Morgunblaðið - 28.04.2001, Blaðsíða 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 17
Mývatnssveit - Á föstudaginn
langa um kl. 9 að morgni var
samankomið við Hótel Reyni-
hlíð vasklegt lið göngufólks til
að taka þátt í áttundu píslar-
göngunni sem hér er gengin.
Farinn er þjóðvegurinn rang-
sælis umhverfis vatnið og er
vegalengdin um 36 km. Áning
er í Selinu á Skútustöðum þar
sem mönnum gefst kostur á
kakói og þeyttum rjóma, auk
annars.
Nokkrir gefa sér líka tíma til
að setjast inn í kirkjuna gömlu
og eiga stund með sjálfum sér
eða hlíða á orgelspil Valmars
Valjaots. Einhverjum liggur þó
meira á en öðrum og halda
áfram nær viðstöðulaust allan
hringinn. Hinir fyrstu göngu-
garpar voru um 4:15 klst að
ganga hringinn en aðrir fara
þetta rólegar og eru um 6–8
klst í ferðinni, hinir síðustu
komu aftur í Reynihlíð um kl
18:00. Vaxandi tilhneiging virð-
ist vera í þá átt að flýta sér
sem mest, teygist því mjög úr
hópnum á langri leið. Óopin-
bert brautarmet er um 250
mínútur. Opinber tímataka er
engin en hver og einn telur
fyrir sig.
Finnur Baldursson fylgir
göngunni eftir á rútubíl og hef-
ur gert svo nú síðustu sex
skiptin. Hann fylgist grannt
með göngufólki og er því til
halds og trausts ef einhver vill
setjast í bílinn til að hvílast eða
fá sér bita af nesti. Snæbjörn
Pétursson í Reynihlíð stendur
fyrir göngunni nú eins og ætíð
áður og lætur ekki deigan síga
þótt genginn sé nokkuð á átt-
unda áratuginn. Ýmsir taka
þátt ár eftir ár og er það orðin
hefð hjá þeim að vera með. Að
göngu lokinni fara margir í
sundlaugina til að láta líða úr
sér þreytuna, eða fara jafnvel í
jarðbaðið sem dregur til sín þá
sem þangað rata. Þátttakendur
sem skráðu sig í gestabók
göngunnar voru 83. Veður var
ágætt til útivistar, hægviðri
fyrst og sól en sunnan golu-
kaldi er leið að hádegi og hlýtt
eftir árstíma eða 6 til 8°C.
Píslar-
ganga
umhverfis
Mývatn
Borgarnesi - Íþróttamiðstöðin, grunnskólinn og
nemendafélagið buðu nemendum 10. bekkjar upp
á sund, grillveislu og ferðalag eftir að síðasta sam-
ræmda prófinu lauk. Alls þreyttu 34 nemendur
samræmd próf í ár og hitti fréttaritari hluta
þeirra þar sem þeir lágu og nutu veðurblíðunnar
og slökuðu á eftir prófatörnina í sundlauginni í
Borgarnesi.
Krakkarnir voru í heild ánægðir með prófin og
töldu að danskan og stærðfræðin hefðu verið létt-
ari en þeir höfðu búist við. Að sögn voru þeir jafn-
framt gífurlega fegnir að þetta væri afstaðið.
Stefnt var á óvissuferð eftir sundið en þó var vitað
að leiðin lægi í Húsafell. Þar átti að grilla og eiga
góðan dag saman. Á föstudaginn voru svo jafn-
aldrar á Akranesi heimsóttir.
Fóru í óvissuferð
í lok prófanna
Nemendur 10. bekkjar eftir síðasta samræmda prófið. Hluti nemendanna fór í sund og slakaði á eftir prófið.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Jónsdóttir