Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 22
NORÐURORKA mun greiða Háskólanum á Akureyri 750 þúsund krónur á ári næstu 5 ár og verður féð notað til verkefna og uppbyggingar á sviðum grunnrannsókna. Samningur þessa efnis hefur verið undirritaður en hann er á milli Norðurorku, Háskólans á Akureyri, Akureyrarbæjar og Rannsóknasviðs Orkustofnun- ar. Aðilar samningsins munu hafa með sér samstarf til að efla rannsóknir og kennslu á sviði náttúruvísinda, einkum grunnrannsóknir á orkulindum þjóðarinnar, jarðhita, vatnsafli, orkunýtingu og umhverfisþátt- um orkunýtingar. Auk þess sem Norðurorka greiðir áðurnefnda upphæð leggur fyrirtækið fram vinnu sérfræðings á sviði orkumála sem nemur 200 klukkustundum á ári. Norðurorka mun einnig styrkja útibú Rannsóknasviðs Orkustofnunar á Akureyri með 750 þúsund króna framlagi á ári næstu fimm ár og verður féð notað til hagnýtra rannsókna og nýsköpunar á sviði orku- vinnslu og orkunýtingar sem nýtast munu fyrirtækinu sem og öðrum orkufyrirtækjum í landinu. Norðurorka mun einn- ig leggja fram vinnu sérfræð- ings á sviði orkumála til útibús Rannsóknarsviðs Orkustofnun- ar. Þorsteinn Gunnarsson rekt- or Háskólans á Akureyri sagði samninginn koma í beinu fram- haldi af samningi sem gerður var við Landsvirkjun á dögun- um. Með þessum myndarlega styrk myndi verða haldið áfram að víkka út kennslu við háskól- ann á sviði jarðhitafræði og jarðvísinda. Landsvirkjun mun sam- kvæmt samningnum kosta stöðu prófessors í jarðvísindum en Franz Árnason forstjóri Norðurorku sagði að þeir pen- ingar sem fyrirtækið léti af hendi myndu nýtast til rann- sókna. Samstarf um rann- sóknir orkulinda HA, Akureyrar- bær, Norðurorka og Orkustofnun KARL Frímannsson, skóla- stjóri Hrafnagilsskóla, segir frá skólastefnu sem þar hefur verið við lýði síðustu tvö ár á Mömmumorgni í Akureyrar- kirkju miðvikudaginn 9. maí frá kl. 10 til 12. Dagskráin er liður í Kirkjulistaviku sem nú stendur yfir í kirkjunni. Yfirskrift fyrirlesturs Karls er: „Allir hafa það góða í sér og möguleikann til að verða betri manneskjur.“ Hornsteinar skólastarfs í Hrafnagilsskóla eru að rækta sammannlegar dyggðir, efla skilning á ólíkum viðhorfum og menningu, sinna þjónustu við samfélagið og gera allt með ágætum. Skóla- stefna Hrafna- gilsskóla kynnt Akureyrarkirkja AKUREYRI 22 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FÉLAGSMENN í Sjómannafélagi Eyjafjarðar komu saman til fundar á Akureyri sl. sunnudagskvöld, þar sem þeir lýstu yfir fullu trausti og eindregnum stuðningi við samninga- nefnd sjómanna, að sögn Konráðs Alfreðssonar formanns félagsins. Konráð sagðist hafa verið mjög ánægður með fundinn sem sóttu um 100 félagsmenn. „Ég var þarna að kynna mönnum stöðuna í samninga- málum og svara fyrirspurnum.“ Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á laugardag átti Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf, fund með áhöfn Baldvins Þor- steinssonar EA á föstudag. Þar kom m.a. fram að fyrirtækið stæði frammi fyrir því að selja skip og að það væri afleiðing verkfallsins. Konráð sagði að þarna hafi verið um hótanir að ræða af hálfu forstjóra Samherja. Slíkt væri brot á vinnulöggjöfinni og yrði kært til félagsdóms. Konráð sagðist ekki hafa orðið var við ótta meðal sjómanna Samherja á fundinum á sunnudagskvöld. „Menn gera sér alveg grein fyrir því að ef Samherji ætlar að selja skip, þá er það ekki vegna verkfallsins. Þar liggja aðrar ástæður að baki, að teknar hafi verið rangar ákvarðanir í fyrirtækinu eða eitthvað slíkt. Verk- fallið setur svona fyrirtæki ekki í þá stöðu að það þurfi selja skip.“ Konráð sagði að menn væru ákveðnir í því að ná samningum og að af því væri unnið af fullum krafti. Margir með skertar tekjur Verkfallið hefur að sjálfsögðu áhrif á landvinnsluna og hefur vinnsla smám saman verið að stöðv- ast, sérstaklega hjá þeim stærri. Minni fyrirtækin þrauka mörg hver enn, sum í viðskiptum við smábáta sem róa af krafti og önnur áttu fros- inn fisk sem verið er að vinna þessa dagana. Á Dalvík voru um 20 manns á at- vinnuleysisskrá þegar verkfallið hófst en eru nú ríflega 100 þar sem Frystihúsið sagði öllu starfsfólki upp og mun það vera eina fiskvinnslufyr- irtækið á Norðurlandi sem það gerði. Aðalsteinn Baldursson, formaður matvælasviðs starfsgreinasambands Íslands, segir það vissulega von- brigði að fyrirtækið hafi gripið til þessara aðgerða. Önnur fiskvinnslufyrirtæki á Norðurlandi, m.a. Útgerðarfélag Ak- ureyringa, hafi nýtt sér kauptrygg- inguna, þ.e. fólki er sagt upp þremur dögum áður en hráefni þraut, starfs- menn fá föst mánaðarlaun en ekki greiddar álagsgreiðslur og fyrirtæk- in fá endurgreitt úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði, en það sé hins vegar spurning hversu lengi fyrirtækin þoli slíkt. Nú búa á sjötta hundrað manns á Norðurlandi eystra við skertar tekjur, vegna sjómannaverkfallsins, eru annaðhvort á kauptryggingu eða atvinnuleysisbótum, og þeim mun fjölga á næstu dögum ef sjómanna- verkfallið leysist ekki. Þá má nefna að oft er stöðvun hjá fiskvinnslufyr- irtækjum í einhvern tíma á sumrin og það er ekki til að bæta ástandið. Enn er vinnsla hjá öðrum fisk- vinnslufyrirtækjunum á Dalvík og verður vinnsla þar í nokkra daga enn, mislengi þó. Hjá Norðurströnd var steinbítsvinnsla í fullum gangi fyrir helgi og að sögn Kristjáns Þor- valdssonar eiga þeir hráefni sem nægir í tveggja vikna vinnslu, bæði ferskt og frosið. Norðurströnd er í viðskiptum við smábáta víðs vegar um landið og seg- ir Kristján að ef tíð haldist góð verði enginn hörgull á hráefni hjá þeim. Pétur Sigurðsson hjá Sólrúnu á Árskógssandi segir að vinnsla hafi verið á fullu fram undir þetta, afli hafi fengist af smábátum og einnig hafi verið keypt á fiskmarkaði. Einn- ig hefur verið unnið við að pakka saltfiski. Þó megi allt eins búast við að nú fari að hægja á ef verkfallið leysist ekki hvað úr hverju. „Hins vegar fáum við fisk frá smærri bát- um, og nú er að koma sá tími er lifna fer yfir veiðinni hjá þeim.“ Stuðningur við samninganefnd Sjómannafélag Eyjafjarðar ÞREMUR yfirmönnum Stál- taks hf. á Akureyri hefur verið sagt upp störfum. Um er að ræða tvo af fjórum verkefnis- stjórum fyrirtækisins og fram- leiðslustjóra. Ólafur Hilmar Sverrisson framkvæmdastjóri Stáltaks vildi ekki tjá sig um þessar upp- sagnir í gær. Eins og áður hef- ur komið fram hefur rekstur fyrirtækisins verið erfiður og er unnið að því að laga hann. Stáltak varð til við sameiningu Slippstöðvarinnar á Akureyri og Stálsmiðjunnar í Reykjavík og er fyrirtækið með starfs- stöðvar á báðum stöðum. Fyrr í vetur var 13 starfs- mönnum fyrirtækisins á Akur- eyri sagt upp störfum vegna erfiðrar verkefnastöðu. Frá þeim tíma hefur verkefnastað- an batnað mikið og er góð um þessar mundir. Nokkur óvissa er þó um framhaldið og þá ekki síst vegna verkfalls sjómanna. Uppsagnirnar frá því í vetur hafa ekki enn komið til fram- kvæmda en þær hafa heldur ekki verið dregnar til baka samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins. Stáltak, Akureyri Þremur yfir- mönnum sagt upp KIWANISKLÚBBARNIR Kald- bakur og Embla afhentu öllum börnum á Akureyri, Eyjafjarð- arsveit, Svalbarðsströnd og Grenivík, sem fædd eru 1994, reiðhjólahjálma og veifur við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð sl. laugardag. Lögreglan var á staðnum með reiðhjólaskoðun, grillaðar voru pylsur í mannskap- inn frá Norðlenska og boðið upp á Frissa fríska. Meðal þeirra sem komu var Elmar Þór, sem hér gæðir sér á gómsætri pylsu. Margir komu á staðinn á laug- ardag en þar voru sérstakir vor- dagar í verslunum og boðið upp á ýmsar uppákomur vegna þess. Morgunblaðið/Kristján Gáfu börnum hjálma og veifur VEIÐIÁHUGAMENN geta búist við miklu fjöri ef þeir bregða sér inn að Hólavatni í Eyjafirði. Þar hafa ábúendur á Hólakoti, hjónin Örnólf- ur Eiríksson og Ragna Úlfsdóttir, ásamt sjómanninum Einari Inga Einarssyni og sambýliskonu hans, Evu Úlfsdóttur, verið að sleppa fiski í stórum stíl. Í síðustu viku var sleppt um 1.300 regnbogasilungum og síðan var bætt við um 20 boltalöxum frá Víkurlaxi. Í þessari viku verður sleppt til viðbót- ar um 1.400 regnbogasilungum frá Silfurstjörnunni í Öxarfirði. Regn- bogasilungur er vinsæll veiðifiskur og sprettharður og spennandi verð- ur að sjá hvernig fiskurinn nær að laga sig að lífríki Hólavatns, en fyrir er í vatninu góður stofn smámurtu. Búið er að gera góða aðstöðu í sum- arbústað við vatnið og þar verður öll þjónusta fyrir veiðimenn og aðra gesti, bátaleiga, stangaleiga fyrir börn og fullorðna, sala á veiðibúnaði, veitingasala, grill og möguleiki á að tjalda, en umhverfi Hólavatns er mjög skjólsælt. Ljósmynd/Rúnar Þór Sjómaðurinn Einar Ingi sleppir laxi. Með honum er sonurinn Einar Ingi og sjá má að það eru engin smákóð sem hægt er að fá í Hólavatni. Aðstaða fyrir veiði- menn við Hólavatn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.