Morgunblaðið - 24.03.2001, Qupperneq 53
Bílgreinasambandið
Aðalfundur BGS verður haldinn á
Hótel Loftleiðum
laugardaginn 24. mars
Kl. 10:00-12:00 Kaffi að Gylfaflöt 19 (opið hús)
Kl. 13:00-14:45 Sérgreinafundir - Hótel Loftleiðum -
Þingsölum
Verkstæðafundur
Staðaltímar - Notkun - rekstrarumhverfi
FMB - Nýtt húsnæði - Meistaranám
Nýr kennslubúnaður fyrir rafkerfi
bifreiða
Bílamálarar og bifreiðasmiðir
Námskeið í Cabas tjónamatskerfi
a) Tjónamat
b) Málning í Cabas-kerfinu
FMB - Nýtt húsnæði - Meistaranám
Gæðaátak - Vottun á réttingarverkstæðum -
kröfur - eftirlit - kynning
Bifreiðainnflytjendur
Horfur í bílainnflutningi - Jafnvægi - Sveiflur
Verðskrá notaðra bíla - Vefviðmót
Skráningargjöld bifreiða - Olíugjald
Námskeið - Meistaranám
Smurstöðvar
FMB - Nýtt húsnæði - Námskeið - Menntun
Gæðaátak á smurstöðvum.
a) Gæðakröfur olíufélaganna til
þjónustuaðila
b) Endurskoðum
Nýjungar og þróun í efnum og tækjum
Varahlutasalar
FMB - Nýtt húsnæði - Tæki - Kynningar
Námskeið - Meistaranám
Reynsla af fyrri námskeiðum
Kl. 15:00 - 16:00 Aðalfundur - Þingsal 1
Fundarsetning: Bogi Pálsson, formaður BGS
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Kl. 16:00 - 17:00 30 ára afmælisfundur - Þingsal 1
1. Ávarp
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra
2. Þróun í starfi BGS í 30 ár.
Jónas Þór Steinarsson, framkvæmdastj.
3. Staða neytenda í dag
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastj.
4. Kennsla - meistaranám - Tækninýjungar
Snorri Konráðsson, framkvæmdastj.
5. Opnun vefsíðu BGS
Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra
Kl. 17:00 - 19:00 Móttaka í tilefni 30 ára afmælis BGS -
Blómasal
UM þessar mundir sitja allir
sterkustu skákmenn heims að tafli,
en á tveimur mismunandi skákmót-
um, þótt fjarlægðin á milli mótsstað-
anna sé einungis um 50 kílómetrar.
Amber-skákmótið í Mónakó er nú
haldið í tíunda skipti. Þetta skákmót
hefur alla tíð þótt skemmtilegt og
hefur þá sérstöðu, að þar eigast
sterkustu skákmenn heims við í
blindskák, auk þess sem þeir mætast
í atskákum. Það hefur löngum vakið
athygli þegar skákmenn hafa teflt
blindskák, enda þarf mikla hæfileika
og einbeitingu til að geta teflt heil-
steyptar skákir í huganum. Sumir
meistarar hafa reyndar teflt fjöltefli
á þennan hátt og frægt er Íslands-
met sem Helgi Ólafsson setti á Eið-
um 1977 þegar hann tefldi blindandi
við tíu andstæðinga samtímis, en
Dan Hansson heitinn vann sama af-
rek tuttugu árum síðar.
Í eftirfarandi skák, sem tefld var á
Amber-skákmótinu, kemur upp
þekkt afbrigði af drottningarbragði.
Keppendur fara troðnar slóðir fram í
20. leik, en þá hristir Topalov fram úr
erminni sterka nýjung. Skákin er vel
tefld og ekki er hægt að ráða af henni
að um blindskák sé að ræða.
Hvítt: Veselin Topalov (2718)
Svart: Vladimir Kramnik (2772)
Drottningarbragð [D37]
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3
Be7 5. Bf4 0–0 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5
8. a3 Rc6 9. Dc2 Da5 10. Rd2 Aðrir
algengir leikir eru 10. 0–0–0 og 10.
Hd1 10. . . Bb4 Annar möguleiki er
10… Be7 11. cxd5 exd5 12. Bd3 d4
13. 0–0 Bxc3 14. Rc4 Dh5 15. bxc3
Rd5
Þessi leikur kom fyrst fram í skák-
inni Tukmakov-Lputjan í Tilburg
1994 og þótti leysa öll vandamál
svarts, en ekki eru öll kurl komin til
grafar! Annar möguleiki er 15…
dxe3 16. Rxe3 og hvítur hefur örlítið
frumkvæði vegna biskupaparsins 16.
Bg3 dxe3 17. Hae1 Be6 Enginn hef-
ur verið svo kræfur að þora að drepa
á f2, enda fengi hvítur góð sóknar-
færi eftir 17… exf2+ 18. Hxf2 18.
fxe3 Had8 19. Rd6 Re5
20. Bxh7+! Nýr leikur í stöðunni.
Í skákinni milli þeirra Tukmakov og
Lputjan var framhaldið 20. Bf5 og
eftir 20… Hxd6 21. Bxe5 Hdd8 var
staðan í jafnvægi; 20. Rxb7 Rxd3 21.
Dxd3 Hd7 22. Rd6 (ekki 22. Rc5 Rf4
23. Db5 Rd3 og hvítur tapar manni)
22… Rb6 23. Hf4 Dc5 og svartur stóð
síst lakar Korchnoi-Lutz, Zürich
1999 20… Dxh7 21. Dxh7+ Kxh7 22.
Bxe5 f6 23. e4! Þetta datt engum í
hug! 23… Rb6 Kramnik reynir að
skapa sér mótspil. Eftir 23… fxe5 24.
Hxf8 Hxf8 25. exd5 Bxd5 26. Hxe5
væri hvítur sælu peði yfir 24. Bg3
Ra4 25. e5 f5 26. Bh4 Hd7 27. He3 f4
28. Hef3 Bd5 29. Hh3 Be6
30. Be7+! Bxh3 31. Bxf8 Be6 32.
Re4! Kg8
Sjá stöðumynd 4.
33. Rg5 Kxf8 34. Rxe6+ Ke7 35.
Rxf4
Sjá stöðumynd 5.
Eftir nákvæma og kraftmikla tafl-
mennsku hefur Topalov tryggt sér
unnið tafl 35… Hd2 Ekki 35… Rxc3
36. Rg6+ Kd8 37. e6 og vinnur 36.
Hf3 Rc5 37. h4 Re6 38. Kh2 Ha2 39.
Rxe6 Kxe6 40. Hg3 Kf7 41. e6+
Kxe6 42. Hxg7 Hxa3 43. Hxb7 Kf5
44. Hb5+ Kg4 45. Hb4+ Kh5 46. g3
Ha1 47. Kh3 a5 48. g4+ Kh6 49.
Hb6+ Kg7 50. h5 a4 51. Ha6 a3 52.
Kh4 a2 53. Kg5 Kh7 54. Ha7+ Kg8
55. Kg6 Kf8 56. g5 1–0
Að loknum fimm umferðum á Am-
ber-mótinu er samanlögð staða úr
atskák- og blindskákmótinu þessi:
1–3 Anand, Kramnik og Topalov 7
v., 4 Leko 6 v., 5 Piket 5 v., 6–9 Ljub-
ojevic, Gelfand, Karpov og Shirov 4½
v., 10–11 Almasi og Ivanchuk 3½ v.,
12 Van Wely 3 v.
Kasparov og Adams
sigurvegarar í Cannes
Garry Kasparov og Michael
Adams sigruðu í átta manna riðlum á
heimsbikarmótinu í atskák sem nú
stendur yfir í Cannes í Frakklandi.
Úr A-riðli komust þau Kasparov,
Bareev, Grischuk og Judit Polgar
áfram í átta manna úrslit. Judit Polg-
ar var jöfn þeim Svidler og Lautier
að vinningum, en sigraði þá í úrslita-
keppni um fjórða sætið. Úr B-riðli
fengu þeir Adams, Gurevich, Bacrot
og Thakhiev réttinn til að tefla í átta
manna úrslitum. Úrslit í A-riðli:
1. Kasparov 5½ v., 2. Grischuk 4 v.,
3. Bareev 4 v., 4.–6. Lautier, Svidler,
Judit Polgar 3½ v., 7. Gulko 3 v., 8.
Bauer 1 v.
Í B-riðli urðu úrslit þessi:
1.–2. Adams. Gurevich 5 v., 3.–4.
Bacrot, Tkachiev 4½ v., 5. Ka-
simdzhanov 4 v., 6.–7. Hamdouchi,
Morozevich 2 v., 8. Ye 1 v.
Hagaskóli Íslandsmeistari
grunnskóla
Hagaskóli sigraði á Íslandsmóti
grunnskólasveita sem fram fór um
síðustu helgi. Röð efstu sveita varð
þessi:
1. Hagaskóli 29 v. af 36, 2. Þing-
hólsskóli A-sveit 27 v., 3. Réttar-
holtsskóli 26½ v., 4. Rimaskóli A-
sveit 24 v., 5. Ártúnsskóli 20½ v., 6.
Melaskóli A-sveit 19 v., 7.–8. Engja-
skóli, Hlíðaskóli 18 v., 9.–12. Digra-
nesskóli, Varmárskóli, Lundarskóli,
Ölduselsskóli 17 v., 13. Laugarnes-
skóli 16½ v., 14. Rimaskóli 16 v., 15.
Barnask. á Eyrarb. og Stokks. 15½
v., 16. Þinghólsskóli B-sveit 13 v.,
17.–19. Álftanesskóli, Vogaskóli,
Korpuskóli 12½ v., 20. Melaskóli B-
sveit 11½ v.
Bestum árangri á 1. borði náðu
Dagur Arngrímsson Hagaskóla og
Guðmundur Kjartansson Ártúns-
skóla með 8½ v. af 9. Bestum árangri
á 2. borði náði Grímur Daníelsson úr
Réttarholtsskóla með 8½ v. af 9.
VN-mótaröðin
Seinna úrtökumótið í VN-móta-
röðinni verður haldið á Grandrokk
laugardaginn 24. mars, og þá er
keppt um átta sæti í úrslitakeppninni
31. mars, en verðlaunin þar nema
alls 130 þúsund VN-krónum. Hrafn
Jökulsson annast skráningu á mótið.
Sími hans er 897 1609 og tölvupóst-
fang hrafnj@yahoo. com.
Íslandsmót stúlkna
Íslandsmót stúlkna (grunnskóla-
mót) fyrir árið 2001 verður haldið
sunnudaginn 25. mars í húsnæði
Skáksambands Íslands, Faxafeni 12,
Reykjavík. Mótið hefst kl. 13:00 og
verða tefldar 10 mínútna skákir.
Keppt verður í tveimur aldursflokk-
um, 12 ára og eldri og 11 ára og
yngri. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin í hvorum flokki. Skrán-
ing er á mótsstað.
Skákmót á næstunni
25. 3. SÍ. Íslandsmót stúlkna
25. 3. SA. Parakeppni
26. 3. Hraðskákmót Hellis
29. 3. Hraðskákmót Kópavogs
30. 3. Skákþing Norðlendinga
Hraðskákmót Hellis
Hraðskákmót Hellis fer fram
mánudaginn 26. mars og hefst kl.
20:00. Tefldar verða 5 mínútna skák-
ir, 7*2 umferðir eftir Monrad-kerfi.
Góð verðlaun eru í mótinu, en heild-
arverðlaun eru kr. 10.000 sem
skiptast sem hér segir: 1. verðlaun
kr. 5.000, 2. verðlaun kr. 3.000 og 3.
verðlaun kr. 2.000.
Teflt verður í Hellisheimilinu,
Þönglabakka 1 í Mjódd. Þátttöku-
gjald er kr. 300 fyrir félagsmenn en
kr. 500 fyrir aðra. Fyrir 15 ára og
yngri er gjaldið kr. 200 fyrir félags-
menn en kr. 300 fyrir aðra.
Mótið er öllum opið.
Rennt blint í sjóinn
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Stöðumynd 1
Stöðumynd 2
Stöðumynd 3
Stöðumynd 4 Stöðumynd 5
SKÁK
M ó n a k ó
17.–29.3. 2001.
10. AMBER-SKÁKMÓTIÐ
INNLENT
MIÐJUHÓPUR Norðurlandaráðs
efnir til ráðstefnu um málefni Vest-
ur-Norðurlanda mánudaginn 26.
mars kl. 9-15 á Radisson SAS Hótel
Sögu, fyrirlestrasal á 2. hæð.
Ernest Olsen, framkvæmdastjóri
Vest-Norden flytur stutta fyrirlestra
um færeyska pólitík og starfsemi
Vestur-Norðurlanda, Íslands, Fær-
eyja og Grænlands. Benedikta Thor-
steinsson, fyrrverandi félagsmála-
ráðherra Grænlands, fjallar um
grænlensk stjórnmál, Hjálmar
Árnason og Árni Johnsen, alþingis-
menn, fjalla um framtíð vest-nor-
ræns samstarfs og Þorgerður Ragn-
arsdóttir, framkvæmdastjóri
Vímuefnaráðs, fjallar um rannsóknir
á vímuefnaneyslu í eyjasamfélögun-
um, Íslandi, Færeyjum, Grænlandi
og Álandseyjum.
Rætt um mál-
efni V-Norð-
urlanda
BRUNATÆKNIFÉLAG Íslands
heldur hið árlega Brunavarnar-
þing á Grand Hótel þriðjudaginn
27. mars í ráðstefnusal hótelsins,
Gullteig, frá kl 9 til 16.
Meginþema þingsins snýst um
„Hættur í samfélaginu“, viðbrögð
og forvarnir þegar almannavarna-
ástand, s.s. stórbrunar, jarð-
skjálftar og snjóflóð. Efnistök fyr-
irlesara byggja á reynslu atburða.
Þá verður fjallað um þróun og að-
ferðir við brunatæknilega hönnun
í Skandinavíu.
Samhliða þinginu verður ýmiss
búnaður í eigu einka- og opin-
berra aðila til sýnis í forsal Gull-
teigs. Sýningin er öllum opin að
kostnaðarlausu og eru allir sem
áhuga hafa á málefninu hvattir til
að mæta og kynna sér sýninguna,
segir í fréttatilkynningu.
Fjölmargir fyrirlesarar verða á
þinginu, bæði innlendir og erlend-
ir.
Í framhaldi af þinginu verður
aðalfundur félagsins haldinn á
fjórðu hæð hótelsins, í Háteig.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
mun forseti alþjóðasamtaka IFE,
John H. Herrick, fjalla um máefni
IFE og svara fyrirspurnum.
Félagsmenn eru hvattir til að
mæta.
Léttar veitingar verða að lokn-
um aðalfundi.
Brunavarnarþing
fjallar um hættur
í samfélaginu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 53