Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 25
Egilsstöðum - Umsvifamiklar fram-
kvæmdir við samgöngumannvirki
eru hafnar í Fljótsdal. Auk þess að
vera almenn samgöngubót, tengj-
ast þær fyrirhuguðum virkjana-
framkvæmdum, sem áætlað er að
leiði Jökulsárnar á Brú og Fljóts-
dal út Fljótsdal og í Lagarfljót.
Einar Þorvarðarson, umdæmis-
stjóri Vegagerðarinnar á Austur-
landi, segir að ný samgöngumann-
virki í Fljótsdal muni kosta um 600
milljónir króna. „Við buðum á síð-
asta ári út vegarkaflann frá
Brekku og inn fyrir Valþjófsstað
og var þá jafnframt tekinn með
vegur þvert yfir Valþjófsstaðarnes-
ið, frá Végarði og austur yfir Jök-
ulsána. Þetta eru samtals 13,4 km.
Það á að klára þetta næsta haust,
með bundnu slitlagi og verktaki er
Héraðsverk á Egilsstöðum. Þá
buðum við nýlega út 20 metra
langa brú á Hengifossá og 24
metra brú yfir Bessastaðaá. Lægs-
tbjóðandi í það verk var Malar-
vinnslan á Egilsstöðum og verður
samið við hana. Þeir eru að byrja
þessa dagana og á verkinu að ljúka
í sumar.
Nýtt brúarstæði yfir Jökulsá á
Fljótsdal verður skammt ofan við
Lagarfljót, m.ö.o. á kaflanum frá
Atlavík yfir að Hjarðarbóli, sem er
næsti bær utan við Hengifoss. Ein-
ar segir að búið sé að bjóða út 250
m langt vinnuplan fyrir brúna á
Jökulsá og hafi Héraðsverk fengið
verkið.
„Þeir eru að ljúka við planið á
aurum Jökulsár þessa dagana og
síðan fer fyrirtækið Vildarverk í að
reka niður staura. Brúin sjálf verð-
ur svo boðin út í vor og á smíði
hennar að ljúka á næsta ári.“
Engan fastan botn er að finna
undir væntanlegu brúarstæði og
verða því reknir niður 120 staurar,
sem hver um sig er 30 m langur og
eiga þeir að bera brúna uppi. Plan-
ið verður fjarlægt að lokinni brúar-
gerð.
Brú yfir Gilsá verður einnig boð-
in út á næstunni og sömuleiðis veg-
arkafli frá Hjarðarbóli og út að
Atlavík.
Endurbætur á veg-
um og nýjar brýr
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ný brú yfir Jökulsá á Fljótsdal þarf að bera mikla þungaflutninga vegna
framkvæmda við stöðvarhús Kárahnúkavirkjunar í Teigsbjargi. Bráð-
lega verða reknir niður 120 burðarstaurar, hver um sig 30 m langur.
Gamla, einbreiða brúin yfir Jökulsá á Fljótsdal.
Hrunamannahreppi - Nemendur
10. bekkjar Flúðaskóla fóru í
maraþonnám í dönsku fyrir
skömmu sem stóð í sólarhring,
frá hádegi á fimmtudegi til há-
degis á föstudegi. Nemendurnir,
sem eru þrettán, töluðu fyrsta
klukkutímann eingöngu dönsku
við alla sem þau hittu á förnum
vegi á Flúðum, kenndu síðan
hvert öðru dönsku, réðu kross-
gátur á dönsku og horfðu á
danskar kvikmyndir og sátu
kennslutíma hjá kennara sínum,
Önnu Ásmundsdóttur.
Tilgangurinn var að safna
áheitum frá fyrirtækjum og ein-
staklingum til fjáröflunar fyrir
ferð til Danmerkur í vor. Söfn-
unin gekk vel og söfnuðust yfir
200 þúsund krónur og munaði
þar mest um framlög frá Mjólk-
urbúi Flóamanna og Bún-
aðarbankanum auk annars góðs
stuðnings frá mörgum. Þessi dug-
mikli nemendahópur ætlar til
Danmerkur í vor en sú ferð kost-
ar 780 þúsund krónur.
Það eru því reyndar allar leiðir
til fjáröflunar, unnið í gróð-
urhúsum, tínt grjót úr reiðvegi
og gengið um beina á skemmtun
o.fl. Í haust er leið komu 24 jafn-
aldrar frá Óðinsvéum í Flúða-
skóla og hafa krakkarnir skipst á
bréfaskriftum í vetur, m.a. á Net-
inu en á dagskrá ferðarinnar til
Danmerkur er m.a. að heimsækja
þessa jafnaldra sína. Þá er ljúft
að geta þess að enginn þessara
áhugasömu nemenda reykir og
mættu einhverjir jafnaldrar
þeirra taka þá sér til fyr-
irmyndar.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
10. bekkur Flúðaskóla ásamt kennara sínum, Önnu Ásmundsdóttur.
Dönskunám í sólarhring