannsóknum og þjónustu annars vegar og stjórnsýslu og ráð- gjöf til stjórnvalda hins vegar. Búist við að hlutverk Orkustofnunar vaxi Morgunblaðið/Jim Smart Á ársfundi Orkustofnunar var rætt um hugsanlegt hlutverk stofnunarinnar eftir að ný raforkulög taka gildi. Fjallað um markaðsvæðingu í raforkugeiranum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.