Morgunblaðið - 24.03.2001, Qupperneq 69
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 69
Kringlukast
20% afsláttur
af
Triumph
undirfatnaði
Kringlunni 8-12/ www.olympia.is
ALMENNINGI gefst kostur á því
sunnudaginn 25. mars kl. 13–17 að
kynna sér fornleifauppgröftinn
sem nú fer fram á horni Að-
alstrætis og Túngötu. Þá verður
hægt að skoða uppgraftarsvæðið,
þar sem m.a. hafa komið í ljós
minjar frá tíð Innréttinganna á 18.
öld og stór landnámsskáli þar sem
er langeldur í gólfi.
Það verða fornleifafræðingarnir
Orri Vésteinsson og Mjöll Snæs-
dóttir ásamt borgarminjaverði,
Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur,
sem fræða gesti um uppgröftinn
og sögu svæðisins.
Að auki hefur verið komið upp
fræðsluskiltum á girðingu við Að-
alstræti þar sem rakin er saga
byggðar á lóðunum, en þar er talið
að leifar um elstu byggð í Reykja-
vík sé að finna. Einnig er þar gerð
grein fyrir þeim rannsóknum sem
áður hafa farið þar fram.
Það er Árbæjarsafn – Minjasafn
Reykjavíkur, í samvinnu við Forn-
leifastofnun Íslands, sem stendur
að rannsókninni fyrir hönd
Reykjavíkurborgar. Áætluð verk-
lok eru í maí á þessu ári, en end-
anlegar rannsóknarniðurstöður
munu liggja fyrir að ári liðnu.
Frá fornleifauppgreftrinum í Aðalstræti.
Kynning á forn-
leifarannsókn
í Aðalstræti
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands
gengst fyrir ráðstefnu um framtíð
velferðarkerfisins á miðvikudaginn í
næstu viku, þar sem fjallað verður
um samspil almannatrygginga, líf-
eyris- og skattkerfis.
Ráðstefnan sem haldin er undir
yfirskriftinni „Hvert viljum við
stefna?“ verður haldin í Salnum í
Tónlistarhúsi Kópavogs á miðviku-
daginn kemur, 28. mars, klukkan 13-
17.
Sérstakur gestur ráðstefnunnar
er Joakim Palme prófessor við
sænsku félagsvísindastofnunina og
einn fremsti fræðimaður Norður-
landa á sviði lífeyris- og velferðar-
mála, en hann hefur stýrt fjölda
rannsókna á lífeyris- og velferðar-
kerfum Evrópu og gegnt hlutverki
ráðgjafa fyrir sænsk stjórnvöld. Í er-
indi sínu mun hann fjalla um við-
fangsefni og möguleika velferðar-
kerfis 21. aldarinnar.
Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni
eru Már Guðmundsson, aðalhag-
fræðingur Seðlabanka Íslands sem
fjallar um það hvort lífeyriskerfið
hafi burði til þess að vera meginstoð
lífeyrisframfærslu landsmanna.
Stefán Ólafsson, prófessor við Há-
skóla Íslands fjallar um íslenska vel-
ferðarkerfið í fjölþjóðlegum saman-
burði og Rannveig Sigurðardóttir,
hagfræðingur ASÍ, flytur erindi sem
hún nefnir „Fólk, framfærsla og fá-
tæktargildrur.“ Þá mun Davíð Odds-
son, forsætisráðherra, ávarpa ráð-
stefnuna.
Stundarhagsmunir mega
ekki ráða breytingum
Í frétt frá ASÍ kemur fram að
brýnt sé að víðtæk sátt náist um öfl-
ugt velferðarkerfi til framtíðar. Því
sé ástæða til þess að skoða uppbygg-
ingu þess og framtíðarþróun með
þátttöku sem flestra aðila. Stundar-
hagsmunir eða einstakir atburðir
megi ekki ráða tilviljunarkenndum
breytingum á einstaka þáttum þess.
„Atburðir og umræður síðustu
missera sýna þörfina fyrir þjóðar-
umræðu og þjóðarsátt um framtíð-
aruppbyggingu velferðarkerfisins.
Hér má nefna fátæktargildrur
einstakra þjóðfélagshópa, misskipt-
ingu jaðaráhrifa, þjónustugjöld,
Hæstaréttardóm um tekjutengingu
örorkubóta og ítrekaðar kröfur
verkalýðshreyfingarinnar um að-
gerðir stjórnvalda til að leysa úr
brýnasta vandanum í tengslum við
gerð kjarasamninga.“
ASÍ með ráðstefnu
um velferðarkerfið
AÐALFUNDUR Krabbameins-
félags Reykjavíkur verður haldinn
mánudaginn 26. mars nk. Fundurinn
verður í húsi Krabbameinsfélagsins í
Skógarhlíð 8 og hefst kl. 20.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfund-
arstörf og síðan önnur mál. Að lokn-
um aðalfundarstörfum, eða laust fyr-
ir kl. 21, heldur Kristján Sigurðsson,
yfirlæknir á Leitarstöð Krabba-
meinsfélagsins, erindi um legháls-
krabbamein, árangur og framtíðar-
sýn.
„Góður árangur er af legháls-
krabbameinsleit hér á landi en allar
konur á aldrinum 20–69 ára eru boð-
aðar á tveggja ára fresti.
Markmið leitarinnar er að minnka
nýgengi sjúkdómsins með því að
greina hann á forstigi og lækka dán-
artíðnina með því að greina sjúk-
dóminn áður er hann fer að gefa ein-
kenni,“ segir m.a. í frétt frá félaginu.
Kaffiveitingar verða að loknum
fundi. Nýir félagsmenn eru vel-
komnir.
Árangur og framtíðar-
sýn krabbameinsleitar
Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur
SEINNA úrtökumótið í VN-móta-
röðinni verður haldið á Grandrokk,
laugardaginn 24. mars klukkan 14.
Átta efstu á mótinu komast áfram í
úrslitakeppnina 31. mars, þar sem
teflt verður um verðlaun að andvirði
130 þúsund króna. Væntanlegir
keppendur eru beðnir að skrá sig
sem fyrst hjá Hrafni Jökulssyni í
síma eða netfanginu hrafnj@yahoo.-
com.
Fyrra úrslitamótið fór fram síð-
asta laugardag og þá sigraði Páll
Agnar Þórarinsson. Auk hans kom-
ust áfram þeir Jón Viktor Gunnars-
son, Davíð Kjartansson, Bragi Þor-
finnsson, Sigurður Daði Sigfússon,
Stefán Kristjánsson, Tómas Björns-
son og Sigurður Páll Steindórsson.
Markmiðið með VN-mótunum,
sem Skákfélag Grandrokk stendur
fyrir í samvinnu við Viðskiptanetið,
er að finna sterkasta hraðskákmann
landsins í hópi áhugamanna. Tefldar
verða níu umferðir eftir Monrad-
kerfi og er umhugsunartími 5 mín-
útur.
VN-skákmót
á Grandrokk
ÍSLANDSSÍMI býður til fjöl-
skylduveislu í Listasafni Reykjavík-
ur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu
nk. sunnudag frá kl. 14 til 16. Boðið
er til veislunnar í tilefni þess að Ís-
landssími býður fjölskyldunum í
landinu nú upp á alhliða fjarskipta-
þjónustu – hvort sem er farsíma,
heimilissíma eða Internet.
Í tilefni dagsins verður boðið upp
á fjölbreytt skemmtiatriði. Kynnir
verður Pétur Jóhann Sigfússon úr
Ding Dong. DJ Sóley sér um tón-
listina og fram koma söngstjarnan
Jóhanna Guðrún, Textíl: Íslands- og
Reykjavíkurmeistarar í freestyle-
dansi og Gunni og Felix. Þá verða á
staðnum leiktæki og Listasafnið
hefur opið föndurherbergi fyrir
börnin. Boðið verður upp á sneiðar
af risaköku, gosi, farsímasúkkulaði
og Íslandssímapúkum. Bylgjan FM
98.9 verður með beina útsendingu
frá staðnum. Þessa vikuna liggja
frammi þátttökuseðlar í símaleik
Íslandssíma á þeim stöðum sem
selja GSM-áskrift fyrirtækisins. Í
verðlaun eru þrír farsímar. Upplýs-
ingar um staðina má finna í auglýs-
ingum Íslandssíma í Morgun-
blaðinu, en meðal þeirra eru
Heimilistæki, Húsasmiðjan, Japis,
Penninn, Fríhöfnin, Nýherji og
fleiri. Skila þarf þátttökuseðlunum
á fjölskylduhátíðinni. Þriðjudaginn
27. mars verða síðan dregin út á
Bylgjunni nöfn þriggja heppinna
gesta sem taka þátt í símaleik Ís-
landssíma.
Fjölskylduveisla
Íslandssíma
FÉLAG stjórnmálafræðinga held-
ur aðalfund föstudaginn 30. mars
næstkomandi og hefst hann kl. 21 í
húsakynnum ReykjavíkurAkadem-
íunnar á Hringbraut 121. Komið hef-
ur verið upp upplýsingasíðu á vefn-
um um aðalfundinn, en þar verða
teknar fyrir lagabreytingatillögur
frá stjórn félagsins. Slóðin á upplýs-
ingasíðuna er: http://www.aka-
demia.is/stjornmal/adalfun01.html.
Stjórnin hvetur félagsmenn til að
fjölmenna, segir í fréttatilkynningu.
♦ ♦ ♦
AÐALFUNDUR félagsins Ísland-
Palestína verður haldinn í Litlu-
Brekku (á bak við Lækjarbrekku,
Bankastræti 2) sunnudaginn 25.
mars og hefst klukkan 15. Á fund-
inum verður flutt erindið: Rauði
krossinn og Palestína – Sigrún Árna-
dóttir, framkvæmdastjóri Rauða
kross Íslands, flytur erindi og sýnir
myndband. Venjuleg aðalfundar-
störf. Allir áhugamenn um mann-
réttindi og frelsisbaráttu Palestínu-
manna velkomnir.
Á sunnudaginn verður vefsíða
félagsins Ísland-Palestína, www.-
palestina.is, formlega opnuð. Þótt
síðan hafi ekki enn tekið á sig sína
lokamynd er hægt að nálgast þar
nýjar fréttir af átökunum í Palestínu
og Ísrael, sögu Palestínu og baráttu
Palestínumanna, öflugt hlekkjasafn
og ýmsar upplýsingar um félagið Ís-
land-Palestína.
HARMONIKUFÉLAG Reykjavík-
ur heldur létta tónleika í Ráðhúsi
Reykjavíkur sunnudaginn 25. mars
kl. 15 undir heitinu Dagur harmonik-
unnar. Flytjendur eru á öllum aldri.
Leikin verður létt tónlist úr ýmsum
áttum.
Fram koma m.a.: Nemendur í
harmonikuleik á ýmsum aldri. Einn-
ig: Tríó Ulrichs Falkner, Jóna Ein-
arsdóttir, Ólafur Þ. Kristjánsson og
tvær stærstu hljómsveitir félagins,
Stormurinn undir stjórn Arnar
Falkner og Léttsveit Harmoniku-
félags Reykjavíkur ásamt Ragnheiði
Hauksdóttur söngvara undir stjórn
Björns Ólafs Hallgrímssonar.
Aðgangur ókeypis og allir vel-
komnir.
Harmoniku-
tónlist í
Ráðhúsinu FÉLAG íslenskra músíkþerapista
heldur fræðslufund mánudaginn 26.
mars kl. 20 í Sjálfsbjargarhúsinu
Hátúni 12 (inngangur á vesturgafli).
Á fundinum heldur Kristín
Björnsdóttir músíkþerapisti erindi
um músíkþerapíu og framhalds-
skóla. Þar ræðir hún hvernig mögu-
legt væri að nota músíkþerapíu með
þroskaheftum nemendum í almenn-
um framhaldsskólum. Eru allir vel-
komnir á þennan fræðslufund.
Erindi um
músíkþerapíu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦