Morgunblaðið - 28.04.2001, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐUSTU dægrin hafa verið býsna
fjörleg á Alþingi við Austurvöll og
var fundað alla daga í vikunni –
stundum nokkuð fram eftir degi.
Hin harða umræða ber öll merki
þess að senn líður að þinglokum, en
áætlað er að þingi verði frestað hinn
18. maí nk.
Það er því augljóst að á þessu
tímabili eru ekki margir þingdagar
eftir, þegar teknir eru frá helgar-
dagar og frídagur verkalýðsins nú á
þriðjudag. Gert er ráð fyrir almenn-
um stjórnmálaumræðum – eldhús-
degi – miðvikudaginn 16. maí og að
auki segir í starfsáætlun Alþingis
fyrir 126. löggjafarþing að engir
þingfundir verði dagana 2. til 7. maí
nk., heldur fundað í nefndum um þau
mál sem ætlunin er að komi til af-
greiðslu fyrir sumarmál.
Þetta er hér rifjað upp í ljósi þess
að samkomulag náðist milli stjórn-
arflokkanna í vikunni um frumvarp
samgönguráðherra um sölu á
hlutafé ríkisins í Landssímanum.
Var frumvarpið – 130 blaðsíðna bók
– lagt fram síðdegis á fimmtudag og
stendur til að ráðherra mæli fyrir
því nk. miðvikudag. Það er því ljóst
að þegar hefur verið ákveðið að klípa
einn dag frá nefndastörfum fyrir
þinghald. Þeir gætu orðið mun fleiri.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu kemur til greina af hálfu
stjórnarmeirihlutans að seinka þing-
frestun um nokkra daga til þess að
koma símafrumvarpinu og fleiri mál-
um í gegn, enda þótt enn sé form-
lega stefnt að frestun hinn 18. maí. Í
röðum stjórnarandstæðinga eru
menn sem líklegir eru til að ræða vel
og lengi um það mál og raunar fleiri
sem bíða lokaafgreiðslu og því er
þingheimur þegar farinn að búa sig
undir næturfundi þegar fram í
næsta mánuð sækir. Þegar dregur
nær þinglokum og umræður hefjast
um meint málþóf stjórnarandstöð-
unnar er líklegt að meirihlutinn
muni beita frestun á þinglokum sem
eins konar svipu og segja sem svo:
þeir sem tefja afgreiðslu mála bera
um leið ábyrgð á því að komast ekki í
sumarfrí á tilsettum tíma.
Þetta er gamalkunnugt bragð í
pólitíkinni og hefur oft áður verið
beitt í þinghúsinu við Austurvöll.
En hvaða fleiri mál bíða afgreiðslu
fyrir þinglok og eru líkleg til að
valda deilum næstu daga og vikur?
Frumvarp forsætisráðherra um
Seðlabanka Íslands er viðamikið og
líklega verða einhverjar umræður
um það, en ekki er pólitískur ágrein-
ingur um efni þess og því má búast
við því að það verði samþykkt án
mikilla vandkvæða. Um frumvarp
viðskiptaráðherra um sölu á hlutafé
ríkisins í Landsbanka og Búnaðar-
banka er miklu meiri ágreiningur.
Óvíst er hvort viðamikil frumvörp
félagsmálaráðherra um félagsþjón-
ustu og ný barnaverndarlög komi til
frekari umræðu, en bæði eru til um-
ræðu í nefndum. Þá er ótalið umdeilt
frumvarp dómsmálaráðherra um
málefni útlendinga, en ýmsar grein-
ar þess hafa valdið miklum deilum.
Iðnaðarráðherra mun á næstu
dögum mæla fyrir viðamiklu frum-
varpi til nýrra raforkulaga og víst er
að skoðanir eru mjög skiptar um
einstaka þætti þess. Frumvarpið er
þó aðeins lagt fram til kynningar að
þessu sinni og kemur til afgreiðslu á
haustþingi. Loks bíður landbún-
aðarráðherra afgreiðslu þingsins á
frumvarpi um lax- og silungsveiði,
þar sem m.a. er kveðið á um eldi í
sjó. Hafa þau mál verið mjög í um-
ræðunni upp á síðkastið, en ekki er
ljóst hvort frumvarpinu er ætlað að
verða að lögum fyrir sumarið.
Fleiri stærri frumvörp og tillögur
mætti vitaskuld nefna, ekki síst þau
ógrynni s.k. þingmannamála sem
bíða afgreiðslu og eru ekki líkleg –
frekar en svo oft áður – til að hljóta
náð fyrir augum meirihlutans og
hljóta endanlega afgreiðslu.
Þó er skrafað að Gunnar Birgis-
son og fleiri áhugamenn um hnefa-
leika hyggist enn freista þess að
koma frumvarpi sínu um lögleiðingu
hnefaleika í gegn. Það yrði aldrei
hljóðalaust og vandséð að forsætis-
nefnd þingsins hniki málum til hliðar
í miklum önnum fyrir frumvarp af
slíku tagi.
Ekki síst þegar haft er í huga að
umrætt frumvarp var fellt í fyrra
fyrir hreinan klaufagang flutnings-
manna, sem töldu sig hafa meiri-
hluta á bak við sig við lokaafgreiðslu,
en tryggðu ekki næga mætingu þeg-
ar til kastanna kom og fóru því bón-
leiðir til búðar.
En þetta verður eflaust mikið fjör.
Annasamur tími framundan við Austurvöll
EFTIR BJÖRN INGA HRAFNSSON
ÞINGFRÉTTAMANN
bingi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Annir verða á þingi fram að þingfrestun hinn 18. maí nk. Hér stinga ráðherrarnir Halldór Ásgrímsson og
Siv Friðleifsdóttir saman nefjum í kringlu Alþingishússins.
ÞINGFLOKKUR Framsóknar-
flokksins hefur ákveðið að Magnús
Stefánsson, sem sest hefur á þing
eftir brotthvarf Ingibjargar Pálma-
dóttur, muni taka við nefndastörf-
um Jóns Kristjánssonar heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra.
Áður er raunar ákveðið að Ólafur
Örn Haraldsson taki við for-
mennsku í fjárlaganefnd af Jóni, en
Magnús tekur sæti í heilbrigðis- og
tryggingamálanefnd, samgöngu-
nefnd og utanríkismálanefnd. Þá
tekur hann sæti Ólafs Arnar í
félagsmálanefnd.
Þá hefur verið ákveðið að Jónína
Bjartmarz taki sæti Jóns Kristjáns-
sonar sem aðalmaður í Íslandsdeild
NATO-þingsins og Magnús Stef-
ánsson verði þar varamaður. Á móti
kemur að Magnús mun taka sæti
Jónínu sem aðalmaður í Íslands-
deild þings ÖSE.
Magnús tekur
við nefnda-
störfum Jóns
MÆTING þingmanna á þingfundi
kom til umræðu við upphaf þingfund-
ar í gær. Var þá breytt út frá aug-
lýstri dagskrá sem gerði ráð fyrir at-
kvæðagreiðslu um ýmis mál kl. 10:30
og henni frestað til 13:30. Brugðust
þingmenn stjórnarandstöðunnar
ókvæða við breytingunni og sögðu
einsýnt að hún væri gerð þar sem að-
eins örfáir stjórnarliðar væru mættir
í salinn.
„Nú gerist það eina ferðina enn að
þingmenn stjórnarandstöðunnar eru
mættir til þings til að taka þátt í þing-
störfum samkvæmt fyrirfram boð-
aðri dagskrá, en heimtur stjórnar-
sinna eru afskaplega rýrar og þess
vegna hefur verið ákveðið að at-
kvæðagreiðslu verði frestað,“ sagði
Ögmundur Jónasson, þingflokksfor-
maður Vinstri grænna.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri grænna, sagði af þessu til-
efni að ekki væru nú hátt risið á
meirihlutanum. „Hinum mikla meiri-
hluta ríkisstjórnarinnar, sem aftur
og aftur stendur þannig að málum að
breyta verður út af föstum venjum.
Slíkt er orðið kæruleysið hjá hinum
mikla meirihluta að hann nær ekki að
lemja hingað í húsið mannskap til að
manna atkvæðagreiðslurnar. Dag
eftir dag,“ sagði hann.
Starfandi forseti þingsins, Guðjón
Guðmundsson, sagði af þessu tilefni
að ekkert væri óeðlilegt við að at-
kvæðagreiðslu væri frestað; slíkt
væri oft gert þegar þingfundir hæf-
ust að morgni á fimmtudögum og
föstudögum og væri gert til hagræð-
ingar. Hann tók hins vegar undir þau
orð að mæting þingmanna mætti
vera betri.
Málefnafátækt
stjórnarandstöðu?
„Forseti vill taka undir þá gagn-
rýni sem komið hefur fram á mæt-
ingu þingmanna. Það á jafnt við um
stjórnarsinna sem stjórnarandstæð-
inga. Ég tek hins vegar ekki undir
það að það eigi við um alla þingmenn,
því hér er ákveðinn kjarni þing-
manna sem mætir afskaplega vel og
er til fyrirmyndar í þingstörfunum,
en allt of margir þingmenn mæta
ekki sem skyldi,“ sagði forsetinn og
beindi því til formanna þingflokk-
anna að þeir ræði þetta í sínum ranni
og upplýsti að málið verði einnig rætt
á fundi forsætisnefndar á mánudag.
Sigríður Anna Þórðardóttir, for-
maður þingflokks Sjálfstæðisflokks,
tók til umræðu um þessi mál og sagði
rétt að mætingu í þingsal væri oft
ábótavant. Hins vegar ætti það jafnt
við um þingmenn stjórnar og stjórn-
arandstöðu, að sínu mati.
„Það mætti bæta mætingu allra
þingmanna“ sagði Sigríður Anna og
sakaði stjórnarandstöðuna um mál-
efnafátækt að taka málið upp í upp-
hafi þingfundar. Lagði hún til að
fremur yrði gert átak í að bæta mæt-
ingu og það sem betur mætti fara í
stað þessi að karpa með þessum
hætti.
Steingrímur J. Sigfússon henti
ummæli Sigríðar Önnu á lofti og
hafnaði því með öllu að gagnrýni
hans bæri vott um málefnafátækt.
„Mér finnst þetta ekki bæta and-
rúmsloftið sem hér er fyrir og miklu
skynsamlegra væri að formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins tæki
til í eigin ranni og sæi til þess að
ástundun þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins og mæting – líka þeirra sem
eru meira og minna í fullum störfum
utan þings – verði þannig hér að hún
hafi efni á því að stíga í ræðustól og
vera með gagnrýni í okkar garð,“
sagði hann.
Mætingu þing-
manna ábótavant
ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinn-
ar sat hjá við atkvæðagreiðslu eftir
aðra umræðu um frumvarp dóms-
málaráðherra um breytingu á lögum
um meðferð opinberra mála. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær er
með frumvarpinu lagt til að hags-
munaaðili geti kært til dómsmálaráð-
herra ákvörðun ríkissaksóknara um
hvort opinber rannsókn á grundvelli
laga um meðferð opinberra mála skuli
fara fram eða ekki. Þegar svo ber
undir er gert ráð fyrir að ráðherra
geti fellt ákvörðun ríkissaksóknara úr
gildi og sett sérstakan saksóknara til
að ákveða hvort rannsókn fari fram
og færi hann jafnframt með málið.
Forsögu málsins má rekja til beiðni
Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl.
um beiðni um rannsókn á þætti
Magnúsar Leópoldssonar í hinum
svonefndu Guðmundar- og Geirfinns-
málum sem ríkissaksóknari hefur
hafnaði. Ráðuneytið hefur áður úr-
skurðað að skv. núgildandi lögum sé
slík ákvörðun ríkissaksóknara ekki
kæranleg.
Óeðlilegt að dómsmálaráðherra
einn meti slík erindi
Ýmsir umsagnaraðilar um frum-
varpið, svo sem laganefnd Lög-
mannafélagsins og dómstólaráð,
leggjast gegn því á þeim forsendum
að með því sé vegið að sjálfstæði emb-
ættis ríkissaksóknara. Meirihluti alls-
herjarnefndar telur svo ekki vera en
minnihluti nefndarinnar, Lúðvík
Bergvinsson, Samfylkingunni, skilaði
séráliti þar sem eindregið er lagst
gegn frumvarpinu og lagði Lúðvík
fram breytingartillögu við frumvarp-
ið í félagi við Guðmund Árna Stefáns-
son, flokksbróður sinn.
Athygli vakti því við atkvæða-
greiðslu um frumvarpið í gær, að
Bryndís Hlöðversdóttir, formaður
þingflokks Samfylkingarinnar, sté í
pontu og gerði grein fyrir afstöðu
þingflokksins með þeim orðum að
hann væri fylgjandi því að rannsókn
gæti farið fram á Guðmundar- og
Geirfinnsmálum á nýjan leik og féllist
á mikilvægi þess að veita slíka heim-
ild.
„Slíkur öryggisventill er nauðsyn-
legur til að fá hið sanna fram þegar
réttarvörslukerfið lítur út fyrir að
hafa brugðist. Við ítrekum mikilvægi
þess, en teljum óeðlilegt að fela dóms-
málaráðherra einum að meta þetta.
Því munum við sitja hjá við meðferð
málsins,“ sagði Bryndís.
Meðferð
opinberra mála
Samfylk-
ingin
sat hjá