Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 54

Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 54
UMRÆÐAN 54 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ EINS og alþjóð veit þá er rík- isstjórnin um þessar mundir óvenjulega illa haldin af einkavæð- ingarsýkinni og hefur hún þó oft verið plöguð af þeirri pest. Nú er svo illa komið að ýmsir þingmenn, og jafnvel ráðherrar Framsóknar, „hafa af þessu þungar áhyggjur“. Þeir hafa að vísu verið svínbeygðir í hverju einkavæðingar- og sameiningarbröltinu á fætur öðru en allt til þess að þeir hafa mátt beygja sig í duftið hafa þeir þó haft áhyggjur. Ekki er ástæða til þess að vanþakka slíkt. Nýjasta birtingarform áður- nefndrar pestar er einkafram- kvæmd grunnskóla í Hafnarfirði. Sú furðuhugmynd virðist sjálfstæð- ismönnum þeim mun glæsilegri framtíðarsýn sem hún er framsókn- armönnum meira áhyggjuefni en fari að venju munu þeir af sér varpa áhyggjum á hentugu augna- bliki. Þeir sem eru svo vel settir að teljast til hvorugs þessara hópa eru flestir fyrst og fremst furðu slegnir. Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, hefur nú formlega sótt til menntamálaráðherra um undanþágu samkvæmt 53. grein grunnskólalaga til þess að bjóða út kennsluþáttinn í fyrirhuguðum grunnskóla í Áslandi. Umrædd grein grunnskólalaga lýtur að því að menntamálaráðherra geti veitt sveitarstjórnum eða einkaskólum heimild til þess að reka tilrauna- skóla eða að gera tilraunir með ein- hverja þætti skólastarfs. Slíkar undanþágur geti t.d. varðað nám, starfstíma skóla, kennslutilhögun, stundafjölda, o.s.frv. enda brjóti undanþágan ekki í bága við þau al- mennu ákvæði um hlutverk grunn- skóla sem finna má í annarri grein grunnskólalaga. Enn fremur segir í áðurnefndri 53. grein að slíkum til- raunum skuli ávallt sett eðlileg tímamörk og kveðið á um úttekt að tilrauninni lokinni. Menntamálaráðherrann brást ekki Að sjálfsögðu brást menntamála- ráðherra ekki bæjarstjóranum en gaf vilyrði fyrir áðurnefndri und- anþágu þegar endanleg tilhögun verkefnisins lægi fyrir. Hann setti að vísu í svarbréfi sínu fram all- mörg skilyrði fyrir því að veita umrædda undanþágu og þá helst að útboðsgögn yrðu í samræmi við grunn- skólalög og lög um réttindi og skyldur grunnskólakennara en í þeim lögum er m.a. tekið fram að starfs- menn (kennarar og skólastjórnendur) taki laun skv. kjarasamn- ingi Kennarasam- bands Íslands og Launanefndar sveitar- félaga. M.ö.o.: Ekki er hægt að víkja frá um- ræddum launasamn- ingi starfsmönnum í óhag. Nú er það svo að meirihluti laun- þega álítur þessa hugmynd vafa- sama. Sú skoðun hefur m.a. komið fram í ályktunum sem bæði A.S.Í. og B.S.R.B. hafa sent frá sér. Mér er enn fremur fullkunnugt um að langur vegur er frá því að foreldrar í Hafnarfirði séu einhuga um þessa fyrirætlan meirihlutans þar. Eftir hverju er verið að slægjast? Það fer því ekki hjá því að þegar lagt er inn á svo vafasama braut þá spyrji fólk um ávinninginn. Hann hljóti að vera umtalsverður. En sé þannig spurt verður kynlega fátt um svör. Jafnvel kjaftagleiðustu fylgismönnum vefst tunga um tönn og tala hikandi um að verið sé að leita með þessum hætti að víðsýnni, fjölbreyttari og sveigjanlegri skóla- stefnu. Nú er það svo að þótt eftirspurn eftir þvílíku fágæti sem nýrri og ár- angursríkri skólastefnu sé líklega töluvert meiri en framboðið eins og endranær þá held ég að flestir þeir sem komið hafa að kennslumálum geri sér grein fyrir því að framfarir í skólamálum hafa gegnum tíðina orðið fyrir atbeina hæfra kennara og skólastjórnenda en ekki sérstaklega vegna rekstrarformsins. Þótt nefna mætti fjölmargt þeirri fullyrðingu til sönnunar ætla ég að láta nægja að minna á Hjallastefnuna í leik- skólakennslu sem mun vera, eftir því sem ég best veit, eina íslenska stefnan í uppeldismál- um sem vakið hefur athygli erlendis jafnt sem hérlendis. Því nefni ég þessa stefnu að hún varð til í Hafn- arfirði þegar bæjaryfirvöld voru svo heppin að ráða til starfa framúr- skarandi skólastjóra. Sú ráðning mun hafa verið án atbeina verk- taka. Einhvern veginn læðist að mér sá grunur að aðdáendur þessa hug- arfósturs meirihlutans í Hafnarfirði ætli sér ýmsan annan ávinning en framsækna skólastefnu. Í fremur torskildri grein eftir Þröst Harð- arson, sem er foreldri í Hafnarfirði, sýnist mér að hann ætlist til þess að útboð á kennslu geti brotið niður kjarasamninga kennara og tryggt dagvist barna í skólum meginhluta sumars. Ég sé ekki betur en að hann líti á þetta fyrirkomulag sem baráttutæki foreldra gegn lötum kennurum. Þar fór lítið fyrir mark- vissri skólastefnu. Hinn 20. mars las ég grein eftir Guðmund Guðjónsson í Mbl. Guð- mundur var afar hneykslaður á andstöðu launþega við þá hugmynd að bjóða út kennsluþátt grunnskóla. Ekki var þó annað á grein hans að græða en útlistun á þeirri hugmynd að kennarar öðluðust aukna fag- mennsku í starfi sínu ef þeir bæru ekki aðeins ábyrgð á kennslu sinni heldur einnig á fjárhagsstöðu skól- ans. Honum var með öllu fyrirmun- að að sjá af hverju iðnaðarmenn innan ASÍ væru á móti því að verk- takar reki grunnskóla. Á sama hátt mætti spyrja hvort ekki myndi auka faglegan metnað byggingar- verktaka ef þeir bæru líka alla ábyrgð á því starfi sem fram fer í hverju því húsi sem þeir byggja. Hver er þá ávinningurinn? En hvert á þá að sækja ávinning- inn af einkaframkvæmd grunnskól- ans í Áslandi? Ég sé ekki betur en að meirihluti bæjarstjórnar ætli sér ávinning af því að verktakar en ekki almenningur beri alla ábyrgð á rekstrinum. Stöku foreldrar munu ætla sér ávinning af því að brjóta niður kjarasamning kennara. Allmargir munu af einhverjum ástæðum trúa því að í verkfæra- safni verktaka leynist, innan um fornar jarðýtur og fleira þess konar gamalt skran, framsækin kennslu- stefna. Við erum fleiri sem óttumst að ávinningur verktaka verði sóttur t.d. í minni stuðningskennslu, í fjölgun í bekkjardeildum; að gróð- inn verði sóttur í lakari þjónustu. Við höfum af því reynslu að þeg- ar togast er á um gróða annars veg- ar og hagsmuni barna hins vegar standa börnin hallari fæti. Ég trúi því að þrátt fyrir allt séu kjörin yfirvöld börnunum og hags- munum þeirra traustari bakhjarl en þeir fulltrúar einkaframtaksins sem reynast eiga hagstæðast tilboð. Oftrú á einka- væðingu Sigríður Jóhannesdóttir Kennsluútboð Við erum fleiri sem óttumst, segir Sigríður Jóhannesdóttir, að ávinningur verktaka verði sóttur í lakari þjónustu. Höfundur er þingmaður Samfylkingar. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Sjálfboðaliðar óskast til Afríku Heilbrigðisstarf og fræðsla um eyðni. Kennsla barna. Bygging skóla í Angola/Zimbabwe. 6 mán. undirbún- ingstími í Danmörku. Byrjar 1. apríl eða 1. ágúst. DEN REJSENDE HØJSKOLE www.drhjuelsminde — blueheaven@tv.dk Hringið strax í síma 0045 75 39 12 29. Anna eða Björn veita þér fúslega allar nánari upplýsingar í síma 588 2400 BÓKAÚTGÁFA Grensásvegi 14 • 108 Reykjavík • Sími 588-2400 • Fax: 588-8994 • e-mail skjaldborg@skjaldborg.is sölustarfi sem er… þægilegt skemmtilegt uppbyggilegt Við bjóðum upp á… gott vinnuumhverfi jákvæðan starfsanda þjálfun og kennslu R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Aðalfundur Félags hjartasjúklinga á Reykjavík- ursvæðinu verður haldinn á Hótel Sögu laugar- daginn 31. mars 2001 kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Fræðsluerindi. Stjórnin. Aðalfundur Kaupmannasamtaka Íslands verður haldinn fimmtudaginn 29. mars nk. á 14. hæð í Húsi verslunarinnar og hefst hann kl. 16:00. Aðalfundur Verkstjórafélags Reykjavíkur 2001 verður haldinn í dag, laugardaginn 24. mars 2001, í Hvammi á Grand Hóteli Reykjavík, Sig- túni 38 og hefst fundurinn kl. 13.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins. Stjórn Verkstjórafélags Reykjavíkur. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Deildarfell, Vopnafirði, þingl. eig. Anton Gunnarsson, gerðarbeiðend- ur Ingvar Helgason hf., Lánasjóður landbúnaðarins, Skeljungur hf. og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, miðvikudaginn 28. mars 2001 kl. 15.00. Lagarfell 2, hl. 00.02 56,48%, Fellabæ, þingl. eig. Samkvæmispáfinn ehf., gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, þriðjudaginn 27. mars 2001 kl. 15.00. Steinholt 10, Vopnafirði, þingl. eig. Ómar Þröstur Björgólfsson, gerð- arbeiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbanki Íslands hf., Vopnafirði, miðvikudaginn 28. mars 2001 kl. 15.00. Sunnufell 6, bílskúr, Fellabæ, þingl. eig. Jón Sigbjörnsson, gerðar- beiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., þriðjudaginn 27. mars 2001 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 23. mars 2001. TIL SÖLU Selmer Skanska AS, sjódeildin í Stavanger, Noregi, er með til sölu: 1. „ODIN“, allhliða prammi með grabba-, krana- og niðurrekstrarbúnaði, smíðaður 1958/'75. Vélar, glussaspil, 3 lappir (spuds) mm, nýtt '75. Stærð: LxBxD: 30,2x13x1,85. Djúprista 1,1 m. Kranaskápur. SWL 13T (2 stk 10 t. kran- aspil). Vélar, ljósavélar og spil eru staðsett í vélahúsi á þilfari. Stýrihús, innréttingar með 3 eins manns káetum er staðsett á annarri hæð yfir þilfari. Stýrisleði fyrir niðurrekstrar- hamar/staura, útbúinn á krana. Lengd u.þ.b. 27 m. Loftlóð (MRB), fallþungi 4.500 kg. Grabbi, 4-arma, 1,5 m³, þyngd 5,5 t. 2. 1 eða 2 150 m³ splittprammar, smíðaðir '67/'68. 3. 1 stk dráttarbátur, L 10 m, 200 Hk Cat, smíðaður '69, vél '73. 4. Beltagrafa, Cat 245 með löngum dipper, graftardýpi -8,5 m, árg '88. 5. Prammi (katamaran) með mastri fyrir neðan- sjávarborun (ekki fullbúinn) 32*12,4 m. Nánari upplýsingar fást hjá H. Vaagaland. Sími 47 51 82 62 91. Fax 47 51 82 62 82. Farsími 47 92 85 15 61. Tölvupóstfang: harald.vaagland@selmer.skanska.no . SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Sunnudagur 25. mars 1. Álftanes — Skansinn. Skemmtileg um 3ja klst. strand- ganga. Á Skansinum var virki Bessastaðamanna og þar bjó Óli Skans. Verð 900 kr. fyrir félaga og 1.100 kr. fyrir aðra. Brottför frá BSÍ kl. 13.00. Miðar í farmiðasölu. 2. Skíðagöngukennsla í Blá- fjöllum (nýtt). Mæting við Breiðabliksskálann kl. 13.00. Leiðbeinandi frá Skíðasamband- inu. Búnaður á staðnum eða notið eigin. Þátttökugjald 500 kr. Munið jeppadeildarfundinn í Nanoq þriðjudagskvöldið 27. mars kl. 20 og aðalfund Úti- vistar 5. apríl. Takið þátt í lifandi ferða- og félagsstarfsemi Útivistar. Sjá félagslíf sunnudagsblaðs, heimasíðu: utivist.is og textavarp bls. 616. Gönguferð sunnudaginn 25. mars: Skálafell á Hellis- heiði - Votaberg. Um 4—4,5 klst. ganga. 200 m hæðaraukning. Fararstjóri Jónas Haraldsson. Verð kr. 1.600. Bakpokanámskeið í Risinu 27. mars. Nauðsynlegt að bóka þátttöku. Aðalfundur Ferðafélags Ís- lands í F.Í.-salnum miðvikudag- inn 28. mars kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Páskaferðir í Landmanna- laugar, Þórsmörk og á Arnar- vatnsheiði. Pantið tímanlega á skrifstofu F.Í., sími 568 2533. Takið þátt í spurningaleikn- um á heimasíðu F.Í. Dagsferðar- miði dreginn út í hverri viku. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.