Morgunblaðið - 24.03.2001, Qupperneq 52
MINNINGAR
52 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hniginn er til feðra
sinna sveitarhöfðing-
inn Jón Ólafsson í
Geldingaholti.
Ég varð þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast þess-
um öðlingi íslenskrar bændamenn-
ingar og eiga að vini um rúmlega
tveggja áratuga skeið. Mér og
ábyggilega mörgum fleirum finnst
það kannske mestur ávinningur að
eignast ljúfar minningar um þá
menn sem auðgað geta og létt líf
hversdagsleikans. Já meira en
hversdagsleikann. Jón var mikill
aufúsugestur á öllum mannfundum
og lyfti samferðafólkinu með glað-
værð, hispursleysi og glæsilegri
framkomu, hvort sem var heima
eða heiman. Hann var einlægur
talsmaður íslenskrar bændamenn-
ingar og góður fulltrúi hennar hvar
sem hann kom að störfum.
Þau hjón Jón og Margrét ráku
um hálfrar aldar skeið mikið
rausnarheimili, og var gestrisni og
alúðlegur heimilisbragur þar
þekktur langt út fyrir héruð Suð-
urlands.
Því miður komst ég ekki í rétt-
irnar í nágrenni þeirra á haustin,
en margar sögur hef ég heyrt af
hangikjötsveislum þeim, sem öllum
réttargestum stóðu til boða. Þar
var hvorki á borðum tros né
hænsnakjöt. Jón fylgdi Sjálfstæð-
isflokknum að málum sem alkunna
er, en engan þekkti ég meiri
félagshyggjumann, þegar fram-
farahugsjónin var annars vegar,
enda veit ég vart um þann félags-
JÓN
ÓLAFSSON
✝ Jón Ólafssonfæddist í Eystra-
Geldingaholti í
Gnúpverjahreppi 15.
október 1920. Hann
lést á hjartadeild
Landspítalans 8.
mars síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Skálholtskirkju
17. mars.
skap sem til menning-
ar og framfara horfði,
sem Jón lét sig ekki
varða á Suðurlandi,
hvort sem var starf
ungmennafélags, leik-
félags, búfjárræktar-
félags, afurðasölu-
félags, fjallaferða og
margt fleira sem ég
hef ekki nægan kunn-
ugleika til að nefna.
Öll þessi áhugamál
spegluðust í starfi
hans á Búnaðarþingi,
en þar störfuðum við
saman um alllangt
árabil, og náðum vel saman, enda
báðir mannblendnir og áttum gott
með að umgangast fólk, sem ég
held að við höfum báðir talið væn-
legast til árangurs, þegar á reynir.
Aðrir hafa lýst menningarheim-
ilinu í Geldingaholti, og áttum við
hjón þar margar ánægjustundir,
eins og margir fleiri. Þar segja
kannske mest umsagnir hinna
mörgu unglinga sem þar dvöldu
um lengri eða skemmri tíma og
urðu síðan nýtir þegnar þessa
þjóðfélags bæði í prestastétt og að
ógleymdum okkar ástsæla þjóð-
höfðingja, frú Vigdísi.
Þau hjón Jón og Margrét eiga
fimm mannvænleg börn sem efa-
laust munu halda uppi reisn heim-
ilisins í Geldingaholti. Og enga veit
ég samheldnari fjölskyldu, og þar
mun Margrét vonandi standa enn
um sinn, þótt Jón, sem allir litu til
sem hæstráðanda, hafi nú kvatt.
Við hjónin vottum þér, Margrét
mín, og börnunum okkar dýpstu
samúð og þökkum vináttuna. Minn-
ingin um góðan dreng lifir, þótt hin
óhjákvæmilegu vistaskipti hafi orð-
ið sem enginn fær umflúið.
Sigurjón Friðriksson.
Er ég frétti að Jón í Geldinga-
holti væri látinn varð mér brugðið.
Mig langar með fáum og fátæk-
legum orðum að minnast hans. Frá
því ég man eftir mér var hann allt-
af kallaður Jón í Geldingaholti. Það
var alltaf mikill samgangur og
kunningsskapur á milli fjölskyld-
unnar í Geldingaholti og föðurhúsa
minna sem var Stóra Hof enda
liggja jarðirnar saman að hluta til
úti á Skammbeinsstöðum. Það var
og er alltaf gaman að koma að
Geldingaholti, en þangað kom ég
oft með móður minni heitinni er ég
var lítil stelpa, að heimsækja Pá-
línu, móður Jóns. Mér þótti klein-
urnar hennar svo góðar, ég man
líka eftir að pabbi sendi mig þang-
að á traktornum með nýju kart-
öfluniðursetningarvélina, sem
pabbi var nýbúinn að kaupa, og er
ég var búin að ljúka verkinu var
mér boðið upp á mjólk og kleinur,
ég var nú ekki gömul þá, kannski
10 eða 12 ára. Það hefur alla tíð
ríkt gestrisni í Geldingaholti og
alltaf verið margmenni þar og glatt
á hjalla, eins og einnig var hjá for-
eldrum mínum, kannski hefur það
sameinað vináttu og kunningsskap
með þessum tveim bæjum, því þær
stöllurnar höfðu margt að spjalla
um eftir helgarnar. En haustið
1992 flutti ég sumarbústað minn í
sveitina okkar Jóns og setti hann
niður á blett á fæðingarstað mín-
um, rétt fyrir neðan Geldingaholt.
Viti menn, Jón var fyrstur manna
að koma til mín er hann sá að allt í
einu var eitthvað að ske og bauð
mig hjartanlega velkomna í sveit-
ina mína aftur. Jón og Óli sonur
hans vildu allt fyrir mig gera, og
var það Jóni að þakka hve fljótt ég
fékk veg inn á lóðina mína. Eftir
þetta urðu Jón og fjölskylda mér
tryggir vinir. Hann lagði leið sína
oft til mín, jafnt vetur sem sumar
kom hann hress og glaðlegur að
vanda, síðast kom hann mánuði áð-
ur en hann dó, ekki hugkvæmdist
mér að þetta væri hans síðasta
heimsókn, hann sat hjá mér í þrjá
tíma og vorum við sammála um að
hann myndi hressast með hækk-
andi sól, við spjölluðum um lífið og
tilveruna, hann tók oft hressilega
til orða með bros á vör. Við Jón
vorum ekki á sömu braut í pólitík,
samt vorum við alltaf sammála í
einu og öllu sem þyrfti að laga og
breyta í þjóðfélaginu, hann hafði
gaman af því er ég sagði að Fram-
sókn væri ekki til lengur, það væri
öðruvísi nú en áður var. Þótt Jón
fylgdi Sjálfstæðisflokknum var
hann samt mikill framsóknarmaður
í tali og hugsun núna seinni árin,
honum fannst allt vera fara niður á
við hjá þessum háu herrum í
Reykjavík. Það gladdi alltaf hjarta
mitt er ég sá Jón koma í heimsókn
í bústaðinn, því hann var alltaf svo
glaðlegur, við gátum alltaf hlegið
þótt hann talaði blátt áfram um
þetta og hitt, því fallega brosið
fylgdi alltaf með, þá brosti ég líka.
Það er guðsgjöf að geta hlegið og
grátið. Ég hugsa til þess með sökn-
uði að þessi höfðingi komi ekki
framar til mín en ég veit samt að
hann kemur, bara með öðrum
hætti.
Ég vil þakka Jóni fyrir allar
heimsóknirnar í Hofslund, ég vona
að Guð gefi að sú tryggð sem verið
hefur milli mín og fjölskyldunnar í
Geldingaholti haldi áfram sem
hingað til, þótt Jón sé horfinn af
lífsins braut. Hann er tekinn við
öðru starfi æðra og meira hjá Guði.
Ég sendi Margréti og fjölskyldu
mínar innilegustu samúðarkveðjur
með þakklæti fyrir allt.
Sólrún Guðjónsdóttir.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
0 #"" # !
$
""
%
""
%$) % #70 0
/8?
( ,
1
2 ""
3
$ > % 5%(
3+ %
+
9
9 %/% @+.@
1 1:
&"
""
$% !#$
%%
2 1 AB
&(* -(
*
"#
3""
$
$
%
4 5" 1
#""
!
> $$ ( 01 %$ (
3&$ (> %
%/%
0 #"" # $
""
%
%
" ""25
5
2>
%
2 CC
, -
+
/ *
* 1*: 6
# 66*
0 #""
$
%
%
$% %
%%
&--:1
*
6 ((
DD
&(* -(
3""
" "
!%"
5"
(
" 2
% 2
$ (
/! #""
$
%
%
""
0
2 !%6#
%
2 -(
%( 1 A
%*
6
86*:
6 =1: 1 1:
%
6* #+ 1:
6*:$ ( 4+ 1:
$: '
6" 5 ""
5 $% %4#>
%"$44 %( :EB
" 7 / /
#2)
%
3%
> )
2 # $
* )
1 1: 1 1 1:
6" " <#$2
%"$44 &* 1 (( C
7
85 ""
.4 ;
%4#>
%"$44 : +
?
6
'?F1
&(* -(
> #
/ #
*##
*: (& 5
/! #"" # $
""
%
% "
""
25
$)%3 %4
%%
2
+ ?BG
-(
#+