Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MEISTARAFÉLAG húsasmiða tel- ur að verið sé að rýra menntunarkröf- ur byggingameistara með því að veita iðnmeisturum óverðskuldaðan að- gang að löggildingu til þess að standa fyrir flóknum byggingaframkvæmd- um með 45 stunda grunnnámskeið- um. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að hér sé um slys í sögu iðnmenntunar á Íslandi að ræða og að með þessu hafi iðnmenntun í landinu verið gert meira ógagn en dæmi eru um áður. Alþingi heimilaði með breytingu á skipulags- og byggingalögum í lok árs 1999 að þeir sem fengu eða áttu rétt að að fá meistarabréf fyrir 1. janúar 1989 gætu öðlast landslöggildingu sem byggingameistarar að afloknu námskeiði. Tilgangurinn var fyrst og fremst sá að veita iðnmeisturum af landsbyggðinni tækifæri á löggild- ingu enda hefðu þeir ekki haft sömu tækifæri til að sækja nám í Meistara- skólanum og iðnmeistarar á höfuð- borgarsvæðinu. „Í upphafi var búist við að á annað hundrað iðnmeistarar myndu sækja námskeiðin. Allt annað hefur komið á daginn. Nú hafa yfir 800 iðnmeistar- ar, langflestir þeirra á höfuðborgar- svæðinu, sótt um að taka þátt í nám- skeiðunum og öðlast þannig fyrirhafnarlitla löggildingu,“ segir í yfirlýsingu frá Meistarafélagi húsa- smiða. Félagið bendir á að Alþingi hafi fyrir síðustu áramót framlengt frest til þess að sækja um þátttökku og framlengja heimild til námskeiða- haldsins til 1. júlí 2002 en upphaflega áttu þau að standa til 1. júlí 2001. Í bréfi Meistarafélags húsasmiða til umhverfisnefndar Alþingis dag- settu 27. apríl sl. segir að í samræmi við eðlilegar kröfur byggingayfir- valda allt frá 1963 eigi starfandi bygg- ingameistarar á höfuðborgarsvæðinu nær allir að baki nám í Meistaraskól- anum og það sé nú 1.768 stundir. 45 stunda löggildingarnámskeið sé því hjóm eitt í samanburði við Meistara- skólann. Þá fór Kristján Snorrason húsa- smíðameistari þess á leit við umboðs- mann Alþingis í janúar sl. að hann taki þetta mál til meðferðar. Segir hann í bréfi til umboðsmannsins að ákvörðun ráðherra umhverfis- og byggingamála að veita heimild til lög- gildingar á grunni námskeiðsins geri nám í meistaraskóla að engu og ákvörðunin sé í engu samræmi við stefnu stjórnvalda í menntamálum. Mótmæla löggildingu á grunni námskeiðs FJÖLDI fólks hefur lagt leið sína að Dalsá í Fáskrúðsfirði þar sem tveir svartir svanir una sér hið besta. Fyrst varð vart við svanina sl. laugardag í Fáskrúðsfirði. Þeir hafa hins vegar fært sig um set og eru nú komnir nær sjón- um. Á myndinni má sjá svanina svörtu á Dalsánni. Heimamenn hafa haft á orði að gaman væri ef svanirnir hreiðr- uðu um sig þarna til frambúðar. Fólk hefur gefið þessum sjald- séðu svörtu svönum brauð en svanirnir líta ekki við þurru brauði. Þeir eru hins vegar mat- lystugir ef það er bleytt áður. Nokkuð hvasst var á Fáskrúðs- firði í gær en hlýtt í veðri og meira en 10 stiga hiti. Svartir svanir í Fáskrúðs- firði Morgunblaðið/Sigurjón TVÆR jeppabifreiðir festust í Markarfljóti til móts við Húsadal í Þórsmörk um miðjan dag á laug- ardag með þeim afleiðingum að kalla varð eftir aðstoð lögregl- unnar á Hvolsvelli. Alls voru fimm manns í jeppunum, tvær fjölskyldur á leið heim úr Langadal. Var fólkið komið upp á þak bifreiðanna í ánni þegar björgunarsveitamenn frá Hellu, Hvolsvelli og Landeyjum komu á vettvang. Engin börn voru í hópnum. Jepparnir voru fastir í nyrsta álnum í Markarfljóti og tók það fyrstu björgunarsveitamennina, frá Dagrenningu á Hvolsvelli, 26 mín- útur að komast á vettvang eftir út- kall. Talið var í fyrstu að aðstæður væru verri en þær reyndust þegar að var komið. Um 30 björgunar- sveitamenn komu að björguninni sem gekk að óskum. Mátti það einkum þakka því að fólkinu tókst að halda kyrru fyrir uppi á jeppunum uns hjálpin barst. Vatnsdýptin var um 120 cm og tals- verður straumþungi í ánni. Björg- unarsveitamenn köstuðu líflínu til fólksins og drógu það í land og tók um 10 mínútur að bjarga öllum. Ekkert amaði að fólkinu fyrir utan að það var nokkuð blautt. Að sögn lögreglu er mjög óvenju- legt að bílar fari yfir ána á þessum stað enda alls ekki um venjulega leið að ræða. Lögregla sagði að at- vik af þessu tagi ætti ekki að eiga sér stað. Þyrfti ferðafólk að vera mjög kunnugt staðháttum og á mjög öflugum jeppum til að komast yfir ána á vaðinu. Fimm manns bjargað af þaki jeppa í Markarfljóti OLÍUDREIFING ehf. og Skeljung- ur hf. neita að veita Heilbrigðiseftir- liti Reykjavíkur ákveðnar upplýsing- ar um dreifingu eldneytisflutninga á höfuðborgarsvæðinu frá birgðar- stöðvum fyrirtækjanna í Örfirisey. Fyrirtækin bera því við að verið sé að óska eftir viðkvæmum viðskiptaupp- lýsingum og að ekki hafi verið gerð grein fyrir hvernig þær yrðu nýttar. Heilbrigðiseftirlitið hafi þar að auki ekki heimild til að krefjast þessara upplýsinga. Á fundi með fulltrúum fyrirtækj- anna í febrúar fóru heilbrigðisfulltrú- ar fram á upplýsingar um hlutfalls- lega dreifingu eldsneytisflutning- anna, sundurliðaða milli strandflutn- ingaskipa, olíuafgreiðslubáta, flutn- inga til Keflavíkur- og Reykjavíkur- flugvallar og með bílum til notkunar innan höfuðborgarsvæðisins annars vegar og utan þess hins vegar. Þessar upplýsingar telja fyrirtækin viðkvæmar og neita að láta þær af hendi en benda á að þau hafi þegar veitt margvíslegar upplýsingar um eldsneytisflutning frá Örfirisey. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um viðbrögð Örn Sigurðsson, skrifstofustjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um viðbrögð við svörum fyrirtækjanna. Málið var rætt á und- irbúningsfundi fyrir næsta fund heil- brigðis- og umhverfisnefndar í gær, en engrar ákvörðunar er að sögn Arn- ar að vænta fyrr en á fundi nefnd- arinnar næstkomandi fimmtudag. Aðspurður um hvers vegna heil- brigðiseftirlitið þurfi þessar upplýs- ingar segir hann að það sé talið rétt að borgaryfirvöld hafi þær í sínum fór- um. Þær nýtist m.a. við skipulags- vinnu og við að meta áhættu og um- fang hugsanlegra óhappa. Hann telur ljóst að heilbrigðiseftirlitið geti óskað eftir slíkum upplýsingum. Þetta sé reyndar ekkert stórmál, með því að skoða upplýsingar sem fyrirtækin hafa þegar birt sé hægt að fá grófa mynd af flutningunum. Betra sé þó að fá nákvæmar upplýsingar frá félög- unum sjálfum. Örn segir að óski fyrirtækin eftir því að farið sé með upplýsingarnar sem trúnaðarmál verði að sjálfsögðu orðið við því. Í bréfi sem Olíudreifing sendi heil- brigðiseftirlitinu í lok apríl segir að umbeðnar upplýsingar muni ekki varpa ljósi á þá mengunarhættu sem stafar af flutningum með olíu. Aftur á móti væru líkur á óhöppum í beinu hlutfalli við ekna kílómetra. Slíkar upplýsingar væru ekki viðkvæmar og þrátt fyrir að fyrirtækið teldi sér það ekki skylt voru heilbrigðiseftirlitinu gefnar upplýsingar um fjölda ekinna kílómetra. Þá kemur fram að olíubílar Olíu- dreifingar flytja 10.000–42.000 lítra af eldsneyti í hverri ferð. Að jafnaði fari bílar fyrirtækisins u.þ.b. 25 ferðir frá olíubirgðastöðinni á dag og jafnmarg- ar til baka. Sex af þessum ferðum eru ætlaðar út fyrir höfuðborgarsvæðið. Á síðasta ári óku olíubílar fyrirtæk- isins um 309.000 kílómetra innan höf- uðborgarsvæðisins. Af þeim voru 45.000 km vegna aksturs bíla sem voru á leið út fyrir höfuðborgarsvæðið eða um 15% heildaraksturs. Í bréfi Skeljungs til heilbrigðiseft- irlitsins kemur fram að fyrirtækið hafi ávallt unnið að því að takmarka áhættu af eldsneytisflutningum og bent er á að nú séu uppi áform um beinan innflutning á flugeldsneyti til Helguvíkur. Nái þau áform fram að ganga muni draga verulega úr land- flutningum frá Reykjavík. Olíudreifingarfyrirtækin neita að veita Heilbrigðis- eftirliti Reykjavíkur upplýsingar Viðkvæmar við- skiptaupplýsingar SKIPTAFUNDUR í þrotabúi Radíó- búðarinnar hf. fór fram í föstudag en á fundinum var lögð fram skrá um lýstar almennar kröfur. Þá var á fundinum tekin afstaða til sáttatil- boðs vegna uppgjörs á dómi Héraðs- dóms Reykjavíkur frá 9. febrúar en þá rifti dómurinn kaupum Radíóbúð- arinnar á þremur sumarbústöðum sem fyrirtækið keypti af fjórum hlut- höfum og stjórnarmönnum skömmu áður en óskað var eftir gjaldþrota- skiptum á fyrirtækinu í ágúst 1998. Ákveðið var að taka sáttatilboðinu á fundinum. Áður en fyrirtækið var lýst gjaldþrota greiddi það hluthöfunum fjórum 18,3 milljónir fyrir fast- eignirnar og að auki fékk einn stjórn- armanna um 350.000 fyrir sölu á fjórða bústaðnum sem annar eigandi og stjórnarmaður seldi. Í kjölfarið höfðaði þrotabú Radíóbúðarinnar riftunarmál á þeim forsendum að fyr- irtækið hefði verið eigandi bústað- anna og því hefði verið um gjöf að ræða. Héraðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu að Radíóbúðin hefði verið eigandi búðstaðanna þegar fólkið seldi þá og því hefðu kaupin verið gjöf til fólksins. Þessum gjafagerningi rifti héraðsdómur, eins og áður sagði, og dæmdi fólkið til að greiða þrota- búinu samtals um 14,7 milljónir auk dráttarvaxta. Eftir að dómurinn var kveðinn upp lögðu hinir stefndu fram beiðni um að ljúka málinu með afbrigðum og áfrýja þá ekki málinu. Gengið var að sátta- tilboðinu á fundinum en það samsvar- aði varakröfu þrotabúsins og hljóðar upp á rúmar 7 milljónir króna. Sáttatilboði hluthafa tekið Framsals- beiðni vegna mannshvarfs DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur að ósk lögreglunnar í Reykjavík farið fram á að íslenskur karlmaður á fer- tugsaldri sem situr í fangelsi í Hol- landi verði framseldur til Íslands. Lögreglan vill yfirheyra manninn í tengslum við hvarf Valgeirs Víðisson- ar en síðast spurðist til hans árið 1994. Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík, segir að rannsókn málsins hafi aldrei verið hætt. Í gegn- um tíðina hafi lögreglunni borist ýms- ar vísbendingar og hafi þær verið kannaðar eftir mætti. Þetta sé ein af þeim. Þar sem lögreglan hafi enga lögsögu yfir manninum í Hollandi hafi verið farið fram á framsal. Hörður segir enn óvíst hvort hollensk yfirvöld verði við beiðninni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins afplánar maðurinn nú fang- elsisdóm vegna smygls á 16 kílóum af kókaíni til Hollands. Lögreglan mun hafa yfirheyrt manninn. Á síðasta ári handtók lögreglan mann hér á landi í tengslum við hvarf Valgeirs og yfir- heyrði hann. Maðurinn hefur komið við sögu fíkniefnamála hér á landi. Hörður segir engan hafa verið hand- tekinn í tengslum við rannsókn máls- ins á þessu ári. Barinn með hafnaboltakylfu TVÆR líkamsárásir voru kærðar til lögreglunnar í Hafnarfirði um helgina. Á föstudagskvöld var ráðist á gest í veitingahúsi í miðbænum og er hann talinn nefbrotinn. Á laugar- dagskvöldið var ráðist á ungan mann í miðbæ Hafnarfjarðar og hann bar- inn með hafnaboltakylfu. Í hvorugu tilvikinu veit lögreglan deili á árás- armönnunum. Tvö innbrot voru tilkynnt til lög- reglu. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.