Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 48
UMRÆÐAN 48 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í KJÖLFAR brotlendingar flug- vélarinnar TF-GTI 7. ágúst sl. hefur meðal annars verið rætt um sérstak- an viðbúnað flugmálastjórnar í Vest- mannaeyjum vegna þjóðhátíðarinnar sl. verslunarmannahelgi. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri hefur haldið því fram að eftirlit þetta hafi verið hið ágætasta og starfsmenn flugmála- stjórnar sinnt því af kostgæfni, en við upplýsingaöflun vegna brotlendingar TF-GTI fór fljótlega að bera á því að önnur kynni að hafa verið reyndin. Í kjölfar ábendinga, m.a. úr hinum opinbera geira, var með vísan í upp- lýsingalög farið fram á að fá endurrit úr dagbókum flugturnsins í Vest- mannaeyjum og flugturnsins í Reykjavík. Rétt er að undirstrika að hér er um að ræða dagbækur sjálfrar flugmálastjórnar, sem ábyrgir varð- stjórar flugturnanna færa inn í sam- kvæmt fyrirfram ákveðnum starfs- reglum. Neðangreindar tilvitnanir í dag- bækurnar vísa því til opinberra gagna frá flugmálastjórn, sem einna helst mætti líkja við dagbækur lög- reglunnar. „Hvað með öryggis- og viðbúnaðarþjónustu?“ Í svarbréfi flugmálastjórnar dag- settu 2. maí sl. vegna ofangreindrar beiðni og undirritað var af Heimi Má Péturssyni, starfsmanni flugmála- stjórnar, segir meðal annars: „Bent skal á að í dagbók eru einungis skráð frávik frá hefðbundnum störfum flugumferðarstjóra.“ Einnig stend- ur: „„Þorbjörn“ í bókun kl. 7:05 hinn 7. ágúst 2000 er Þorbjörn J. Einars- son, starfsmaður Flugmálastjórnar í Reykjavík [trésmiður – innskot greinarhöfunda]. Hann var við störf í Vestmannaeyjum um verslunar- mannahelgina 2000 undir stjórn Jóns Baldvins Pálssonar, setts fram- kvæmdastjóra flugvallasviðs og flug- vallarstjóra í Reykjavík. Jón Baldvin Pálsson hefði fullt vald til að veita undanþágu til flugtaks frá flugvell- inum í Reykjavík, sem annars er lok- aður fyrir flugtökum frá klukkan 23:30 til klukkan 7:30 um helgar og á hátíðardögum…“ Rétt er að benda á, að nafngreiningar í þessari umfjöllun eru ekki greinarhöfunda, heldur Heimis Más Péturssonar og varð- stjóra flugturnanna. Hér að neðan fer orðrétt endurrit- un nokkurra færslna úr þessum op- inberu dagbókum flugturnanna. Menn geta gert sér í hugarlund hvað gengið hafi á, áður en varðstjórar flugturnanna færðu eftirfarandi texta í dagbækurnar. Óbreyttur texti úr dagbók flug- turnsins í Vestmannaeyjum laugar- daginn 5. ágúst 2000, kl. 13:45: „Reynt er árangurslaust að ná sam- bandi við brautarmenn FMS. Enginn svarar, hvorki uppgefnir farsímar, innanhússkallkerfi né frek- ari eftirgrennslan í flugstöð. Á með- an bíður vél eftir eldssneytisaf- greiðslu. Hvað með öryggis- og viðbúnaðar- þjónustu?“ Kl. 13:54: „Loks næst í Jón Bald- vin.“ „Einhver fyllibytta úti í bæ“ Óbreyttur texti úr dagbók flug- turnsins í Reykjavík að morgni mánudagsins 7. ágúst 2000, kl. 7:05: „Í turn hringdi einhver Þorbjörn, sagðist vera með símann hans Jóns Baldvins og veita í hans umboði leyfi fyrir undanþágu frá lokun flugvall- arins fyrir brottflugi véla. Viðkom- andi var beðinn um að framvísa gild- ara umboði en símanum hans Jóns Baldvins, sem tókst ekki.“ Kl. 7:10: „Í turn hringir einhver sem fullyrðir að hann sé Jón Baldvin. Ekki þekktist maðurinn á röddinni þar sem hún var bæði mjög hás og ill- skiljanleg. Þessi torkennilega rödd sagðist vera í VM og að hann veitti undanþágu frá reglum um lokun vall- arins fyrir brottflugi véla. Varðstjóri lenti í hinni verstu klemmu minnugur þess að á síðasta varðstjórafundi hafði hann fengið tilmæli um að taka við munnlegum fyrirmælum sem þessum ef þau bærust í gegnum síma. Þar sem símaskjárinn gaf til kynna að verið væri að hringja úr síma Jóns Baldvins og að líkur voru þar með fyrir því að þetta væri ekki einhver fyllibytta úti í bæ og jafn- framt þar sem ekki var mikið í húfi ákvað varðstjóri að taka orð viðkom- andi trúanleg.“ Kl. 7:16: GTO fer í loftið kl. 7:16 með leyfi frá „Jóni Baldvini“ [TF- GTO er flugvél LÍO ehf. (Ísleifs Otte- sen) – innskot greinarhöfunda]. Lögreglan rannsaki starfshættina Það er ljóst af dagbókarfærslum flugturnsins í Reykjavík, að ef ekki hefði verið fyrir nútímatækni núm- erabirtingar hefði varðstjórinn í flug- turninum í Reykjavík þennan morg- un afskrifað hringjarann frá Vest- mannaeyjum sem einhverja „fylli- byttu úti í bæ“. Þegar varðstjórinn í flugturninum í Reykjavík heyrði hina hásu, torkennilegu og illskiljanlegu rödd er ljóst að hann gat með engu móti gert sér grein fyrir því að þar færi hinn háttsetti framkvæmda- stjóri flugmálastjórnar, sem áður hafði árangurslaust fengið trésmið til að tilkynna fyrir sig undanþágu frá lokunartíma flugvallarins í Reykjavík vegna flugvélar LÍO ehf. Sú spurning vaknar hvaða flutning- ur TF-GTO til eða frá Reykjavík hafi verið svo mikilvægur að ekki hafi ver- ið hægt að bíða með flugtak í 14 mín- útur, eða þar til að eðlilegum af- greiðslutíma kæmi. Dagbókarfærslan úr flugturninum í Vestmannaeyjum lýsir miklum áhyggjum af framkvæmd öryggis- og viðbúnaðarþjónustunnar og út af fyr- ir sig stórmerkilegt að viðkomandi flugumferðarstjóri skuli hafa séð ástæðu til að setja þær áhyggjur á blað. Dagbókarfærslurnar úr flugturn- unum í Reykjavík og Vestmannaeyj- um renna styrkum stoðum undir rétt- mæti upplýsinga um að um óeðlilegt „eftirlit“ sumra starfsmanna flug- málastjórnar hafi verið að ræða – af hendi einstaklinga, sem fengu greitt fyrir að gegna eftirlits- og vaktstörf- um þessa helgi. Þær undirstrika og að fullyrðingar flugmálastjóra um fölskvalaus störf eftirlits- og vakt- manna flugmálastjórnar eru rangar. Ekki verður komist hjá því að senda dagbókarfærslur þessar til lögreglu með kröfu um rannsókn á starfshátt- um þessara manna. Gera verður kröfu um að hver og einn hinna mörgu starfsmanna flugmálastjórnar í Vestmannaeyjum þessa verslunar- mannahelgi geri fulla grein fyrir gjörðum sínum þjóðhátíðardagana. Hafi þessir menn verið uppteknari af þjóðhátíðarstemmningunni en af því að sinna störfum, sem greitt var fyrir, ber að upplýsa slíkt. Eftirlit flugmálastjórn- ar í Vestmannaeyjum Friðrik Þór Guðmundsson Flugslys Dagbókarfærslurnar úr flugturnunum í Reykja- vík og Vestmanna- eyjum, segja Friðrik Þór Guðmundsson, Hilmar Friðrik Foss og Jón Ólafur Skarphéð- insson, renna styrkum stoðum undir fullyrð- ingar heimildarmanna um óeðlilegt „eftirlit“. Hilmar Friðrik Foss Jón Ólafur Skarphéðinsson Jón Ólafur er prófessor, Friðrik Þór er blaðamaður og Hilmar Friðrik er flugmaður. SAMEINING Ríkis- spítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur var mjög umdeild ráðstöfun. Það sem sætti marga við þessa leið var sú hugs- un að möguleiki væri á að bæta þá aðstöðu sem starfsemin byggi við í dag með því að flytja hana á einn stað og byggja það húsnæði sem þarf til að reka starfsemina miðað við nútíma kröfur. Nú þeg- ar er ljóst að það er sama hvaða leið verður farin að þessu mark- miði, hún mun kosta mikið, nefndar hafa verið tölur upp á 15-20 milljarða króna fjárfestingar á næstu 10-15 árum. Mjög miklu máli hlýtur því að skipta hvernig á verður haldið. Annað atriði sem mönnum fannst jákvætt er sú afstaða að auka veg háskólastarfsemi spítalans en hún hefur hingað til verið hornreka í heildarstarfseminni. Mörg stór sjúkrahús erlendis eru rekin af háskólum og hafa það orð að vera eftirsótt- ustu og bestu slíkar stofnanir, þar sem gerðar eru miklar kröf- ur til gæða þjónustunn- ar, rannsóknir stund- aðar og kennsla nema í heilbrigðisfræðum fer fram. Og því ekki að fara þessa leið á Íslandi og fela Háskóla Íslands að reka og skipuleggja Landspítala – háskóla- sjúkrahús? Þessi leið hefur fram að þessu verið talin ófær vegna þeirrar fjár- mögnunar sem hingað til hefur verið beitt hér á landi, þ.e. fastra fjárlaga og eilífs hallareksturs sem fylgir því fyrirkomulagi. Rekstur sjúkrahúsa Undanfarna tvo áratugi hafa flest sjúkrahús á Íslandi verið rekin í kerfi fastra fjárlaga. Þessi aðferð var einnig notuð í mörgum löndum en nú er svo komið að hún hefur alls staðar verið lögð af nema á Íslandi. Stað- reyndin er sú að það getur enginn, hvorki ríkið sjálft né aðrir rekið spít- ala í þessu kerfi. Víðast í löndum Evrópu og t.d. á öllum hinum Norð- urlöndunum hafa menn tekið upp ný fjármögnunarkerfi sem byggjast að hluta á mælingu afkasta þar sem hið bandaríska mælikerfi DRG er lagt til grundvallar. Það kallar á að einstak- ir þættir þjónustunnar verði kostn- aðargreindir og spítalar því reknir á sama grundvelli og venjuleg fyrir- tæki. Þessi aðferð gefur möguleika á samanburði stofnana milli landa og auðveldar mjög þeim sem taka ákvarðanir um nýtingu fjármagns til heilbrigðisþjónustu. Enda þótt að- ferðin sé ekki gallalaus hefur hún breiðst út um allan heim og þróunin er mjög ör. Rekstur Háskólans á spítalanum myndi auðvelda mjög alla vinnu við að koma slíku kerfi á þar sem spítalinn gæti notið mikils styrks frá ýmsum öðrum deildum á viðskipta- og rekstrarsviði við rann- sóknir á rekstrarþáttum. Velferðarkerfi En getur nokkur annar aðili en ríkið rekið slíka stofnun sem margir telja hluta af okkar velferðarkerfi? Við þær miklu breytingar sem orðið hafa í heilbrigðisþjónustu í allri Evr- ópu og víðar er einn rauður þráður. Gerður er greinarmunur á trygg- ingaþættinum annars vegar og rekstrarþættinum hinsvegar. Vel- ferðin felst auðvitað í trygginga- þættinum, þ.e. hver greiðir kostnað- inn af þjónustunni. Rekstur þjón- ustunnar hefur auðvitað ekkert með velferð að gera. Það hlýtur hins veg- ar að vera skylda þeirra sem stjórna landinu að sjá til þess að það fé sem tryggingaþátturinn hefur yfir að ráða nýtist sem best og skjólstæð- ingar kerfisins njóti réttar síns, sem skapast hefur með greiðslum til kerfisins árum saman. Það er t.d. ekki velferð að hætta að greiða fyrir ákveðna lyfjaflokka, t.d. sýklalyf, sveppalyf og gigtarlyf. Það er ekki velferð að láta sjúklinga með ónýta liði bíða mánuðum og árum saman með slæma verki og skerta hreyfi- getu eftir því að fá úrlausn sem læknar þeirra mein. Rekstur þjónustunnar Því hefur verið farin sú leið að greina á milli þeirra sem kaupa þjón- ustu og þeirra sem veita hana. Jafn- vel þar sem ríkið sér um báða þætt- ina hafa stofnanir verið aðskildar. Það mætti til dæmis ímynda sér að Tryggingastofnun ríkisins fengi það hlutverk að semja við spítala og aðr- ar heilbrigðisstofnanir um magn og verð þjónustunnar, eftir þeim línum sem heilbrigðisráðuneyti og ríkis- stjórn legðu. Ýmsir aðilar gætu séð um reksturinn, t.d. háskólinn, sveit- arfélög, félagasamtök og einkaaðil- ar. Menn hljóta að vera búnir að læra það að ríkið er ekki besti aðilinn til þess að standa í rekstri og gera kjarasamninga við starfsfólk. Hlut- verk ráðuneytis og Alþingis yrði því að marka stefnuna og gæta hags- muna þeirra sem rétt eiga á þjónust- unni. Reykjavíkurborg hefur því miður dregið sig út úr rekstri spítala og því er Háskólinn eini aðilinn hér á landi sem gæti tekið verkefnið að sér. Framtíðin Til þess að markmið Landspítala – háskólasjúkrahúss náist þarf mikla fjármuni. Þörf fyrir nýbyggingar á næstu árum er eins og áður sagði ekki undir 15-20 milljörðum króna. Til þess að tryggja gæði þjónustunn- ar og kennsluhlutverk er ekki nóg að staðsetja sjúkrahúsið landfræðilega nálægt aðalbyggingu Háskólans. Það verður einfaldlega að láta þessar stofnanir renna saman í eina heild. Lykilatriðið er að breyta núver- andi fjármögnunarkerfi sem fyrst. Allar þjóðir Evrópu eru þegar búnar að því. Háskólasjúkrahús Ólafur Örn Arnarson Heilbrigðismál Lykilatriðið er, segir Ólafur Örn Arnarson, að breyta núverandi fjármögnunarkerfi sem fyrst. Höfundur er læknir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.