Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 27
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 27
UMBOÐSMENN
UM LAND ALLT
ÁG
YRGÐ
3
ÁR
DJÚPSTEIKINGARPOTTUR
Skemmtileg tilbreyting
í matseld !
TILBOÐ!
Suðurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Sími 5880500
5.490
RÁÐGJAFARFYRIRTÆKIÐ Skref
fyrir skref hélt ráðstefnu í gær á Hót-
el Sögu undir yfirskriftinni „Vald og
veruleiki – konur á vinnumarkaði
nýja hagkerfisins, hvað þarf til að
komast í áhrifastöður og halda þeim.“
Hansína B. Einarsdóttir forstjóri
Skref fyrir skref lagði áherslu á það
að konur mynduðu tengslanet á per-
sónulegum grunni eða viðskiptaleg-
um. Það væri áberandi að konur
legðu ekki eins mikla áherslu á að
mynda tengsl á ráðstefnum og fyr-
irlestrum og karlmenn. Þær væru
tregari að trana sér fram og mynda
ný tengsl. Þær færu frekar í símann
og hringdu í vinnuna til að athuga
hvort ekki væri allt í lagi eða hringdu
heim til að ganga úr skugga um hvort
börnin væru komin heim úr skólan-
um. Þessu þyrftu konur að breyta því
gott tengslanet væri ómetanlegt þeg-
ar kæmi að því að koma sér áfram í
atvinnulífinu.
Fatnaður skiptir máli
Gyða L. Jónsdóttir verkefnisstjóri
hjá Útflutningsráði sagði frá reynslu
sinni í fyrirtækjarekstri í Bretlandi
þar sem hún byggði upp fyrirtækið
Tessera Designs. Fyrirtækið starfaði
sem hönnunarfyrirtæki og fram-
leiðslufyrirtæki í flísagerð á bygg-
ingamarkaði sem er hefðbundið
karlaveldi. Gyða sagði frá því að það
hefði verið erfitt að vera kona í þessu
umhverfi þar sem karlmenn væru í
meirihluta. Til dæmis hefði hún þurft
að klæða sig á hlutlausan og litlausan
hátt þegar hún fór á fundi til að vekja
ekki á sér of mikla athygli. Annars
ætti hún það á hættu að verða ekki
tekin alvarlega. Gyða sagði jafnframt
að eftir að hún kom til Íslands hafi sér
virst sem það væri auðveldara að vera
kona í atvinnurekstri hérlendis en í
Bretlandi.
Heiðrún Jónsdóttir forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarsviðs Sím-
ans sagði að konur yrðu að lifa sáttar
með veikleikum sínum því þær hefðu
aðra góða kosti eins og næmi sem
væri mjög mikilvægt þegar kæmi að
stjórnun. Einnig beindi hún sjónum
sínum að þeirri tilhneigingu til að
taka sjálfa sig of hátíðlega og alvar-
lega og sagði það vera gott ráð að
taka verkefni sín alvarlega en ekki
sjálfa sig. Konur þyrftu einnig að
leggja sig betur fram við að hugsa á
gagnrýninn hátt og taka ekki gagn-
rýni sem persónulegri árás. Nota ætti
gagnrýni á uppbyggjandi hátt og sem
tækifæri til að gera betur næst. Kon-
ur hefðu tilhneigingu til að taka gagn-
rýni of persónulega, sem væri slæmt.
Að lokum lýsti Heiðrún þeirri skoðun
sinni að kynferði skipti ekki máli
heldur væri það fyrst og fremst per-
sónan og persónuleikinn sem máli
skipti.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður byrjaði erindið á því að
velta upp þeirri spurningu hvernig
uppeldið mótar stjórnandann. Hún
sagði að foreldrar og sögulegar per-
sónur eins og til dæmis kvenskörung-
ar væru mikilvægar fyrirmyndir.
Miklar breytingar hefðu verið á þeim
fimmtán árum sem hún hefði verið
stjórnandi og hún teldi að konur væru
oft færari í mannlegum samskiptum
en karlmenn. Konur væru oft að fást
við „hið gullna jafnvægi“ það er að
samræma móðurhlutverkið, einstak-
linginn og stjórnandann.
Margrét sagðist telja að stjórnend-
ur menningarstofnana nú þyrftu að
vera öðruvísi en áður var. Nútíminn
krefðist öðruvísi stjórnenda til að
uppfylla kröfur 21. aldarinnar og
þyrftu stjórnendur að huga að árang-
ursstjórnun, markaðsmálum, hnatt-
væðingu, mannlegum samskiptum,
breytingum og fjölbreytileika starfs-
fólks. Þetta gerði meiri kröfur til
stjórnandans en áður.
Vaktakerfi ekki fjölskylduvænt
Sigþrúður Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri hjá Landsvirkjun tal-
aði í byrjun um „ofurkonu-heilkenn-
ið“ og sagði það vera styrkleika
kvenna að vera oft með mörg járn í
eldinum. Konur tækju sem dæmi oft
að sér ýmiss konar ólaunuð sjálfboða-
og félagsstörf. Sigþrúður tók dæmi af
Landsvirkjun sem er hefðbundið
karla- og tæknifyrirtæki vegna þeirr-
ar einföldu staðreyndar að fáar konur
hefðu menntun til dæmis á sviði vél-
og rafmagnsfræði. Það væri nauðsyn-
legt að reyna að auka áhuga kvenna á
þessu sviði og Landsvirkjun hefði til
dæmis boðið fimm konum í rafmagns-
verkfræði störf hjá félaginu. Sigþrúð-
ur sagði Landsvirkun vera áhuga-
sama um að auka hlut kvenna í
fyrirtækinu en svo dæmi sé tekið þá
sé vaktakerfi fyrirtækisins ekki fjöl-
skylduvænt þar sem starfsmenn í
mörgum virkjunum vinna í átta daga
og eiga síðan frí í sjö. Þetta kerfi eigi
rætur að rekja 25 ár aftur í tímann
þegar erfitt var að komast á milli
staða.
Hvernig komast
konur í áhrifastöður?
Morgunblaðið/Ásdís
Gestir á málþingi um konur og atvinnulíf á Hótel Sögu.
TAP Búnaðarbanka Íslands nam 230
milljónum króna fyrstu þrjá mánuði
ársins samkvæmt óendurskoðuðu
bráðabirgðauppgjöri. Rekstraráætl-
un bankans gerir ráð fyrir að afkoma
bankans á árinu öllu verði jákvæð
um 1.200 milljónir króna fyrir skatta
eða um 900 milljónir eftir skatta og
að allur sá hagnaður myndist á 2.–4.
ársfjórðungi. Á fyrsta ársfjórðungi
var gert ráð fyrir neikvæðri rekstr-
arafkomu upp á 160 milljónir króna
fyrir skatta og 110 milljónir króna
eftir skatta vegna væntinga um
lækkun hlutabréfaverðs á fyrsta árs-
fjórðungi. Rekstrarniðurstaða fyrsta
ársfjórðungs var því heldur lakari en
gert var ráð fyrir og skýrist frávik
frá áætlun alfarið af lækkun hluta-
bréfaverðs umfram væntingar.
Heildartap af hlutabréfaeign bank-
ans hvort heldur í fjárfestingarbók
eða veltubók var 630 milljónir króna
og var það allt fært til gjalda á fyrsta
ársfjórðungi. Aðrir þættir í rekstri
bankans voru hins vegar betri en
gert var ráð fyrir eða í samræmi við
rekstraráætlun. Bankinn telur því
ekki ástæðu til að endurskoða
rekstraráætlun bankans að svo
stöddu. Í fréttatilkynningu kemur
fram að rekstrarkoma bankans er
háð þróun á fjármálamörkuðum
hverju sinni og því geta verið tals-
verðar sveiflur í afkomu bankans
milli einstakra tímabila, sérstaklega
þegar skoðuð eru stutt tímabil. Að-
stæður á innlendum sem erlendum
hlutabréfamörkuðum hafa verið erf-
iðar það sem af er árs og endurspegl-
ast lækkun hlutabréfaverðs á tíma-
bilinu í rekstrarafkomu bankans.
Hinn hefðbundni bankarekstur gekk
hins vegar betur en ráð var fyrir
gert. Heildarfjármagn Búnaðar-
bankans var 156 milljarðar kr. í lok
1. ársfjórðungs en var 145 milljarðar
í upphafi árs.
Búnaðarbanki Íslands
Tap af hluta-
bréfaeign
630 milljónir