Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 41
hausen. Endurminningar Rudolf
Höss, Kommandant in Auschwitz,
sem var búðastjóri í Auschwitz, eru
ein magnaðasta lýsingin á útrým-
ingunni þar.
Páll Björnsson, sagnfræðingur hjá
Hugvísindastofnun Háskólans.
Eru hæð bygginga einhver
takmörk sett ef nóg fjár-
magn er fyrir hendi?
SVAR: Skýjakljúfarnir á Man-
hattaneyju í New York hafa löngum
vakið athygli og aðdáun manna.
Empire State byggingin þótti á sín-
um tíma eitt af furðuverkum ver-
aldar (byggingarár 1931). Var hún í
40 ár hæsta bygging heims (380 m)
eða þar til hafnarstjórnin í New
York lét reisa tvíburaturnbygging-
arnar við höfnina (World Trade
Center), en hærri turninn er 417 m.
Turnarnir í New York voru þó ekki
lengi hæstu byggingar heims því
nokkrum árum síðar (1974) lauk
smíði Sears Roebuck-skýjakljúfsins
í Chicago, sem skagar 442 metra
upp í loftið. Það er tilkomumikil
sjón að standa í útsýnisherberginu
á 110. hæð og horfa ofan á skýja-
bakkana, sem eru að læðast inn frá
Michiganvatninu, langt fyrir neðan.
Undir lok síðustu aldar stálu Malas-
íumenn „glæpnum“ frá Bandaríkja-
mönnum, en Petronas-turnbygg-
ingarnar í Kuala Lumpur teljast nú
hæstu byggingar heims. Smíði
turnanna lauk árið 1998, og er hæð
þeirra 452 metrar.
Það er þó dálítið erfitt að átta sig
á mismun hæðar Sears-bygging-
arinnar og Petronas-turnanna ef
þeim er stillt upp hlið við hlið. Se-
ars-byggingin virðist hærri, enda er
hæsta nýtta íbúðarhæð hennar 60
metrum hærri en hæsta íbúðarhæð
Petronas-turnanna. Samkvæmt
ákvörðun alþjóðlegra samtaka um
háar byggingar (Council on Tall
Buildings and Urban Habitat) ber
að skilgreina hæð bygginga sem
hæð byggingarvirkisins (I), hæstu
nýtta íbúðarhæð (II) og hæð á þaki
(III). Petronas-turnarnir hafa í
raun aðeins vinninginn samkvæmt
flokki I, en Sears-byggingin hefur
vinninginn í flokkum II og III.
World Trade Center turnarnir í
New York myndu hins vegar hafa
vinninginn ef loftnetsmöstur væru
talin með, en það er ekki heimilt
samkvæmt skilgreiningu alþjóða-
samtakanna um háar byggingar.
En eru þá engin takmörk fyrir
því hversu háar byggingar er hægt
að byggja? Í rauninni eru ekki sér-
stakar tæknilegar hindranir fyrir
því að byggja nokkurra kílómetra
háar byggingar. Hvað burðarþol
varðar má hugsa sér byggingu, sem
er eins og fjall, það er mjög breið að
neðan, og hefði þannig mikinn stöð-
ugleika. Stöðugleikinn getur þó orð-
ið vandamál efst í byggingunni.
Þannig tekur það World Trade
Center-turnana átta sekúndur að
sveiflast fram og til baka í miklum
vindi. Við slíkar aðstæður er hætta
á, að íbúarnir verði sjóveikir. Þess
vegna þurfti að koma fyrir mjög
flóknu og dýru höggdeyfarakerfi í
turnunum til að fyrirbyggja of mikl-
ar og hraðar sveiflur. Notkun stáls
og annarra léttra málma auðveldar
vissulega gerð burðarvirkisins, en
engu að síður verður mikil sam-
þjöppun súlna neðst í byggingunni
töluvert vandamál.
Það sem fælir menn ef til vill mest
frá því að byggja mjög háar bygg-
ingar er mikill kostnaður við öll
þjónustukerfi. Þannig þarf meðal
annars að tryggja nægan vatns-
þrýsting á efstu hæðum. Þó væri
svo sem hægt að dæla vatni upp í
stóra vatnsgeyma með til dæmis 50
hæða millibili. Þá yrði sömuleiðis
frárennsli frá slíkri byggingu erfitt
tæknilegt vandamál. Ekki gengi að
sturta niður úr klósettinu á 500.
hæð og láta frárennslið falla beint
til jarðar. Lyftur yrðu að vera mjög
hraðvirkar. Með núverandi tækni
myndi það jafnvel taka allt að
klukkutíma að ferðast frá neðstu
hæð og upp á 500. hæð. Ein bygging
með slíkri hæð er í raun ekki bygg-
ing, heldur lóðrétt borg. Íbúar
hennar gætu orðið fleiri hundruð
þúsund og myndu þurfa jafnviða-
mikil þjónustu- og samgöngukerfi
og allir Íslendingar.
Bandaríski arkitektinn Eugene
Tsai í San Francisco hefur hannað
eina slíka byggingu, sem hann kall-
ar hinn endanlega turn (Ultima
Tower). Hann gerir ráð fyrir að hún
verði yfir þrír kílómetrar á hæð og
yfir milljón íbúar lifi og hrærist á
samtals 140 milljón fermetrum
byggingarinnar. Dr. Tsai bendir á
að slík bygging geti orðið til þess að
stöðva útþenslu borga og þannig
varðveita opin svæði og frjálsa nátt-
úru. Margir verkfræðingar eru
sammála dr. Tsai og telja, að slík
bygging sé alls ekki tæknilega
ómöguleg. Hins vegar hefur enginn
fengist til að ráðast í slíka fram-
kvæmd enn sem komið er. Eins og
ávallt eru það fjármunirnir, sem
ráða ferðinni. Þannig fyrirhugaði
Obayashi-byggingarfyrirtækið í
Japan að byggja 170 hæða bygg-
ingu við Tókýó-flóann um 1990.
Hrun á fasteignamarkaðnum þar í
landi undir lok níunda áratugarins
gerði út af við þau áform. Í dag eru
aðeins til 25 byggingar í öllum
heiminum, sem teljast „háar“ bygg-
ingar, það er yfir 300 metrar á hæð.
Örugglega verða byggðar margar
hærri byggingar á 21. öldinni.
Nokkrar slíkar eru þegar fyrirhug-
aðar, meðal annars 300 hæða Bion-
ic-turninn í Hong Kong, sem verður
um 1.230 metra hár. Sú ástríða ein-
staklinga og þjóða að vera „mestur
og bestur“ verður drifkrafturinn
eins og endranær. Til þess þarf þó
að þróa nýja og betri lyftutækni,
léttari og sterkari byggingarefni og
fullkomnari þjónustukerfi og síðan
finna einhvern sem er fús til að
greiða kostnaðinn, sem verður
stjarnfræðilegur.
Júlíus Sólnes, prófessor í byggingar-
verkfræði við Háskóla Íslands.
það sem sagt er eða viljum ekki
kannast við sannleikann sem við
blasir. Þetta gerir drauminn að því
máttlausa og bitlausa tæki sem hann
er flestum en samt eru allir forvitnir
um eigin hag og drauma sína. Tákn-
fræði draumsins er í grunninn ein-
föld og því ættu allir að vera í stakk
búnir að byggja þennan grunn í
þann vita sem lýsir upp draumana.
Þessir tveir draumar hafa sama
grunn sem er tilfinningalegs eðlis.
Fyrri draumurinn lýsir ferli þriggja
ára (fuglarnir þrír) þar sem tilfinn-
ingar þínar hafa stig af stigi (rjúpan,
stokköndin og skógarþrösturinn –
hugsaðu um hvað þessir fuglar
standa fyrir) flosnað upp og frosið. Á
seinni stigum málsins reynir þú að
sporna við og breyta ferlinu (ferð
með fuglana á hans bíl í bílskúrinn
og lætur slag standa) því þínar til-
finningar eru ekta og þú vilt ekki
kasta þeim á glæ.
Seinni draumurinn er svo mynd af
deginum í dag þar sem þú virðist í
raun búin að afsala (vatnið um allt)
þér öllu (kröfum, vilja, sjálfstæði) í
von um betrun og bata.
Þeir lesendur sem vilja fá drauma sína birta
og ráðna sendi þá með fullu nafni, fæðingar-
degi og ári ásamt heimilisfangi og dulnefni
til birtingar til:
Draumstafir
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is.