Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 67
DAGBÓK
Námske ið
Sjálfsþekking -
Sjálfsöryggi
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Sálfræðistöðin
Innritun og nánari upplýsingar í símum
Sálfræðistöðvarinnar 562 3075 og 552 1110 frá kl. 11-12.
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert glöggur og gaman-
samur og hefur þitt á hreinu,
líka hvernig þú vilt að
aðrir sjái þig.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki freistast til flaust-
urslegra vinnubragða. Gefðu
þér tíma til þess að kanna
mál ofan í kjölinn og þá
muntu finna bestu lausnirn-
ar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reynslan hefur kennt þér að
fara varlega. Það er líka
hyggilegt því flas er ekki til
fagnaðar. Taktu þér því þann
undirbúningstíma sem þú
þarft.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er hyggilegt að líta um
öxl og læra af reynslunni. En
gera það án þess að velta sér
upp úr fortíðinni. Nútíminn
er það sem skiptir máli.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú er ekki tími til þess að
hafa uppi kröfugerð á hendur
öðrum. Brettu upp ermarnar
og taktu sjálfur til óspilltra
málanna. Þannig hefst það.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú vilt sjá hlutina í kring um
þig hreyfast og hatar alla
kyrrstöðu. En breytingar
þurfa að leiða til ávinnings,
annars eru þær ekki til neins.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hagaðu máli þínu svo að eng-
inn sé í vafa um hvað þú vilt.
Sumir vilja allt til vinna að
geta snúið út úr orðum þín-
um. Afvopnaðu þá strax í
upphafi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Láttu þér ekki til hugar
koma að halda af stað án þess
að hafa allar grundvallarupp-
lýsingar á hreinu. Án þeirra
ferðu fýluferð og nærð eng-
um árangri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu ekki vinsældir meðal
samstarfsmanna þinna stíga
þér til höfuðs. Vertu lítillátur,
ljúfur og kátur og þá mun þér
farnast vel á öllum sviðum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú mátt hreint ekki skeyta
skapi þínu á þeim sem standa
þér næst. Ef þú þarft að fara
í fýlu þá komdu þér þangað
sem þú ert ekki fyrir neinum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur hrint af stað at-
burðarás sem brátt tekur af
þér öll völd nema þú bregðir
við hart og takir málin í þínar
hendur. Gerðu það strax.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt vinnan sé skemmtileg og
mikils virði er líf eftir vinnu
og þú þarft að sinna því svo
að lífshamingjan blómstri.
Ekki blekkja sjálfan þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú gætir neyðst til þess að
læra eins og eina lexíu í auð-
mýkt. Taktu því vel og not-
færðu þér svo þennan lær-
dóm til þess að auðga líf þitt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ÚR STELLURÍMUM
...Fyrst er sjón og svo er tal,
svo kemur hýrlegt auga,
síðan ástar fagurt fal
freyju hefst við bauga...
Fleins þá týr og tvinnarós
tengjast ástarþræði,
fer sem kveikt sé ljós við ljós,
er lögð eru saman bæði...
En þeir til fljóða áður ást
ei hafa rennt af munni,
fyrir þá eg finn það skást
að fylgja náttúrunni.
Sigurður Pétursson.
hans við Lasaro Bruzon
(2589). Bruson þessi er
kornungur stórmeistari frá
Kúbu sem hefur vakið at-
hygli fyrir vasklega fram-
göngu. Hannes
lét hann þó
finna allhressi-
lega til tevatns-
ins. 22. Dxh5!
og kúbverski
stórmeistarinn
gafst upp enda
verður hann
mát eftir 22.
...gxh5 23.
Bxh7#. Kepp-
endur í efsta
flokknum eru:
Ulf Andersson
(2640), Lasaro
Bruzon (2589),
Hannes Hlífar
Stefánsson
(2570), Anthony Miles
(2562), Fransico Vallejo
(2559), Jesus Nogueiras,
Lenier Dominguez (2556),
Igor Nataf (2552), Walter
Arencibia (2543), Arnaud
Hauchard (2526), Neuris
Delgado (2481), Aryam
Abreu (2480).
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MINNINGARMÓT Capa-
blanca stendur nú um þess-
ar mundir í Havana á Kúbu.
Í raun er þetta skákhátíð
þar sem teflt er í nokkrum
lokuðum flokkum. Hannes
Hlífar Stefánsson (2570)
tekur þátt í efsta flokknum
en staðan kom upp í skák
„ÞETTA er mikill skellur
fyrir Multi.“ Ásmundur Páls-
son hafði verið að fylgjast
með OK-spilamennsku á
Netinu og horfa á ICE-king
(Magnús Magnússon) lenda í
vandræðum eftir opnun
makkers á Multi tveimur
tíglum, sem sýndi veika tvo í
öðrum hvorum hálitunum.
Makker Magnúsar var
finnsk landsliðskona, Raija
að nafni, sem mikið spilar á
Netinu, en mótherjarnir
sterkir Bandaríkjamenn.
Magnús var í vestur:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ KD982
♥ --
♦ K103
♣ G1032
Vestur Austur
♠ Á6 ♠ G7
♥ KDG762 ♥ Á10987543
♦ D ♦ 4
♣ÁD97 ♣K84
Suður
♠ 10543
♥ --
♦ ÁG987652
♣5
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 2 tíglar * 5 tíglar
Dobl Allir pass
Ekki gat Magnús passað
fimm tígla og þar eð allar lík-
ur voru á að litur makkers
væri spaði ákvað hann að
dobla. Útspilið var hjarta-
kóngur – í tvöfalda eyðu – og
þar með hvarf laufeinspilið
heima og sagnhafi gaf aðeins
einn slag á spaðaás: 950 í NS.
Fimm hjörtu vinnast í AV
og slemma ef vörnin tekur
fyrst slag á tígul áður en ráð-
ist er á spaðann. Þá mun
norður lenda í þvingun í
svörtu litunum í lokin með
spaðahjón og fjórlitinn í laufi.
Tæknileg lausn er tæplega
til á þessu spili, en æ fleiri
spilarar eru þó farnir að spila
úttektardobl á svo háa samn-
inga. En það er tvíbent líka.
E.S. Skömmu eftir að Ás-
mundur hafði sagt mér frá
þessum Multi-óförum fékk
umsjónarmaður tölvupóst
frá Magnúsi Magnússyni.
Hann hóf mál sitt þannig:
„Ég verð að sýna þér alveg
ótrúlegt spil sem kom upp á
OK-brids um daginn ...“ Les-
andinn fær eina tilraun til að
giska á hvað spil Magnús var
að tala um.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson.
Árnað heilla
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. febrúar sl. í La-
Conner í Washingtonfylki í
Bandaríkjunum Elfa Gísla-
dóttir og Tom Richardson.
Heimili þeirra er í LaConn-
er.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu kr. 3.670. Þær heita Sólveig
Gunnarsdóttir, Andrea Gísladóttir, Jórunn Gísladóttir og
Kristín Heiða Ásgeirsdóttir.
Ljósmynd/Róbert Reynisson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 23. september sl. í
Háteigskirkju af sr. Tómasi
Sveinssyni Lára Huld
Björnsdóttir og Helgi Þor-
steinsson. Heimili þeirra er í
Reykjavík.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Þorkell
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
AÐALFUNDUR FOK í Breið-
holtsskóla verður haldinn í hátíð-
arsal skólans í dag, þriðjudaginn
8. maí, kl. 20. Fundarstjóri verður
Hildur Jóhannesdóttir.
Fundurinn hefst með ávarpi
Ragnars Þorsteinssonar skóla-
stjóra. Síðan verða venjuleg aðal-
fundarstörf og 10. bekkingar flytja
leikþátt.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að verið er að gera könnun meðal
foreldra í hverfinu um viðhorf til
skólans og foreldrafélagsins.
Breiðholtsskóli er móðurskóli í
foreldrastarfi.
Aðalfundur FOK
í Breiðholtsskóla
AÐALFUNDUR Atvinnuþróunar-
félags Vestfjarða hf. fyrir árið 2000
verður haldinn í Þróunarsetri Vest-
fjarða kl 13, laugardaginn 12. maí nk.
Fundurinn er haldinn samkvæmt
samþykktum félagsins. Kynnt verður
ársskýrsla, reikningar og starfsáætlun
fyrir komandi starfsár. Vakin er at-
hygli á að fundurinn er öllum opinn
sem vilja kynna sér starfsemi félags-
ins.
Málþing um
frumkvöðlasetur
Í tilefni aðalfundar Atvinnuþróunar-
félags Vestfjarða hf., laugardaginn 12.
maí, verður haldið málþing um stofnun
og starfsemi frumkvöðlasetra. Frum-
kvöðlasetur er sambland aðstöðu og
ráðgjafar fyrir frumkvöðla, sem eru
með viðskiptahugmynd og ætla að
koma henni í framkvæmd. Fyrsta
frumkvöðlasetrið sem sett var á lagg-
irnar hér á Íslandi er á vegum IMPRU,
sem hefur rekið slíkt setur í húskynn-
um Iðntæknistofnunar frá árinu 1999.
Á annan tug fyrirtækja hefur haft eða
er nú með starfsemi í frumkvöðlasetr-
inu. Fimm fyrirtæki hafa flutt úr setr-
inu og hafið sjálfstæðan rekstur.
Í apríl sl. var stofnað frumkvöðlaset-
ur með aðsetur á Dalvík og á Akureyri
og á Austurlandi er verið að þróa sam-
bærilegar hugmyndir. Í tengslum við
Þróunarsetur Vestfjarða hefur At-
vinnuþróunarfélag Vestfjarða hug-
myndir um að setja af stað álíka starf-
semi. Því er áhugavert að kynnast því
starfi sem fer fram og þeirri hug-
myndafræði sem liggur til grundvallar.
Fyrirlesarar á málþinginu verða
Andrés Magnússon, forstöðumaður
IMPRU, og Gunnar Vignisson frá Þró-
unarstofu Austurlands. Málþingið
hefst kl. 14 að loknum aðalfundi at-
vinnuþróunarfélagsins. Það er öllum
opið og í lok þess verður boðið upp á
kaffi.
Aðalfundur og málþing
um frumkvöðlasetur
FORELDRAFÉLÖG leikskólanna í
Garðabæ standa fyrir fræðslufundi
fyrir foreldra leikskólabarna í Garða-
bæ í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
(Vídalínskirkju) þriðjudaginn 8. maí
kl. 20.00. Þar mun Hugo Þórisson
sálfræðingur halda erindi um sam-
skipti foreldra og barna.
Að erindinu loknu verður gert
kaffihlé og að því búnu verða umræð-
ur. Gert er ráð fyrir að fundinum
ljúki eigi síðar en kl. 22.00.
Aðgangseyrir er kr. 200.
Fræðslufundur
foreldrafélaga
leikskóla
í Garðabæ
FRÉTTIR