Morgunblaðið - 08.05.2001, Page 56

Morgunblaðið - 08.05.2001, Page 56
HESTAR 56 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Reiðfatnaður í miklu úrvali frá FREMSTIR FYRIR GÆÐI HRÍMNIR og eigandi hansBjörn Sveinsson komufram í lok sýningarinnar og eins og alltaf þegar þessi mikli gæðingur hefur komið fram heillaði hann sýningargesti nú 26 vetra gamall í ótrúlega góðu formi. Björn sagði fyrr um daginn að hann fyndi engin merki þess að klárinn sé far- inn að gefa sig. Sagði hann að að sjálfsögðu hefði verið farið vel með hann alla tíð og hann sparaður að vissu leyti þótt alltaf hafi hann ver- ið notaður til reiðar og hlaupið ófá- ar ferðirnar suður fyrir heiðar og til baka. Ímynd hins fegursta Hrímnir frá Hrafnagili hefur frá fyrstu tíð verið í hugum hesta- manna ímynd hins fegursta í röð- um gæðinga. Hann hefur ávallt verið hafinn yfir allar vangaveltur og dægurþras og því óumdeildur á sínum stalli. Björn er þess fullviss að hann muni aldrei eignast jafn- ingja hans svo sérstakur sem hann er á alla lund, stórbrotinn persónu- leiki, mikill viljagammur, næmur en með hlýja og aðlaðandi skap- gerð. Hrímnir og Björn komu fram bæði föstudags- og laugardags- kvöldið. Fyrra kvöldið í tvítaumi, stjórnað af Birni frá gólfi. Síðara kvöldið setti Björn hnakkinn á og reið honum um salarkynnin við mikla hrifningu sýningargesta og að endingu kom heiðursvörður ís- lenska ríkisins fánum skrýddur inn í salinn og myndaði skjaldborg um höfðingjann. Hjalti Jósepsson frá Hrafnagili ræktandi Hrímnis gekk því næst í salinn og voru honum og Birni færðir blómvendir og Hrímn- ir fékk silfurplatta. Þessi stund verður þeim er með fylgdust sjálf- sagt ógleymanleg. Að þessu sinni voru farnar nokk- uð nýjar leiðir í sýningarhaldinu. Boðið var upp á sýnikennslu þeirra Ingimars Sveinssonar, Atla Guð- mundssonar, Eyjólfs Ísólfssonar og Einars Öder Magnússonar á föstu- dag. Á kvöldsýningunni var lögð áhersla á ræktunarþáttinn en á laugardagskvöldið var um að ræða fjölbreyttari sýningu þar sem fleiri þættir komu inn í og aðeins það besta frá föstudagskvöldinu. Að venju gat að líta mörg áhuga- verð hross og er við hæfi að byrja á stóðhestum. Má þar nefna til sög- unnar Ask frá Kanastöðum sem var í feikna stuði hjá Þórði Þor- geirssyni orðinn flugrúmur á öllum gangi og fasið gott hjá fallegum hesti. Sömuleiðis var Adam frá Ás- mundarstöðum góður hjá Loga Laxdal. Óskar frá Litladal var í góðum gír og flottur á töltinu hjá Sigurbirni Bárðarsyni. Einnig vakti athygli hjá Sylvíu dóttur Sig- urbjörns fimm vetra hestur úr þeirra ræktun, Grunur frá Oddhóli, en sá er undan Kraflari frá Mið- sitju og Golu frá Brekkum. Rand- ver frá Nýjabæ stóð að venju fyrir sínu hjá Vigni Jónassyni. Sömu sögu má segja um Smára frá Skagaströnd sem eigandinn Unn- steinn Hlynur Jóhannsson sýndi. Smári stendur alltaf vel fyrir sínu þótt nú sé nýjabrumið farið að fara af honum. Útgeislun hestsins er með ólíkindum. Þá komu fram ung- ir, lítt eða ósýndir hestar fram sem gefa vonir um áframhaldandi gott úrval stóðhesta. Asi með góðan hóp Afkvæmi nokkurra stóðhesta komu þarna fram og vöktu þau góðar vonir og gott betur en það, því þar á meðal mátti sjá ágæta hópa. Asi frá Kálfholti virðist ekki þeirra sístur og sér í lagi vakti brún hryssa undan honum athygli sem Jónas í Kálfholti sýndi sjálfur. Sú heitir Syrpa og er frá Jónasi, glæsileg í framgöngu með góðu ganglagi. Andvari frá Ey kom með góðan hóp og sömuleiðis þeir Hrynjandi frá Hrepphólum, Gustur frá Hóli og Kjarkur frá Egilsstöð- um. Suðri aftur á uppleið Óvenju margar ræktunarbússýn- ingar voru á dagskránni að þessu sinni enda verið að höfða sterkt til ræktunarinnar. Allar prýðilegar og þar á meðal kom fram sá frægi Suðri frá Holtsmúla sem sló svo eftirminnilega í gegn í Ölfushöll- inni fyrir tveimur árum þegar þeir hlupu svo fimlega um salinn hann og Sigurður Sæmundsson bóndi í Holtsmúla. Þótti brokkið sem sá fyrrnefndi sýndi með ólíkindum en síðan hefur Suðri átt erfitt upp- dráttar. Komst ekki inn á landsmót og náði ekki einu sinni yfir átta í aðaleinkunn. Nú sat Sigurður á baki en lét Suðra um hlaupin. Og viti menn, eitthvað fór Sigurður að glingra við brokkið fræga og komu þar nokkur Ölfushallarspor en hann hrökk fljótlega af því. En Sigurður lét ekki þar við sitja og að endingu var hann farinn að brokka heilu langhliðarnar með þessu ævintýralega svifi sem full- yrða má að ekki hefur sést hjá ís- lenskum hesti að því best er vitað. Þarna var þessi sami Suðri og sló í gegn fyrir tveimur árum að koma til baka og þóttust fróðir menn sjá að klárinn þurfi örlítið meiri tíma í þjálfun og uppbyggingu til að valda þessum miklu hreyfingum. Ætti hann þá að verða örlítið ásetubetri en hann var þarna því Sigurður mátti þakka fyrir að klárinn hlypi ekki undan honum svo há sem sveiflan var á baki Suðra. Og nú er hægt að gera sér vonir nýtt Suðra- æði eins og geisaði fyrir tveimur árum. Undarleg úrslit Einvígi milli Sunnlendinga og Norðlendinga vakti talsverða at- hygli og þá sérstaklega niðurstað- an. Fyrir Suðurland kepptu Brynj- ar Jón Stefánsson á Sindra frá Laugardælum en fulltrúi Norður- lands var Páll Bjarki Pálsson á Loga frá Ytri-Brennihól. Í stuttu máli sagt var sýning Brynjars og Sindra að flestu ef ekki öllu leyti betri að mati þess er þetta skrifar og vísast margra annarra sýning- argesta af viðbrögðum þeirra að dæma þegar dómur féll Páli og Loga í vil. Voru margir eitt spurn- ingarmerki í framan eftir þetta at- riði vitandi að þarna var vissulega léttur leikur á ferðinni sem einn viðmælanda kaus þó að kalla skrípaleik. Gæðingaval suður með sjó Sportmenn úr Keflavík slógu í gegn í Reiðhöllinni í Víðidal fyrir tæpum mánuði og mættu að nýju til leiks í nýjum klæðnaði og á nýj- um hestum. Á rauðum hestum í rauðum peysum. Vakti það athygli að þeir geti skipt svona um lit á hrossum og verið áfram stórvel ríð- andi. Þeir höfðu það víst á orði eft- ir sýninguna að þeir gætu hæglega mætt að viku liðinni með jarpt gengi og verið jafnvel enn betur ríðandi en á laugardagskvöldið. Eitthvað er nú hestavalið þarna suður með sjó. Garðurinn góður við börnin Af öðrum ágætum atriðum mætti nefna þátt Ármanns Ólafssonar í Litla-Garði sem kom með tvær dætur sínar og stóðhestinn Garð sem nú er kominn á þrítugsaldur. Léku þau ýmsar góðar kúnstir saman beislis- og hnakklaust. Hall- grímur Birkisson var ásamt dóttur sinni Ragnheiði með gott atriði og nokkrir kunnir afar úr hesta- mennskunni komu með barnabörn- in sín í góðri sýningu. Samráðs er þörf Aðsókn að sýningu þessari var svona þokkaleg, afar illa mætt á sýnikennsluna á föstudag og brekkan frekar fáliðuð um kvöldið en húsfyllir á laugardagskvöldið. Vísast þurfa aðstandendur sýninga í reiðhöllum að hugsa sinn gang um það hvernig skuli standa að kynningu og markaðssetningu, hafa samráð um sýningardaga því nú er komnar tvær stórar hallir í gagnið og væntanlega ein á leiðinni á Akureyri. Þá hafa skautahallir norðan og sunnan heiða bæst við innanhússævintýri hestamanna. Laga þarf hlutina að nútíð og framtíð og ljóst er að vera þarf fyrr á ferðinni með kynningu sýn- inganna en nú tíðkast. Óumdeild- ur og upp- hafinn Það var tilfinningaþrungin stund þegar gæðingurinn Hrímnir frá Hrafnagili var heiðraður á sýningu norð- og sunnlenskra hestamanna á laugardagskvöldið í Reiðhöll- inni í Víðidal. Valdimar Kristinsson var á meðal sýningargesta þessa eftirminnilegu stund sem kann að hafa verið kveðjustund Hrímnis sunnan heiða. Morgunblaðið/Valdimar Ármann í Litla-Garði hefur Garð sinn á loft að framan meðan önnur dóttirin situr klárinn en hin fylgist með af andakt. Sigurður og Suðri sýndu að Ölfushallarsporið er enn til staðar, aðeins þarf að fínstilla það örlítið. Fánum prýdd heiðursfylking íslenska ríkisins. Höfðingjarnir heiðraðir, frá vinstri Hrímnir frá Hrafnagili og Björn á baki hans og Hjalti Jósepsson á Hrafnagili, ræktandi Hrímnis. Svif og fótaburður gæðingsins Hrímnis frá Hrafna- gili eru alltaf hin sömu þrátt fyrir árin 26. Hrímnir frá Hrafnagili heiðraður á reiðhallarsýningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.