Morgunblaðið - 28.04.2001, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKÓGRÆKTARFÉLAG Vest-
mannaeyja, sem samanstendur af
áhugafólki um ræktun trjáa í Vest-
mannaeyjum, gekkst fyrir gróður-
setningu trjáa í landgræðsluskóg-
inum (Hraunskógi) í nýja hrauninu
austan við bæinn í byrjun vikunn-
ar. Að sögn Kristjáns Bjarnasonar
garðyrkjustjóra í Vestmannaeyj-
um er skógræktarsvæðið á Heima-
ey alls 30 hektarar sem nær frá
haugasvæði í suðri og norður fyrir
sorpeyðingarstöðina og allt nýja
hraunið ofan og vestan við Skans-
inn. Á síðasta ári voru gróðursettar
6000 trjáplöntur í nýja hraunið
vestan við sorpeyðingarstöðina og
stefnt er að því í sumar að koma
svipuðu magni í hraunið. Það er
samningur sem Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja gerði við Skógræktar-
félag Íslands árið 1999 og gildir
næstu 70 ár sem tryggir plöntur til
gróðursetningar á Heimaey.
Að þessu sinni er verið að gera
tilraun með að gróðursetja plöntur
sunnan við Skansinn í hraunið og
eins á litla „eyju“ af gamla landinu
sem þar er umlokin nýja hrauninu
og er nærri húsunum sem stóðu við
Bakkastíg fyrir gos.
Að sögn Kristjáns garðyrkju-
stjóra hefur aðallega verið gróður-
settur brúnn alaskavíðir, en víði-
tegundir eru allsráðandi í gróð-
ursetningunni. Einnig hefur
nokkuð af sitkaerli verið gróður-
settur en hann gegnir svipuðum
tilgangi og lúpína og hefur bakt-
eríur í rótinni.
Kristján garðyrkjustjóri segir
að mikill hugur sé í skógræktar-
fólki í Vestmannaeyjum og að hans
mati er afrakstur síðustu gróður-
setningar vel viðunandi sem blæs
krafti í félagsmenn í starfinu.
6.000 trjáplöntur
gróðursettar í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Laxamýri - Fyrsta hjóna-
vígslan í Þorgeirskirkju
var á sumardaginn fyrsta
þegar Kristín Margrét
Jónsdóttir frá Lyngbrekku
í Reykjadal og Halldór
Hjaltason frá Hjaltastöð-
um í Ljósavatnshreppi
voru gefin saman af sr.
Sigurði Guðmundssyni áð-
ur vígslubiskupi á Hólum
og prófasti á Grenjaðar-
stað.
Fólk kom víða að til
þess að vera við athöfnina
og að henni lokinni var
ekið á blómum hlöðnum
bíl til hótelsins á Narfa-
stöðum þar sem gestanna
biðu hlaðin borð af krás-
um.
Kirkjan ekki fullbúin
Kirkjan sem byggð var til
minningar um kristnitöku á Ís-
landi árið 1000 mun taka um 250
manns í sæti þegar hún verður
frágengin, og töluvert er eftir að
gera til þess að hún geti talist
fullkláruð.
Að sögn Þórhalls Bragasonar
formanns sóknarnefndar vantar
allt að fjórtán milljónum króna til
þess að hægt sé að gera það sem
á vantar, en það eru meðal ann-
ars bekkir í alla kirkjuna og stigi
upp á kórloftið auk þess sem
töluvert á eftir að gera í safn-
aðarheimilinu sem áfast er bygg-
ingunni.
Kirkjan stendur miðsvæðis í
héraðinu og er það von manna að
í framtíðinni verði hún notuð við
stærri athafnir, en mikið er af
litlum kirkjum í Suður-Þingeyj-
arsýslu og oft er erfitt að fá sæti
þegar margt fólk kemur. Þá þyk-
ir kirkjan mjög góð til tónleika-
halds vegna hljómburðar og ætti
að geta gegnt mikilvægu hlut-
verki hvað það snertir.
Fyrsta
hjóna-
vígslan í
Þorgeirs-
kirkju
Brúðhjónin Kristín Margrét Jónsdóttir
og Halldór Hjaltason við Þorgeirskirkju.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon