Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÝTT OG BETRA Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Þið munuð aldrei trúa því hversu nálægt heimsendi við vorum  HK DV  Ó.H.T RÚV  strik.is www.sambioin.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 224. Sýnd kl. 3.50. Vit nr. 203. Sýnd kl. 10.30. Vit nr. 225 2 fyrir 1 Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Vit nr 213. Sýnd kl. 3.50. Enskt tal. Vit nr 214 Sýnd kl. 3,50. Ísl tal. Vit nr. 183. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 207 Sýnd kl. 5.30 og 8 B.i.16. Vit nr. 201Kvikmyndir.com Christopher McQuarrie leikstjóri Usual Suspects með annan smell með óskarsverðlaunahafanum Benicio Del Toro, Ryan Phillippe, Juliet Lewis og James Caan Óeðlilega snjöll! Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i.16 ára. Vit nr. 228Sýnd kl. 3.45, 5.55, 8 og 10.10. . Vit nr. 223  HK DV Joel Silver framleiðandi Matrix er hér á ferðinni með dúndur spennumynd með topp húmor. Stefnir í að verða stærsta Steven Seagal myndin frá upphafi í USA. Frábær tónlist í flutningi DMX! Kvikmyndir.com HL Mbl Tvíhöfði  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit nr 220. B.i.14. Strik.is  Hausverk.is Nýi stíllinn keisarans T R A F F I C Litla Vampíran HÁSKÓLABÍÓ þar sem allir salir eru stórir Hagatorgi sími 530 1919 Sýnd kl. 8 GSE DV ÓFE Sýn Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. eftir Þorfinn Guðnason.  HK DV Yfir 5 vikur á topp 20 Strik.is Ó.H.T Rás2 Lalli Johns Yfir 6000 áhorfendur Sýnd kl. 6 og 10.30.  HK DV Kvikmyndir.com  strik.is  strik.is  Ó.H.T RÚV Sýnd kl. 7 og 10. Sýnd kl. 10. B. i. 16. Sýnd kl. 5.45. B.i.16 ára. Sýnd kl. 8. THE GIFT Besta myndin í bænum ÓJ Stöð 2. Ný sending velúrgalla Ný snið Einnig dömu- og herrasloppar Gullbrá, Nóatúni 17, sími 562 4217. Sendum í póstkröfu. Stefnumótakvöld- unum verður fram- haldið sem fyrr í kvöld á Gauknum. Að þessu sinni mun tvennt leika, annars vegar mun lista- maðurinn Biogen leika en hann hefur lengi verið í fremstu röð hér- lendra raftónlist- armanna. Mun hann leika lög af nýrri plötu sinni sem ber hinn kumpánlega titil You Are Strange. Hins vegar ætlar tveggja manna sveit, Frank Murder, að spila. Þeir leika seiðandi raftónlist sem er væntanleg á plötu innan skamms. Í samtali við Morg- unblaðið sagði Bjössi, maðurinn sem stendur á bak við Biogen- nafnið, að diskurinn sem hann væri að fara að kynna væri hálfgerð rassvasaútgáfa. Einhver áhugi hefði nú verið sýndur á efni hans erlendis en enn ætti eftir að gera það klappað og klárt. Bjössi segir mikinn uppgang vera í íslenskri raftónlist um þessar mundir. „Eins og sést t.d. á Prince Valium og Skurken og því hversu múm gengur vel. Það er alltaf að koma nýtt blóð.“ Um sína tónlist segir hann: „Ég er með mynd í hausnum sem ég næ aldrei alveg; hún er alltaf á undan mér. Þannig að ég reyni svona að halda í skottið á henni. Annars er þetta einhver millivegur á alveg rosalega mörgum stefnum. Þetta er svona nett kæruleysislega – djass- skotið – samt ekki djass – út í amb- ient fallegheit – svona flóknar for- ritanir sem líta einfaldlega út. Eitthvað svoleiðis (hlær).“ Húsið verður opnað kl. 21 og að- gangseyrir er 500 kr. Stefnumót á Gauknum Morgunblaðið/Arnaldur Raftónlistarmaðurinn Biogen í banastuði. Rafómar ráðandi ÞAÐ verður að viðurkennast að of- urhetjunafnið Animal Man virkar síður en svo aðlaðandi. Það á síðan líklegast eftir að fæla enn fleiri les- endur frá því að lesa þessa grein til enda þegar ég segi frá því að ofur- hetjan sogar krafta sína frá þeim dýrum sem í nágrenni hennar eru. En það er eins með hugmyndir og önnur verkfæri að það er ekki verk- færið sjálft sem er aðalatriðið heldur mennirnir sem handleika það. Höf- undurinn Grant Morrison gæti lík- legast gert bútasaum á Hrafnistu að þræl- spennandi yrkis- efni, slík er hæfni hans. Þannig verð- ur eitthvað sem er jafn fáránlegt og fjar- lægt raunheiminum og ævintýri „Dýramanns- ins“ að beittu vopni sem otar óþægilegum stað- reyndum að andliti lesand- ans. Líkt og strokleður gæti verið banvænt í hönd- unum á manni með fjörugt ímyndunarafl og ríka kímni- gáfu. Morrison hefur alltaf eitthvað að segja, en gerir þó lesandanum aldrei of auðvelt fyrir. Augljóslega tekur hann hér á náttúruvernd og dýravernd en ekki með þessum hefðbundna „sunnudags-sjónvarps- myndablæ“, heldur leggur hann frekar upp úr því að benda lesand- anum á fáránleika ýmissa hluta. Hér lifir kaldhæðnin góðu lífi enda er þetta verk um tíu ára gamalt eða frá þeim tíma sem trúboðar einlægninn- ar þóttu ekki annað en vælukjóar. Hetjan okkar er fremur einföld að flestu leyti. Fjölskyldufaðir í úthverfi Los Angeles-borgar, ekkert gáfna- ljós og enginn leiðtogi. Eiginlega bara hið „fullkomna meðalmenni“, ef slík persóna er til yfir höfuð. Hann hefur ávallt þráð viðurkenningu í „of- urhetjubransanum“, sérstaklega þar sem hann býr yfir þessum „stórkost- legu“ kröftum sem ég sagði frá áðan. Það er engu líkara en að persónan sé sköpuð í einhverju gríni því Morrison leyfir aukapersónum sínum óspart að gera grín að aðalsöguhetjunni. En Morrison er að reyna að segja okkur eitthvað. Það skín vel í gegn í bestu sögu bókarinnar sem tekur á grátbroslegan hátt á ofbeldi í teikni- myndum. Úlfur, sem gengur um uppréttur á tveimur fótum, skýtur upp kollinum í Arizona-eyðimörkinni. Þessi furðu- skepna virðist ódrepandi eins og vörubílstjóri, sem keyrir yfir hann fyrir slysni, kemst að. Vörubílstjór- inn er sannfærður um að þarna sé djöfullinn sjálfur á ferð og kennir honum um alla ógæfu sína á lífsleið- inni. Hann grípur til vopna, heldur út í eyðimörkina og er staðráðinn í því að losa veröldina við þessa djöfullegu skepnu. En sama hvað hann nær oft að skjóta, sprengja eða henda skepnunni fram af klettabrúnum, hún rís alltaf upp aftur. En þetta er þó ekki djöfullinn heldur af- bökuð mynd af úlfinum úr Roadrunner teiknimyndunum, sem reis upp gegn skapara sínum og tók á sig syndir teiknimyndafígúranna í von um að sú veröld yrði friðsælli. Hann var því sendur hingað á jörð af skaparanum og þarf að þola eilífar þjáningar til þess að heimur hans geti lært betri siði. Sannkallaður messías teiknimyndapersóna sem deyr aftur og aftur fyrir syndir annarra til þess að þjóna vilja skap- arans. Örlög úlfsins eru ekki ljúf, þar var hann óheppinn að eiga jafn kaldhæð- inn andskota og Grant Morrison fyr- ir skapara. MYNDASAGA VIKUNNAR Birgir Örn Steinarsson Animal Man eftir Grant Morrison. Fyrri hluti teiknaður af Chas Truog, seinni hluti af Tom Grumm- et. Í bókinni er safnað saman fyrstu 9 blöðunum í blaðaseríunni sem kom út á árunum ’88–’91. Útgefin árið 2001 af Vertigo/DC Comics. Fæst í myndasöguverslun Nexus. biggi@mbl.is Nú eru góð ráð dýr TVÖ sjaldgæf eintök af myndum Andy Warhols af Marilyn Monroe og Mao Tse-Tung voru seld á uppboði hjá Sotheby’s síðastliðinn laugardag. Myndirnar seldust á nær fimmtíu milljónir íslenskra króna. Alls voru boðin upp 26 af verkum Warhols en vakti myndin af Monroe mesta athygli og fékkst lang hæsta verðið fyrir hana. Myndirnar af Maó vöktu einnig at- hygli en þær voru fyrst birtar árið 1972, sama ár og Richard Nixon, þá- verandi forseti Bandaríkjanna, var í opinberri heimsókn í Kína. Verk Warhols á uppboði Mynd eftir Andy Warhol. AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.