Morgunblaðið - 28.04.2001, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 35
nda öllum
irmálsfisk
ja að auk-
komi í veg
% telja af-
eytta fisk-
egasta til
gn brott-
% telji að
út brott-
la því að
vélar um
brottkasti.
la því en
sammála
kill meiri-
nda sam-
n um borð
því ósam-
a
ð
gerður á
brottkasts
þeir telja
ta brott-
ákveðinn
enda telja
gt í öllum
a það vera
öllum til-
a tæp 52%
mennt álíti
ðferðilega
tilvikum
egt í ríf-
a.
3% svar-
rá því að
við útgerð
kasts. Ríf-
urðu var-
veiðiferð
ipinu hafi
tilfella var
flega 19%
erið tekin
að mikill
88% telja
ða oftast í
eða aldrei.
elja hins-
vegar að fiski sé í einhverjum mæli
smyglað framhjá vigt. Tæplega
fimmtungur svarenda greinir frá því
að hafa orðið var við að afli sé falinn í
stað þess að honum sé hent.
Hjá þeim sem urðu varir við brott-
kast er botnvarpa algengasta veiðar-
færið.
Í könnuninni kemur m.a. fram að
því lengur sem menn hafa verið á sjó
því andvígari eru þeir kvótakerfinu.
Því andvígari sem menn eru kvóta-
kerfinu því meira telja þeir að brott-
kast hafi aukist. Þá vekur athygli að
ríflega 51% aðspurðra telja að til-
koma kvótaþings hafi verið til ills en
tæplega 26% segja hana hafa verið
til góðs. Eins vekur athygli að 41%
svarenda er sammála því að sjómenn
fái að taka þátt í kvótakaupum sé
miðað við að tekjur þeirra myndu
aukast. 55% segjast hinsvegar ósam-
mála.
Könnunin til bóta
Nærri helmingur aðspurðra taldi
að mikil umræða um brottkast und-
anfarin misseri hafi verið á neikvæð-
um nótum en 39% töldu umræðuna
jákvæða. 53,5% tölu umræðuna engu
hafa breytt í umgengni sjómanna um
fiskimiðin en rúm 42% sögðu um-
ræðuna til bóta. Langflestir, eða
82%, töldu hinsvegar að skoðana-
könnunin ætti eftir að koma sjó-
mönnum til góða í framtíðinni. Nálg-
ast má rannsóknina í heild á
heimasíðu sjávarútvegsráðuneytis-
ins, www.sjavarutvegsraduneyti.is.
Áþekk niðurstaða
úr lengdardreifingu
Brottkastnefndin svokallaða, und-
ir forystu Jóns B. Jónassonar, skrif-
stofustjóra á sjávarútvegsráðuneyt-
inu, byggði mat á brottkasti þorsks
og ýsu á grundvelli fyrirliggjandi
gagna um lengdardreifingar úr lönd-
uðum afla annarsvegar og afla á sjó
hinsvegar en veiðieftirlitsmenn
Fiskistofu, áhafnir skipa Landhelg-
isgæslunnar og starfsmenn Haf-
rannsóknastofnunarinnar hafa á
undanförnum árum sinnt þeim mæl-
ingum. Jón B. Jónasson, sem veitti
nefndinni forstöðu, sagði í gær að
fyrir lægju mikil gögn um lengdar-
mælingar bæði á sjó og landi.
Þessi aðferð við að meta brottkast
byggist m.a. á því að gera ráð fyrir
að brottkast sé ekkert þegar tiltek-
inni lengd er náð. Sú lengd getur
verið mismunandi eftir fiskitegund-
um og veiðarfærum og má meta
hana með því að bera saman hlut-
fallslega lengdardreifingu á afla upp
úr sjó og lengdardreifingu úr lönd-
uðum afla. Brottkast ákvarðast síð-
an af mismun í fjölda fiska upp úr sjó
annarsvegar og fjölda í lönduðum
afla hinsvegar.
Í niðurstöðum nefndarinnar kem-
ur fram að brottkast þorsks við
dragnótaveiðar á árinu 1997 er mjög
hátt eða tæp 38% af veiddum afla.
Hlutfallið var hinsvegar aðeins 2% á
árunum 1991-1993. Þá virðist brott-
kast við handfæraveiðar vera mjög
breytilegt frá ári til árs en það var
mjög hátt, um 22%, árið 1996 en að-
eins 1,8% árið á eftir. Brottkast við
línu- og botnvörpuveiðar virðist vera
mun jafnara frá ári til árs og mun
minna en við veiðar í önnur veiðar-
færi. Metur nefndin það þannig að á
árunum 1991-1999 hafi árlega verið
hent tæpum 4.000 og upp í um 16.600
tonnum af þorski og eru netaveiðar
þá ekki meðtaldar.
Brottkast á ýsu virðist vera til-
tölulega jafnt frá ári til árs og ekki er
mjög mikill munur á veiðarfærum.
Samkvæmt niðurstöðum nefndar-
innar er brottkast á ýsu þannig um 8
milljónir fiska eða um 5 þúsund tonn
að jafnaði á ári. Það jafngildir um
23% veiddra fiska og um 10% af afla
upp úr sjó.
Jón sagði að hafa bæri í huga að
gögn þau sem nefndin byggði úttekt
sína á væru í ýmsu tilliti takmarkaðri
en æskilegt væri. Úr þeim annmarka
yrði ekki bætt nema með umfangs-
meiri gagnasöfnun á næstu árum.
Úttektina bæri því að skoða sem
könnunargreiningu á fyrirliggjandi
gögnum en alls ekki sem endanlega
eða altæka niðurstöðu um brottkast í
fiskveiðum hér við land.
Brottkast er siðferði-
lega óviðunandi
Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra, sagði á blaðamannafundi,
þar sem niðurstöður rannsóknar
Gallup og brottkastnefndarinnar
voru kynntar, að báðar athugunirnar
sýndu að brottkast væri umtalsvert,
enda væri niðurstaða þeirra beggja
mjög áþekk. Niðurstaðan sé einnig í
samræmi við niðurstöðu könnunar
sem Kristinn Pétursson, fiskverk-
andi á Bakkafirði, lét
gera um brottkast árið
1990. Árni sagði að
nefndirnar tvær sem
stóðu fyrir könnun-
unum myndu væntan-
lega leggja til laga- og reglugerðar-
breytingar eða breytingar á
vinnuaðferðum til að minnka brott-
kast eða helst koma alveg í veg fyrir
það, enda ljóst að brottkast á fiski
væri siðferðilega óviðunandi og efna-
hagslega óhagkvæmt. Hann sagði að
ekki væri tilgangurinn með þessum
athugunum að leita að blóraböggl-
um, heldur að ná utan um umfang
brottkastsins. Hann varaði við því að
draga þá ályktun af könnuninni að
brottkast væri bein afleiðing kvóta-
kerfisins og sagði að brottkast væri
vandamál í öllum tegundum fisk-
veiðistjórnunarkerfa. „Ég tel að
þessar kannanir séu mjög mikilvæg-
ar til að draga upp mynd af brott-
kastinu og við vitum um hvað við er-
um að tala. Þannig getum við betur
áttað okkur á því hvað þarf að gera
til að bregðast við,“ sagði hann.
Varðandi könnun Gallup benti
ráðherra á að úrtakið væri stórt og
svörunin góð. „Við verðum að ganga
út frá því að þessi könnun sé eins
marktæk og hún getur orðið,“ sagði
Árni og ítrekaði að kannanirnar
tvær gæfu nokkuð góða heildar-
mynd af því hver staðan er.
Kvótakerfið er
meginorsökin
Grétar Mar Jónsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, segist telja að nokkuð sé í
könnun Gallup spunnið, ólíkt athug-
un brottkastnefndarinnar. Hann
segist hinsvegar telja
að minna hafi verið um
brottkast á síðasta ári
en fyrir tveimur til
þremur árum, einfald-
lega vegna þess að nú
séu aflabrögð lakari. „Ég held
reyndar að brottkast á þorski sé
meira en haldið er fram í könnun-
inni. Ég tel að um 80% alls brott-
kasts sé þorskur.“
Grétar sagði könnunina hinsvegar
sýna vel að ástæður brottkastsins
megi rekja til kvótakerfisins. Brott-
kast vegna þröngrar kvótastöðu og
verðmæti fisks sé bein afleiðing
kvótakerfisins. Hann bendir á að eft-
ir að Færeyingar vörpuðu kvóta-
kerfinu fyrir róða hafi brottkast ekki
verið vandamál í þeirra fiskveiði-
stjórnun. „Það er engin lausn fólgin í
eftirlitsmyndavélum eða fjölgun eft-
irlitsmanna um tíu eða tuttugu. Það
er ekki um annað að ræða en að
breyta kerfinu,“ segir Grétar.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands Íslands, segir það
af hinu góða að könnun af þessu tagi
skuli hafa verið gerð. „Hún sýnir vel
að sjómenn eru jákvæðir fyrir því að
könnunin sé gerð. Mér sýnist það
mat sem kemur fram á brottkasti í
könnuninni geta verið nærri lagi.
Eins staðfestir hún þann grun minn
hvar brottkastið er mest og með
hvaða hætti. Það er ljóst að megin
orsökin liggur í kvótakerfinu. Könn-
unin er hinsvegar gott innlegg um-
ræðuna og í endurskoðun á fisk-
veiðistjórnunarkerfinu. Það er samt
engin lausn í henni fólgin. Málið er
alltof viðamikið til þess,“ segir Sæv-
ar.
Gagnlegar
upplýsingar
Kristján Þórarinsson, stofnvist-
fræðingur Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, segir að með
könnuninni hafi fengist meiri vitn-
eskja um brottkast og það sé vissu-
lega jákvætt. „Það hefur alltaf verið
vandamál að mæla brottkastið en nú
skilja menn málið betur og líklegra
að hægt sé að vinna á vandanum.
Það er ljóst að brottkastið er nokkuð
minna en margir hafa talið og það er
gagnlegt að fá slíkar upplýsingar.
Hinsvegar er brottkastið of mikið og
við munum leggja okkar af mörkun-
um til að taka á vandanum,“ segir
Kristján.
hafa minnkað eða staðið í stað samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup hefur gert
onnum
ju ári
–30 þúsund tonn. Þar af má
hverju ári og um 5 þúsund
ggja athugana sem gerðar
u í gær.
!
!
"
#
$
"!
!
# !
"! %!
"!&
'
$
(
)
#*+
,
)
-#*+
)
.
#*+
/%%
$
/
" 1
'
$
2
,
// 1
$
/
" 1%
'
$
%(
*
"
+
,
3*
/1
$
/
" 0
'
$
+
3 !2
"
*
*
,
-
*
// &
$
/
" %
'
$
4
$
%
$
&
'
( )*
& &(
&
+&, &
-. /.
"!
/
,
5
*
*
/ /
$
0 !
""#!
#1!
#"!
/0
"%&
'
$
!
#!
1!
2
& *& $&*
&*
3 && $4 & &&
3
/
&
3 5 (&
*
%. &*
/.4
& 4 *
3 &
&4&
/ +
6 &
7
3 5 (/
&
%. (
&
/
2.
& 5
-4 . ( /.
""!
1
+
+* +)
,
5
*
*
/ /&!
$
#0!
!
81!
19!
/0
"
/6
'
$
01!
!
!
0!
!
!
0!
81!
19!
: &
;&,,
<4& /.
&
-
7
&
08!
0
"
")
"
+
,5
* *
$
8!
8#!
#"!
"8! %!
"0
"!&
'
$
# !
.
%
=
&
)
6*/&$
&
%. &*&
>&
&*&
9 &
+#
*
,
5
* *
$
18!
#1!
18!
08!
%!
"%&
"!
'
$
8!
%&
$
9!
?.
2( @
;.
A
* ;
.
2.&
+(*
B &
&
&*
&
%,
&
*
,
5
*
*$
#" 0!
"8!
80!
1 !
#9!
"!
""!
!
0!
0!
9!
#!
7
8
'+
+
*#
&&&+
&&/9
)4C,C#
+
.&
., *C, C8.5
&&C"1C+ 4& 5 (98!C+(
& @.& +&& &
&
*
#8!
:
.
#,
5
"
%$
80!
98!
89!
9 !
%%
"00!
"/6
'
$
99!
00!
$
!
D
.
;
.
+ /
2(&/
@ /
+.&
:
+# 9
*
; +
;#
< #
$
&
3 /.
2*
(. :
#
+
91. ". . #1. #. 0". C119
1
#8C111
C#
9C"#
C1"
// 0!/
!
6 0
=
-42->9 00
D
.
@
/
;
.
+ /
2(&/
@ /
+.&
:
*
9
*
; +
;#
< #
$
&
3 /.
2*
(. < 4 * /.
91. "9. ". . #1. #. 0". C119
C8
1
#8C111
C#
9C"#
C1"
// //!1
0!/
!
6 0
=
-42->9 1 !
Morgunblaðið/Ásdís
r tveggja athugana á brottkasti fisks á blaða-
aðstoðarmaður ráðherra, Gunnar I. Birgisson,
önnunina, og Þóra Ásgeirsdóttir frá Gallup.
44% sjómanna
hlynnt kvóta-
kerfinu
hema@mbl.is