Morgunblaðið - 08.05.2001, Síða 30

Morgunblaðið - 08.05.2001, Síða 30
NEYTENDUR 30 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSKAR agúrkur voru seldar á mismunandi verði í gær þegar Morg- unblaðið gerði verðkönnun á ávöxt- um og grænmeti í ellefu matvöru- verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Ódýrastar voru agúrkurnar á 89 krónur kílóið í Bónusi en á 398 krón- ur í Nýkaupum þar sem þær voru dýrastar. Verð á agúrkum var því 347% hærra í Nýkaupum en í Bónusi en báðar þessar verslanir eru í eigu Baugs. Þann 9. apríl sl., þegar verðkönn- un var gerð á sömu tegundum ávaxta og grænmetis í þessum 11 verslun- um, kostaði kíló af agúrkum 285 krónur í Bónusi í stað 89 króna í gær en var á 398 krónur í Nýkaupum eða á sama verði og í gær. Þá munaði í gær allt að 154% á verði sveppa í lausu milli verslana en sveppir voru í gær seldir á 295 krón- ur kílóið í Bónusi þar sem þeir voru ódýrastir og á 749 krónur kílóið þar sem sveppirnir voru dýrastir. Í síð- ustu könnun kostaði kílóið af svepp- um 595 krónur í Bónusi en var á sama verði og í Nýkaupum í gær eða 749 krónur. Sveppaverð reyndist nokkuð hátt í síðasta mánuði ef miðað var við aðrar grænmetistegundir en það var frá 595-749 krónur kílóið. Nú er kíló- verðið ódýrast selt á 295 krónur. Verð á tómötum hefur hækkað Verð á grænni papriku hefur hækkað hjá flestum verslunum frá síðustu könnun en þá var kílóverðið í þremur verslunum á innan við þrjú hundruð krónur, ódýrast í Bónusi á 275 krónur. Kíló af grænni papriku var enn ódýrast í Bónusi í gær en kostaði nú rúmlega þrjú hundruð krónum meira eða 579 krónur kílóið. Þegar kílóverðið var 275 krónur í apríl var verðmunur meiri milli verslana þar sem kílóið af grænni papriku var dýrast selt á 785 krónur. Nú var kílóverðið dýrast á 798 krón- ur þannig að munur á hæsta og lægsta verði var 219 krónur nú í stað 510 króna 9. apríl síðastliðinn. Grænu paprikurnar í könnuninni núna voru í flestum tilfellum íslensk- ar. Í síðasta mánuði var um innflutt- ar paprikur að ræða. Verð á tómötum hefur hækkað töluvert frá því könnunin var gerð 9. apríl síðastliðinn. Þá var kíló af tóm- ötum ódýrast selt á 285 krónur kílóið í Bónusi en dýrast selt á 397 krónur. Í gær fengust íslenskir tómatar í langflestum verslunum sem voru seldir ódýrast á 389 krónur sem er svipað verð og á tómötum þar sem þeir voru dýrastir í apríl. Dýrast kostaði kílóið í gær 698 krónur. Í síð- ustu könnun var um innflutta tómata að ræða. Ósamræmi á hillu- og kassaverði Þegar könnunin var framkvæmd 9. apríl sl. kom í ljós að í flestum verslunum stemmdi hillu- og kassa- verð. Aðeins í þremur tilvikum var um ósamræmi að ræða. Í þetta skipti var annað uppi á teningnum. Í gær var ósamræmi milli hillu- og kassa- verðs í ellefu tilvikum og óverðmerkt í fjögur skipti. Yfirleitt var hilluverð hærra en kassaverð nema blaðlaukur var sagð- ur á 295 krónur kílóið á hillu í Sam- kaupum en var á 379 krónur kílóið þegar að kassa var komið. Þá voru agúrkur sagðar á 159 krónur kílóið í Nýkaupum en reyndust á 398 krónur kílóið þegar að kassa var komið. Verðkönnunin var framkvæmd í gær, mánudaginn 7. maí, en farið var í allar verslanir á sama tíma, þ.e. klukkan 13. Ekkert tillit var tekið til gæða né þjónustu heldur einungis spurt um verð.                        !    "#$%""   ""$%""         &   $ ' ' ( ) $ ' ' * & $   $ ' ' * $   $ ' ' +  $ ' ' (  $ ' '  $ ' '  $,- ../$ ' ' 01  $,2.- /$ ' '   $ ' ' 1 $3$ '$'$%$  1 $3$ '$'$%$     $ ' ' ) $ ' '$                       "4# "45 678 497 ::5 76 977 95# :#8 :9 357 "87 95# 34: "4# "45 678 497 ::5 76 977 95# :#8 :9 357 "87 95# 34: "67 ":" 647 $ :37 87 376 $ 996 98 ":7 $ 387 $ 336 "78 478 478 687  4:7 :47 :87 67   '   ' 978 997 339 "7"  486 678 "67 $ ::7 ::7 64 347 $ 947 95# 336 "78 577 577 578 "77 $ :47 ::7 67 387 387 $ 947 "67 ":" 647 $ :37 87 376 $ 996 98 ":7 $ 387 $ "76 "47 578 $  ":8 586 957 978 66 336 336 997 378 339 "7"  486 678 "67 $ ::7 ::7 64 347 $ 947 95# 336 "78 577 577 578 "77 $ :47 ::7 67 387 387 $ 947 ;1                    )  $ =  $    $  "37 374 9:7 966 :"  $  356    $  "37 374 9:7 966 :"  $  353 3"7 "86 587 448 678  577 948 :37   ' 357 357377 947 374 3"7 "86 587 448 678  577 948 :37 64 357  357377 947 374 "76 "47 578 $  ":8 586 957 978 66 336 336 997 378 336 "78 478 478 578 "67 :78 :47 ::7 67 377 377 978 997 336 "78 478 478 578 "67 :78 :47 ::7 67 377 377 978 997 3"7 "86 587 577 987 987 577 987 :93 66 "77 $  357 3"7 "86 587 577 987 987 577 987 :93 66 "77 $   357 "87 "86 586 467   ' 87 587 948 977 65 3:7 3:7 957 375 "87 "86 586 467 557 87 587 948 977 65 3:7 3:7 957 375 336 "78 478 478 687  4:7 :47 :87 67 9"7 9"7 978 997 Allt að 347% verðmunur á íslenskum agúrkum Mikill verðmunur á sveppum en dregið hefur úr verðmun á grænni papriku Kíló af íslenskum tómötum var ódýrast selt á 389 krónur í Samkaupum í gær en það er svipað verð og dýrustu innfluttu tómatarnir kostuðu í síðustu verðkönnun sem gerð var fyrir um það bil mánuði. Dýrast var kíló af íslenskum tómötum selt á 698 krónur í gær. ÚTRUNNIR hamborgarar voru seldir í Hagkaupum í Skeifunni í gær en límt hafði verið yfir upplýsingar á umbúðum um síðasta leyfilega neysludag. Hamborgararnir voru seldir með 50 prósenta afslætti, tveir í pakka ásamt brauði. Á umbúðum stóð verðlækkun og pökkunardagur- inn 7. maí. Þegar betur var að gáð og sá miði var tekinn af umbúðunum kom í ljós að síðasti neysludagur var sunnudagurinn 6. maí. Samkvæmt reglum um merkingu auglýsingu og kynningu matvæla er óleyfilegt að selja matvörur eftir síð- asta neysludag, segir Rögnvaldur Ingólfsson sviðsstjóri matvælasviðs hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. „Slíkar vörur eru umsvifalaust tekn- ar úr umferð og jafnvel er beitt við- urlögum ef brotin eru ítrekuð.“ Gunnar Ingi Sigurðsson rekstrar- stjóri hjá Hagkaupum í Skeifunni segir að um mistök hafi verið að ræða hjá starfsmanni. Aldrei hafi verið ætlunin að selja útrunna vöru. „Allir eru hér mjög miður sín yfir þessu óhappi. Slíkt kemur nánast aldrei fyrir en hér gilda mjög strang- ar reglur um sölu matvæla sem eru að nálgast síðasta söludag, ekki síst ferskvöru.“ Útrunnir ham- borgarar voru til sölu í Hagkaupum Morgunblaðið/Jim Smart Nýr miði hafði verið límdur yfir gamla miðann, nákvæmlega þar sem upplýsingar voru um síðasta neysludag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.