Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Nýttu
tímann vel!
Nýsköpun 2001 er nú á fullri ferð og enn er nægur tími fyrir þau sem láta
ekkert stoppa sig!
Þú hefur tíma til 31. maí til að skila okkur viðskiptaáætlun eða
hugmyndalýsingu (Evrópukeppnin).
Það eru ekki bara peningaverðlaun í boði, heldur fá allir, sem senda
fullnægjandi viðskiptaáætlun, vandaða umsögn sérfræðinga. Einnig verða valdir
fulltrúar Íslands í sérstaka Evrópukeppni um viðskiptahugmyndir.
Skráðu þig núna, það er án skuldbindinga!
Skilafrestur er til 31. maí nk.
Nánari upplýsingar fást í síma 510 1800
og á www.spar.is/n2001.
Fyrirspurnir með tölvupósti sendist á nyskopun@spar.is
EINUNGIS 4 flórgoðar sáust á hin-
um árlega flórgoðadegi Fuglavernd-
arfélagsins og umhverfisnefndar
Hafnarfjarðar sem haldinn var við
Ástjörn á sunnudaginn var, 6. maí.
Þrátt fyrir slagveðursrigningu
gerðu 30–40 manns á öllum aldri leið
sína þangað í von um að berja augum
þennan einn sjaldgæfasta fugl á Ís-
landi sem dagurinn er kenndur við.
Reyndir fuglaskoðarar voru á staðn-
um og upplýstu gesti um leyndar-
dóma flórgoðans. Elstu heimildir um
flórgoðabyggðina við Ástjörn eru frá
1954, en fyrir þann tíma er ekki vitað
til að fuglaskoðarar hafi sótt þangað.
Hafa 3–5 flórgoðapör haldið sig við
tjörnina alla tíð síðan.
Hefur verið í gjörgæslu
Íslenski flórgoðinn hefur undan-
farið verið í gjörgæslu vegna mik-
illar fækkunar síðustu áratugi. Er
hann komin á válista Náttúrufræði-
stofnunar Íslands yfir tegundir í yf-
irvofandi hættu; stofninn er lítill,
innan við 1.000 fuglar, og hefur dag-
ur flórgoðans verið haldinn við
Ástjörn síðan 1993, til að minna á
þessa viðkvæmu stöðu hans í ís-
lenskri náttúru. Framræsla votlend-
is, landnám minks og aðrar breyt-
ingar á lífsskilyrðum þessa skraut-
lega og sérkennilega fugls eru taldar
vera orsakirnar fyrir fækkuninni.
Átak er nú í gangi sem stefnir að því
að snúa þessari þróun við.
Flórgoðinn hefur norðlægustu út-
breiðslu allra goða. Á Íslandi er
dreifing hans slitrótt, misjafnt þó
eftir landshlutum. Sáralítið er af
honum við Breiðafjörð, á Vestfjörð-
um og á Austfjörðum, en hins vegar
um helmingur íslenska stofnsins á
Mývatni og í nágrenni þess. Ástjörn
og Urriðakotsvatn eru einu varp-
staðir flórgoðans á Suðvesturlandi, á
öllu svæðinu milli Laugardals í Ár-
nessýslu og Skorradals í Borgarfirði.
Ástjörn er friðlýst og er friðlandsins
inn haldinn við Ástjörn, vegna þess
að ekkert má í raun út af bregða til
að illa fari; þetta eru svo viðkvæmir
fuglar. Við náðum aldrei að sjá fyrir
víst nema 4 flórgoða, sem er of lítið.
Ég á von á því að ég reyni að fá leyfi
til að fara eftir að varptími er byrj-
aður og telja hreiðrin, til að fá úr því
skorið hvort um fækkun er þarna að
ræða eða ekki. Það er umhverfis-
nefnd sem myndi gefa slíka undan-
þágu, og ég geri ráð fyrir að menn
vilji fá úr þessu skorið.“
Vegna fuglalífsins, og þá ekki síst
flórgoðavarpsins, er óheimilt að fara
um Ástjörn og nánasta umhverfi frá
1. maí til 15. júlí.
„Það hefur verið haft sem megin-
regla, að banna umferð um svæðið á
varptíma, en nú er verið að skoða
hvort unnt sé að hafa göngustíginn
opinn allan ársins hring. Það er
þekkt erlendis, heyrir maður, að
reglubundin umferð trufli ekki fugla,
heldur læri þeir inn á hana.
Við vorum óheppin með veðrið
núna, eins og í fyrra; þetta var mikið
slagveður. En ég er sannfærður um
að tjörnin muni laða að sér mikinn
fjölda gesta, þegar að því kemur að
spáð verður sól og blíðviðri á flór-
goðadaginn, hvenær sem það nú
annars verður,“ sagði Ólafur að lok-
um, býsna ánægður þó með þátttök-
una núna, miðað við þær aðstæður
sem ríktu.
Hópur fólks á flórgoðadeginum sem haldinn var í níunda sinn við Ástjörn um helgina
Óttast fækk-
un flórgoða
á tjörninni
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Þeir 30–40 sem mættu að Ástjörn til að heiðra flórgoðann með nærveru sinni létu kalsarigningu ekki á sig fá
heldur bitu á jaxlinn og skyggndust um í þeirri von að honum brygði fyrir, þótt ekki væri nema eitt augnablik.
Hafnarfjörður
gætt af starfsmanni Hafnarfjarðar-
bæjar. Umhverfi tjarnarinnar var
gert að fólkvangi fyrir fimm árum.
Þarf nauðsynlega
að telja hreiðrin
„Það var eiginlega Fuglaverndar-
félag Íslands sem byrjaði með þenn-
an dag á sínum tíma, og ástæðan var
sú að í kjölfar gríðarlegs samdráttar
og nánast hruns í flórgoðastofninum
á Mývatni fóru menn að hafa áhyggj-
ur af fuglunum hérna,“ sagði Ólafur
Torfason, einn hinna reyndu fugla-
skoðara sem voru fólki til leiðbein-
ingar á flórgoðadaginn. „Flórgoðinn
rétti svo að vísu úr kútnum fyrir
norðan, en ennþá er flórgoðadagur-
Morgunblaðið/Ómar
Hér gefur að líta einn flór-
goðanna á Ástjörn á sunnu-
daginn var og er engu líkara en
að hann sé í hafróti.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
ganga til samninga um kaup á íbúð-
um við Miklubraut 18-20. Til stóð að
rífa húsið vegna flutnings Hring-
brautar og breytingu vesturenda
Miklubrautar í því sambandi en
ekki er lengur talin þörf á að húsið
víki. Borgin mun samt sem áður
kaupa umræddar íbúðir óski eig-
endur þeirra eftir því.
Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri
hjá borgarverkfræðingi, segir for-
sögu málsins þá að lengi hafi verið
gert ráð fyrir í aðalskipulagi að
Miklabraut 16, sem er vestasta fjöl-
býlishúsið við götuna, verði rifið.
Borgin sé þegar búin að kaupa þar
fimm íbúðir og í gangi séu viðræður
um kaup á sjöttu og síðustu íbúð-
inni. „Í haust voru uppi hugmyndir
um annars konar útfærslu á þessu
sem hefði kallað á að Miklabraut 18-
20 færi líka. Og af því tilefni var
boðað til fundar með íbúunum og
þeim kynntar þær hugmyndir,“ seg-
ir hann.
Hann segir að síðar hafi menn
breytt útfærslunni þannig að ekki
er lengur þörf á að fjarlægja húsið
númer 18-20. „En þar sem búið var
að ræða þessi mál við eigendurna
var tekin sú ákvörðun að ef að þetta
fólk vildi selja, án þess að borgin
leitaði sérstaklega eftir samningum,
þá myndum við ganga í það að
kaupa,“ segir hann. Í framhaldinu
hefur borgarráð samþykkt kaup á
þremur íbúðum af sex í húsinu og
segir Ágúst einn eiganda til viðbót-
ar vera að hugsa málið.
Þeir eigendur sem enn hafa ekki
tekið ákvörðun um að selja hafa ár
til að hugsa málið. En hvað hyggst
borgin fyrir með þessar íbúðir ef
ekki á að rífa húsið? „Ég geri ráð
fyrir að Félagsþjónustan fái þetta
og ef til vill verður eitthverjum af
íbúum í húsinu númer 16 gefinn
kostur á að flytja þarna á milli,“
segir hann.
Ekki lengur þörf
á að húsið víki
Morgunblaðið/Jim Smart
Miklabraut
Borgin semur um kaup á
íbúðum sem stóð til að rífa