Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 78

Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 78
FÓLK Í FRÉTTUM 78 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ FYRSTU tvö kvöld Músíktilrauna þetta árið hafa einkennst af talsvert mikilli fjölbreytni og ekki hvað síst þetta kvöld sem hér er til umfjöllunar. Minnisstæðar eru t.d. tilraunirnar ár- ið 1993 en þá lék lunginn af sveitunum dauðarokk. Í dag er flóran að mun fjölskrúðugri og síðasta fimmtudag var í boði m.a. melódískt nýbylgj- urokk, hefðbundið þreskiþungarokk (e. thrash), myrk trommu- og bassa- tónlist, súrt tölvupopp og „aðallega geimtónlist“. Harðkjarnasveitin Snafu hitaði sal- inn upp og fórst það vel úr hendi. Sveitin hafnaði í öðru sæti tilraun- anna í fyrra og gaman að sjá hversu firnaþétt sveitin er orðin en ný lög á tónleikadagskrá hennar voru hrein- asta afbragð. Halim voru fyrstir keppnissveita á svið. Mátti þar þekkja kunnugleg andlit þar sem Rafnssynir, Jónsson- ar, fóru. Söngvari og gítarleikari sveitarinnar, Ragnar Sólberg, tók þátt í keppninni árið 1998 með sveit- inni Rennireið, en hún var þá kosin bjartasta von tilraunanna. Bróðir hans, Egill, barði bumbur en hann tók sömuleiðis þátt í keppninni árið þar á undan með sveitinni Woofer. Halim (slappt nafn) lék melódískt nýbylgjurokk í anda Ash, Maus og 200.000 naglbíta. Án efa þéttasta sveit kvöldsins, prýdd fyrirtaksgítarleik og greinilegt að mikið stjörnuefni býr í Ragnari. Söngur hans þótti mér þó vera uppburðarlítill og eins gerðu lagasmíðarnar sig ekki alveg þótt um sýnilegan metnað væri að ræða. Akurnesingarnir í Hemru voru næstir. Síðasta haust sigraði sveitin í hljómsveitakeppni Fjölbrautaskólans þar í bæ, Glysrokki, og sýndi þar mik- inn þéttleika og kraft. Sveitin leikur nokkuð hefðbundið keyrslurokk af þreskiætt með sterkar tilvísanir í Sepultura og ámóta sveitir. Lög sveit- arinnar þetta kvöld skriðu líkt og skriðdrekar áfram; þung bæði og kröftug. Best var síðasta lagið, hvar þeir félagar gáfu nokkuð duglega í. Fake Disorder lék að heita má ung- kjarnarokk og sveitin er nokkuð greinilega ný og fersk úr skúrnum. Töluvert vantaði upp á samhæfingu og kraft hjá sveitinni af þeim sökum, meðlimir óstyrkir og lagauppbygg- ingar oft og tíðum vafasamar. Það sem upp úr stóð var söngvarinn sem stóð sig með mikilli prýði. Síðust fyrir hlé var eins manns sveitin Hemúll. Til þessa bæði nýstár- legasta og skemmtilegasta „sveit“ til- raunanna. Meðlimurinn, nafni minn Jónsson, lék hugrakkur öllum góðum látum, lexíaði af mikilli ástríðu yfir fólki um pólitík, flutti gjörning og söng angurvær vísukorn. Undir buldi furðulegt og vélrænt rafpopp í anda nýrómantísku stefnunnar sem hátt fór á níunda áratug síðustu aldar. Súrrealískt í meira lagi og salurinn vel með á nótunum. Heróglymur lék varlegt, pínku sætt nýbylgjurokk, sem minnti nokk- uð sterklega á bandarísku sveitina Seam og jafnvel líka á hina alíslensku Suð. Hljóðfæraleikur var í slakara lagi en melódíur og lagasmíðar al- mennt voru hins vegar í góðu lagi. Söngvari sveitarinnar söng og af mik- illi innlifun og tilfinningu. Sensor lék óskilgreinda raftónlist, eða „aðallega“ geimtónlist eins og talsmaður sveitarinnar lýsti henni. Fyrsta lagið var til að mynda trommu- og bassalag að hætti ársins 1996, svo kom rapplag sem var lítið að virka. Síðasta lagið var til muna best; skemmtilegur samhræringur af trommu- og bassa og tæknói. Síðastur var trommu- og bassalistamaðurinn Skam. Ólíkt Sensor var hér heilsteypt efni á ferðinni, Elvar Skamliði greini- lega búinn að þróa sinn stíl nokkuð. Ágætlega vel unnin „myrkra“- trommu- og bassatónlist með flottum og skítugum, næsta undarlegum hljóm. Sérstaklega var síðasta lagið gott, í raun frábært. Á meðan talning- armeistararnir unnu sitt verk og dómnefndin réð ráðum sínum lék þungkjarnasveitin Vígspá og gerði allt vitlaust, í jákvæðum skilningi. Úrslit voru svo kunngjörð. Fóru leikar þannig að salurinn valdi Halim áfram og dómnefndin hleypti tveimur sveitum áfram: Skam og Heróglymi. Hitt og þetta og ansi mikið af H-um TÓNLIST T ó n a b æ r Annað tilraunakvöld Músíktilrauna Tónabæjar, haldið í félagsmiðstöð- inni Tónabæ 22. mars 2001. Fram komu Halim, Hemra, Fake Disorder, Hemúll, Heróglymur, Sensor og Skam. MÚSÍKTILRAUNIR Arnar Eggert Thoroddsen Söngvari Fake Disorder, Páll Ingi Guðmundsson (lengst til hægri), var með lungun í lagi. Morgunblaðið/Björg Sveins Hemúll þrumar yfir lýðnum.Hemra spilaði þungt og kraftmikið rokk. Sensor lék „aðallega geimrokk“. Sofíu, Búlgaríu, 22. mars 2001. Þessi kona var að kveikja á kerti í St. Alexander Nevskí-kirkjunni, þar sem koma tugir manna dag hvern til þess að biðjast fyrir og kveikja á kertum en þessi kirkja er ein merkasta byggingin í Búlg- aríu. Ljósmyndari var rétt búinn að taka þessa einu mynd þegar vörður kom hlaupandi og sagði að stranglega væri bannað að taka myndir inni í kirkjunni. Dagbók ljósmyndara Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kertaljós í merkri kirkju
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.