Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 59
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 59
NÆSTKOMANDI
þriðjudag 27. mars
verður haldinn stofn-
fundur samtaka við-
skiptasérleyfishafa. Á
stofnfund samtakanna
kemur Karen Ericsson
frá sænsku sérleyfis-
samtökunum, en hún
rekur einnig
www.franchisenet.net
sem er upplýsinga-
grunnur á Netinu.
Undirbúningur að
stofnun þessara sam-
taka hefur staðið frá
því í haust eða í kjölfar
ráðstefnu um við-
skiptasérleyfi (franch-
ise) sem SVÞ – Samtök verslunar og
þjónustu og PricewaterhouseCoop-
ers stóðu fyrir. Á ráðstefnuna kom
Børge Nilssen frá Noregi en hann
starfar við ráðgjöf til sérleyfisfyrir-
tækja. Þetta viðskiptaform hefur
farið mjög vaxandi í Noregi, þar sem
sérleyfiskeðjum hefur fjölgað úr 170
í 250 á síðastliðnum þremur árum.
Norðurlandaþjóðirnar hafa hins veg-
ar ekki staðið sig sem skyldi í því að
flytja út eigin viðskiptahugmyndir í
formi sérleyfa en það kann þó að
breytast á næstu árum.
Hvað er viðskiptasérleyfi?
Sérleyfi er viðskiptaform sem not-
að er til markaðssetningar á vöru og
þjónustu og hefur verið í miklum
vexti undanfarin ár. Grunnhug-
myndin gengur einfaldlega út á sam-
vinnu tveggja sjálfstæðra aðila sem
sjá sér hag í því að eiga viðskipti
saman. Viðskiptahug-
mynd sem reynst hefur
vel á einum stað eða
einum markaði er flutt
á annað svæði þar sem
allar líkur eru á að hún
muni einnig ganga vel.
Viðskiptasérleyfi er
einn vænlegasti og
hagkvæmasti valkostur
sem mönnum býðst í
dag þegar staðið er
frammi fyrir því að
setja á stofn eigin
rekstur. Einstakling-
urinn er þá hluti af
reyndu kerfi og nýtur
góðs af þeirri samvinnu
sem því fylgir. Sérleyfi
býður upp á samkeppnisforskot sem
ekkert annað form getur boðið, t.d:
Vöru- og vörumerkjavitund.
Viðskiptavild.
Reynslu af viðskiptum.
Þróað dreifingarkerfi.
Samt sem áður er ekki þar með
hægt að ábyrgjast fullkominn árang-
ur, en reynslan hefur sýnt að þetta
form er mun árangursríkara heldur
en stofnun nýs fyrirtækis með nýjar
hugmyndir. Nýju viðskiptasérleyfi
er hrundið af stað á 8 mínútna fresti
hvern virkan dag. Sérleyfiskerfið er
þjóðhagslega hagkvæmt við að
breiða út viðskipti og þarf þá ekki að
eyða tíma og peningum í að finna
hjólið upp að nýju. Með sérleyfis-
forminu fær sérleyfishafinn aðgang
að formi vinnureglna sem hafa verið
þróaðar hjá frumkvöðli hugmyndar-
innar og nýtur hann leiðsagnar hans,
en er samt sjálfstæður atvinnurek-
andi. Misjafnt er hversu sjálfstæðir
sérleyfistakarnir verða eftir formi
sérleyfa og því hversu mikið hann
óskar eftir að stjórna sjálfur. Með
viðskiptasérleyfi er yfirleitt veitt
þjálfun og leiðsögn strax frá byrjun
og þar af leiðandi ekki krafist eins
mikillar þekkingar á rekstri og ann-
ars þyrfti. Viðskiptasérleyfi ein-
skorðaðist fyrst við ákveðnar at-
vinnugreinar og þá helst við
matsölustaði, bílaleigur og hótel-
rekstur, en með tímanum breyttist
almennt viðhorf til sérleyfa og í dag
er vitað til þess að sérleyfi eigi við
mjög víða. Viðskiptasérleyfi er vin-
sælast í verslunar- og þjónustugeir-
anum og útbreiðslan er einkum í
smásölu.
Fyrir hverja er viðskipta-
sérleyfi hentugt?
Sérleyfisfyrirkomulagið er ein
öruggasta og jafnframt áhættu-
minnsta leið fyrir fyrirtæki að
stækka við sig og einnig fyrir fyr-
irtæki til að lifa af í harðnandi sam-
keppni nútímans. Þeir sem hyggjast
kaupa sér sérleyfi vita í flestum til-
fellum að hverju þeir ganga, þar sem
reynsla, hefð og orðspor af sérleyf-
isgjafa hefur þegar skapast í hugum
fólks. Viðskiptasérleyfi getur birst í
eftirfarandi útfærslu:
Erlendur aðili til Íslands
Þessi flokkur er langalgengasta
sérleyfisformið hér á landi. Hér er að
finna marga veitingastaði svo sem
McDonalds, fataverslanir, Sasha og
Monsoon og hótel eins og Radisson
SAS.
Íslenskt fyrirtæki innanlands
Íslensk fyrirtæki hafa ekki nýtt
sér sérleyfisfyrirkomulagið til að
markaðssetja vörur sínar hér innan-
lands, en þar eru víða tækifæri til
vaxtar fyrir innlenda aðila. Þekkt-
asta dæmið hér er þegar Tómas
Tómasson hjá Tommaborgurum fór
af stað. Þá höfum við nýlegt dæmi í
matvörugeiranum þegar Samkaup
fór í samstarf við Kaupfélag Héraðs-
búa á Egilsstöðum.
Íslenskt fyrirtæki erlendis
Hér höfum við aðeins eitt dæmi
svo vitað sé til en það er Pizza 67,
sem reynt hefur fyrir sér í Dan-
mörku, auk þess sem nokkrir aðilar
eru að velta þessu fyrir sér í dag.
Þetta er því einn af þeim valkostum
sem íslensk fyrirtæki hafa til að vaxa
og sjálfsagt sú leið sem er hvað auð-
veldust og áhættuminnst.
Reynsla af viðskiptasérleyfum
Samkvæmt könnun sem bresku
viðskiptasérleyfissamtökin létu
gera, þá er heildarvelta sérleyfisfyr-
irtækja í Bretlandi um 6,4 milljarðar
breskra punda, hefur vaxið um 30%
síðan 1994. Í Bretlandi einu eru um
27.000 sérleyfisfyrirtæki með um
250.000 starfsmenn. Þetta þýðir að
þessi atvinnugrein er orðin stærri en
breski orkugeirinn, og fer fjöldi
starfsmanna að nálgast heildarstærð
breska hersins. Sérleyfiskosti er að
finna í næstum hvaða atvinnugrein
sem er, og geta verið allt frá eins
manns fyrirtæki upp í stór alþjóða-
fyrirtæki með yfir þúsund starfs-
menn. Reynslan hefur sýnt að um
70% af nýjum sjálfstæðum fyrir-
tækjum enda með gjaldþroti innan
fimm ára, en hlutfallið meðal sérleyf-
isfyrirtækja er tæp 20%. Samkvæmt
könnun sem unnin var í Bandaríkj-
unum á 366 sérleyfisfyrirtækjum í 60
atvinnugreinum, kom fram að 86% af
öllum sérleyfisfyrirtækjunum voru
ennþá, að fimm árum liðnum, í eigu
upphaflegu sérleyfistakanna. Aðeins
3% þessara fyrirtækja höfðu hætt
rekstri af einhverjum ástæðum.
Kostir og gallar sérleyfis
Eins og önnur viðskiptaform hef-
ur sérleyfi sína kosti og galla. Helstu
kostir fyrir sérleyfisgjafa er mun
hraðari vöxtur en ella, hagstæðari
innkaup í krafti stærðar, dreifing á
áhættu og meiri tími til að sinna
innri málefnum. Á hinn bóginn verð-
ur sérleyfisgjafinn að taka tillit til
sérleyfistaka og eiga samskipti við
hann á öðrum forsendum heldur en
ef þetta væri hans eigin rekstur. Sér-
leyfistakinn nýtur góðs af þróuðu
kerfi, viðskiptavild, vöruþekkingu og
leiðsögn frá sérleyfisgjafa. Hins veg-
ar er sveigjanleiki hans mun minni ef
hann væri alfarið í eigin rekstri.
Stofnfundur samtaka viðskipta-
sérleyfishafa verður haldinn 27.
mars á 14. hæð í Húsi verslunarinnar
og hefst fundurinn klukkan 9. Allir
áhugamenn eru velkomnir. Nánari
upplýsingar er að finna á
www.svth.is og www.pwcglobal.com/
is.
Stofnun samtaka við-
skiptasérleyfishafa
Ólafur Haukur
Magnússon
Sérleyfi
Sérleyfisfyrirkomulagið
er ein öruggasta og
jafnframt áhættu-
minnsta leið fyrir fyr-
irtæki að stækka við sig,
segir Ólafur Haukur
Magnússon, og einnig
fyrir fyrirtæki til að lifa
af samkeppni.
Höfundur er stjórnunarráðgjafi hjá
PwC.
Fermingartilboð
Snittur, brauðtertur, alhliða veisluþjónusta
Pantið tímanlega
Stúdíó Brauð,
Arnarbakka 2 - sími 577 5750