Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 39
kki and-
otkun
kt á helstu
unnar að
r gera ráð
Jökulsá í
til orku-
rahnjúka-
æð þeirri
llað um.
ðhálendis
ilmæli um
meiginlega
en það er
rinn í nú-
júkavirkj-
hjá miðl-
þar sem
gróður og
þá verið
num aust-
sturöræfi-
söræfi.
vatnsafls-
nd geta í
man ef vel
i um slíka
um heim.
verður að
er annars
n eiga að
ynt hefur
æð áhrif á
færslum í
með öðr-
em lagðar
ur.
verfisáhrif
ta til fleiri
dýra- og
ið kemur
klar rann-
m áhrifum
usturland
atsskýrsl-
Þar kemur m.a. fram að 149 eig-
endur jarða og jarðahluta kunna að
eiga hagsmuna að gæta þar sem
þær eru að hluta eða öllu leyti inni á
áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar.
Af þeim er 21 jörð í eigu opinberra
aðila og 49 jarðir eru skráðar í eyði.
Áhrif á jarðir á láglendishlutanum
eru fyrst og fremst fólgin í skertu
eða auknu rennsli jökulánna, sem
meðal annars getur valdið grunn-
vatnsbreytingum á vissum svæðum.
Þá mun land skerðast þar sem frá-
rennslisskurðurinn er fyrirhugað-
ur.
Viðræður standa yfir við ábúend-
ur og eigendur þeirra jarða sem
geta orðið fyrir búsifjum vegna
grunnvatnsbreytinga. Einnig hefur
verið rætt við viðkomandi sveitar-
félög, að því er greint er frá í skýrsl-
unni.
Þar segir einnig að öðru máli
gegni um hálendishlutann. Þar fer
land undir miðlunarlón, veitu-
skurði, vegi og námur, auk þess
sem koma þarf fyrir efni úr jarð-
göngum.
Hvað landbúnað áhrærir, er ekki
talið að fyrirhuguð Kárahnjúka-
virkjun muni skerða nema mjög
takmarkað möguleika til landbún-
aðar en ljóst er að beitilönd muni
fara undir lón og mannvirki.
Á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkj-
unar eru hreindýraveiðar mest
áberandi. Talið er að fyrirhugaðar
virkjunarframkvæmdir hafi áhrif á
farleiðir hreindýra og þar með
veiðisvæðin. Selir eru einnig veiddir
og lítils háttar stangveiði stunduð.
Ef hreindýrum fækkar í kjölfar
fyrirhugaðra virkjunarfram-
kvæmda er hugsanlegt að draga
megi markvisst úr veiðum til að
koma í veg fyrir fækkun dýranna.
Þó er alls óljóst hvort til þess þyrfti
að koma þar sem hreindýrastofninn
í heild sinni er ekki í hættu, segir
aukinheldur í skýrslunni.
Ólíklegt er að fyrirhugaðar fram-
kvæmdir hafi áhrif á möguleika til
stangveiða í Jökulsá á Dal. Helsta
ástæða þess er sú að yfirfallsvatn,
sem vænta má í flestum árum, kem-
ur til með að viðhalda óstöðugum
skilyrðum fyrir fisk. Þó er hugsan-
legt að skilyrðin batni og stangveiði
aukist þar með í kjölfarið.
Áhrif virkjunarframkvæmda
á ferðamennsku
Í matsskýrslunni er fjallað um
hinn ört vaxandi ferðamannaiðnað
hér á landi og möguleg áhrif fram-
kvæmda á hálendinu á hann. Vísað
er til nokkurra viðhorfskannana um
ferðamál sem unnar voru í fyrra, en
í þessum könnunum kemur glöggt
fram hve skiptar skoðanir eru um
vatnsaflsvirkjanir og hvort og þá
hvernig ferðamennska og orkuöflun
eigi samleið.
„Á heildina litið verður að telja
líklegt að fyrirhugaðar virkjunar-
framkvæmdir geti skapað ný sókn-
arfæri fyrir ferðaþjónustuaðila og
að ferðamönnum muni fjölga í kjöl-
farið á hálendinu norðan Vatnajök-
uls. Þó má gera ráð fyrir að tilteknir
hópar ferðamanna sniðgangi svæð-
ið vegna þeirrar truflunar sem
skapast af fyrirhuguðum mann-
virkjum. Í þessu samhengi er mik-
ilvægt að tryggja að aukin umferð
ferðamanna valdi ekki skaða á nátt-
úrunni, sem kallar á nauðsynlega
fræðslu og leiðbeiningar fyrir
ferðamenn og þjónustuaðila.
Tvö framkvæmdatímabil
Þegar litið er til áhrifa Kára-
hnjúkavirkjunar er skipt í tvö tíma-
bil í matsskýrslunni. Annars vegar
er um að ræða framkvæmdatíma
sem áætlað er að muni standa yfir
árin 2002 til 2013 og hins vegar
rekstrartíma sem hefst við lok fyrri
áfanga í árslok 2006.
Fyrra tímabilið einkennist af
miklum umsvifum við bygginga-
framkvæmdir á virkjunarsvæðinu
og þjónustu í tengslum við þær. Á
rekstrartíma eru hins vegar lítil
umsvif við virkjunina sjálfa, innan
við 20 föst störf við viðhald og
rekstur en þó má gera ráð fyrir
töluverðri aðkeyptri viðhaldsvinnu
frá verktökum.
Gert er ráð fyrir að við byggingu
Kárahnjúkavirkjunar þurfi rúm-
lega 3.300 ársverk á vegum verk-
taka, auk yfirstjórnar verkkaupa.
Framkvæmdatíminn skiptist í
tvö ólík tímabil. Mikil umsvif við
fyrri áfanga eru á árunum 2002 til
2005, sem lýkur á árinu 2006. Milli
fyrri og seinni áfanga virkjunarinn-
ar er gert ráð fyrir að hlé verði á
framkvæmdum á svæðinu í þrjú ár.
Rannsóknaraðilar hafa metið það
svo að allt að 25% ársverka við
byggingu Kárahnjúkavirkjunar
verði mögulega unnin af starfs-
mönnum sem búsettir eru á Austur-
landi. Þetta þýðir að fyrstu fjögur
ár framkvæmdatímans verða 100 til
200 manns af svæðinu við störf við
framkvæmdirnar. Áætlaður hlutur
íbúa á Austurlandi við fyrirhugaðar
virkjunarframkvæmdir svarar til
um 3% fjölgunar ársverka á svæð-
inu. Stærstur hluti vinnuaflsins
mun hins vegar koma annars staðar
að af landinu og að einhverju leyti
erlendis frá og fela fyrirhugaðar
framkvæmdir í sér um 0,5% fjölgun
ársverka á landinu utan Austur-
lands. Á síðari hluta framkvæmda-
tímans má búast við að hlutur
heimamanna í framkvæmdunum
verði 30 til 40 manns.
Reistar verða vinnubúðir á fram-
kvæmdasvæðinu til að hýsa og
þjónusta starfsmenn og gert er ráð
fyrir að tiltölulega fáir kjósi að
flytja búferlum á Hérað tímabundið
vegna framkvæmdanna. Reiknað er
með að framkvæmdaaðili og verk-
takar annist sjálfir ýmsa þjónustu
svo sem sorphirðu, vatnsöflun, frá-
veitumál, brunavarnir, neyðarþjón-
ustu og fleira, þannig að áhrif á
rekstur sveitarfélaganna tengist
frekar auknum umsvifum ýmissa
þjónustuaðila og útsvarstekjum af
heimamönnum í vinnu við fram-
kvæmdirnar eða tengda þjónustu.
Á fyrstu árum framkvæmdatím-
ans, þegar framkvæmdir eru í há-
marki, segir í skýrslunni að verði
óhjákvæmilega meiri hraði í sam-
félaginu á Austurlandi og aukin um-
svif. Mikið verður um
flutninga og aðkomufólk
á ferð um svæðið í
tengslum við fram-
kvæmdirnar og við það
breytist óhjákvæmilega
yfirbragð samfélagsins.
Samhliða byggingu Kárahnjúka-
virkjunar verður ráðist í aðrar um-
fangsmiklar framkvæmdir á Aust-
urlandi. Gert er ráð fyrir að reistar
verði tvær háspennulínur til að
flytja orkuna til Reyðarfjarðar á ár-
unum 2003 til 2005 og að þar rísi
stórt álver á árunum 2003 til 2006
með stækkun í öðrum áfanga á ár-
unum 2010 til 2012. Þá er hafinn
undirbúningur við áformuð jarð-
göng milli Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar. Að auki má nefna
nýbyggingu íbúðar- og atvinnuhús-
næðis. Þetta leiðir til þess að vinnu-
aflsþörf allra þessara framkvæmda
er á bilinu 1.000 til 2.000 manns
þegar mest er á árunum 2003 til
2006. Langstærstur hluti þessa
vinnuafls verður aðkomufólk.
Þjóðhagsstofnun hefur tekið
saman skýrslu fyrir iðnaðar- og við-
skiptaráðherra um áhrif Noral-
verkefnisins á íslenskt efnahagslíf.
Þar kemur fram að samanlagðar
fjárfestingar Landsvirkjunar og
Reyðaráls verði að jafnaði um 30
milljarðar króna á ári þegar fram-
kvæmdir standa sem hæst. Þar af
er innlendur kostnaður áætlaður
um 40%.
Niðurstöður áætlana Þjóðhags-
stofnunar um áhrif á landsfram-
leiðslu eru eftirfarandi:
Á framkvæmdatímanum myndi
landsframleiðsla vera um 2,5%
hærri vegna Noral-verkefnisins
en ella.
Varanleg áhrif eftir að rekstur
hefst eru áætluð á bilinu 0,8 til
1,5%.
Lauslega áætlað svara þessi
áætluðu varanlegu áhrif til
aukningar landsframleiðslu um 8
til 15 milljarða króna á ári á verð-
lagi ársins 2000.
Til viðmiðunar er nefnt að hlutur
landbúnaðar í landsframleiðslu er
nú um 2% og hlutur fiskveiða og
fiskiðnaðar er nú um 11%.
Orka frá virkjuninni fer til fram-
leiðslu útflutningsafurða og fram-
kvæmdin hefur því óbein áhrif á
verðmæti útflutnings landsmanna.
Eftir stækkun Norðuráls á þessu
ári er hlutur stóriðju í útflutnings-
afurðum landsmanna lítið eitt meiri
en tekjur af erlendum ferðamönn-
um.
Í þessu sambandi er rétt að geta
þess að hlutur stóriðju í útflutnings-
afurðum frá miðju ári 2001 verður
um 14% og hlutur sjávarafurða er
nú um 45%.
Gert er ráð fyrir að öll orka Kára-
hnjúkavirkjunar fari til stóriðju en
við það tvöfaldast um það bil út-
flutningsverðmæti stóriðjuafurða
frá því sem að framan greinir.
Í skýrslu Þjóðhagsstofnunar er
bent sérstaklega á tímabundin
þjóðhagsleg áhrif á framkvæmda-
tíma Noral-verkefnisins:
Halli á viðskiptajöfnuði við út-
lönd gæti aukist um 2,5% vegna
innflutnings til verkefnisins.
Skuldir þjóðarbúsins eru áætlað-
ar 10 til 12% meiri en ella við lok
framkvæmdanna. Í því samhengi
er talið erfitt að meta áhrif á
tímabundið lánshæfismat ríkisins
því verkefnið ætti að draga úr
viðskiptahalla og auka þjóðar-
framleiðslu þegar til lengri tíma
er litið.
Aukin eftirspurn vinnuafls gæti
aukið verðbólgu á framkvæmda-
tíma um 1,5 til 2%. Beinar mót-
vægisaðgerðir í ríkisfjármálum
koma þar til álita gegn þenslu-
áhrifum.
Aukin umsvif í atvinnulífinu gætu
aukið rekstrarafgang ríkissjóðs
um allt að 0,5% af landsfram-
leiðslu.
Skýrslan
aðgengileg
Enn og aftur skal minnt á að
matsskýrslan um Kárahnjúkavirkj-
un er heilmikið verk, nálægt tvö
hundruð blaðsíður auk fjölda fylgi-
rita. Í henni eru feikn mikið af at-
hyglisverðum gögnum og kortum
og aðeins hefur verið gerð fyrir ör-
litlum hluta efnis henn-
ar hér.
Í samræmi við ný lög
um mat á umhverfis-
áhrifum sem tóku gildi
í fyrra, er almenningur
hvattur til að kynna sér
umhverfisáhrif framkvæmdar sem
kann að hafa í för með sér umtals-
verð umhverfisáhrif og mótvægis-
aðgerðir vegna þeirra. Þar er lögð
áhersla á að brýnt sé að almenn-
ingur komi að athugasemdum og
upplýsingum áður en úrskurður um
mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdar er kveðinn upp.
Í samræmi við það skulu lesend-
ur hvattir til að kynna sér málið
nánar á heimasíðu Kárahnjúka-
virkjunar á Netinu (www.kara-
hnjukar.is).
upphafi er 26 viðaukaskýrslur og 43 sérfræðiskýrslur auk langrar og ítarlegrar skýrslu
)
"
!"
##
!"
$ $
$
*
!
"
$ $
!"
% &
+
$
,
$
-#
*
.
/
'
0 '
1
" 1!*
"
#
$
2
#
" #
$" #$
"!
!
3
2
!
)/4152/6
$$%$
&$$ $$
'% $$( #$#$
$ $' $)$
* $
$$+
$'( $
$$, $ $
$ $ &
$ $ -
$$$$$)$$
$
$$
&)$' $'
$$.$
$' $($
$$,$$
' /#$ &$
.10/ /6-780
# 9
$$0
&
$
$&$1$ $23$& $$ $$4
$
$&$$$256$$ $$7
$
$&$2" 286$'$ &'
$$)$
$$ &'%& (& :
&
$$&)$9
$$:$' $$&
$$ $ $&$8""$&$$2""$&$' $' $$,
%$ $
$'$ $$;&$ $$$ $& ,
$1!*
;2
#!*
$$< $
$
$$'
$$,$
$$$=
,
$1!*
;2
#!*
$
$%$($&$ $ $$$) $'$% $'
<
,
$$=
2
#!*
$$< $'
$($9
$($
$$< $$($0 #$-$ %$ $
$$ $ $'( $-$'$'
$$=
2
#!*
'
$($9
$$: $
$($
'&& $$
( $($9
$$:#$'$%$&$$
$$:$& $ & $ ' $$
' $' $
$&$ $' $ $
$ $
'% $ $
$ *$
#$ $
5""$ )
"
,
>
)#
4
*
1
1% "? @" #$
#
A
@$
&$&
@$
&$'A
,$
&$
$$
$
'% rfisáhrifin viðunandi í
nahagslegs ávinnings
efur verið lögð í skýrslu Landsvirkjunar vegna mats á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar.
ynnt sér skýrsluna og reifar hér helstu þætti viðamesta umhverfismats Íslandssögunnar.
bingi@mbl.is
Mannvirki
þrengja að
ósnortnum
víðernum
Hvað
gerist nú?
4. maí 2001:
Matsskýrsla auglýst/birt form-
lega. Sex vikna kynningartími
hefst þar sem öllum er frjálst að
koma athugasemdum á fram-
færi.
15. júní 2001:
Kynningu lokið, úrvinnsla at-
hugasemda í fjórar vikur. Sá
tími getur orðið lengri ef fram-
kvæmdaraðili telur sig þurfa á
lengri fresti að halda til bregð-
ast við athugasemdum. Ef svo
fer frestast eftirfarandi dag-
setningar sem nemur viðbót-
artímanum sem fram-
kvæmdaraðili tekur sér til að
svara.
13. júlí 2001:
Úrskurður Skipulagsstofnunar
kveðinn upp (ef úrvinnsla at-
hugasemda tekur ekki meira en
fjórar vikur). Möguleg niður-
staða:
Fallist á framkvæmd með eða
án skilyrða.
Lagst gegn framkvæmd
vegna verulegra umhverfis-
áhrifa.
Ekki unnt að úrskurða, gögn
skortir.
Kærufrestur í fjórar vikur
vegna úrskurðarins.
10. ágúst 2001:
Kærufrestur rennur út. Berist
kæra hefur umhverfisráðherra
átta vikur til að úrskurða.
5. október 2001:
Ráðherra úrskurðar í síðasta
lagi.