Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
tækjum þjónustu. Árni Björn Árna-
son, slippstjóri hjá Stáltaki hf., sagði
að verkfallið hefði slæm áhrif fyrir
skipasmíðaiðnaðinn. Verkfallið
skapaði óvissu og drægi úr tekjum
útvegsins sem aftur leiddi til þess að
útgerðarfyrirtæki breyttu áætlun-
um um viðgerðir. Fyrirtæki frest-
uðu viðgerðum vegna þess að þau
teldu sig ekki hafa efni á þeim.
Hjörleifur Jakobsson, fram-
kvæmdastjóri Hampiðjunnar, sagði
að verkfallið hefði áhrif á sölu á veið-
arfærum. Verkfallið hefði haft þau
áhrif að dregið hefði úr sölu á hrá-
efni til netaverkstæða víða um land
og afhending á flottrollum, t.d. til
skipa sem sæktu í úthafskarfann,
frestaðist.
Lítil viðskipti eru með skipaolíu í
verkfallinu. Flotinn notar um 300
milljónir lítra af olíu á ári og má
gera ráð fyrir að hann sé að borga
u.þ.b. 9 milljarða á ári fyrir olíuna
miðað við núverandi verð hennar.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, sagði erfitt að
segja um hvort verkfallið yrði til
þess að flotinn notaði minna af olíu í
ár en hann hefði annars gert. Hann
sagði ljóst að þó að útgerðin myndi
væntanlega reyna að sækja þær
veiðiheimildir sem eftir væri að
veiða þegar verkfallið leystist væri
ljóst að ekki myndi allur afli nást.
Verkfallið gæti t.d. haft þau áhrif að
sóknin yrði dýrari.
Úthafsveiðiflotinn þyrfti t.d.
hugsanlega að hafa meira fyrir því
að veiða karfann á Reykjaneshrygg
ef ekki væri hægt að sækja hann á
besta tímanum. Netavertíðin væri
einnig búin og þess vegna gæti orðið
dýrara að sækja afla sem annars
hefði verið veiddur með ódýrari
hætti.
Enginn árangur varð á tæplega 5
klst. löngum sáttafundi í sjómanna-
deilunni í gær og hefur nýr fundur
hefur ekki verið boðaður.
SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKIN hafa sagt upp u.þ.b. 660 fiskverkamönn-
um vegna verkfalls sjómanna, sem nú hefur staðið í fimm vikur. Gunnar Sig-
urðsson, skrifstofustjóri hjá Vinnumálastofnun, segir að nokkur fyrirtæki á
Suðurnesjum, Vestfjörðum og Norðurlandi eystra hafi verið að segja upp
fiskverkafólki síðustu daga. Hann segir að upplýsingar séu að berast til stofn-
unarinnar þessa dagana og talan kunni því að hækka.
660 eru á atvinnuleysis-
bótum vegna verkfalls
Verkfall sjómanna hefur víðtæk áhrif á fólk og fyrirtæki
Alls starfa um 6.000 manns í fisk-
vinnslunni. Starfsgreinasambandið
mæltist til þess að fyrirtæki segðu
fiskverkafólki ekki upp störfum í
verkfalli sjómanna en nýttu sér
ákvæði laga sem veitir fyrirtækjun-
um heimild til að fá greiddar at-
vinnuleysisbætur gegn því að segja
fólki ekki upp. Starfsfólk á kaup-
tryggingu fær því dagvinnulaun sem
eru almennt 20-30 þúsund krónum
hærri en atvinnuleysisbætur.
Áður en verkfallið hófst áætluðu
starfsmenn Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs að mánaðarlangt verkfall
myndi kosta sjóðinn 450 milljónir.
Verkfallið hefur víðtæk áhrif á
fyrirtæki sem selja útgerðarfyrir-
SUMIR fuglaáhugamenn eru ekki
háir í loftinu, eins og þessi mynd
sýnir, en hún var tekin við
Ástjörn við Hafnarfjörð á sunnu-
dag. Þá var hinn árlegi flórgoða-
dagur haldinn í 9. sinn. Dreng-
urinn með kíkinn er Ragnar Jón
Ragnarsson, 8 ára, en bróðir
hans, Styrmir, 5 ára, brosir til
ljósmyndarans, enda er flórgoð-
inn víst uppáhaldsfugl hans.
Einnig sést í Ásgerði Guðjóns-
dóttur 8 ára, en af Bergdísi Jónu
Viðarsdóttur 7 ára sést ekki
nema hetta regnúlpunnar. Þau
eru öll úr Reykjavík og hafa aldr-
ei séð flórgoða, nema þá á ljós-
mynd. Þau sögðust ekki vita mik-
ið um fuglinn annað en að hann
væri með rauð augu. Þau voru
ánægð með daginn, en sögðu að
veðrið hefði mátt vera betra til
fuglaskoðunar.
Brosað í
rigningunni
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Óttast fækkun flórgoða/20
MIKILL verðmunur reyndist á
verði íslenskra sveppa og agúrkna
þegar verðkönnun var gerð í 11
matvöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu í gær.
Á hinn bóginn hefur verð á tóm-
ötum hækkað töluvert frá því
síðasta könnun var gerð 9. apríl
síðastliðinn og dregið hefur úr
verðmun á grænni papriku síðan
þá.
Verð á tóm-
ötum hefur
hækkað
Allt að 347%/30
FJÖGUR verðmæt listaverk í
eigu Listasafns Íslands eftir fjóra
af helstu listamönnum þjóðarinn-
ar eru glötuð, en verkin voru í
gámi sem fór í sjóinn af skipi á
siglingu frá Ameríku til Íslands í
fyrrinótt. Verkin eru eftir Jó-
hannes S. Kjarval, Þorvald Skúla-
son, Ásgrím Jónsson og Jóhannes
Jóhannesson.
Ólafur Kvaran safnstjóri Lista-
safns Íslands staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, en utanríkisráðuneytið
færði honum þessar fregnir í gær.
Verkin höfðu verið lánuð í
ræðismannsbústað Svavars
Gestssonar í Winnipeg í Kanada,
en að sögn Ólafs lánar Listasafnið
verk í sendiherrabústaði Íslands.
Ólafur sagði að það væri venja
og eðlilegur framgangsmáti að
listaverkin væru send aftur til Ís-
lands þegar starfstíma sendiherra
lýkur. Í gáminum voru einnig eig-
ur Svavars, sem tekur við sendi-
herrastarfi í Stokkhólmi í sumar.
Tjónið hleypur á milljónum
„Þetta er gífurlegur missir fyrir
Listasafnið. Þessi verk hafa oft
verið sýnd í safninu. Þau eru mik-
ilvæg verk í listferli þessara lista-
manna,“ sagði Ólafur.
Aðspurður sagði hann að fjár-
hagslegt verðmæti verkanna
hlypi á milljónum króna en enn
sem komið væri hefði ekki gefist
tóm til að fara nákvæmlega yfir
það.
Að sögn Ólafs er verkin ekki
meðal allra þekktustu málverka
listamannanna en þó væri um að
ræða mjög mikilvægar myndir á
ferli þeirra og mikilvægar myndir
fyrir Listasafnið. „Þetta eru verk
sem eru dæmigerð fyrir þessa
listamenn,“ sagði hann.
Fjögur verk þjóðkunnra listamanna
glötuð í gámi sem fór í sjóinn
„Gífurlegur
missir fyrir
Listasafnið“
SAMKEPPNISSTOFNUN hefst
þegar handa um rannsókn á ein-
stökum smásölufyrirtækjum á mat-
vörumarkaði í kjölfar skýrslu sem
stofnunin vann fyrir viðskiptaráð-
herra um verðlagsþróun í smásölu
árin 1996 til 2000.
Guðmundur Sigurðsson, forstöðu-
maður samkeppnissviðs stofnunar-
innar, segir verkið að hefjast. Ekki
er unnt að segja hversu langan tíma
verkið tekur þar sem óljóst er
hversu viðamikið það verður að sögn
Guðmundar. Hann segir fjölmargar
athugasemdir hafa borist vegna
álagningar í smásölu og því sé ekki
vitað nú þegar verkið er að hefjast
hversu umfangsmikið það verður.
Rannsókn Samkeppn-
isstofnunar að hefjast
Fjölda-
slagsmál í
Kringlunni
ÖRYGGISVÖRÐUR Í Kringlunni
tilkynnti um fjöldaslagsmál í göngu-
götunni í Kringlunni á móts við veit-
ingastaðinn Hard Rock til lögregl-
unnar í Reykjavík um klukkan
hálfþrjú í gær.
Slagsmálunum linnti áður en lög-
regla kom á staðinn en öryggisverðir
höfðu tekið einn mann höndum. Þrír
menn um tvítugt voru fluttir á lög-
reglustöðina en þeim var sleppt eftir
yfirheyrslu.