Morgunblaðið - 28.04.2001, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG tók það nú upp hjá sjálfum mér
að svara bréfi í Morgunblaðinu sem
þú sendir til Magnúsar Orra Har-
aldssonar, fyrrverandi fjármála-
stjóra Skífunnar hf. og núverandi
forstöðumanns rekstrarsviðs Norð-
urljósa hf. Mér finnst það satt að
segja ábyrgðarhluti af þinni hálfu að
persónugera samningsmál þín með
þeim hætti sem þú gerir og vega
ómaklega að góðum manni. Sam-
skipti okkar hafa alltaf verið með
besta móti og ég er þér þakklátur
fyrir að kalla mig vin. Ekki vil ég
kannast við að það hafi staðið í
„jagi“ milli okkar í nokkur ár út af
útgáfuréttindum eða öðrum málum.
Þar sem ég keypti á sínum tíma út-
gáfurétt SG og Fálkans, sem höfðu
gefið út hljóðrit með þér, og þar sem
ég stóð fyrir útgáfu heildarverka
þinna í samvinnu við Ríkisútvarpið
árið 1990, þekki ég vel alla þætti
málsins og axla fulla ábyrgð á þeim.
Það var samt ekki ætlan mín að
svara þér opinberlega um þessi mál.
Þú tókst þau upp á þeim vettvangi
og þar sem þú hafnaðir svo fundi
með okkur Magnúsi Orra til þess að
fá skýringar á því sem hefur aug-
ljóslega skolast til í áranna rás. Þá
tel ég rétt að setja málið stuttlega í
samhengi. Bréf þitt í Morgun-
blaðinu er alls ófullnægjandi lýsing
hvað staðreyndir varðar auk þess
sem það gengur of langt í að sverta
persónur og fyrirtæki. Jafnvel þó
skrifin hafi veitt þér einhverja útrás
eru þau vart réttlætanleg, þegar
öðlingur eins og þú átt hlut að máli.
Fyrst það sem varðar fyrri samn-
inga þína við SG og Fálkann. Þegar
Steinar hf. keypti útgáfurétturinn af
SG var skilgreint hvaða flytjendur
áttu rétt á ágóðahlut. Þitt nafn var
ekki þar á meðal. Einn samningur
er til milli þín og Fálkans og þar er
tiltekinn ákveðin upphæð til þín fyr-
ir hvert lag og síðan segir: „Er þetta
fullnaðargreiðsla fyrir sönginn.“ Sá
háttur var algengastur áður fyrr að
flytjendur þæðu eingreiðslu fyrir
flutning sinn á hljóðritum. Eftir við-
ræður, árið 1997, útbjó Jónatan
Garðarsson, þáverandi útgáfustjóri
Spors hf., útgáfusamning við þig
sem tekur til allra þessara hljóðrita
og tryggði þér ákveðinn ágóðahlut
af öllum seldum eintökum eftir að
stofnkostnaði hafði verið náð. Þótt
upptökurnar hafi verið fyrirliggj-
andi í einhverju formi þurfti að
koma til endurvinnsla á frumsegul-
böndum, afritun á plötum auk ann-
ars kostnaðar. Hér er um að ræða
réttindi sem þú hafðir afsalað þér
við upphaflega samningsgerð. Það
er mér allsendis ómögulegt að skilja
hvers vegna þú sinntir því ekki að
skrifa undir þennan samning og hef-
ur hann á hornum þér nú mörgum
árum síðar. Engu að síður hefur
ágóðahlutur til þín verið reiknaður
skv. honum. Það að upphæðirnar
séu ekki háar á sér þær skýringar
að sala útgáfunnar er lítil sem engin.
Ef sú staðreynd ergir þig er við al-
menning í landinu að sakast og því
ómaklegt að veitast að Magnúsi
Orra og bókurum Skífunnar í því
sambandi. Þú veist miklu betur en
að skjóta sendiboðann. Hins vegar
komum við ekkert nálægt því að þú
færð sendan póst Guðmundar nafna
þíns í Sálinni hans Jóns míns frá
STEF. Þið nafnarnir leysið þau mál
örugglega farsællega í samvinnu við
það ágæta félag.
Það tekur mig sárt að sjá hvernig
þú lýsir samskiptum vegna útgáfna
þeirra, sem Steinar hf. stóðu að í til-
efni 70 ára afmælis þíns, í samvinnu
við Ríkisútvarpið, þinn gamla vinnu-
veitanda. Þessi útgáfa er sprottin af
góðum hug eins og þú veist svo vel.
Um var að ræða fjórar geislaplötur
sem tóku til glæsilegs ferils þíns.
Samningur sá er gerður var vegna
þessara útgáfna milli Steina hf. og
Ríkisútvarpsins er alhliða samning-
ur um útgáfu sögulegra upptakna úr
segulbandasafni Ríkisútvarpsins.
Það lá alltaf fyrir að lítill möguleiki
væri á því að láta útgáfu þessara
fjögurra platna standa undir kostn-
aði, enda er hún mikil að umfangi og
ágætlega til hennar vandað á allan
hátt, m.a. með sérútbúinni öskju um
heildarútgáfu þessara fjögurra
geislaplatna. Í samningi Steina hf.
og Ríkisútvarpsins kveður á um að
ágóðahlutur skuli greiðast í „Út-
gáfusjóð útvarpsins vegna sögu-
legra hljóðrita“. Til greiðslu komi þó
aðeins ef ekki er um tap á viðkom-
andi útgáfum að ræða. Því miður
varð það svo eins og þú veist að um-
talsvert tap varð af þessari útgáfu.
Aðeins seldust örfá hundruð þeirra
2000 sem framleidd voru. Þessar
staðreyndir voru þér allar gerðar
ljósar á sínum tíma. Ef þú vildir
hafa uppi kröfur um ágóðahlut fyrir
not af þessum upptökum þá var eig-
andi upptaknanna, Ríkisútvarpið,
samningsaðili þinn þar að lútandi.
Guðmundur minn. Ég vona að
þær upplýsingar sem hér eru settar
fram komi þér að einhverju gagni.
Tónlistariðnaðurinn er með þeim
ólíkindum að maður veit aldrei hvað
bíður handan við hornið. Þannig
gætir þú tekið upp á því að verða
ellismellur á gamals aldri eða eftir
að þú ert genginn og því skynsam-
legt að þú eigir ágóðahlut í þeim
upptökum sem þú hefur gert, þótt
þú hafir afsalað þér honum með
upphaflegum samningum og virðist
staðráðinn í því að halda þig við það
heygarðshorn. En það er margt
skrítið í kýrhausnum. Þannig er það
orðið hlutverk útgefandans að sann-
færa listamanninn um að hann eigi
að þiggja ágóðahlut frekar en ekki.
Ég vil að lokum ítreka til þín boð
um kaffi, köku og gott spjall. Samt
ætla ég þó fyrirfram að afþakka að
fá mér í nefið þar sem ég hef nefni-
lega aldrei náð þeim þroska að
temja mér notkun neftóbaks. Það er
alger óþarfi að jafngeðgóður maður
og þú látir eftir þér að fara í vont
skap. Að lokum vil ég biðjast vel-
virðingar ef erfiðleikar hafa komið
upp í samskiptum manna á meðal
vegna þessa. Það er kannski merki
þess að samskiptaöldin hentar
mönnum misjafnlega. Altént vona
ég að skammarskrifin hafi bætt
skap þitt nógu mikið til þess að þú
þurfir ekki að nota slíkan sam-
skiptamáta framar.
Með kveðju,
STEINAR BERG ÍSLEIFSSON
framkvæmdastjóri tónlistar-
deildar Norðurljósa.
Kæri Guðmundur
Frá Steinari Berg Ísleifssyni: