Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 16

Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 16
FRÉTTIR 16 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ DAGBLÖÐ í skólum er sam-starfsverkefni Morgun-blaðsins, DV og Fræðslu-miðstöðvar Reykjavíkur þar sem dagblöð eru notuð sem kennsluefni í eina viku. Á hverjum degi þá vikuna fá tólf ára gömul börn hvert sitt eintak af blöðunum sem síð- an eru notuð til margvíslegrar verk- efnavinnu og er Fossvogsskóli einn þeirra fjögurra skóla sem taka þátt í verkefninu í ár. Aðalheiður Bragadóttir er kennari krakkanna í hópi 15 en auk þeirra hef- ur hópur 14 tekið þátt í verkefninu undir handleiðslu Kristjönu Halldórs- dóttur. Aðalheiður segir verkefnið vera töluverða tilbreytingu frá dag- legu skólastarfi enda fylgi því mikil fjölbreytni. „Þau hafa verið svo mikið í bókunum að undanförnu þannig að okkur fannst þetta vera góður tíma- punktur til að gera eitthvað nýtt,“ segir hún. Hún segir dagblöðin hafa verið einskonar þema vikunnar og hefur mestur tíminn með umsjónarkennur- unum farið í verkefni þeim tengdum. „Það eru yfirleitt svona tvær kennslu- stundir á dag sem fara í þetta en að auki samþættum við þetta við ís- lenskukennsluna og samfélagsfræð- ina þar sem þau eru núna að læra um Evrópu. Við höfum látið þau skoða fréttir frá mismunandi löndum þann- ig að einn hópurinn hefur safnað öll- um fréttum þar sem minnst er á Bret- land, annar hópur er með Frakkland og svo framvegis. Þannig að gin- og klaufaveikin hefur ekki farið framhjá þeim,“ segir hún og hlær. Barnablaðið og íþróttirnar vinsælar Hún segir dagana þessa viku hafa byrjað á því að krakkarnir lesi blöðin. „Við gerðum könnun áður en þau byrjuðu á þessu og þá kom í ljós að þau eru aðallega að lesa stjörnu- spána, fólk í fréttum, barnablaðið og íþróttirnar sem eru mjög vinsælar. Þau lásu ekki svo mikið af frétta- tengdu efni. Eins kom í ljós að flest þeirra hafa verið að lesa blöðin svona þrisvar, fjórum sinnum í viku þó að sum lesi þau daglega. Þess vegna höf- um við tekið svolítið góðan tíma í að afhenda þeim blöðin og leyfa þeim að lesa áður en farið er að klippa út eða vinna í blaðapassanum.“ Blaðapassi þessi er lítil verkefna- bók sem börnin fá í tengslum við verkefnið en kennsluefnið í honum er ættað frá Hollandi. Eftir blaðalestur- inn segist Aðalheiður oft spyrja börn- in hvað hafi verið merkilegast í frétt- um og leiðir það oft til fjörugra umræðna. Aðspurð segir Aðalheiður að henni finnist börnin almennt skilja það sem þau eru að lesa um. „Mér finnst krakkar í dag ákaflega vel upplýstir og þeir fylgjast vel með yfir heildina. Eins lesa þau blöðin á gagnrýninn hátt og koma með athugasemdir. Til dæmis hafa þau verið að gagnrýna íþróttablaðið vegna þess að þeim finnst of lítið skrifað um börn og krak- kaíþróttir,“ segir hún og bætir hlæj- andi við að þau vilji greinilega fá svo- lítið meiri athygli í fjölmiðlum. Hún segir íþróttirnar mjög vinsælt lesefni meðal krakkanna og íþróttahetjur á borð við Jón Arnar verða gjarnan fyr- ir valinu þegar kemur að því að klippa myndir af fólki úr blöðunum. Verkefnin sem unnin hafa verið þessa viku hafa verið fjölbreytt og má þar nefna auglýsingaverkefni þar sem börnin könnuðu hvað var verið að auglýsa í blöðunum, hvernig það var auglýst og hverjum auglýsingunum var beint að. „Svo hafa þau verið að taka viðtöl við hvert annað og unnið þessi verkefni í blaðapassanum sem eru mjög skemmtileg. Í þeim erum við að skoða blöðin mjög markvisst og leita að einhverju ákveðnu. Til dæmis áttu þau í einu verkefninu að skrifa niður þrjár fyrirsagnir sem höfðuðu til þeirra eða þeim fannst merkilegar svo eitthvað sé nefnt.“ Dagblöð sem byggingarefni Þetta eru þó ekki einu dagblaðs- verkefnin sem unnin hafa verið í Fossvogsskóla í ár því í allan vetur hafa nemendur verið að nota dagblöð sem byggingarefni í mismunandi þarfa hluti. „Það vill svo til að á föstu- dögum erum við með valsvæði þar sem dagblöðin hafa verið notuð og þess vegna höfum við verið að safna dagblöðunum heima hjá okkur og koma með þau í bunkum í skólann. Þau hafa til dæmis verið að byggja turna úr þessu, kannski fjögur saman og þá er markmiðið að raða þessu skipulega upp. Turninn verður að ná alveg upp í loft þegar tíminn er úti og þetta þarf að tolla saman þannig að það er voðalega gaman að sjá þau hjálpast að við þetta. Svo vildu turn- arnir hrynja þegar tók að líða á vik- una og þá fóru þau að búa til stóla úr blöðunum.“ Aðalheiður bendir á fag- urlega hannaðan hægindastól með áklæði úr Bónusplastpokum og stað- hæfir að hann sé hinn besti til að sitja í. Aðalheiður segir að krakkarnir hafi notið vikunnar og greinilegt að þeim finnist mjög gaman að lesa blöðin. „Maður veit ekki af þeim þegar þau eru byrjuð að vinna því þau sökkva sér alveg ofan í þetta. Þannig að þetta hefur gengið mjög vel í báðum hóp- unum.“ Hún telur ekki ólíklegt að verkefnið sé til þess fallið að örva blaðalestur hjá krökkunum. „Eftir þessa viku held ég að þau lesi blaðið kannski svolítið öðruvísi en í upphafi, til dæmis eru þau farin að taka meira eftir fyrirsögnunum og fréttunum. Maður vonar að þetta hafi þau áhrif að þau fari að lesa blöðin á gagnrýn- inn og opinn hátt, en ekki bara létt- metið í þeim.“ Rannveig Lára Sigurbjörnsdóttir og Sigrún Tinna Gunnarsdóttir, sem báðar eru í hópi 15, segja vikuna vera búna að vera rosalega skemmtilega enda hafi hún liðið hratt. Að þeirra sögn hefur hún þó gengið út á annað og meira en blaðalestur eingöngu: „Við erum búin að gera fullt af verk- efnum og klippa út úr blöðunum og búa til auglýsingar og taka viðtöl,“ segir Rannveig og Sigrún heldur áfram: „Svo er búin að vera keppni sem heitir maður dagsins. Þar höfum við klippt út og raðað bútum saman og svo er valið hvaða fígúra er flott- ust. Og það kemur svolítið fyndið út úr því.“ Þær vinkonur líta kímnar hvor á aðra og það er greinilegt að ímynd- unaraflið hefur fengið að njóta sín í þessu verkefni. Þær segjast halda að þær eigi eftir að lesa blöðin meira eftir þessa viku en áður enda segir Sigrún þær vera búnar að kynnast því betur hvernig eigi að lesa blöðin. Rannveig útskýrir þetta: „Ég vissi til dæmis ekkert hvar mismunandi hlutir voru en núna er ég búin að fatta hvar erlendu fréttirnar eru í blaðinu og svoleiðis.“ Þær segja þó ýmislegt skrýtið í blöðunum. „Til dæmis var verið að banna fólki að gefa öndunum og mér finnst það nú alveg fáránlegt,“ segir Sigrún með þunga. „Það var einhver maður sem keyrði alltaf fram hjá og gaf öndunum vínarbrauð af því að hann var að keyra út fyrir eitthvað bakarí. Síðan var honum bannað það af því að konur voru að kvarta undan miklum andaskít. Mér fannst það mjög skrítið,“ bætir hún við og það er greinilegt að skítfælnu konurnar eiga enga samúð hjá þeim stöllum. Þá segja þær of mikið af fréttum af stjórnmálum í blöðunum, að minnsta kosti fyrir þeirra smekk. „Sumir hafa kannski mikinn áhuga á þessu en okk- ur finnst þetta ekkert merkilegt,“ segir Rannveig. „Það mætti kannski bæta við einhverju öðru.“ Sigrún tek- ur heilshugar undir þetta og segir að lokum að meira mætti vera í blöðun- um um það sem er að gerast í þjóð- félaginu. Rússneska mafían og stjörnurnar Í hópi 14 hafa Pétur Mikael Guð- mundsson og Unnur Flemming Jens- en verið meðal ákafra blaðalesenda þessa vikuna. Fyrir verkefnið voru þau vön að glugga í blöðin heima áður en þau fóru í skólann á morgnana en þau segjast ekki hafa lesið blöðin jafn- mikið áður. Unnur hefur þó helst lesið teiknimyndasögurnar og um stjörn- urnar en áhugasvið Péturs er á öðrum sviðum. „Ég les íþróttirnar og sumar greinar sem eru skemmtilegar eins og um rússnesku mafíuna og svona,“ segir hann og glottir. Eins og skólafélagar þeirra fannst þeim skemmtilegast að vinna að úr- klippunum en fleiri verkefni hafa vak- ið áhuga. „Það var líka gaman að skrifa greinar og taka viðtölin,“ segir Unnur og Pétur kinkar kolli. Þeim finnst ekkert sérstakt vanta í blaðið en Pétur segir þó að meira mætti vera um handboltann. „Svo er allt of lítið um krakkaíþróttir,“ segir hann og vildi gjarnan sjá meir um þær í blaðinu. „Mér finnst bara að barnablaðið mætti koma oftar út,“ segir Unnur. Aðspurð segja þau ekkert erfitt að skilja það sem er í blaðinu þó að hlut- irnir séu svolítið öðruvísi í útlöndum en hér heima. Og fræga fólkið fær all- an skilning þeirra bekkjarsystkyn- anna eða eins og Pétur orðar það: „Fræga fólkið er bara venjulegt fólk sem gerir óvenjulega hluti og nýtur þess vel.“ Stjórnmálin og prósentur erfiðasta lesefnið Gylfi Jón Ásbjörnsson, Hlynur Þráinn Sigurjónsson og Svavar Kon- ráðsson, sem allir eru í hópi 15, segja að það sé búið að vera fínt og gaman að lesa blöðin þessa vikuna. Mest hafa þeir lesið myndasögur, auglýsingar og útlendar fréttir en heima hafa þeir þó aðallega lesið myndasögurnar. Þeim finnst ekki mikið mál að skilja það sem er í blöðunum, nema stund- um og þá eru það helst stjórnmálin og prósentur sem vefjast fyrir þeim. Þrátt fyrir það eru þeir nokkuð sáttir við efnið í blöðunum. „Þó mætti kannski vera meira af myndasögum í þeim,“ segir Hlynur. Mismunandi blaðahlutar virðast vera í uppáhaldi hjá þeim. Til dæmis nefnir Gylfi sjónvarpsdagskrána en Svavar sérblaðið Netið. „Þar er um- fjöllun um leiki og tækninýjungar,“ segir hann og félagar hans taka heils- hugar undir ágæti þess blaðs enda kemur í ljós að þeir leika sér allir tölu- vert í tölvuleikjum. Þeir eru þó nokk- uð öryggir um að þeir eigi eftir að lesa blöðin meira eftir verkefnið en áður. Til dæmis búast þeir við að eiga eftir að lesa meira um útlönd en áður enda er margt öðruvísi þar en hér heima. Svavar nefnir menninguna og fólkið en fleira kemur til. „Stundum er fjallað um flóð og svona,“ segir Hlyn- ur og það er greinilegt að það er eitt- hvað sem piltarnir tengja við útlönd- in. Eins og bekkjarfélagar þeirra hafa þeir verið að vinna fjölbreytt verkefni í vikunni. „Við höfum verið að búa til kalla, klippa þá út og líma saman og það hefur verið mjög skemmtilegt,“ segir Svavar og strákarnir taka undir það. Þá nefna þeir verkefnin í blaða- passanum og erlendu fréttirnar frá Evrópu. Í sumum verkefnunum hafa þeir þurft að setja sig í spor blaðamanna. „Við höfum gert auglýsingar og verið að taka viðtal við einhverja menn sem eru í blaðinu og búa til spurningar og svona,“ segir Gylfi. Hann segist alveg geta hugsað sér að verða blaðamaður í framtíðinni og félagar hans sam- sinna því. Samstarfsverkefni Morgunblaðsins, DV og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur um dagblöð í skólum „Meiri krakka- íþróttir, takk!“ Morgunblaðið/Þorkell Pétur (t.v.) og Unnur segja að fræga fólkið sé ósköp venjulegt. Aðalheiður Bragadóttir gluggar í blöðin með nemendum sínum. Svavar, Gylfi og Hlynur (lengst til hægri) ásamt félaga sínum í hópi 15. Þeir segjast vera nokkuð sáttir við efni blaðanna. Rannveigu (t.v.) og Sigrúnu finnst stjórnmálin ekkert merkileg og of margar fréttir af þeim vettvangi. Þessa vikuna hafa tólf ára börn í Fossvogs- skóla byrjað hvern dag á því að glugga í dagblöðin og í framhaldinu unnið fjölda verkefna úr þeim. Bergþóra Njála Guð- mundsdóttir heimsótti þá í gær og komst m.a. að því að dagblöð má hæglega nota sem hægindastóla ef viljinn er fyrir hendi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.