Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 28
ÚR VERINU 28 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÞORSTEINN Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja hf. á Akureyri, segir að á liðnu ári hafi hásetahluturinn á frystitogaranum Baldvini Þorsteins- syni EA verið á 11. milljón króna, en skipstjórahluturinn um 21 milljón. Miðað við svonefnt tveir einn kerfi, sem þýðir að vera um 200 daga úti á sjó og um 160 daga heima, var há- setahluturinn rúmar sjö milljónir og skipstjórahluturinn um 14 milljónir. „Þarna er um mjög vel launað fólk að ræða og víða annars staðar á skip- um félagsins eru mjög há laun,“ seg- ir Þorsteinn Már og vísar til þess að á aðalfundi Samherja hafi komið fram að á frystitogurum félagsins í fyrra, fjórum samtals, hafi meðal- tekjurnar verið á 11. milljón miðað við ársverk. Frá áramótum fram að verkfallinu sem hófst að kvöldi 15. mars sl. voru meðallaun sjómanna hjá Samherja, á þriðja hundrað manns, um 750 til 800 þúsund krónur á mánuði. „Menn eru mjög vel laun- aðir og ég ann þeim þess alveg,“ seg- ir Þorsteinn Már, en bætir við að það sé mjög sárt að svona vel launaðir sjómenn skuli valda fyrirtækjum eins og Samherja eins miklu tjóni og raun ber vitni með yfirstandandi verkfalli. Þorsteinn Már segir að útgerðar- menn hafi verið sakaðir um að vilja lækka laun sjómanna en því fari víðs fjarri. Málið snúist um það að út- gerðin fái hluta af því sem sparist þegar fækki í áhöfn en ekki að heild- arlaunakostnaður hækki. Óskiljan- legt sé að þegar fækki í áhöfn um þrjá menn fái hinir sem eftir eru hlut þessara þriggja og eitthvað til við- bótar að auki. Í þessu sambandi seg- ist hann hafa nefnt að yrði fækkað úr 15 manns í 12 manns á Björgúlfi EA og ávinningnum skipt færu meðal- árslaunin úr 6,3 milljónum í 7,3 millj- ónir. Verði ekki farið að kröfu út- gerðarmanna sé illt í efni. „Gerist þetta ekki stöndum við Íslendingar uppi í framtíðinni með úreltan og gamlan flota,“ segir Þorsteinn Már. „Því miður er endurnýjunin í flotan- um óeðlilega lítil.“ Hásetahlutur á 11. milljón STJÓRN Útvegsmannafélags Snæ- fellsness skorar á alþingismenn kjör- dæmisins að standa vörð um hefð- bundna útgerð á svæðinu og tryggja að lög um kvótasetningu þorskaflahá- marksbáta í ýsu, ufsa og steinbít taki gildi 1. september 2001 eins og ákveð- ið hefur verið. „Stjórnin mótmælir óábyrgum veiðum smábátaflotans langt umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í ýsu og steinbít. Þetta mun leiða af sér skerðingu veiðiheimilda báta innan Útvegsmannafélags Snæfellsness í ofangreindum tegundum. Umframafli þessa hluta smábáta- flotans á yfirstandandi kvótaári er áætlaður a.m.k. 6.000 tonn í steinbít, heildarúthlutun steinbíts er 13.000 tonn, þannig að umframaflinn er um 43% af úthlutuðum kvóta. Í ýsu er umframaflinn áætlaður um 6.000 tonn, heildarúthlutun ýsu er 30.000 tonn og er því umframaflinn um 22% af úthlutuðum ýsukvóta. Þessar veiðar munu að óbreyttu óhjákvæmilega leiða til þess að veru- leg skerðing verður á úthlutun kvóta í steinbít og ýsu á bátum á Snæfells- nesi á næsta ári, þrátt fyrir yfirlýs- ingar einstakra þingmanna um ann- að. Innan Útvegsmannafélagsins eru 45 skip og á þeim starfa um 400 sjó- menn. Taki lögin ekki gildi verður um verulega tekjuskerðingu sjómanna og útgerðamanna að ræða. Að framansögðu er ljóst að ákvörð- un ykkar mun hafa veruleg áhrif á at- vinnu og mannlíf á Snæfellsnesi.“ Ályktun þessi var send þingmönn- um Vesturlands, en afrit sent þing- mönnum Vestfjarða og Norðurlands vestra, sjávarútvegsnefnd alþingis og sjávarútvegsráðherra. Óábyrgum veiðum smábáta mótmælt Útvegsmannafélag Snæfellsness Lokuðu grænlensk- um höfnum Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. GRÆNLENSKIR sjómenn lokuðu í síðustu viku allmörgum höfnum á Grænlandi til að mótmæla lágu fisk- verði. Segir formaður sjómannasam- takanna, Leif Fontain, að þeir tapi um 85 milljónum dkr., um 900 millj- ónum ísl. á ári vegna þessa. Lönd- unarbanninu var síðan aflétt um helgina Óánægja með verðið Óánægjan beindist að verðinu sem Royal Greenland greiðir fyrir grá- lúðu og rækju. Hafa sjómennirnir leitað til grænlensku landsstjórnar- innar en hún hefur fram til þessa neitað að ganga til samninga við þá þar sem þeir hafi haft í frammi hót- anir um lokun. Sjómannasamtökin hafa hins vegar svarið af sér alla ábyrgð á lokununum, sem þau segja sjómenn á hverjum stað hafa ákveð- ið. Royal Greenland segir ekki mögu- legt að hækka verðið nú; fyrirtækið hafi neyðst til að setja fast verð á sjávarafurðir sem miðaðar séu við verð á heimsmarkaði. AÐALFUNDUR Kaupfélags Árnes- inga var haldinn nýverið. Velta Kaup- félags Árnesinga á liðnu ári var 1.271 milljón króna sem er nánast óbreytt frá árinu áður en velta KÁ-samstæð- unnar, dóttur- og hlutdeildarfélaga, nam tæplega fjórum milljörðum króna. Hagnaður af rekstri félagsins varð liðlega 213 milljónir en tæplega 298 milljóna hagnaður varð á árinu 1999. Tap varð á reglulegri starfsemi félagsins á liðnu ári og nam tapið lið- lega 177 milljónum króna en tæplega 50 milljón króna tap varð á árinu 1999. Söluhagnaður vegna eignasölu á liðnu ári var tæplega 455 milljónir króna. Seldar voru fasteignir og hlutabréf fyrir 1.206 milljónir króna. Mestu munaði um sölu á hlut félags- ins í Kaupási og Húsasmiðjunni. Við eignasöluna lækkuðu skuldir félags- ins um 613 milljónir króna. Heildarlaunagreiðslur námu á árinu tæplega 185 milljónum og höfðu þær hækkað um 7 milljónir milli ára. Starfsmenn voru í árslok 151 í 86 stöðugildum og hafði fjölgað um 8 frá árinu á undan. Eiginfjárhlutfallið 48,5% Veltufé frá rekstri á liðnu starfsári var neikvætt um 149 m.kr. en var nei- kvætt árið áður um liðlega 80 m.kr. Veltufjárhlutfall var 1,78 en var 0,75 í lok árs 1999. Efnahagur félagsins er traustur og hefur eigið fé aukist milli ára um tæplega 190 m.kr. og er nú tæplega 869 m.kr. Eiginfjárhlutfall er 48,5% en var í lok árs 1999 30,6%. Ástæðurnar fyrir neikvæðri afkomu af reglulegri starfsemi má í fyrsta lagi rekja til slakrar afkomu ferðaþjón- ustusviðsins þar sem verkfall rútubíl- stjóra og jarðskjálftar höfðu veruleg áhrif en þeim fylgdi hrina afbókana. Einnig hafði óhagstæð gengisþróun áhrif á reksturinn og fall erlendra hlutabréfavísitalna. Í rekstur liðins árs er gjaldfærður kostnaður vegna reksturs Fossnestis að fjárhæð lið- lega 20 m.kr. en tekin var ákvörðun um að hætta rekstri þeirra eininga. Þá var gjaldfærður kostnaður vegna áhalda og innréttinga að fjárhæð tæp- lega 11 m.kr. Fjárfest fyrir 241 milljón Fjárfest var í hlutabréfum, fast- eignum, tækjum og búnaði fyrir lið- lega 241 m.kr. á liðnu ári. Þá var fjár- fest í varanlegum rekstrarfjármunum að fjárhæð 28 m.kr. og munar þar mest um kaup og samruna Gesthúsa. Aðrar fjárfestingar voru í tölvum og bifreiðum. Fjármagnsgjöld voru tæplega 95 m.kr. á árinu og hækka um liðlega 70 m.kr. milli ára. Gengistap af lang- tímalánum félagsins var liðlega 66 m.kr. og erlend verðbréfaeign rýrn- aði um 26 m.kr. Gjaldfærsla vegna afskrifaðra krafna hækkar um tæplega 27 m.kr. á milli ára. Þó að um endanlegt tap sé ekki að ræða er talin vera þörf á að auka niðurfærsluna til að mæta þeim kröfum er kunna að tapast. Unnið að stefnumótun Unnið er að því að endurskilgreina framtíðarsýn, hlutverk og megin- markmið félagsins og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu verði að fullu lokið fyr- ir mitt þetta ár. Í þeirri vinnu er lögð áhersla á að auka hlut félagsins í sölu og þjónustu til landbúnaðar, jafn- framt að rekstur félagsins stækki enn frekar á ferðaþjónustusviðinu. Að öðru leyti taka þær hugmyndir um stefnumörkun fyrir félagið sem fyrir liggja mið af nýju frumvarpi um samvinnufélög þar sem opnað er fyrir ýmsar leiðir til að skerpa eigendavit- und félagsmanna. Rekstur dóttur- og hlutdeildar- félaganna gekk misvel á liðnu ári. Endanleg uppgjör sumra félaganna liggja ekki fyrir, en gera má ráð fyrir að tap verði á Vélsmiðju KÁ og HK- Búvara og tap verði á Bújöfri búvél- um, þar sem ákveðið var að gjaldfæra að fullu viðskiptavild vegna kaupanna á Bújöfri. Rekstur Áburðarsölunnar Ísafold- ar var góður, hagnaður var á Mókletti og rekstur Eignarhaldsfélagsins Brú- ar var í járnum, þrátt fyrir mikinn kostnað við undirbúning fram- kvæmda við stækkunina á Hótel Sel- fossi. Umskipti í rekstri 2001 Áætlanir þessa árs gera ráð fyrir verulegum umskiptum í rekstri félagsins og að hagnaður af reglulegri starfsemi félagsins verði liðlega 35 m.kr. og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld verði 92 m.kr. Miklar tiltektir voru gerðar í rekstri félags- ins á liðnu ári sem auka möguleika á að ná þeim nauðsynlegu rekstrar- markmiðum svo að félagið verði rekið með hagnaði. Stjórn félagsins skipa Erlendur Daníelsson, Erlingur Loftsson, Jónas Jónsson, Kristinn Jónsson, Oddný Garðarsdóttir, Valur Oddsteinsson og Þorfinnur Þórarinsson. Framkvæmdastjóri félagsins er Óli Rúnar Ástþórsson. 213 milljóna króna hagnaður á rekstri KÁ Tap á reglulegri starf- semi 177 milljónir Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Óli Rúnar Ástþórsson, framkvæmdastjóri KÁ, fór yfir reikninga félagsins. Selfossi. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.