Morgunblaðið - 28.04.2001, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 28.04.2001, Qupperneq 4
AF rúmlega hundrað föngum sem nú afplána refsivist eða sitja í gæslu- varðhaldi er rúmlega fjórðungur þar vegna fíkniefnabrota, segir Erlend- ur S. Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins. Hann segir hlutfall þeirra sem sitja inni vegna brota gegn fíkniefna- löggjöfinni hafa aukist mjög á und- anförnum árum. Því virðist fjöldi fanga ekki benda til þess að harðari refsingar gegn fíkniefnabrotum hafi dregið úr afbrotum Aðspurður um gildi þess að herða refsingar við fíkniefnabrotum segir Erlendur að þeir afbrotamenn sem hann hafi rætt við í sínu starfi hafi yfirleitt sagst hafa meiri áhyggjur af því hvort þeir kæmust upp með glæpinn en hvort fangelsisvistin yrði einu árinu lengri eða skemmri. Þá kosti það ríkið talsverða fjár- muni að hafa menn í fangelsi. Er- lendur segir það sína skoðun að þeim fjármunum yrði betur varið til að efla löggæslu og tollgæslu og bæta forvarnir. Erlendur segir að hjá þeim nágrannaþjóðum okkar sem hafi hert refsingar við tilteknum brotum, t.a.m. fíkniefnabrotum, þá hafi yfirvöld haft áhyggjur af því að slíkt hafi leitt til harðnandi ofbeldis. Rúmlega eitt hundrað fangar á Íslandi Meira en fjórð- ungur inni vegna fíkniefnabrota Ljósmynd/Tryggvi Felixson Gróðurskemmdir blasa við eftir utanvegaaksturinn. Fjær sér í Keili. ALVARLEGAR gróðurskemmdir hafa orðið af völdum utanvegaakst- urs suðvestur af Trölladyngju á Reykjanesi. Svæðið er við vinsælt útivistarsvæði á Reykjanesfólkvangi og hafa verstu náttúruspjöllin verið unnin á um 10 ferkílómetra svæði í kjölfar aukinnar umferðar inn á svæðið á síðustu mánuðum. Mosa- vaxin hraun hafa verið verst leikin og einnig hafa orðið skemmdir á gömlum jeppaslóðum á graslendi. Vegna aurbleytu hafa ökumenn far- ið út fyrir slóðana og myndað nýja. Með tímanum hafa þeir orðið ófærir og þannig hafa nýir slóðar verið myndaðir hver af öðrum með til- heyrandi náttúruspjöllum. Hefur slíkt aksturslag haft í för með sér skemmdir á landi sem er sundur- skorið af hjólförum á breiðu belti. Landvernd hefur beint þeim til- mælum til Jarðborana ríkisins, sem lagði veg í samráði við Náttúru- vernd ríkisins inn að vinnusvæði sínu á Trölladyngjusvæðinu, að komið verði á framfæri skilaboðum til vegfarenda um að utanvegaakst- ur sé bannaður. Enda þótt það sé ekki hlutverk Jarðborana að hafa eftirlit með umferð hafa bormenn engu að síður tekið vinsamlega í til- mæli Landverndar. Vettvangskönnun lögreglu líkleg Umrætt svæði er innan lögsögu lögreglunnar í Keflavík, sem hefur til skoðunar að kanna svæðið í ljósi framkominna upplýsinga, þrátt fyr- ir að kærur vegna málsins hafi ekki borist embættinu. Samkvæmt náttúruverndarlögum er bannað að aka vélknúnum öku- tækjum utan vega, þótt heimilt sé að aka á jöklum og á snjó utanvega, svo fremi sem jörð sé frosin og snævi þakin. „Víða á landinu er jörð oft ófrosin á veturna og að því verða ökumenn að hyggja,“ segir Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Land- verndar. „Akstur utanvega á vet- urna getur verið matsatriði og þess vegna verður að treysta á dóm- greind jeppafólks.“ Tryggvi segir að ástandið við Trölladyngju sé orðið það alvarlegt að ástæða væri til að senda sérstaka aðila á vettvang til að fylgjast með umferð en það sé þó illframkvæm- anlegt. „Mikilvægast er að jeppa- ökumenn átti sig á því hvað þeir eru með í höndunum,“ segir hann. Þrándur Arnþórsson, formaður umhverfisnefndar Ferðaklúbbsins 4x4, segir að klúbburinn líti allan ut- anvegaakstur mjög alvarlegum aug- um og segir það hag klúbbsins að farið sé eftir náttúruverndarlögum. Gróðurskemmdir við Trölladyngju FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALEXANDER A. Avdéev, vara- utanríkisráðherra Rússlands, kom hingað til lands síðla fimmtudags og átti viðræður við Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra snemma í gær- morgun. Undirrituðu ráðherrarnir á fundi sínum nýtt samkomulag um rannsóknir og útgáfu grunnskjala er varða opinber samskipti Rússlands og Íslands, en eftir tvö ár verða liðin 60 ár frá því löndin tóku upp formlegt stjórnmálasamband og á að minnast þess meðal annars með þessari út- gáfu. Á blaðamannafundi í utanríkis- ráðuneytinu lofuðu ráðherrarnir báð- ir þetta framtak. Sagði Avdéev að þessi skjalaútgáfa ætti ekki einvörð- ungu að vekja athygli sagnfræðinga og annarra grúskara heldur ekki síð- ur erindreka beggja þjóða og ann- arra áhugamanna á samskiptum þeirra síðastliðna áratugi. Sagði Halldór hafa verið tæpt á mörgum málum í viðræðunum, aðallega þó málum er vörðuðu tvíhliða samskipti ríkjanna, evrópsk öryggismál og samstarf á sviði þeirra, auk svæðis- bundins samstarfs svo sem innan Eystrasaltsráðsins, Barentshafs- ráðsins og norðurheimskautsráðsins. Þeir Avdéev, sem er staðgengill rúss- neska utanríkisráðherrans Ígors Ív- anovs, hefðu þekkzt lengi og það hefði lengi staðið til að hann kæmi hingað til skrafs og ráðagerða um ýmis sameiginleg hagsmunamál þjóðanna. „Við höfum átt góð samskipti á undanförnum árum og leyst mörg mál sem hafa verið á milli okkar, sér- staklega á sviði fiskveiði,“ sagði Hall- dór, og tók fram að Íslendingar væru Rússum þakklátir fyrir að hafa brugðizt hratt við t.d. þegar sett var á bann af þeirra hálfu við innflutningi á kjöti og fiski vegna gin- og klaufa- veikinnar í V-Evrópu. „Þeir brugðust skjótt við og afléttu þessu banni mjög fljótt eftir að við höfðum farið þess á leit við þá,“ sagði hann. Avdéev greindi frá því, að hann vonaðist til að af heimsókn forseta Ís- lands til Rússlands yrði á næsta ári. Halldór sagðist sjálfur myndu fara til Moskvu á árinu, sennilega í október. Þar sem ráðherrafundur Atlants- hafsbandalagsins fer fram í Reykja- vík í maí á næsta ári voru mál sem bú- ast má við að verði þar á dagskrá rædd á fundi ráðherranna í gær. Benti Halldór á að auk fulltrúa NATO-ríkjanna nítján mundu einnig fulltrúar samstarfsríkja bandalags- ins í A-Evrópu mæta líka á þennan fund í Reykjavík, þar á meðal fulltrú- ar Rússlandsstjórnar og mundu þeir eiga sérstakan samráðsfund með fulltrúum NATO við þetta tækifæri. Eftirvænting fyrir NATO-fund í Reykjavík „Rússar leggja mikla áherzlu á þennan fund,“ sagði Halldór, „því þá verða stækkunarmálin komin mjög mikið á dagskrá. Við leggjum mikið upp úr því að auka samstarf Atlants- hafsbandalagsins á öllum sviðum við Rússland og auka þau samskipti sem mest.“ Á leiðtogafundi NATO sem áformað er að fari fram í Prag hálfu ári eftir Reykjavíkurfundinn, í nóv- ember 2002, stendur til að taka ákvarðanir um frekari stækkun NATO til austurs. Um þetta sagði Avdéev, að rúss- neska stjórnin álíti samskipti Rúss- lands við NATO vera mjög mikilvæg fyrir öryggismál í Evrópu. Rússar muni fylgjast náið með því sem fram fer á NATO-fundinum í Reykjavík að ári. „Við vonumst til að koma á víð- tæku samstarfi byggðu á gagn- kvæmu trausti, innan ramma sam- starfssamnings Rússlands og bandalagsins,“ segir hann. Spurður um stefnu hinnar nýju ríkisstjórnar Bandaríkjanna undir forystu George W. Bush forseta vildi Avdéev fyrst taka fram, að samskipti Rússlands og Bandaríkjanna væru mjög þýðingarmikil fyrir stöðugleik- ann í heiminum. „Rússlandsstjórn gengur þess vegna út frá því að hin nýja ríkisstjórn í Washington muni sýna órofið samhengi í stefnu sinni á sviði utanríkismála,“ sagði hann. „Við erum mjög áfram um að viðhalda nánum samskiptum milli ríkisstjórna Rússlands og Bandaríkjanna og ger- um okkur vonir um að í Washington sé einnig litið þannig á.“ Varðandi þau vandamál sem nú eru uppi í samskiptum Bandaríkj- anna og Kína sagði Avdéev að Rússar vonuðust svo sannarlega til að þau leysist farsællega og samskiptin milli Washington og Peking þróist á bezta veg. Samkomulag undirritað um útgáfu á skjölum er varða samskipti Íslands og Rússlands í 60 ár Morgunblaðið/Kristinn Þeir Alexander A. Avdéev, varautanríkisráðherra Rússlands (t.v.), og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sögðu í gær að heilindi og traust einkenndu samskipti ríkjanna. Tvíhliða samskipti Íslands og Rússlands, öryggismál í Evrópu og margvíslegt svæð- isbundið samstarf voru efst á baugi við- ræðna varautanríkisráðherra Rússlands og íslenzks starfsbróður hans í Reykjavík í gær. Auðunn Arnórsson hitti ráðherrana. auar@mbl.is Sameiginlegur áhugi á nánu samstarfi NATO og Rússa STEFÁN Kjærnested, fram- kvæmdastjóri Atlantsskipa, segir fréttir af því að varnarliðið muni ekki framlengja sjóflutningasamning sinn við Atlantsskip og Transatlantic Lines stangast á við þær upplýsing- ar sem hann hafi fengið frá banda- ríska hernum. „Þær upplýsingar sem við höfum frá hernum eru að þeir hafi ekki ann- að í hyggju en að framlengja sam- starfið. Ég vil benda á að þessar fréttir eru hafðar eftir ónafngreind- um aðila í blaðinu Trade Winds sem almennt er flokkað undir hina svo kölluðu gulu pressu skipaiðnaðarins og hefur orð á sér fyrir að fara frjáls- lega með staðreyndir, svo þær fréttir ætti að taka með fyrirvara,“ sagði Stefán. „Ég neita því hins vegar ekki að við höfum fundið fyrir þrýstingi vissra aðila en þetta er ekki í sam- ræmi við það sem við höfum heyrt að undanförnu frá hernum,“ svaraði Stefán inntur eftir því hvort stjórn- endur Atlantsskipa hefðu fundið fyr- ir þeim þrýstingi frá íslenskum og bandarískum yfirvöldum að flutn- ingadeild hersins framlengdi ekki samning við þá um sjóflutninga fyrir varnarliðið líkt og greint er frá í frétt Morgunblaðsins í gær. Spurður hvort hann hefði haft samband við flutningadeild hersins eftir birtingu fréttar World Trade sagðist Stefán að sjálfsögðu hafa gert það þegar í kjölfar birtingarinnar og fengið þau svör að ekkert útlit væri fyrir annað en að samningnum yrði framfylgt til loka samningstímans eða til október 2003. Þá yrðu nýir samningar boðnir út rétt eins og áður hefði verið. Samningur Atlantsskipa og varnarliðsins Samningi framfylgt út samningstíma
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.