Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 55
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 55
EINSTAKLINGSFRELSI og
sjálfsákvörðunarréttur er okkur
Vesturlandabúum nánast í blóð bor-
inn. Tryggt er í Stjórnarskrá Íslands
og með lögum að réttindi þessi verði
ekki tekin frá einstaklingnum nema
því aðeins að hann sé alls ekki fær um
að ráða persónulegum högum sínum
eða fé vegna andlegs vanþroska, elli-
sljóleika, geðsjúkdóms eða vegna
annars konar alvarlegs heilsubrests.
Þeir einstaklingar sem ekki eru taldir
geta ráðið persónulegum högum sín-
um eru sviptir lögræði (sjálfræði og/
eða fjárræði) og njóta margskonar
meðferðar og aðstoðar samfélagsins
sem hefur það að markmiði að hjálpa
þeim að verða betur sjálfbjarga og til
þess að auka lífsgæði þeirra. Einstak-
lingar sem standa höllum fæti í lífs-
baráttunni, m.a. vegna geðfötlunar
eða þroskahömlunar en ekki er talin
þörf á að svipta þá lögræði, hafa oft
verulega þörf fyrir aðstoð samfélags-
ins til að geta notið lífsgæða.
Á Norðurlöndunum hafa lífsgæði
ofannefndra einstaklinga verið til
umræðu og hugtökin þvingun eða
nauðung þá lykilhugtök. Í Noregi og
Danmörku hafa verið sett lög um
bann við að beita þvingunum eða
nauðung í starfi með þroskaheftum
nema í neyðartilfellum. Hugtökin
þvingun og nauðung eru samheiti en í
íslenskum lögum er fyrst og fremst
hugtakið nauðung notað og verður
það gert hér.
Í Noregi hefur hugtakið verið skil-
greint vítt þannig að um nauðung er
að ræða þegar t.d. heilbrigðisstarfs-
maður beitir inngripum sem skjól-
stæðingur mótmælir og einnig ef að-
gerðirnar geta talist innrás í
mannhelgi hans þótt hann mótmæli
þeim ekki. Í norskum lögum um bann
við beitingu nauðungar á einstak-
linga með þroskahömlun er skýrt
kveðið á um þær undantekningar
sem gilda um bannið og faglegar, sið-
ferðilegar og lagalegar forsendur
verða að liggja fyrir
svo leyfilegt sé að beita
nauðung.
Hér á Íslandi hafa
hugtökin þvingun og
nauðung nokkuð verið
rædd undanfarin ár og
þá sérstaklega m.t.t.
þeirra aðstæðna sem
geta skapast þegar ein-
staklingur er í hættu á
að skaða sjálfan sig eða
aðra s.s. starfsmenn
stofnana þar sem hann
dvelur vegna fötlunar
eða sjúkleika. Þessi
umræða hefur fyrst og
fremst farið fram inn-
an afmarkaðra starfshópa.
Félag sálfræðinga sem vinnur að
málefnum fatlaðra (FSSMF) efnir nú
til opins námskeiðs sem er ætlað fólki
sem vinnur að meðferð og umönnun
þar sem nauðung og þvingun geta
komið fyrir í daglegu starfi. Hér er
sérstaklega haft í huga starfsfólk sem
vinnur að meðferð og umönnun geð-
fatlaðra, þroskaheftra, aldraðra og
unglinga í vanda. Markmið nám-
skeiðsins er að hvetja til enn frekari
umræðna um þetta brýna málefni.
Námskeiðið verður
haldið í Rúgbrauðsgerð-
inni dagana 28. og 29.
mars nk. Hægt er að fá
frekari upplýsingar um
námskeiðið hjá Sálfræð-
ingafélagi Íslands.
Á námskeiðinu verður
m.a. rætt um nauðung
og hvort hún eigi sér
stað á Íslandi á meðferð-
arstofnunum, sjúkra-
húsum eða sambýlum
fatlaðra og rætt um að-
stæður þar sem starfs-
menn þurfa að leiðbeina
fötluðum einstaklingum
án þess að ráðskast með
þá og skerða þannig frelsi þeirra.
Einnig verður rætt um þær aðstæður
sem geta skapast á meðferðarstofn-
unum sem leiða til þess að starfs-
menn þurfa að beita nauðung til þess
að fyrirbyggja að einstaklingar skaði
sjálfan sig. Þá verður fjallað um hvað
hægt er að gera til að draga og úr lík-
um á því að nauðung komi fyrir í dag-
legu starfi.
Nauðung og þvingun í
meðferð og umönnun
Ingi Jón Hauksson
Mannréttindi
Markmið námskeiðsins
er, segir Ingi Jón
Hauksson, að hvetja til
enn frekari umræðna
um þetta brýna málefni.
Höfundur er sálfræðingur.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis
þriðjudaginn 27. mars 2001 kl. 13—16 í porti bak við skrifstofu
vora í Borgartúni 7 og víðar:
1 stk. Toyota Land Cruiser 4x4 dísel 1987
1 stk. Toyota Hi Lux Double cab 4x4 bensín 1992
1 stk. Toyota Corolla
1 stk. Nissan Patrol (skemmdur)
2 stk. Nissan Patrol
1 stk. Subaru Forester (skemmdur) 1 stk. Subaru Legacy station 4x4
1 stk. Ford Transit Van 100
1 stk. Daf 45.130 m/kassa og lyftu 1 stk. Volkswagen Syncro
(skemmdur) 1 stk. Ford Econoline E-250 1 stk. Ford Econoline E-150 1 stk. Mitsubishi Pajero
1 stk. Mitsubishi Lancer station 1 stk. Mitsubishi L-200
D.c. m/húsi 4x4 dísel 1983
2 stk. Mitsubishi L-300
sendibifreið 4x2 bensín 1985
1 stk. Nissan Double cab m/húsi 4x4 dísel 1995
1 stk. Nissan Sunny Wagon 4x4 bensín 1993
3 stk. Mazda 323 Wagon 4x4 bensín 1993-96
1 stk. Daihatsu Charade 4x2 bensín 1996
1 stk. Nissan Micra 4x2 bensín 1995
1 stk. Nissan Vanett {ógangfær) 4x2 bensín 1987
1 stk. Chevrolet Chevy 500
(ógangfær) 6x2 bensín 1989-93
1 stk. Mercedes Benz 2635
(m/31.t.m krana) 6x6 dísel 1988
2 stk. Artic cat Pantera vélsleðar belti bensín 1993-94
2 stk. Artic cat Prowler vélsleðar belti bensín 1990-91
3 stk. Ski Doo Skandic vélsleðar belti bensín 1985-91
1 stk. Rafstöð með Lister vél dísel
1 stk. snjóblásari
m/dráttarvélatengi 1991
Til sýnis hjá birgðastöð Landsvirkjunar, Hesthálsi 14,
Reykjavík:
1 stk. Festivagn (burðarg. 23,5 tonn) 1979
Til sýnis hjá Rarik á Sauðárkróki:
1 stk. Mitsubishi L-300(biluð vél) 4x4 bensín 1990
Til sýnis hjá Vegagerðinni, birgðastöð
við Stórhöfða:
1 stk. Malarvagn Kassbohrer 1979
1. stk Fjölplógur á jeppa Jongerius J-210 1994
Til sýnis hjá Vegagerðinni í Borgarnesi:
1 stk. M-Benz 1419 m/Trysil málniningarvél dísel 1982
1 stk. hjólaskófla Caterpillar 966C disel 1981
1 stk. lyftari BM-Volvo LM 218 dísel 1965
Til sýnis hjá Flugmálastjórn á Egilsstöðum:
1 stk. rafstöð FG Wilson F40W 32 kw í skúr á hjólum
dísel 1982
1 stk. Vatnstankur 10.000 lítra með 4" dælu 1980
Til sýnis hjá bílaverkstæði Jóns G. Snorrasonar,
Gránufélagsgötu 47 á Akureyri:
2 stk. Lada Sport 4x4 bensín 1991
4 stk. Lada Samara 4x2 bensín 1991—92
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Ríkiskaupa sama dag
kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn
til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
(ATH. Inngangur í port frá Steintúni).
TILKYNNINGAR
Gvendur dúllari, fornbókasala,
Kolaportinu: Vorum að taka inn stór
söfn mjög góðra bóka s.s. Dala-
menn, Strandamenn, Múlaþing,
Strandapóstur, stéttatöl, Vestfirskar
þjóðsögur, Eskja, Fornleifafélagið,
Kjarvalsgrjót o.m.fl. Látið ekki happ
úr hendi sleppa. Mætið snemma.
Gvendur dúllari aldrei verið betri.
í íþróttahúsi Hagaskóla í dag,
laugardaginn 24. mars.
Mótið hefst kl. 10.30.
Úrslit hefjast kl. 12.30.
Allir velkomnir.
Karatefélag Reykjavíkur.
Félagsmenn Rafiðnaðarsambands Íslands
Úthlutun orlofshúsa sumarið 2001
Umsóknarfrestur um orlofshús rennur út 30. mars nk.
Upplýsingar um orlofsaðstöður hafa verið sendar til félagsmanna ásamt
umsóknareyðublaði.
Þeir, sem ekki hafa fengið sent, er bent á að hafa samband við skrifstofuna í síma
580 5200.
Einnig er hægt að nálgast allar upplýsingar um orlofshúsin og umsóknar-
eyðublað á heimasíðu sambandsins www.raf.is.
KENNSLA
Tai-chi
Þarftu að efla tengsl líkama og sálar?
Námskeið í Tai-chi og Thai-chi sverði verður
haldið 28.3.—1.4. Kennari: Khinthitssa frá
Búrma. Nánari upplýsingar veitir Guðný Helga-
dóttir, símar 551 9792 og 860 1921.
LISTMUNAUPPBOÐ
Málverk til sölu
Ásgrímur Jónsson 30x50 vatnslitur,
„Frá Húsafelli“, ca 1950.
Finnur Jónsson, „Sölvhóll“, olía á striga,
30x40.
Upplýsingar í síma 894 5031.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Hafnarfjörður
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 28. mars nk.
kl 20.00 í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29,
Hafnarfirði.
Gestur fundarins
verður Sólveig Pétursdóttir,
dóms-og kikjumálaráðherra.
Konur fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
FÉLAGSSTARF