Morgunblaðið - 08.05.2001, Blaðsíða 57
ÞAÐ verður margt að gerast í vik-
unni og um næstu helgi hjá hesta-
mönnum því í Hafnarfirði verður
haldið mót sem kallast Íshestamót
og verður haldið miðvikudags-,
fimmtudags- og föstudagskvöld.
Keppt verður í A- og B-flokki
gæðinga, 100 og 150 metra fljúg-
andi skeiði. Boðið er upp á bæði
áhugamannaflokka og opna flokka.
Mótið er haldið á glæsilegu móts-
svæði Sörla, sem var endurnýjað á
myndarlegan hátt á síðasta ári.
Fáksmenn halda opna Reykja-
víkurmeistaramótið þar sem keppt
verður í öllum greinum hesta-
íþrótta og Andvari í Garðabæ
verður með sitt íþróttamót á And-
varavöllum. á verða Funi og Léttir
í eyjafirði og Akureyri með opið
íþróttamót á Hlíðarholtsvelli um
helgina.
Nú er genginn í garð einn anna-
samasti mánuður ársins hjá hesta-
mönnum og gildir þar líklega einu
hvort um er að ræða keppnisfólk
eða þá sem stunda útreiðar sér til
afþreyingar og skemmtunar. Mik-
ill fjöldi móta verður haldinn nú á
næstu vikum og hestamenn al-
mennt eyða hvað mestum tíma í
áhugamál sitt á þessum árstíma.
Mótahrina að
fara af staðHestamannafélagið
Glaður hélt sitt árlega
íþróttamót í Búðardal 1.
maí sl. Stigahæsti knapi
mótsins var Skjöldur
Orri Skjaldarson með
samtals 204,12 stig. Ís-
lenska tvíkeppni vann
Þórður Heiðarsson á
Svarti frá Hofi með 58,31
stig og skeiðtvíkeppni
vann Skjöldur Orri
Skjaldarson á Mömmu
Blesa frá Reykjarhóli
með 46,37 stig. Þetta
mót var það síðasta í röð
þriggja móta með sam-
eiginlegri stigakeppni í
tölti og skeiði. Efst á
mótunum þremur í tölti
var Auður Guðbjörns-
dóttir og hlaut hún í
vinning gjafabréf frá
MR-búðinni að verð-
mæti 10.000 krónur,
efstur í skeiði varð Finn-
ur Kristjánsson sem hlaut 10.000
króna gjafabréf frá Flugu reiðtygj-
um fyrir. Hæstur að samanlögðum
stigum í tölti og skeiði varð Ólafur
Jón á Vatnsleysu ásamt nafna sínum og dótt-
ursyni í sýningunni Afi minn og ég.
TVÆR missagnir urðu í umfjöll-
un um annars vegar skeifukeppn-
ina á Hólum og svo hins vegar um
skeifukeppnina á Hvanneyri, sem
haldin var snemma í apríl.
Þar var farið rangt með nafn
stúlkunnar sem hlaut ásetuverð-
laun Félags tamningamanna.
Verðlaunin hlaut Margrét Frið-
riksdóttir sem tamdi Gul frá
Hrafnkelsstöðum, efnisfola undan
Blakki frá Snjallsteinshöfða og
Bládísi frá Hrafnkelsstöðum.
Um keppnina á Hólum sagði að
stúlka sú er hlaut Eiðfaxabikar-
inn, Bertha Elise Kristiansen,
væri dönsk en hún mun vera
norsk og leiðréttist þetta hér með.
Leiðrétting á skeifunum
HESTAR
UMBOÐSMENN
UM LAND ALLT
ÁG
YRGÐ
3
ÁR
EXPRESSO KAFFIVÉL
Ítalskt kaffi eins og það
gerist best !
TILBOÐ!
5.990
Suðurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Sími 5880500
ÚRSLIT
Guðjónsson en í vinning fékk hann
folatoll undir Skorra frá Gunnars-
holti sem gefinn var af Hrossarækt-
arsambandi Dalamanna
Morgunblaðið/Valdimar
Úrslit mótsins urðu að öðru leyti sem hér segir:
Fjórgangur: Unglingar
1. Gróa Björg Baldvinsdóttir á Yrpu, 7 v. jarpri frá Spágilsstöðum, eink. 6,35
2. Ólafur Andri Guðmundsson á Óðni, 9 v. móvindóttum frá Skógskoti, eink. 5,55
3. Auður Inga Ingimarsdóttir á Mána, 9 v. brúnum frá Álfheimum, eink. 5,15
4. Sigvaldi Lárus Guðmundsson á Þraut, 11 brúnstjörnóttri frá Þverholtum, eink. 4,95
5. Sjöfn Sæmundsdóttir á Skjóna, 6 v. jörpum frá Selkoti, eink. 4,07
Ungmennaflokkur:
1. Auður Guðbjörnsdóttir á Kolskör, 7 v. brúnni frá Magnússkógum, eink. 5,33
Opinn flokkur:
1. Margrét Guðbjartsdóttir á Hörpu, 8 v. jarpri frá Miklagarði, eink. 6,09
2. Þórður Heiðarsson á Svarti, 14 v. brúnum frá Hofi, eink. 6,0
3. Skjöldur Orri Skjaldarson á Áli, 6 v. bleikálóttum frá Búðardal, eink. 5,97
4. Guðmundur Baldvinsson á Mósa, 7 v. mósóttum frá Bakkakoti, eink. 5,95
5. Finnur Kristjánsson á Álfi 6 v. jörpum frá Engihlíð, eink. 5,2
Fimmgangur: Opinn flokkur:
1. Skjöldur Orri Skjaldarson á Mömmu Blesa, 14 v. rauðblesóttum frá Reykjarhóli, eink. 5,57
2. Guðmundur Baldvinsson á Regínu, 6 v. brúnni frá Haga., eink. 4,82
3. Sigurður Hrafn Jökulsson á Teklu, 8 v. brúnni frá Vatni, eink. 4,69
4. Eyþór Jón Gíslason á Grein, 7 v. rauðnösóttri frá Bóli, eink. 4,40
5. Finnur Kristjánsson á Mist, 6 v. brúnni frá Akureyri, eink. 3,67
Tölt:
Barnaflokkur:
1. Jónfríður Esther Hólm á Lipurtá, 8 v. brúnni frá Ásum, eink. 3,27
Unglingaflokkur:
1. Gróa Björg Baldvinsdóttir á Yrpu, 7 v. jarpri frá Spágilsstöðum, eink. 5,75
2. Auður Inga Ingimarsdóttir á Mána, 9 v. brúnum frá Álfheimum, eink. 5,5
3. Ólafur Andri Guðmundsson á Óðni, 9 v. móvindóttum frá Skógskoti, 5,49
4. Sigvaldi Lárus Guðmundsson á Þraut, 11 v. brúnstjörnóttri frá Þverholtum, eink. 4,95
5. Sjöfn Sæmundsdóttir á Dimmu, 9 v. brúnni frá Lindarholti, eink. 4,7
Ungmennaflokkur:
1. Auður Guðbjörnsdóttir á Kolskör, 7 v. brúnni frá Magnússkógum, eink. 4,53
Opinn flokkur:
1. Þórður Heiðarsson á Svarti, 14 v. brúnum frá Hofi, eink. 6,33
2. Skjöldur Orri Skjaldarson á Áli, 6 v. bleikálóttum frá Búðardal, eink. 5,78
3. Margrét Guðbjartsdóttir á Hörpu, 8 v. jarpri frá Miklagarði, eink. 5,68
4. Finnur Kristjánsson á Álfi, 6 v. jörpum frá Engihlíð, eink. 5,02
5. Eyþór Jón Gíslason á Grein, 7 v. rauðnösóttri frá Bóli, eink. 4,5
Gæðingaskeið:
1. Finnur Kristjánsson á Mist, 6 v. brúnni frá Akureyri með 62,8 punkta
2. Skjöldur Orri Skjaldarson á Mömmu Blesa, 14 v. rauðblesóttum frá Reykjarhóli með 58,5
punkta
3. Sigurður Hrafn Jökulsson á Mónu, 7 v. mósóttri frá Vatni með 46,3 punkta
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 57