Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
SEX ára stúlka fannst lífvana í sund-
lauginni í Grindavík síðdegis í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Keflavík barst tilkynning
til lögreglunnar kl. 16.38. Læknir
sem sendur var á staðinn úrskurðaði
stúlkuna látna. Lögreglan í Keflavík
rannsakar tildrög að láti stúlkunnar.
Hún var í skólasundi, en hefðbund-
inni kennslustund var lokið. Börnin
voru þó enn í lauginni í svonefndum
frjálsum tíma.
Sex ára barn lést í
sundlauginni í Grindavík
LÍKLEGIR orsakaþættir flugslyss-
ins í Skerjafirði 7. ágúst í fyrra þeg-
ar TF-GTI, sex manna eins hreyfils
vél af gerðinni Cessna 210 Cent-
urion fórst, eru gangtruflanir og afl-
tap hreyfilsins sem urðu vegna
skorts á eldsneyti til hreyfilsins
vegna þess að eldsneyti á þeim
tanki sem stillt var á gekk til þurrð-
ar. Aðrir líklegir orsakaþættir eru
og nefndir, svo sem að flugmaður
virðist ekki hafa gengið úr skugga
um hvert eldsneytismagn var á
tönkum vélarinnar fyrir brottför frá
Vestmannaeyjum, hann hafi van-
metið eldsneytiseyðsluna og að flug-
maðurinn hafi ekki beint nefi flug-
vélarinnar tafarlaust niður til að
halda eða ná upp hraða til nauðlend-
ingar á haffletinum eftir að hreyfill-
inn missti aflið.
Þetta kemur fram í niðurstöðu-
kafla skýrslu Rannsóknarnefndar
flugslysa, RNF, sem kom út í gær. Í
skýrslunni er flugið rakið frá upp-
hafi í Vestmannaeyjum kl. 20:03 og
þar til hún brotlenti í sjónum í
Skerjafirði laust eftir kl. 20.35.
Fimm farþegar voru í flugvélinni og
flugmaður. Fimm eru látnir en einn
farþeganna liggur enn á sjúkrahúsi.
Í tillögum í öryggisátt beinir
RNF því til Flugmálastjórnar að
hún komi á gæðakerfi fyrir flug-
öryggissvið stofnunarinnar, að flug-
rekstrardeild flugöryggissviðs geri
áætlun um formlegar úttektir á
flugrekendum og að hún leggi sér-
staka áherslu á að viðhaldsaðilar
flugvéla haldi nákvæma skráningu
um viðhald og skrái allar niðurstöð-
ur mælinga.
22. flugferðin
þennan dag
Flugmaðurinn flaug TF-GTI alls
11 sinnum með farþega milli lands
og Eyja þennan dag, þ.e. 22 ferðir
alls. Fyrsta flugtak var kl. 7:53 frá
Reykjavík. Vélin lenti síðast í Vest-
mannaeyjum kl. 19:48 áður en henni
var flogið til Reykjavíkur með fimm
farþega. Flugmaðurinn gerði flug-
áætlun uppá 30 mínútna sjónflug frá
Vestmannaeyjum og var flugþol
gefið upp 2:30 klst. Þegar vélin
nálgast Hellisheiði kl. 20:19 biður
flugmaðurinn um blindflugsheimild
til flugs á radíóvita við Elliðavatn.
Greint er frá annarri flugumferð í
nánd við Reykjavíkurflugvöll og að-
flugi TFR-GTI lýst og samskiptum
við flugumferðarstjórn. Þegar vélin
er í um 100 feta hæð nálægt flug-
brautarenda fær flugmaðurinn fyr-
irmæli um að hætta við lendingu og
fljúga svonefndan umferðarhring.
Sást vélin taka upp hjólin og í
skýrslunni er síðustu mínútunum
lýst svo:
„Flugvélin var í beinu flugi og
hægu klifri í um 500 feta flughæð að
mati sjónarvotta, þegar flugmaður-
inn kallaði kl. 20:34:54: „Og Teitur
Ingi, óska eftir að koma inná! – ég
er búinn að missa mótorinn!“ Flug-
turninn svaraði um hæl: „Ertu bú-
inn að missa mótor? ... stysta leið og
heimil lending!“ Kl. 20:35:04 hrópaði
flugmaðurinn: „Það er stoll!! það er
stoll!!“ sem þýðir að vélin er að of-
rísa.
Síðan segir í lok kaflans um flug-
ið: „Fjöldi sjónarvotta telur að flug-
vélin hafi náð um 500 feta flughæð
og að hún hafi verið nánast í láréttu
flugi eða hægu klifri þegar hún
beygði til vinstri. Beygjuhallinn
jókst og jafnframt féll flugvélin inn í
bratt gormflug og hafnaði í sjónum
um 350 metra frá landi. Flugvélin
brotnaði sundur og sökk á um sex
metra dýpi með alla innanborðs.“
Niðurstaða Rannsóknarnefndar flugslysa um slysið í Skerjafirði
Eldsneytisskortur með-
al líklegra orsakaþátta
Úr skýrslu/10–14
Niðurstöður og viðbrögð/42–43VERÐ á mjólkurkvóta á kúabúum
hefur aldrei verið hærra, eða 235
krónur fyrir hvern lítra, sé miðað við
hæsta verð sem þekkist. Frá árs-
byrjun 1998 hefur verðið hækkað um
80% og hækkunin nemur 160% ef
farið er aftur til haustsins 1992 þeg-
ar hver lítri seldist á 90 krónur.
Að sögn Snorra Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Landssambands
kúabænda, eru ástæður fyrir háu
kvótaverði nú ýmsar. Lítið framboð
sé á kvóta og eftirspurn mikil. Við-
skiptin séu því frekar lítil en á háu
verði. Auðveldur aðgangur að fjár-
magni hafi einnig sitt að segja og þá
segir Snorri að bjartsýni ríki meðal
kúabænda og hugur sé í þeim sem
ætla að halda áfram búskapnum.
Snorri lét Morgunblaðinu í té upp-
lýsingar um þróun kvótaverðs frá
því á haustdögum árið 1992. Um
hæsta verð á hverjum tíma er að
ræða í töflunni og tölur um magn
kvóta, sem gekk kaupum og sölum
þetta tímabil, liggja ekki fyrir þar
sem þær eru trúnaðarmál, að sögn
Snorra. Af þeim sökum sé erfitt að
átta sig á meðalverðinu hvert ár.
Mjólkurkvóti
í sögulegu hámarki
80 prósent
hækkun
á þremur
árum
Gefur kúnum/23
&
! %
#
$ #
#
#
% #
#
& #
#
'%
% !#!
%(
' (") LÖGREGLAN í Keflavík handtók
sl. laugardag tvo menn fyrir aðild
að smygli á hassi. Mennirnir eru
báðir menntaðir flugvirkjar og
störfuðu hjá Flugleiðum á Kefla-
víkurflugvelli, annar sem flugvirki
en hinn á varhlutalager. Þeir voru
staðnir að verki þar sem þeir vitj-
uðu bögguls með um 850 g af hassi
sem þeir geymdu á víðavangi.
Böndin bárust fljótlega að þriðja
manninum sem hefur játað aðild
sína að málinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Keflavík fór sá til Kaup-
mannahafnar í febrúar og keypti
þar 1,5 kg af hassi. Efnið faldi hann
á salerni Flugleiðavélar þar sem
annar mannanna vitjaði þess.
Mennirnir höfðu selt um 650 g af
hassi áður en þeir náðust en eitt-
hvað af því notuðu þeir til eigin
neyslu.
Að sögn lögreglunnar fannst
hassið á laugardagskvöldið en það
voru börn að leik í móa norður af
bænum sem fundu böggul með
hassinu. Þau sýndu hann foreldrum
sínum sem höfðu samband við lög-
reglu. Í honum reyndust vera um
850 g af hassi.
Lögreglan kom bögglinum aftur
fyrir á sama stað en vaktaði svæð-
ið. Um kvöldið voru tveir mann-
anna staðnir að verki þegar þeir
ætluðu að ná í hassið. Við yfir-
heyrslur yfir mönnunum kom fram
að þeir höfðu geymt hassið á öðrum
stað. Einhver styggð kom að þeim
þar og því fluttu þeir efnið þangað
sem það fannst á laugardaginn.
Lögreglan hafði haft mennina
undir eftirliti um nokkurn tíma áð-
ur en hassið fannst, vegna upplýs-
inga sem lögreglunni höfðu borist
um að þeir seldu fíkniefni. Menn-
irnir, sem allir eru á þrítugsaldri,
hafa allir játað sinn þátt í smygl-
inu.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir að
starfsmennirnir tveir hafi báðir
verið leystir undan starfsskyldum
hjá fyrirtækinu.
Börn að leik fundu
hass á víðavangi
Flugvirkjar játa
aðild að smygli
á hassinu
SKÍÐAHRINGEKJU hefur verið
komið fyrir í Bláfjöllum en Kristján
Helgason hjá Skíðasambandi Ís-
lands segir að með þessu sé verið að
hjálpa ungum og óreyndum skíða-
mönnum af stað á skíðum.
Kristján segir hringekjuna ætl-
aða yngstu börnunum. Það taki þau
stundum nokkurn tíma að komast
upp á lag með að nota skíðalyftuna
í barnabrekkunni. Sum verði líka
smeyk þegar komið er efst í brekk-
una. „Þetta er mýkri byrjun,“ segir
Kristján. Hringekjan verður form-
lega opnuð almenningi um helgina
en hann segir að þeim börnum sem
hafi prófað hringekjuna hafi líkað
hún vel.
Í Bláfjöllum er gott færi og útlit
fyrir hagstætt veður um helgina.
Morgunblaðið/RAX
Skíðahring-
ekja opnuð
í Bláfjöllum