Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 73
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 73
Nánari upplýsingar hjá Helgu
í símum 585 4113 og 585 4140, netfang helgamagg@uu.is
LÚXUSFERÐIR Á LÁGU VERÐI
Úrvals bænda- og söguferðir með Friðriki G. Friðrikssyni
Páskaferð á slóðir Rómverja, víkinga, skálda, sjómanna og
Bítlanna 14. - 22. apríl 2001. Ath.: Aðeins 3 virkir dagar!
Beint leiguflug til Blackpool. Liverpool og Lake District, ein mesta náttúruperla Englands, heimsótt og
siglt verður á Windermerevatninu. Skoðuð verða stórkostleg mannvirki frá dögum Rómverja og víkinga
í Jórvík. Hafnar-og fiskimannabæirnir Hull og Grimsby heimsóttir.
Innifalið í ferðinni eru 5 máltíðir, morgunverðarhlaðborð allan tímann og skoðunarferðir.
Verð á mann í tvíbýli kr. 69.500 - Aukagjald v/einbýlis kr. 15.000
Þýskaland - Frakkland, tvær 11 daga ferðir.
Vorferð 2.-12. maí og sumarferð 11. - 21. júlí
Ódýr lúxusferð um vínhéruð Þýskalands og Frakklands. Nánast allt er innifalið, þ.á m. ríkulegur
morgunmatur, 9 þriggja rétta kvöldverðir, siglingar á Mósel og Bodenseevatni og vínsmökkun í
Þýskalandi og Frakklandi.
Verð: 89.900 á mann í tvíbýli - Aukagjald fyrir einbýli kr. 16.000
Reykjavik Collection
Valentiono Jeans
Helmut Lang
Day
Bruuns Bazaar
Calvin Klein
Base
Ahler
Whistles
Minus
Reiss
Jigsaw
pom’dap
fluxa
Útsölumarkaður
GK REYKJAVÍK
hefst í dag á Skúlagötu 17
útsölumarkaðurinn verður opinn
alla daga vikunnar frá kl. 12–18
herrafatnaður-dömufatnaður-skór-barnaskór-efni
UMRÆÐUR um Reykjavíkurflug-
völl hafa ekki farið fram hjá neinum.
Borgarstjórn Reykjavíkur treysti
sér ekki til þess að taka ákvörðun um
málið. Fara skyldu fram kosningar,
lýðræðið virkjað út í ystu æsar og
vilji fólksins fengi að ráða. Þetta er út
af fyrir sig góðra gjalda vert, þó til-
raunin hafi kostað skildinginn. Von-
andi nýtist þekkingin og tæknin síðar
með minni tilkostnaði.
En kosningarnar urðu að lúta
reglum og þær setti borgarráð þar
sem borgarstjórinn situr í forsæti.
Þessar leikreglur eru kunnar og eftir
þeim ætluðu þeir að fara sem þær
settu.
Niðurstaða kosninganna liggur nú
fyrir og þar með að þær voru ekki
bindandi samkvæmt leikreglum
borgarstjóra og félagar hennar. En
það skiptir ekki máli fyrir borgar-
stjóra. Úr því að niðurstaðan varð
ekki bindandi, ber henni „siðferðileg
og pólitísk skylda“ til þess að fara eft-
ir henni. Annað er ekki hægt í kosn-
ingum, segir hún. Í morgunútvarpi
Rásar 2 vísar hún til forsetakosning-
anna í Bandaríkjunum og segir að ef
„Bush hefði unnið með 450 atkvæð-
um þá hefði hann orðið forseti“, ekki
satt. Þvílík firra og útúrsnúningur.
Ef leikreglur borgarstjóra hefðu gilt
við þessar aðstæður hefði Bush auð-
vitað ekki orðið forseti, kosningarnar
hefðu auðvitað ekki orðið bindandi
þar frekar en hér. Eitthvað annað
hefði þurft að koma til eins og til
dæmis önnur umferð. Það er dapur-
legt að borgarstjóri skuli með þess-
um hætti hafa endaskipti á hlutunum.
En hver varð þá niðurstaða kosn-
inganna? Hún varð sú að Reykvík-
ingar eru ekki tilbúnir til þess á þess-
ari stundu að taka afstöðu til þess
hver framtíð flugvallarins á að vera.
Þeir sem vilja flugvöllinn burt eftir
árið 2016 höfðu ekki vinninginn né
heldur þeir sem vilja hann áfram í
Reykjavík. Það er því röng túlkun hjá
borgarstjóra að hægt sé að túlka nið-
urstöðuna með þeim hætti sem hún
gerir. Má þar minna á orð hennar
sjálfrar um að leikreglurnar voru
þekktar, allar upplýsingar lágu fyrir
o.s.frv. Það var sem sagt vitað fyrir
fram að einn af kostunum yrði sá að
engin niðurstaða fengist.
Þar sem kosningarnar voru ekki
bindandi, verða þær fyrst og fremst
skoðannakönnun og ljóst útfrá viður-
kenndum sjónarmiðum um skekkju-
mörk að ekki liggur fyrir hver er vilji
Reykvíkinga. Við þetta verður borg-
arstjóri að búa, fyrst leikreglurnar
tóku ekki á því hvernig með skyldi
fara kæmi þessi staða upp. En auðvit-
að stendur sá kostur eftir að það
verði önnur umferð í kosningunum,
þar sem einnig eru líkur á því að
meiri kosningaþátttaka náist, þ.e.
samfara næstu borgarstjórnarkosn-
ingum.
Að sinni ræði ég ekki um málflutn-
ing borgarstjóra í þá veru að Reykja-
víkurflugvöllur sé „sár“ í borginni, en
minni á að sé flugvöllurinn sem sam-
göngumannvirki sár, þá eru sárin
mörg í minni ágætu höfuðborg.
Kanski Ingibjörg bjóði Hafnfirðing-
um að taka höfnina að sér. Mín loka-
orð eru því þessi. Ingibjörg, vertu
málefnaleg, sá hroki sem farið er að
gæta í málflugningi þínum æ oftar,
verður þér á endanum að falli. Sið-
ferði er ekki fólgið í því að haga segl-
um eftir vindi þó pólitík þín kunni að
vera það.
Með kveðju, frá Norðlendingi sem
þykir vænt um borgina sína.
BALDUR DÝRFJÖRÐ,
Kotárgerði 11, Akureyri.
Siðferði og pólitík
Frá Baldri Dýrfjörð:
SJÓMENN eru bæði sárir og reiðir
þessa dagana enda ekki furða. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem verkföll
þeirra eru stoppuð. Þetta er gert
undir því yfirskini að bjarga þurfi
því sem eftir er af loðnukvótanum.
En þegar kennarar voru í löngu
verkfalli í vetur þótti stjórnvöldum
ekki ástæða til þess að grípa inn í
þótt hætta væri á að stór hópur
nemenda kæmi ekki aftur til náms
eftir svo langt verkfall og verkfallið
tefði útskrift annarra. Þær raddir
eru háværar í samfélaginu núna að
stjórnvöld séu strengjabrúður út-
gerðarmannanna, þeir séu með
stjórnvöld í rassvasanum. Fólki
finnst að stjórnvöld hefðu átt að
standa við þau loforð, sem gefin voru
fyrir skemmstu, að ríkisstjórnin
myndi ekki grípa til lagasetningar
eins og svo oft hefur verið gert. Fólk
treystir ekki yfirvöldum sem segja
eitt í dag og annað á morgun. Fólki
ofbýður hversu oft er búið að taka
þau sjálfsögðu mannréttindi af sjó-
mönnum að fara í verkföll til að
knýja fram réttláta kjarasamninga.
Það er farið illa með hetjur hafsins
sem vinna erfiða vinnu á hafi úti og
færa okkur gull úr greipum Ægis.
Oft eru þeir lengi fjarri heimilum
sínum og fjölskyldum sem óttast
jafnvel um þá þegar verstu veður
geisa á miðunum við landið.
Kauptrygging sjómanna er mjög
lág og oft það eina sem þeir hafa til
þess að lifa af ef lítið fiskast. Slys á
sjómönnum eru því miður tíð og
slysatryggingar lágar. Ég veit um
sjómann sem slasaðist illa á fingri
við vinnu sína úti á sjó svo hann ber
varanlegan skaða af. Hann fékk um
300 þúsund í slysabætur og það eru
skammarlega lágar bætur fyrir svo
alvarlega og varanlega örorku sem
af þessu hlaust. Flestir ganga
menntaveginn nú til dags. En
gleymum ekki þeim sem vinna erfið
störf til sjós og lands. Þótt menntun
sé góð mega ekki verða til í þessu
litla samfélagi okkar tveir þjóðflokk-
ar, annars vegar langskólagengið
fólk í hálaunastörfum og hins vegar
fólk í láglaunastörfum með minni
menntun úr skólum. Stjórnvöld sýna
sjómönnum lítilsvirðingu og fótum
troða lýðræðislegan rétt þeirra til að
berjast fyrir bættum kjörum.
Ég vil að lokum óska sjómönnum
alls hins besta og góðs gengis í
kjarabaráttu þeirra.
SIGRÚN ÁRMANNS
REYNISDÓTTIR,
félagi í Frjálslynda flokknum,
Hraunbæ 38, Reykjavík.
Hetjur hafsins
Frá Sigrúnu Ármanns
Reynisdóttur: