Morgunblaðið - 28.04.2001, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 59
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt það til að vera of
þrjóskur og lítt fús til samn-
inga en öryggið er þér meira
virði en allt annað.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur haft yfrið nóg að
starfa að undanförnu en sérð
nú fram á að eiga tíma af-
lögu fyrir sjálfan þig. Not-
aðu hann til að efla þér
styrk.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er kominn tími til að þú
hlustir á þína innri rödd og
sért óhræddur við að fylgja
henni eftir. Þú einn veist
hvað þér er fyrir bestu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hittir einhvern sem hefur
sömu áhugamál og þú og það
vekur þér ómælda ánægju
að geta loksins rætt við ein-
hvern sem skilur þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt þú sért félagslyndur
þarftu að gefa þér tíma til að
vera einn með sjálfum þér.
Láttu þínar þarfir ganga
fyrir núna til tilbreytingar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér verður ekkert úr verki
ef þú ætlar þér of mikið í
einu. Raðaðu hlutunum í for-
gangsröð og taktu eitt verk-
efni fyrir í einu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Taktu ekki að þér aukaverk-
efni nema þú sért undir það
búinn að vera undir álagi í
einhvern tíma. Ráðfærðu þig
líka við þína nánustu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Margt er spjallað í kringum
þig um menn og málefni en
þú skalt gæta þess að taka
ekkert trúanlegt fyrr en þú
hefur sjálfur sannreynt það.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að horfast í augu við
staðreyndir mála. Þú getur
aðeins gert það besta í stöð-
unni og þarft svo að sætta
þig við það sem þú getur
ekki breytt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gefðu félaga þínum þann
tíma sem hann þarf til að
hugsa málin og vertu bara
rólegur því þið getið tekið
upp þráðinn áður en þú veist
af.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhver öfund gæti komið
upp í mannlegum samskipt-
um svo þú mátt gæta þess að
bregðast ekki of harkalega
við. Sýndu skilning.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú mátt eiga von á því að
vinur þinn leiti til þín í vand-
ræðum sínum. Sinntu honum
eins og þér frekast er unnt
og leggðu annað til hliðar á
meðan.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú munt eiga samræður við
einhvern sem varpa munu
ljósi á málefni sem þú hafðir
ekki hugsað um áður. Gefðu
þér tíma til að skoða þau
betur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Í VORÞEYNUM
Á meðan brimið þvær hin skreipu sker
og skýjaflotar sigla yfir lönd,
þá spyrja dægrin: Hvers vegna ertu hér,
hafrekið sprek á annarlegri strönd?
Það krækilyng, sem eitt sinn óx við klett
og átti að vinum gamburmosa og stein,
er illa rætt og undarlega sett
hjá aldintré með þunga og frjóa grein.
Hinn rammi safi rennur frjáls í gegn
um rót, er stóð í sinni moldu kyr,
en öðrum finnst sig vanta vaxtarmegn,
þótt vorið fljúgi í lofti hraðan byr.
Drýpur af hússins upsum erlent regn,
ókunnir vindar kveina þar við dyr.
Jón Helgason.
STAÐAN kom upp á Skák-
þingi Íslands, áskorenda-
flokki, er lauk fyrir stuttu.
Sá eini sem lagði Björn Þor-
finnsson (2265) að velli á
mótinu var Sigurbjörn
Björnsson (2320). Hafnfirð-
ingurinn góðkunni lét
Trompovsky Bersa ekki
komast upp með neinn moð-
reyk: 37.Hxe7! Dxe7
38.Dxd5 Eftir þetta hefur
hvítur tögl og hagldir en
hinsvegar hefði svartur
hugsanlega getað veitt meiri
mótspyrnu í framhaldinu:
38...a4 39.Dxf5
Hd8 40.h3 Hg8
41.Re4 axb3
42.axb3 Da7+
43.Kh2 Db8+
44.Rcd6 Dxb3
45.Dxf6+ Hg7
46.Df8+ Dg8
47.Df3 Db8
48.Df6 Kg8
49.De6+ Kh8
50.De5 Kg8
51.Rf6+ og svart-
ur gafst upp.
Fyrsta helgar-
skákmótið, í helg-
arskákmótasyrpu
Skáksambands
Íslands, hefst í dag, 27. apríl,
kl. 13.00 og verður fram-
haldið á morgun. Tefldar
verða níu atskákir en keppn-
in fer fram í Varmárskóla í
Mosfellsbæ. Mótið er haldið
í samvinnu Skáksambands
Íslands og íþróttafulltrúans
í Mosfellsbæ en á sama stað
og tíma verður Íslandsmót
barnaskólasveita haldið.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
REYNDIR spilarar taka oft
mikla áhættu til að berjast
yfir grandopnun mótherja,
því reynslan sýnir að fátt er
verra en að leyfa andstæð-
ingunum að spila eitt grand.
Suður er vel skólaður við
spilaborðið og skellir sér í
fjórðu hendi inn á 15-17
grand vesturs. Kerfisbundið
lofar það fimmlit í spaða og
láglit til hliðar. Eftir þennan
formála fær lesandinn sér
sæti í austur í vörn gegn
tveimur spöðum:
Vestur gefur; AV á hættu.
Norður
♠ 105
♥ KG83
♦ 43
♣ D8432
Austur
♠ G97
♥ 10764
♦ ÁG2
♣ 965
Vestur Norður Austur Suður
1 grand Pass Pass 2 spaðar *
Pass Pass Pass
* Spaði og láglitur, venjulega 5-4.
Makker kemur út með
hjartatvist, þriðja hæsta, og
suður fær fyrsta slaginn á
níuna heima (þú sparar
tíuna, því útspil makkers er
væntanlega frá Dxx). Næst
spilar sagnhafi tígulníu að
heiman og þú átt slaginn á
gosann, en makker merkir
fjórlit. Þú vilt ekki láta sagn-
hafa stinga tígul í blindum og
trompar því út – en nú kem-
ur spurningin: Hvaða tromp
verður fyrir valinu?
Norður
♠ 105
♥ KG83
♦ 43
♣ D8432
Vestur Austur
♠ ÁK3 ♠ G97
♥ D52 ♥ 10764
♦ D1087 ♦ ÁG2
♣ ÁG10 ♣ 965
Suður
♠ D8642
♥ Á9
♦ K965
♣ K7
Sennilega myndu 99%
spilara hugsunarlaust senda
spaðasjöuna inn á borðið, og
meira að segja gerði Ítalinn
snjalli Alfredo Versace sig
sekan um þau mistök í Na-
tions Cup í Hollandi, þegar
spilið kom upp í viðureign við
Hollendinga. Sagnhafi
hleypti á tíuna og vestur tók
eðlilega ÁK í litnum. Þar
með fór einn trompslagur
varnarinnar fyrir lítið, og
þótt samningurinn hafi „lek-
ið“ einn niður, breytir það
því ekki að rétta spilið fyrir
austur að spila er gosinn í
trompi. Hann veit að makker
á gott tromp – kannski ÁKx
eða ÁDx. Með gosanum út
tryggir hann slag á níuna
þegar makker hefur tekið
tvo slagi á litinn.
Þetta er tæknilegt atriði
sem vert er að setja á minnið.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 28.
apríl, verður fimmtugur
Friðbert Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Góðra stunda
og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Háskólabíós.
Hann, eiginkona hans,
Margrét Theodórsdóttir, og
synir taka á móti vinum og
vandamönnum í Norræna
húsinu kl. 17:30–19:30 í dag.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 28.
apríl, verður sjötugur Haf-
steinn Þorvaldsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri,
Engjavegi 28, Selfossi.
Hann og eiginkona hans,
Ragnhildur Ingvarsdóttir,
verða að heiman á afmælis-
daginn.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 28. apríl, eiga 50
ára hjúskaparafmæli hjónin Hulda Þórisdóttir og Magnús
Maríasson.
Bókavarðan Antikvariat,
Vesturgötu 17, sími 552 9720.
Finnur Magnússon Blandede digte (talið fyrsta skáldverk eftir
Íslending útkomið á erlendri grund), handskreyttar myndskreytingar
eftir óþekktan höfund, Ole Worm et ad eum doctorum Epistolce,
útg. 1751, 1-2, Biskupasögur C.R. Unger 1874, 1-2, Historia
Ecclesiatica Islandæ P. Pétursson 1841, Hungurvaka Páls biskups
útg. Hafniæ 1778, í skreyttu skinnbandi.
TIL SÖLU EFTIRTALIN RIT:
sagan@simnet.is
OPIÐ Í DAG, LAUGARDAG FRÁ kl. 12-17
OPIÐ Á MORGUN, SUNNUDAG, 13-17
Mercedes Bens S 1994
Til sölu Mercedes Bens 280
S-body árg. 1994. Innfluttur
af Ræsi. Ekinn 56 þús.
Verð 2.600.000.
Upplýsingar í síma 864 3700
Framhaldsaðalfundur
Stjórn Geðhjálpar minnir félaga sína á framhaldsaðalfund
félagsins sem hefst stundvíslega kl. 12 á Broadway, Hótel
Íslandi, Ármúla 9, Reykjavík, í dag, laugardaginn 28. apríl
Um aðalfundarstörf og dagskrá fundarins fer samkvæmt lögum
félagsins.
Skorað er á félaga í Geðhjálp að fjölmenna á þennan mikilvæga
fund og hafa með sér persónuskilríki. Húsið verður opnað kl.
11.15 og eru félagar hvattir til að mæta snemma til að taka við
fundargögnum.
Stjórn Geðhjálpar.
Bridsfélag Borgarfjarðar
Síðasta móti vetrarins, vortví-
menningi með barometer-formi,
lauk miðvikudaginn 25. apríl.
Keppnin var jöfn og spennandi og
réðust úrslit ekki fyrr en í síðasta
slag.
Úrslit urðu sem hér segir.
Sveinbjörn – Lárus – Höskuldur 103
Jón Pétursson – Magnús Magnússon 78
Sveinn – Haraldur – Sigurður 77
Ingólfur Helgas. – Jóhannes Jóhanness. 70
Eftirtaldir spiluðu best síðasta
kvöldið:
Magnús Magnússon – Jón Pétursson 48
Ingólfur Helgas. – Jóhannes Jóhanness. 46
Kristján Axelsson – Baldur Á. Björnss. 39
Jón Þórisson – Þorsteinn Pétursson 30
Um leið og Bridgefélag Borgar-
fjarðar þakkar félögum sínum fyrir
ánægjulegan vetur sem einkenndist
af gleði og endurnýjun býður það
gleðilegt sumar og vonast eftir öfl-
ugu starfi næsta vetur.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Föstudaginn 20. apríl var spilað á
11 borðum og urðu úrslit þessi í N/S:
Ólafur Ingvarsson - Þórarinn Árnason 301
Ólafur Ingimundars. - Jón Pálmason 243
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 234
Hæsta skor í A/V:
Bragi Björnss. - Bragi Salomonss. 270
Páll Hannesson - Kári Sigurjónss. 260
Dóra Friðleifsd. - Guðjón Ottósson 258
Sl. þriðjudag spiluðu 25 pör og þá
urðu úrslitin þessi í N/S:
Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 406
Hannes Ingibergss. - Magnús Halldórss. 376
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 361
Hæsta skor í A/V:
Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 354
Jón Andrésson - Valdimar Þórðars. 343
Ingibj. Kristjánsd. - Þorsteinn Erlingss. 341
Helga Helgad. - Sigrún Pálsdóttir 341
Meðalskor á föstudag var 216 en
sl. þriðjudag 312.
Spilakvöld Bridsskólans
og BSÍ
Mánudaginn 23. apríl mættu 20
pör til leiks. Lokastaðan var þessi:
NS-riðill
Gunnlaugur Jóhannss. – Örn Ingólfsson 139
Jórunn Kristinsd. – Kristinn Péturss. 119
Örn Sigurðsson – Heiðar Þórðarson 119
Jóna Samsonard. – Kristinn Stefánsson 118
AV-riðill
Davíð Lúðvíksson – Emma Axelsdóttir 138
Þórir Jóhannsson – Sigurvin Jónsson 132
Þórdís Karelsd. – Svala Sigvaldad. 126
Halldór Hjartarson – Dúfa Ólafsdóttir 121
Spilað verður næstu tvö mánu-
dagskvöld, 30. apríl og 7. maí og
lengur ef áhugi er fyrir hendi, nánar
auglýst síðar. Spilað er í Þöngla-
bakka 1, 3. hæð og hefst spila-
mennska kl. 20.00.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík