Morgunblaðið - 24.03.2001, Qupperneq 29
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 29
ÆTLA má að búið sé að veiða um
30.000 tonn af loðnu síðan verkfalli
sjómanna var frestað með lögum í
vikubyrjun en þá eru um 100.000
tonn eftir af kvótanum. Loðnan hef-
ur farið í bræðslu en í gær var verið
að skoða hvort hægt væri að frysta
eitthvað úr afla Barkar NK fyrir
Rússlandsmarkað.
Börkur NK kom með fullfermi,
um 1.750 tonn, til Neskaupstaðar í
gær eftir um 17 tíma siglingu frá
miðunum fyrir sunnan land, en Beit-
ir NK landaði um 1.150 tonnum í
bræðslu hjá Síldarvinnslunni í fyrra-
dag. Sturla Þórðarson, skipstjóri á
Berki, segir að hann sé með allar
tegundir af loðnu, hrygnda kerlingu,
óhrygnda og karl, en verið var að spá
í hvort hægt væri að frysta karlinn á
Rússlandsmarkað.
Sturla segist hafa verið rúmlega
tvo sólarhringa á miðunum, en að lít-
ið hafi verið að sjá og því hafi hann
farið víða. Þó væru torfur hér og þar
með allri ströndinni og því von til
þess að eitthvað væri hægt að halda
áfram.
100.000 tonn eftir
GUÐMUNDUR S. Halldórsson,
skipstjóri á Reykjaborginni, var í
Jökuldjúpinu í byrjun vikunnar en
undanfarna tvo daga hefur hann ver-
ið í Hólakantinum vestur af Reykja-
nesi í þeirri von að fá kola. „Ég var
hérna mikið í fyrra og hitteðfyrra í
þeim tilgangi að reyna að fá skráp,
en það hefur gengið upp og ofan
núna vegna leiðindaveðurs,“ segir
hann.
Allt annað skip eftir breytingar
Reykjaborgin var í breytingum
hjá Ósey í vetur og segir Guðmundur
að þetta sé allt annað og betra skip
en hann byrjaði aftur veiðar 28.
febrúar sl. Það var lengt og byggt
var yfir aðgerðaraðstöðuna en skipið
var frá veiðum í rétt rúma tvo mán-
uði. Skipið var 52 tonn fyrir breyt-
ingu en er nú skráð 73 tonn. Sex
manns eru í áhöfn.
„Það er ekki hægt að líkja þessu
saman,“ segir Guðmundur. „Bátur-
inn er miklu betri, veltur miklu
minna, er stöðugri og vinnuaðstaðan
allt önnur og betri. Menn eru inni í
lokuðu rými í aðgerðinni og það
munar miklu, en veðráttan er nú
einu sinni þannig á þessu landi að
það eru ekki nema örfáir dagar á ári
sem sólin nær að skína.“
Guðbjörg Gunnarsdóttir í Reykja-
vík gerir út Reykjaborgina, sem er
þriggja ára, en Guðmundur segir að
vegna reglna um rúmmetratölu hafi
ekki mátt hafa skipið stærra í byrj-
un. „Þegar Valdimarsdómurinn féll
var frjálst að stækka báta eins og
mönnum sýndist en það hefði verið
miklu ódýrara að smíða bátinn strax
í núverandi stærð.“
Minna af kola
Alls hafa 14 bátar leyfi til drag-
nótaveiða í Faxaflóa og er Reykja-
borg einn þeirra. Á undanförnum ár-
um hefur dregið úr sandkolaveiðinni
en Guðmundur fékk að meðaltali um
þrjú til fjögur tonn á dag síðsumars í
fyrra, sem þótti gott, því venjulega
hefur veiði verið dræm í ágústmán-
uði.
„Við vorum í kolanum frá 15. ágúst
til 15. desember. Það gekk frekar ró-
lega en þegar við hættum virtist vera
að koma koli. Veiðin var ágæt síðustu
vikuna en undanfarin tvö ár hafa ver-
ið frekar slök. Ég held að skilyrðum í
sjónum sé um að kenna en hann hef-
ur verið frekar heitur. Hins vegar
hefur bátunum fækkað og það hefur
sitt að segja en fyrir vikið er sóknin
ekki eins mikil. Þetta skiptir sérstak-
lega máli fyrir kolann.“
Nóg af þorski
Guðmundur hefur verið að veiðum
út af Reykjanesi síðan í lok febrúar.
„Ég hef mikið verið inni á Sandvík en
rétt eftir að loðnan gekk yfir var
mikill þorskur þar. Reyndar hefur
verið gott fiskerí að undanförnu en
það virðist vera að draga úr því. Við
höfum reynt að haga veiðinni eftir
verðinu á markaðnum. Það hefur
verið mjög gott verð að undanförnu
en eftir breytingarnar á bátnum var
aðalatriðið hjá okkur að reyna að ná
sem mestu. Við áttum allan kvótann
eftir og vildum ná sem mestu fyrir
verkfallið.“
Að sögn Guðmundar náði hann
tveimur kolatúrum í byrjun en síðan
hefur hann fyrst og fremst verið í
þorski. „Þorskveiðarnar hafa gengið
ágætlega og eiginlega er of mikið af
þorski, ef eitthvað er.“
Mikil vinna
Þeir róa sex daga vikunnar en eiga
frí á sunnudögum. Venjulega er farið
út milli klukkan fjögur og fimm á
morgnana, byrjað að kasta milli hálf-
sex og sjö og undanfarna daga hefur
verið komið í land á miðnætti en ann-
ars yfirleitt milli klukkan níu og tíu á
kvöldin. „Þetta er langur dagur en
þetta róast þegar fer að ganga á
kvótann.“
Á haustin eða frá því um miðjan
ágúst og fram í desember er landað í
Reykjavík en síðan í Sandgerði og
stundum Grindavík. Áhöfnin sefur
um borð dags daglega en getur verið
heima á sunnudögum.
Í vor færir Guðmundur sig austar
og er á miðunum í kringum Vest-
mannaeyjar en landar þá í Þorláks-
höfn. „Þá reynum við við sandkola og
sólkola þar til farið er í sumarfrí í júlí
en svo byrjar Flóinn aftur í ágúst.“
Mikill niðurskurður á kvóta
Guðmundur segir að með hliðsjón
af veiðinni í vetur sé ekki ástæða til
annars en vera bjartsýnn á nánustu
framtíð.
„Mér líst vel á framhaldið en þessi
endalausi kvótaniðurskurður fer
mest með okkur,“ segir hann. „Það
voru 500 þorskígildistonn á bátnum
fyrir rúmlega tveimur árum en eru
350 núna. Það munar um minna. Það
hefur frekar verið vandamál að fá
kvóta en veiða hann.“
Hærri þjónustugjöld
Allur afli Reykjaborgarinnar fer á
markað og er Guðmundur ekki sátt-
ur við gang mála á þeim vettvangi.
„Eftir að Suðurnesjamarkaður
keypti Faxamarkað er bara einn
markaður en um leið og þetta gerðist
hækkuðu þjónustugjöldin,“ segir
hann. „Það er fullmikil einokun á
þessu sviði og ég held að svona ein-
okun hefði einhvern tíma verið kærð
til Samkeppnisstofnunar.“
Góð þorskveiði
út af Faxaflóa
Góð þorskveiði hefur verið út af Faxaflóa að
undanförnu og í því sambandi má nefna að
Reykjaborg RE hefur landað sex til tíu
tonnum að meðaltali á dag í mars. Steinþór
Guðbjartsson ræddi við Guðmund S. Hall-
dórsson skipstjóra um aflabrögðin.
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Góð þorskveiði hefur verið út af Reykjanesi að undanförnu og hefur á Reykjaborg verið milli 6 og 10 tonn á dag.
Aðstaða til að gera að er allt önnur og betri í Reykjaborg RE eftir breytingar, en skipið var meðal annars lengt
og byggt yfir aðgerðaraðstöðuna. Hér má sjá Björn Viðar Björnsson vélstjóra og Svein Finnbogason, sjötugan
netamann, í aðgerð en til hægri sést í bakið á Ragnari Waage Pálssyni stýrimanni.
Guðmundur S. Halldórsson skipstjóri, til vinstri, og Björn Viðar Björnsson vélstjóri til hægri.