Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 08.05.2001, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2001 73 Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800 EINA BÍÓIÐ MEÐ THX DIGITAL Í ÖLLUM SÖLUM FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ JULIA STILES • SEAN PATRICK THOMAS SAVE THE LAST DANCE I I I Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 216. www.sambioin.is Tvíhöfði Sýnd kl. 3.50. Ísl. tal. Vit nr. 213 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. Vit nr. 173. PAY IT FORWARD Sýnd kl. 3.45 Ísl. tal. Vit nr. 194 Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10. B.i.16 ára. Vit nr. 223 Joel Silver framleiðandi Matrix er hér á ferðinni með dúndur spennumynd með topp húmor. Stefnir í að verða stærsta Steven Seagal myndin frá upphafi í USA. Frábær tónlist í flutningi DMX! Snorrabraut 37, sími 551 1384 FYRIR 1090 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ www.sambioin.is Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B. i. 16. Vit nr. 201. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Vit nr. 173. PAY IT FORWARD Kvikm yndir.c om HL Mb l Strik.i s   Tvíhöf ði Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i.14. Vit nr 220.  KVIKMYNDIR.is  HAUSVERKUR.is  KVIKMYNDIR.com What Women Want Sýnd kl. 8. Sagan er skrifuð af þeim sem brjóta reglurnar. Sannsögulegt meistara- verk um óbilandi baráttu- vilja. Robert De Niro og Cuba Gooding Jr. hafa aldrei verið betri. 2 fyrir 1 ÓSKARSVERÐLAUN Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Íslenskur texti. Frá Óskarsverðlaunaleikstjóra Cinema Paradiso kem- ur eftirminnileg og einstök mynd um ungan dreng og konuna sem breytti lífi hans. Hin gullfallega Monica Bellucci er Malena.Tilnefnd til 2 Óskarsverðlauna. 1/2 Hausverk.is Hugleikur.  Ó.T.H. Rás2.  ÓJ Bylgjan 4 ÍTÖLSK PERLA Í ANDA LA VITA É BELLA OG IL POSTINO.  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.45 og 10.15 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Miði í Regnbogann gildir sem happadrættismiði fyrir PS2  HK DV Aftur í stóran sal! HVENÆR leikur maður sveita- tónlist – og hvenær leikur maður ekki sveitatónlist? Sveitatónlistin (e. country) hefur verið að skjóta rótum hér á Íslandi að undanförnu; í marg- víslegustu myndum. Til að mynda hefur jaðarsveitatónlistin, með lista- menn eins og Will Oldham, Giant Sand og Lambchop innanborðs, ver- ið að vinna nýbylgjusinna á sitt band undanfarið ár; sveitatónlist með þjóðlagakeim er komin upp á yfir- borðið fyrir tilstilli myndar Coen- bræðra „O Brother, Where Art Thou? og dægurlagakennd sveita- tónlist að hætti söngkvenna eins og Shaniu Twain og LeeAnn Rimes nýt- ur nú töluverðra vinsælda. Þessi síðastnefndi geiri var nokk- urn veginn í forgrunni í téðri sýningu ásamt sígildri sveitatónlist manna eins og Willy Nelson. Einnig var nokkuð um þekkta slagara sem fylla grátt svæði hvað sveitatónlistina varðar en hafa verið vinsælir sem undirspil við hinn enn vinsælli línu- dans sem hefur verið stundaður nokkuð grimmt hérlendis til sjávar og sveita undanfarin ár. Húsið var troðfullt og skemmtileg stemning í gangi; margir létu sig ekki muna um að koma í sveita- múnderingu frá toppi til táar, kú- rekahattur á höfði og þvíumlíkt. Sýningin byrjaði svo af krafti. Kristján Gíslason Evróvisjónfari stormaði inn á sviðið með dansara sér til fulltingis og söng slagarann „Cotton Eyed Joe“ og peppaði upp stuðið af mikilli fagmennsku. Síðan tók hvert atriðið við af öðru en alls voru flutt 22 lög. Sumt gekk afar vel upp, t.a.m. söng Viðar Jónsson lag Willy Nelson „On The Road Again“ skemmtilega og eins gerði hann sér mat úr lagi Alan Jackson, „Chatta- hoochee“. Hjördís Elín Lárusdóttir fór vel með lag LeeAnn Rimes „How Do I Live“ og Kristján söng hið geysivinsæla lag Lonestar, „Amaz- ed“, frábærlega. Sumt gekk svo ekki eins vel upp. Flutningur Önnu Vilhjálms á hinu sí- gilda lagi Tammy Wynette, „Stand by Your Man“, virkaði til dæmis ekki, að mér fannst, og Guðrún Árný Karlsdóttir réð ekki nægilega vel við „I Will Always Love You“, enda lag sem er fremur erfitt í flutningi. Lög- in „Brown Eyes Blue“, í flutningi Ragnheiðar Hauksdóttur, og „Is- lands in the Stream“, í flutningi feðg- ininna Eddu Viðarsdóttur og Viðars Jónssonar, gengu ekki heldur upp. Hápunktar sýningarinnar voru svo innlegg þeirra Hallbjörns Hjart- arsonar og Geirmundar Valtýssonar sem sungu lög sem tilheyra hinum smáa undirflokki sveitatónlistarinn- ar – „íslensku kántríi“. Hallbjörn söng að sjálfsögðu einkennislag sitt, „Komdu í Kántrýbæ“, fataðist þar flugið og söng viðlagið því fjórum sinnum í röð! Hann kom svo tvíefldur til baka síðar og söng lagið „Hund- urinn Húgó“ af þvílíkri innlifun og listfengi. Besta atriði kvöldsins og áhorfendur vel með á nótunum. Geir- mundur var ekki síðri, alger stuð- bolti sem kann heldur en ekki lagið á að koma fólki í gírinn. Geirmundur getur hvorki sungið né dansað en sá kann að vefja lýðnum um fingur sér! Dansarar stóðu sig með mikilli prýði, sérstaklega var gaman að fylgjast með hópi áhugamanna dansa línudans. Hnökralaust var það alls ekki en áhuginn og ástríðan skein úr hverjum andlitsdrætti. Hljómsveitin var og frábær, enda valinn maður þar í hverju rúmi. Sýn- ingin endaði svo með fiðluhasarnum sem lagið „Devil Went Down to Ge- orgia“ er. Dan Cassidy hamaðist á fiðlunni á meðan Jóhann Örn dansaði við djöfulinn og endaði atriðið með sprengingum og látum. Flott atriði og það hefði mátt vera meira um svona útfærslur í sýningunni. Að lokum er réttast að tæpa að- eins á nokkrum hlutum sem komu mér spánskt fyrir sjónir. Margir söngvaranna náðu t.d. alls ekki am- eríska sveitarómnum, ef svo mætti kalla, sem einkennir upprunalegu lögin. Svo er um ¾ hlutar sýningar- innar voru búnir fannst mér líka sem hún hefði verið heldur einsleit, ekki mikil útfærsla eða sniðugheit í kring- um einstök atriði. Einnig er líka hætta á því; þegar verið er að keyra fjölda ólíkra sýninga með sama mannskapnum, að lögin líði fyrir það að fólk er, eðlilega, ekki á kafi í við- fangsefninu. Í þessu tilfelli eru söngvararnir t.d. ekki „sveitasöngv- arar“. En þetta er eðli svona „Veg- as“-sýninga, tilgangurinn er að herma, endurspegla. Og á þessu kvöldi, eins og gengur og gerist, tókst það stundum ágætlega en stundum miður. Það ríkti kátína í salnum og fólk skemmti sér auðsjáanlega hið besta meðan á sýningunni stóð. Margt af því sem ég hef verið að telja fram má enda skrifa á það að hér var um frumsýningu að ræða og því á enn eftir að slípa hana til og fága. Lífið er línudans B r o a d w a y Sýningin Country Festival 2001 Sveitasöngvar – Sveitaball á Broad- way,föstudaginn 4. maí, 2001. Kynnir og dansstjórnandi er Jó- hann Örn Ólafsson en tónlistina sér Gunnar Þórðarson um ásamt hljómsveit. SÖNG- OG DANS- SKEMMTUN Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Jón Svavarsson Hallbjörn Hjartarson söng lag- ið „Hundurinn Húgó“ af mikl- um myndarbrag. TÓNLIST/ DANS SIGUR RÓS er nú stödd á yfirgripsmiklu tónleikaferðalagi en uppselt hefur verið á nær alla tónleikana. Umtal um sveitina hef- ur og verið mikið und- anfarið í erlendum blöðum. Á dögunum fékk hún góða dóma fyrir fyrstu tónleika sína í Los Angeles í Variety en blaðið segir tónlistina hafa trúar- legt yfirbragð. Sigur Rós er sögð hafa sér- stöðu gagnvart öðrum hljómsveitum og að sú sérstaða liggi ekki síst í því sem kallað er „yf- irnáttúruleg góðvild“. Tónlistinni er líkt við þá tónlist sem heyra má hjá Brian Eno á plötunni Music For Airports auk þess sem blaðamaður segir að greina megi áhrif frá Bítlunum, Pink Floyd, Low, Stereolab og Mercury Rev. Hljómsveitin er sögð vera allt annað en sjálfumglöð og hroka- full og að tónlist þeirra sé að- gengileg þrátt fyrir að vera sér- stök. Vakin er athygli á því að Jónsi, söngvari hljómsveitarinnar, syngi á íslensku, eða a.m.k. sínu eigin sérstaka máli sem kallast „vonlenska“. Hann segir þetta enn fremur vera hljómsveitinni til framdráttar. Dulúð er sögð hvíla yfir flutningnum og áhersla lögð á að rímnasöngur Steindórs Andersens að íslenskri hefð hafi passað vel inn í tónleikana en Steindór slóst í för með piltunum um mitt ferðalagið. Steindór Andersen ásamt Jónsa. Tónleikaferðalag Sigur Rósar Góðir dómar í Los Angeles Morgunblaðið/Björg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.