Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isIngibergur komst í hann krappan í Íslandsglímunni/B2 Viggó vonsvikinn að vera ekki í hópi þeirra bestu/B4 12 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM SAMNINGANEFND ríkisins hefur lokið við að gera 45 kjarasamninga það sem af er þessu samningstíma- bili, en ólokið er gerð 31 samnings. Hjúkrunarfræðingar eru að undirbúa boðun tveggja daga verkfalls um næstu mánaðamót og þroskaþjálfar hafa samþykkt verkfall hjá Reykja- víkurborg 18. maí og eru að undirbúa boðun verkfalls hjá öðrum sveitar- félögum og ríkinu 1. júní. Það eru aðallega félög háskóla- manna sem ríkið á eftir að semja við. Ríkið hefur að mestu lokið við að gera samninga við aðildarfélög ASÍ. Það á einungis eftir að gera samninga við fjögur BSRB-félög, þ.e. lögreglu- menn, slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamenn, sjúkraliða og tollverði. Það á einnig eftir að semja við sjúkra- húslækna og verkfræðinga sem standa fyrir utan heildarsamtök launafólks. Launanefnd sveitarfélaganna á eftir að semja við 34 félög, en nefndin semur við 86 stéttarfélög. Fjögur af þessum félögum felldu gerða samn- inga. Mörg þessara félaga eru fá- menn, en einna fjölmennastir eru sjúkraliðar og slökkviliðsmenn. Hjá ríkissáttasemjara eru 15 kjaradeilur sem formlega hefur verið vísað til embættisins. Meðal þeirra eru nokkur af stærstu félögum BHM eins og félög hjúkrunarfræðinga, náttúrufræðinga, félagsráðgjafa, sál- fræðinga og þroskaþjálfa. Sjúkraliða- félagið hefur einnig vísað deilu sinni við ríkið til sáttasemjara. Hjúkrunarfræðingar greiða at- kvæði um tveggja daga verkfall Mjög hægt hefur miðað í viðræð- um Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga og ríkisins fram að þessu að sögn Herdísar Sveinsdóttur, for- manns félagsins. Samningafundur var haldinn sl. föstudag og sagði Her- dís að hann hefði verið jákvæður þótt erfitt væri að tala um árangur að svo komnu máli. Nýr fundur er boðaður í dag og kvaðst Herdís vonast eftir að skriður væri að komast á viðræður. Hún sagði að í dag yrði rætt um stofnanahluta samningsins og um vinnutíma. Hjúkrunarfræðingar gengust fyrir skoðanakönnun fyrir skömmu þar sem félagsmenn voru spurðir hvort þeir styddu það að félagið boðaði tveggja daga verkfall um mánaða- mótin. Samband var haft við 75% félagsmanna í síma og lýstu 83% stuðningi við slíkar aðgerðir. Í fram- haldi af því ákvað félagið að láta fara fram formlega atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls 30. og 31. maí, en þá eru liðnir sjö mánuðir frá því að samningar hjúkrunarfræðinga runnu úr gildi. Herdís sagðist vonast eftir að ekki kæmi til verkfalls, enda væri vel hægt að semja á þeim tíma sem væri til mánaðamóta. Hún sagði að ef ekki tækist að semja fyrir mánaðamót hefði félagið uppi áform um að boða fleiri skyndiverkföll í sumar. Félagið þarf hins vegar aftur að efna til form- legra atkvæðugreiðslna um slíkar vinnustöðvanir. Þroskaþjálfar í Reykjavík boða verkfall 18. maí Þroskaþjálfafélagið hefur boðað verkfall hjá Reykjavíkurborg 18. maí nk., en þroskaþjálfar sem starfa hjá öðrum sveitarfélögum og ríkinu eru að greiða atkvæði um verkfall sem á að hefjast 1. júní. Þóroddur Þórarinsson, varafor- maður Þroskaþjálfafélagsins, sagði að þroskaþjálfar sem starfa hjá Reykjavíkurborg störfuðu aðallega í leikskólum, grunnskólum og við skammtímavistun. Hann sagði að þroskaþjálfar væru að fara fram á umtalsverðar launa- hækkanir, en þeir væru langlauna- lægsta stéttin innan BHM og vildu jafna þann launamun. Þroskaþjálfar voru áður innan raða BSRB, en sögðu sig nýverið úr sambandinu og gengu í BHM. Þóroddur sagði að við- ræður hefðu staðið yfir við Reykja- víkurborg og launanefndina að und- anförnu, en samningar hefðu enn ekki tekist. Lítið hefði hins vegar ver- ið að gerast í viðræðum við ríkið. Ríkið á ólokið gerð 31 kjarasamnings Hjúkrunarfræðingar og þroskaþjálfar undirbúa verkföll Fagradal - Sauðburður í Mýrdaln- um er víða byrjaður og sumstaðar er honum rétt að ljúka, þ.e. hjá þeim bændum sem hleyptu hrút snemma til ánna eða í byrjun des- ember. Einmuna tíð hefur verið í Mýrdalnum í allan vetur og það sem af er vori og er gróður þess vegna allt að hálfum mánuði fyrr á ferð en í fyrra. Þessi góða tíð léttir öll störf í kringum sauðburð og leiðir til þess að bændur geta sleppt lamb- fénu fyrr út á tún og sparar það bæði vinnu og hey. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ærin Embla karar nýfæddu lömbin sín. Sauðburður í fullum gangi FÓLKSBIFREIÐ var ekið aftan á tengivagn flutningabíls á Vestur- landsvegi fyrir ofan Reykjavík rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Að sögn lögreglu fékk ökumaður fólks- bílsins smávægilega áverka á höfði og fór hann sjálfur á slysadeild. Fólksbíllinn er talinn ónýtur og varð að flytja hann af vettvangi með dráttarbíl. Morgunblaðið/Ingvar Ökumaðurinn fór sjálfur á slysadeild. Hafnaði aftan á tengivagni STJÓRNENDUR Slökkviliðs Reykjavíkur og forsvarsmenn Lands- sambands slökkviliðsmanna greinir á um hvort yfirvinnubann slökkviliðs- manna sé löglegt. „Við teljum að, eins og staðið var að yfirvinnubanninu í gær, geti það vart talist löglegt,“ seg- ir Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri. Hrólfur segir að tillaga um yfir- vinnubannið hafi verið lögð fyrir félagsfund sl. sunnudagskvöld. „Við vissum því ekki af þessari formlegu ákvörðun fyrr en á mánudagsmorgni þegar hringt var í varaslökkviliðs- stjóra og honum tilkynnt að það vant- aði níu manns á vaktina. Við höfðum því engin tækifæri til að bregðast við þessu,“ segir Hrólfur. Hann segir að jafnframt hafi að- gerðirnar í gær verið róttækari en stjórnendur slökkviliðsins geti fallist á. „Við bendum á það að yfirvinnu- bann sé afar erfitt í útfærslu vegna þess að slökkviliðsmenn hafa skyldur til að bera sem öryggisstétt. Opinber- ir starfsmenn verða að vinna a.m.k. 70% yfirvinnu nema öryggisstéttir sem verða að skila meiri yfirvinnu. Skapist neyðarástand eru þeir óvé- fengjanlega skyldugir til þess að vinna yfirvinnu,“ segir Hrólfur. Guðmundur Vignir Óskarsson, for- maður Landssambands sjúkraflutn- inga- og slökkviliðsmanna, segir að túlkun Hrólfs stangist á við túlkun Landssambandsins. „Við teljum að það gildi sama túlkunin á þessu ákvæði og um aðra opinbera starfs- menn. Það er yfirvinnuskylda á op- inberum starfsmönnum og varðandi öryggis- og heilsugæsluna eru ríkari skyldur hvað varðar neyðarútköll en ekki almennt starf,“ segir Guðmund- ur Vignir. Hann segir að mikil ein- drægni ríki meðal slökkviliðsmanna, jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem á Suðurnesjum og á Akureyri, um framhald yfirvinnubanns. Landssambandið hefur ákveðið að hefja undirbúning atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Upp úr samn- ingaviðræðum við launanefnd sveitar- félaga slitnaði aðfaranótt fimmtu- dagsins var og hefur nýr samn- ingafundur ekki verið boðaður. Slökkviliðsmenn hafa verkfallsrétt, en hann er takmarkaður að því leyti að lögum samkvæmt ber að halda uppi ákveðinni lágmarksþjónustu í verkfalli. Guðmundur Vignir segir að við- ræður við launanefnd sveitarfélaga hafi staðið frá því í fyrrahaust og í síð- ustu viku hafi orðið ljóst að samning- ar næðust ekki á þeim forsendum sem þar hafi verið unnið eftir. Í þeim efnum ráði mestu tilboð varðandi grunnlaunin, sem séu alltof lág og í engu samræmi við þær kröfur sem gerðar séu við ráðningu í þetta starf. Ágreiningur um gildi yfir- vinnubannsins KOMIÐ hefur í ljós að magntölur í útboði vegna verkhluta við byggingu hins nýja barnaspítala á Landspít- alalóðinni voru rangar og kostnaður er því 20–30 milljónum kr. meiri en gert hafði verið ráð fyrir í fjárhags- áætlun. Skekkjan svarar til um 8% af kostnaði við umræddan verkhluta skv. verksamningi eða 1–2% af heild- arkostnaði byggingarinnar. Munu þessi mistök jafnframt leiða til þess að byggingarframkvæmdum seinkar um nálægt tvo mánuði, skv. upplýsingum Viðars Ólafssonar verkfræðings sem hefur með hönd- um eftirlit með framkvæmdum fyrir Framkvæmdasýslu og byggingar- nefnd hússins. Nú er unnið við uppsteypu og ut- anhússfrágang við bygginguna en að sögn Viðars urðu þau mistök við út- boð þessa verkhluta að magntölur voru rangar. Að hans sögn eru verk gerð upp í magntölum og ekki óal- gengt að smáskekkjur eigi sér stað eða um 4% af kostnaði en þarna sé um mun stærri skekkju að ræða. Kostnaður hækkar yfir 20 millj. Bygging barnaspítala Hringsins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.