Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 43
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 43 STÚLKUR á höfuðborgar-svæðinu eru líklegastar tilað taka stúdentspróf, enlíklegra er að piltar á lands- byggðinni ljúki námi í verknáms- greinum. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Jóns Torfa Jón- assonar, prófessors í uppeldis- og menntunarfræði við félagsvísinda- deild Háskóla Íslands, en hann kynnti rannsókn sem hann og Krist- jana Stella Blöndal hafa gert á námsferli í framhaldsskóla og við- horfi ungs fólks til náms á ráðstefnu í Stórutjarnaskóla nýverið. Yfirskrift ráðstefnunnar var Menntun í dreifbýli. Flutt voru fjöl- mörg erindi, ýmist um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla eða há- skóla og tengsl menntunar og byggðaþróunar. Rannsókn Jóns Torfa og Krist- jönu Stellu snerist um námsferil fólks í framhaldsskóla og viðhorf ungs fólks til náms, en skoðaður var bakgrunnur, viðhorf og ferill fólks sem fætt er árið 1975. Alls var um að ræða tæplega 4.200 manns. Niður- staðan er sú að 46,2% hópsins höfðu lokið stúdentsprófi, 11% höfðu lokið prófi úr verkgreinum, 42,8% höfðu ekki útskrifast í árslok 1999, en sum þeirra sáu fram á að slíkt myndi ger- ast innan tíðar. Hópurinn sem ekki hafði útskrif- ast skiptist þannig að 6,6% voru enn í námi haustið 1999, tæp 29% höfðu hætt í skóla án prófs og 7,3% höfðu aldrei skráð sig í nám eftir grunn- skóla. Hvað varðar skiptingu milli karla og kvenna varð niður- staða rannsóknarinnr sú að 55% kvenna í þessum árgangi höfðu lokið stúd- entsprófi, en 37% karla. Hvað verklega námið varðar höfðu 15% pilta lokið slíku námi og 7% kvenna og þá kom einnig í ljós að 48% karla í árgangnum höfðu ekki útskrifast en 38% kvenna. Sterk ítök iðnnáms á landsbyggðinni Fram kom í máli Jóns Torfa að margvíslegum gögnum var safnað til að átta sig á hverjir lykju námi og hverjir ekki, hverjir skráðu sig í framhaldsskóla og hverjir ekki. Í því skyni var m.a. safnað saman ein- kunnum á samræmdum prófum og skólaeinkunnum. Enginn munur reyndist á kynjum í þeim hópi sem hafði hæstu einkunn á samræmdu prófi í íslensku. Þannig voru líkur á útskrift á stúdentsprófi óháðar kyni og þessi hópur valdi að jafnaði ekki verknám. Mikill munur reyndist aftur á móti á þeim hópi sem fékk 5–6,9 í ís- lensku á samræmdu prófi en hægt er að ímynda sér að sá hópur eigi ekki eins auðvelt með nám og þeir sem fengu hæstu einkunnirnar. Fram kemur í rannsókninni að þessi hópur stendur frammi fyrir raunverulegu vali um námsbraut. Stúlkurnar eru þó líklegri til að velja stúdentsprófið en piltarnir verk- námið. Fremur lágt hlutfall þeirra sem voru með 3–4,9 á samræmdu prófi í íslensku valdi nám til stúd- entsprófs og fyrir þann hóp sem læt- ur bóklega námið lakast er stúdents- námið ekki raunverulegur kostur og raunar standa stúlkurnar fyrst þá verulega höllum fæti. Þegar útskrift úr skóla og búseta var skoðuð í rannsókninni kom í ljós að mest ásókn virðist í stúdentspróf- ið hjá íbúum þéttbýlissvæða, en iðn- námið átti sterkust ítök í dreifbýlinu. Þannig hafa 52% þeirra sem bjuggu í Reykjavík lokið stúdentsprófi, 50% þeirra sem bjuggu á höfuðborgar- svæðinu utan Reykjavíkur og 40% þeirra sem bjuggu á landsbyggðinni höfðu lokið stúdentsprófi. Hvað varðar próf úr verkgreinum var um að ræða 7% hópsins sem bjó í Reykjavík og 14% á landsbyggðinni. Fáir með hæstu einkunn sækja í verknám Loks má nefna að skoðaður var munur á útskrift eftir búsetu með tillliti til einkunna á samræmdu grunnskólaprófi í íslensku og þá kom í ljós að því hærri sem einkunn- in var því meiri eru líkurnar á að fólk hafi lokið stúdentsprófi og það á bæði við um höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina. Fáir í þessum hópi hafa útskrifast úr verknámi, en í ljós kom að næstum þrefalt hærra hlut- fall útskrifast úr verknámsgreinum utan höfuðborgarsvæðisins í hæsta einkunnaflokknum. Mynstrið snýst svo við þegar kemur að þeim sem voru með lægstu ein- kunnirnar, þar höfðu nær þrefalt fleiri á höfuðborg- arsvæðinu lokið verknámi miðað við þá sem bjuggu utan þess. Þegar hópnum var skipt í tvennt, annars vegar þá sem höfðu útskrif- ast og hins vegar þá sem það höfðu ekki gert, í ljósi einkunna kom í ljós að þeir sem búa utan höfuðborgar- svæðisins standa ekki verr að vígi en þeir sem á því búa nema í þeim fá- menna hópi sem lægstar hefur ein- kunnirnar. Háskólafólki hefur fækkað á landsbyggðinni Bjarki Jóhannesson, forstöðu- maður þróunarsviðs Byggðastofnun- ar, fjallaði um þátt menntunar í byggðaþróun og kom fram í máli hans að víða á landsbyggðinni er ekki aðstaða til að taka við mennt- uðu fólki þannig að það fái störf við hæfi. Hann nefndi að háskólafólki hefði fækkað um 100 á landsbyggðinni á sama tíma og því hefði fjölgað um 3.000 á höfuðborgarsvæðinu. Einnig kom fram í máli hans að 13% íbúa höfuðborgarsvæðisins greiða af námslánum en hlutfallið er 3–8% eft- ir landshlutum á landsbyggðinni, hæst á Norðurlandi eystra en lægst á Reykjanesi og Vestfjörðum. Stað- an er því nokkuð misjöfn eftir svæð- um. Hann nefndi einnig að sú hætta væri fyrir hendi að skólahald legðist af í fámennum byggðarlögum og að brottfall væri meira úr litlum fram- haldsskólum en stórum. Búseta að loknu háskólanámi Ingi Rúnar Eðvaldsson, dósent við Háskólann á Akureyri, greindi frá rannsókn á háskólamenntun og búsetu sem unnið er að við Háskól- ann á Akureyri, en hún snýst um að kanna áhrif háskólamenntunar á bú- setuval að námi loknu. Rannsóknin nær til hjúkrunar- fræðinga og þeirra sem hafa próf úr rekstrar- og viðskiptagreinum frá Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Fram kemur í rannsókninni að 91% þeirra sem alist hafa upp á höfuðborgarsvæðinu velja Háskóla Íslands og 83% Akureyringa velja að setjast í Háskólann á Akureyri. Skýrt kemur fram í rannsókninni að háskólanám hefur áhrif á búsetu. Þannig búa 80% þeirra sem lokið hafa prófi í hjúkrunarfræði frá Há- skóla Íslands á höfuðborgarsvæðinu en 20% dreifast víða um landið. Þeg- ar búseta þeirra sem lokið hafa sama prófi frá Háskólanum á Akureyri er skoðuð kemur í ljós að 45% búa á Akureyri, 30% annars staðar á landsbyggðinni og 25% búa í Reykjavík eða nágrannabyggðarlög- um. Sama mynstur er uppi á ten- ingnum þegar viðskiptagreinar eru skoðaðar. Ingi Rúnar greindi frá því að fjöl- skyldutengdir þættir skýrðu val á búsetu eftir háskólanám í um helm- ingi tilfella. Það sýndi hversu sterka stöðu fjölskyldan hefði á Íslandi, en starf og starfsframi vega mun þyngra víða erlendis þegar kemur að því að velja búsetu eftir háskólanám. Þóra Björk Jónsdóttir, kennslu- ráðgjafi við Skólaskrifstofu Skaga- fjarðar, greindi á ráðstefnunni frá rannsókn sem hún vann á hugmynd- um grunnskólakennara í dreifbýli varðandi stuðning í starfi. Helstu niðurstöður hennar voru þær að mikilvægt væri að samstarf innan skólans væri gott sem og sam- vinna milli skóla og eins nefndu kennararnir að þeir fengju stuðning á námskeiðum og með endurmennt- un svo og með því að hafa góðan að- gang að skólaskrifstofum. Helst þótti þeim skorta á stuðn- ing varðandi aðstoð við nema sem eiga við náms- örðugleika að stríða sem og varðandi samkennslu. Kennararnir nefndu að bæði þegar byrjað væri að kenna nýjum aldurshópi og eins nýtt fag væri afar mikilvægt að geta leitað til kennara með reynslu. Auk þess leita kennarar stuðnings hjá ráðgjöfum og skólaskrifstofum og einnig hjá fjölskyldu og vinum. Fram kom í könnuninni að kenn- arar fá oft litlar sem engar upplýs- ingar um störf sín og þeir geta helst lesið út úr líðan nemenda sinna og af viðbrögðum kennara hver árangur þeirra er í starfi. Fram kom einnig að lítið er um að kennurum sé hrósað fyrir starf sitt. Þótti kennurunum mikilvægt að fá meiri faglega svörun á störf sín. Litlir skólar hafa síður tök á að bjóða verknám Helga M. Steinsson, skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað, fjallaði í sínu erindi um hlutverk framhaldsskóla í dreif- býli. Hún fór yfir stöðu slíkra skóla, en fámennir skólar teljast þeir sem hafa færri en 300 nemendur. Hún sagði litla landsbyggðarframhalds- skóla koma illa út úr svonefndu reiknilíkani sem tekið var í notkun árið 1998. Skólarnir væru bæði í samkeppni sín á milli sem og við hina stóru framhaldsskóla landsins. Fáir litlir skólar hefðu tök á að bjóða upp á verknám, slíkt væri afar dýrt þeg- ar nemendur eru fáir. Þetta væri bagalegt því hugur margra nemenda af landsbyggðinni stæði til verknáms, en aðgengi þeirra til starfs- og verknáms væri takmarkaður í heimabyggð. Þá sagði hún brottfall nemenda hafa slæmar afleiðingar fyrir skólana, en rekstr- arframlag hvers skóla lækkaði um 100 þúsund krónur fyrir hvern nem- anda sem hætti námi. Loks nefndi Helga að erfiðara væri að halda úti öflugu félagslífi í fámennum skólum en fjölmennum. Kostir fámennra skóla væru þó margir, m.a. persónulegri tengsl en tíðkast í stærri skólum og minni lík- ur á að nemendur týndust í fjöldan- um, þá væri ráðgjöf aðgengilegri og umsjón með nemendum meiri. Meðal þess sem Helga nefndi í er- indi sínu var að námsframboð minni skólanna á landsbyggðinni væri minna en stóru skólanna í þéttbýlinu og eins kom fram í máli hennar að víða á landsbyggðinni er viðhorf til menntunar neikvætt. Það má m.a. skýra með hræðslu fólks heimafyrir við að missa frá sér unga fólkið, færi það burt til náms væru litlar líkur á að það skilaði sér til baka aftur. Anna Kristín Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Farskóla Norð- urlands vestra, sagði frá Leonardo da Vinci-starfsmennta- verkefni sem stendur yf- ir á Hofsósi. Alls hafa 62 stundað námið sem boð- ið er upp á og eru þeir á aldrinum 18 til 73 ára. Verkefnið hefur gengið vel, að sögn Önnu Kristínar. Fjarnámið hefur gefist vel Anna Bergsdóttir, skólastjóri Grunnskólans í Grundarfirði, sagði frá fjarnámi þar, en boðið hefur ver- ið upp á það í samvinnu við Verk- menntaskólann á Akureyri síðastlið- in tvö ár. Nemendum á framhalds- skólastigi stendur námið til boða og þurfa þeir því ekki að yfirgefa heimabyggð sína að loknu grunn- skólanámi. Anna sagði marga kosti við fjar- námið sem almennt hefði gengið vel. Það örvaði nemendur og styrkti þá í sjálfstæðum og markvissum vinnu- brögðum og þá væri einnig mun minni pappír kringum slíkt nám sem að mestu færi fram um tölvur. Að auki greindu tveir leikskóla- stjórar, þær Hólmfríður Árnadóttir á leikskólanum Krummafæti á Grenivík og Kristín Eiríksdóttir á leikskólanum Brimveri á Eyrar- bakka, frá starfsemi leikskólanna og þeim verkefnum sem þar er unnið að með yngstu börnunum. Menntun í dreifbýli/ Ráðstefna um menntun í dreifbýli haldin í apríl á Stórutjörnum. Markmiðið er að skapa samband milli skólamanna hvarvetna á landinu, skiptast á skoðunum og ráðum. Margrét Þóra Þórsdóttir segir hér frá ráðstefnunni og mörgum athyglisverðum niðurstöðum sem kynntar voru í fyrsta sinn. Morgunblaðið/Margrét Þóra Menn komu víða að á ráðstefnuna. Hér er Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, og samstarfsmenn. Iðnnám vinsælt í dreifbýli Kennurum sjaldan hrósað fyrir starf sitt Kostir fá- mennra skóla eru dýrmætir  Nemendur með hæstu einkunn- irnar velja síður verknám  Fjölskyldan ræður búsetu fremur en háskólapróf einstaklingsins Morgunblaðið/Margrét Þóra Jón Torfi Jónasson prófessor sagði frá nýjum niðurstöðum rannsóknar um viðhorf ungs fólks til náms og námsferil þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.