Morgunblaðið - 08.05.2001, Síða 36
LISTIR
36 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er svo víst, sem dagur og
nótt skiptast á, að kór er það sem
stjórnandinn er. Vinna hans, verk-
kunnátta og listfengi er það sem
dregur að söngfólk og fær þá sem vel
eru búnir til söngs til að dvelja um
lengri tíma í því söngsamfélagi sem
einn kór getur verið. Þá er ekki síður
mikilvæg sú andlega heilsubót sem
góður félagsskapur getur verið.
Syngjandi manneskja er hamingju-
söm og söngurinn getur einnig losað
um þung sorgarbönd.
Skólakór Kársnesskóla heldur
þessa dagana upp á 25 ára starfs-
afmæli, bæði með útgáfu á hljóm-
diski er nefnist „Þýtur í stráum“ og
svo með tónleikum, sem haldnir voru
í Háskólabíói sl. laugardag. Stjórn-
andi kórsins hefur frá upphafi verið
Þórunn Björnsdóttir og er hreint
órtúlegt hversu miklu hún hefur
komið í framkvæmd. Í Kársnesskóla
eru starfandi fimm kórar, Litli kór,
Miðkór, Stóri kór, Drengjakór og
Skólakór Kársness, er allir komu
fram á þessum tónleik-
um auk þess sem fjórar
stúlkur, fyrrverandi
kórfélagar, sungu
kvartett úr óperunni
Eugene Onegin eftir
Tsjaikovskíj. Tónleik-
unum lauk með sam-
söng en þar kom fram
svonefndur Stjörnukór
eldri félaga og lauk
tónleikunum svo með
samsöng allra kóranna.
Það gefur augaleið
að mjög munar á söng
kóranna, er sýnir þó
hversu löng leið og
mikil vinna liggur í því
að ala upp söngvara,
svo sem heyra mátti bæði hjá Stóra
kór en þó sérstaklega Skólakór
Kársness. Báðir kórarnir sungu
mjög vel, Stóri kór lagasyrpu eftir
Sigfús Halldórsson og Skólakórinn,
sem frumflutti tvö lög. Annað lag-
anna, Kórsnesið, er afmæliskveðja
frá Mist Þorkelsdóttur og Ara Harð-
arsyni, en Kórsnesið mun vera til
sem gamalt nafn á Kársnesinu. Lag
Mistar er töluvert margbrotið tón-
verk og reynir á nákvæmni í tón-
stöðu, sem kórinn skilaði af tölu-
verðu öryggi. Hitt lagið, „Glettur“
eftir Stephen Hatfield,
er skemmtilegt og var
ásamt japönsku lagi
mjög skemmtilega út-
fært. Lagasyrpa með
lögum frá Bandaríkj-
unum, Skotlandi og
Englandi, sem nefnist
Stuffn’ Nonsence, var
síðasta viðfangsefni
Skólakórsins. Þá tóku
til „máls“ litlu krílin og
síðan Miðkór, en hann
söng finnska laga-
syrpu. Í stað þess að
þýða finnska textann
voru lögin textuð með
íslenskum þulum, þjóð-
vísum og seinni tíma
kvæðum, er féllu býsna vel að
finnsku lögunum, og víst er að ekki
var erfitt að hafa íslensku áherslurn-
ar réttar, því í finnsku er áherslu-
skipanin svipuð og í íslensku.
Drengjakórinn söng nokkur kós-
akkalög og endaði sinn söng auðvitað
með Hraustir menn eftir Romberg.
Stóru stúlkurnar sungu kvartett-
inn eftir Tsjaikovskíj nokkuð vel og
sama má segja um Stjörnukórinn.
Sú aðferð að setja íslenska texta við
erlend söngverk, texta sem ekki eru
hugsaðir fyrir viðkomandi lag, er að-
ferð sem getur heppnast vel. Hvar
eru fuglar, þeir á sumri sungu eftir
Steingrím Thorsteinsson var hér
sungið við rússneskt þjóðlag og held-
ur þótti undirrituðum hér skjóta
skökku við. Má vera að fyrri kynni af
kvæðinu og frábæru lagi Svein-
björns Sveinbjörnssonar hafi haft
áhrif á neikvæða afstöðu mína um
þessa skipan, þrátt fyrir ágætan
flutning Stjörnukórsins.
Vinamál eftir Oscar Peterson við
kvæði Heimis Pálssonar var einstak-
lega vel sungið og lokalagið var svo
Maístjarnan, sungin með miklum
glæsibrag. Á þessum tónleikum gat
að heyra vinnuárangur Þórunnar
Björnsdóttur, sem auk góðs árang-
urs í söngþjálfun og músíklegu upp-
eldi blómstraði í sönggleði barnanna.
Þórunn hefur gert söng að vinsælu
námsefni í sínum skóla og má vel til
samanburðar vekja athygli á því, að í
mörgum skólum landsins nýtur
söngur ekki mikillar virðingar, hvort
sem er af hálfu nemenda og/eða
kennara, þótt vissulega sé víða unnið
markvisst og frábært starf í tónlist-
ar- og sönguppeldi skólabarna, sem
vakið hefur athygli víða um heim. Að
þessu leyti til er árangur Þórunnar
glæsilegur og Kársnesskóla mikill
virðingarauki, en eins og segir í upp-
hafi þessa pistils er það kórstjórinn
sem skapar kórinn og er andi hans
og list.
Að skapa kórTÓNLISTH á s k ó l a b í ó
Skólakór Kársness
undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur. Píanóleikari
Marteinn H. Friðriksson.
Laugardaginn 5. maí.
AFMÆLISTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
Þórunn
Björnsdóttir
LISTAMAÐUR mánaðarins í Lins-
unni, Aðalstræti, er Guðlaug Hall-
dórsdóttir textílhönnuður. Til sýnis
eru ýmis handunnin efni, fylgihlutir
af mörgum gerðum og aðrir sérhann-
aðir hlutir til heimilisins. Útstilling-
arhönnuður er Birgitte Lúthersson.
Textílhönnun
í glugga
RÚM fyrir einn heitir nýtt leikrit
sem tekið hefur verið til æfinga
hjá Leikfélagi Íslands. Leikritið
er eftir Hallgrím Helgason og
verður frumsýnt í Hádegisleik-
húsi Iðnó 22. maí nk.
Leikritið gerist í rúmaverslun í
Reykjavík. Ungur nýfráskilinn
maður ætlar að kaupa sér nýtt
rúm og lendir á „trúnó“ með af-
greiðslumanni verslunarinnar.
Þeir hafa báðir sína sögu að segja
af samskiptum sínum við hitt
kynið. Rúm fyrir einn fjallar um
karlmenn í krísu. Leikstjóri sýn-
ingarinnar er Magnús Geir Þórð-
arson, leikmynd og búninga hann-
ar Hrafnhildur Brynja Stefáns-
dóttir. Leikarar eru Friðrik
Friðriksson og Kjartan Guð-
jónsson.
Morgunblaðið/Golli
Aðstandendur Rúms fyrir einn fyrir utan Iðnó þar sem leikritið verður sýnt.
Nýtt leikrit um karlmenn í krísu
KARLAKÓRINN Þrestir er elsti
starfandi karlakór landsins, stofn-
aður 19. febrúar 1912, og var Frið-
rik Bjarnason tónskáld stofnandi og
fyrsti söngstjóri kórsins. Friðrik
samdi nokkur lög fyrir karlakór og
er lagið Hrím, við kvæði Einars
Benediktssonar, eitt af bestu lögum
hans. Síðastliðin fjögur ár hefur
Jón Kristinn Cortez stjórnað Þröst-
um, náð mjög góðum árangri og í
raun komið kórnum „aftur á blað“
sem vel syngjandi kór, með mark-
vissri þjálfun, góðri stjórn og skyn-
samlegu vali á viðfangsefnum.
Á tónleikum kórsins í Grafar-
vogskirkju sl. föstudag voru tekin
til meðferðar nokkur söngverk sem
finna má í Íslensku söngvasafni,
eða „fjárlögunum“ eins og þau voru
nefnd vegna forsíðumyndarinnar
eftir Ríkharð Jónsson. Þessi bók,
sem fyrst var gefin út 1915 af Sig-
fúsi Einarssyni og Halldóri Jóns-
syni, er í sannleika sagt íslenskt
söngvasafn og í fulli gildi enn í dag,
því æ algengara er að sönghópar
dagsins í dag sæki sér efni í þessa
gömlu og góðu söngva.
Fyrsta lag tónleikanna var Svein-
ar kátir syngið (nr 105 í II. hefti),
er var hressilega sungið. Þar næst
var lag sem undirritaður veit engin
deili á, við texta eftir Freystein
Gunnarsson, og nefnist Með
söngvaseið á vörum, eftir Jón M.
Kjerúlf, þokkalegt lag er var ágæt-
lega flutt. Á vængjum söngsins eftir
Mendelssohn var ágætlega flutt,
þótt eitthvert hik kæmi um stund á
píanistann. Tvö íslensk þjóðlög voru
næst á efnisskránni, Á Sprengi-
sandi, sem mun vera finnskt þjóð-
lag, og Undir bláum sólarsali, í út-
setningu Emils Thoroddsen. Næsta
lag, Brátt mun birtan dofna eftir
Sigfús Einarsson, var flutt í ágætri
raddsetningu eftir Emil og var hvað
túlkun snertir mjög vel flutt.
Hver á sér fegra föðurland eftir
Emil, Nú sefur jörðin eftir Þorvald
Blöndal og Sefur sól hjá ægi (nr. 97
í I. hefti) eftir Sigfús voru öll vel
sungin og þá orðið ljóst að Jón
Kristinn leggur áherslu á frekar
hægan flutning og að dvelja við ein-
staka tónhendingar, svo að hend-
ingamótun verður mjög skýr.
Kórinn átti í nokkrum erfiðleik-
um með Sofnar lóa (nr. 100 í II.
hefti) eftir Sigfús, enda mjög hægt
sungið og þá getur verið erfitt að
halda réttri tónstöðu. Fyrir þetta
var bætt með hressilegum flutningi
á Fanna skautar faldi háum (nr. 28 í
I. hefti) eftir Stuntz og Jónas Hall-
grímsson.
Eftir hlé komu tvö „knall“-lög
eftir ármenn íslenskrar tónlistar,
fyrst Buldi við brestur, brotnaði
þekjan (nr. 9 í II. hefti) eftir Helga
Helgason og síðan Áfram eftir Árna
Thorsteinsson. Það var töluverð
reisn yfir söng kórsins og sama má
segja um Fuglinn í fjörunni eftir
Jón Þórarinsson. Þá komu tvö lög
eftir stofnanda kórsins, Friðrik
Bjarnason, Hrím, sem fyrr er getið,
og Huldur, við texta eftir Grím
Thomsen. Hrím var vel flutt með
góðum framburði og sama má segja
um Huldur, en þar lagði stjórnand-
inn áherslu á dramatískt innihald
textans með því að dvelja við ein-
staka tónhendingar og leggja
áherslu á blæbrigði og styrkleika-
mun og einstaklega skýran texta-
framburð. Þessi einkenni í stjórn
Jóns Kristins komu hvað best fram
í laginu Hornbjarg eftir Pál Hall-
dórsson en þó sérstaklega í lagi
Karls O. Runólfssonar, Nú sigla
svörtu skipin, sem var frábærlega
vel flutt hvað snertir túlkun, svo að
lagið fékk nýja hljóman í mótun
Jóns. Svo sem vera ber lauk tón-
leikunum með tveimur lögum eftir
Pál Ísólfsson, Úr útsæ rísa Íslands
fjöll og Brennið þið vitar, bæði við
texta eftir Davíð Stefánsson, er
voru aldeilis hressilega sungin.
Með þessum tónleikum er Karla-
kórinn Þrestir á góðri leið með að
skipa sér í fremstu röð íslenskra
karlakóra og er ljóst að mestu valda
vönduð vinnubrögð og nákvæm
stjórn Jóns Kristins Cortez, því enn
má kórinn auka raddgæðin, sér-
staklega háraddanna, svo ekki muni
á við aðra kóra þegar haldið verður
upp á 90 ára afmælið á næsta ári.
Vönduð og ná-
kvæm stjórn
TÓNLIST
G r a f a r v o g s k i r k j a
Karlakórinn Þrestir, undir stjórn
Jóns Kristins Cortez, flutti
söngverk úr íslensku söngvasafni
liðinnar aldar. Undirleikari var
Hólmfríður Sigurðardóttir.
Föstudaginn 4. maí.
KÓRTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
OPIN og einlæg ljóð finna oft auð-
veldlega leiðina að lesendum. Þannig
eru ljóð eftir Rauni Magga Lukkari í
bók hennar Bjartir frostdagar en
hana hefur Einar Bragi þýtt í heild
sinni og gefið út. Rauni Magga Lukk-
ari er sami. Hún er fædd 1943 í Finn-
landi. Hún var fulltrú sama á Alþjóð-
legu bókmenntahátíðinni 1987 í
Reykjavík og vakti þá athygli fyrir
ljóð sín og upplestur. Bók hennar sem
hér er til umfjöllunar hlaut samísku
bókmenntaverðlaunin 1996.
Bjartir frostdagar er heildstæð
ljóðabók fremur en safn ljóða. Meg-
inþema verksins er hringrás lífsins
frá vöggu til grafar séð út frá kven-
legu og samísku sjónarhorni. Það
vekur athygli hversu einlæg ljóðin
eru, persónuleg og opin, en ekki síður
hve mynd sú er höfundurinn dregur
upp af lífinu er átakamikil og and-
stæðufull og mótuð af lífsbaráttu. Í
raun og veru má segja að meginein-
kenni bókarinnar séu þessi átök and-
stæðna. Líf og dauði eru eðlilega
meginandstæður verksins í samræmi
við meginþemað en skarpar myndir
eru dregnar upp af harðneskjulegri
fæðingu og grimmum dauða. Sagt er
frá mæðgum á ferð í snjóbyl:
Skyndilega köstuðu þær báðar sér flatar
og ólu hrínandi meybarn
hlóðu að þeim snjó
til að halda á þeim hita
Sjálfar lögðust þær hjá þeim
og sungu sumarljóð
Og þá er ekki heldur langt í grimm-
an dauðann. Síðasti hlut bókarinnar
fjallar á áhrifaríkan hátt um dauða
bróður Rauniar og bindur saman
ljóðabókina, hringrásina um lífið og
dauðann. En harkan er ekki eina hlið
lífsins. „Harðast alls / sem börn mín
vissu / var ég / og hið mýksta“. Þótt
sorgin marki mikinn hluta bókarinnar
er ekki heldur alveg laust við að
gleðin og hamingjan eigi sín ljóð:
Hamingjan
kemur ein
á næturnar
Leggst
blíðlega til svefns
í mér
Það eru einnig dregnar upp and-
stæður losta og samfélagslegrar bæl-
ingar. Höfundurinn yrkir um hvernig
„blóðið þrymur milli fóta“ en niður-
staðan er samt sú að ljóðsegjandi
beislar samviskuna og „lagði á girnd-
ina / þunga hlekki“. Nútíminn og for-
tíðin, náttúran og menningin takast
einnig á í kvæðum Rauniar, ekki síst í
lýsingu hennar á móður sinni.
Myndmál Rauniar er ávallt einfalt
og tært og tekið úr nánu umhverfi.
Það er jarðbundið og auðskiljanlegt.
Þýðing Einars Braga nær þessum
tæra og einfalda hljómi býsna vel og
verður ekki annað sagt en að vel hafi
tekist til um þýðinguna. Bjartir frost-
dagar er því góð bók í vandaðri þýð-
ingu.
Átök
og and-
stæður
BÆKUR
L j ó ð
eftir Rauni Magga Lukkari. Einar
Bragi þýddi. Ljóðbylgja 2001. 63 bls.
BJARTIR FROSTDAGAR
Skaft i Þ. Halldórsson
STOFNUN Dante Alighieri efnir til
fyrirlestrar í Kornhlöðunni í kvöld,
kl. 20.30. Auður Ólafsdóttir listfræð-
ingur fjallar um hinar ýmsu hliðar
eins merkasta listamanns og fjöl-
fræðings endurreisnarinnar, Leon-
ardo da Vinci, í máli og myndum.
Fjallað um
da Vinci
ERTU svona, Einar Áskell? er
eftir Gunillu Bergström í þýðingu
Sigrúnar Árnadóttur. Þar segir frá
leik Einars og vina hans í kofa sem
þau hafa gert og merkilegri keðju
sem hægt er að læsa kofanum með.
Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bók-
in er 24 bls., prentuð í Danmörku.
Leiðbeinandi verð er 1.790 kr.
Nýjar bækur
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦