Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 2

Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 2
KR-ingum spáð Íslandsmeistaratitli/C1 Jóhann Ingi formaður landsliðsnefndar/C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Sérblöð í dag Morgun- blaðinu í dag fylgir blað frá Speedo, „Sund og sumarfrí“. Á FÖSTUDÖGUM Morgunblaðið/Jim Smart Reynir Tómas Geirsson yfirlæknir tilbúinn með skærin til að klippa á „naflastrenginn“ en að baki honum eru Arnar Hauksson yfirlæknir og yfirljósmæðurnar, Sigríður Sía Jónsdóttir og Margrét Hallgrímsson. MIÐSTÖÐ mæðraverndar var formlega tekin í notkun í húsnæði Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur við Barónsstíg í gær. Miðstöðin varð til með sameiningu mæðradeilda Kvennadeildar Landspítala – há- skólasjúkrahúss og Heilsuverndar- stöðvarinnar í eina samhæfða deild, sem ákveðin var með undirritun samnings milli þessara aðila í júní 1999. Opnunarathöfnin hófst með því að forráðamenn deildanna klipptu á „naflastreng“ sem strengdur hafði verið frá anddyri Kvennadeildar Landspítalans að styttu af móður og barni sem stendur fyrir framan deildina. Þaðan gekk starfsfólk mið- stöðvarinnar með strenginn undir höndum að Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg 47 þar sem fram fór stutt dagskrá í tilefni dagsins og gestir gátu skoðað húsakynni Mið- stöðvar mæðraverndar. Að sögn Guðmundar Einarssonar, forstjóra Heilsugæslunnar í Reykja- vík, eru þetta merk tímamót í sögu mæðraverndar á Íslandi og sam- starfs heilsugæslunnar og Landspít- alans. Búið sé að stíga stórt skref í að eyða landamærum sem oft vilja myndast á milli stofnana. Vonast hann til að miðstöðin verði vísir að frekara samstarfi þessara heilbrigð- isstofnana í framtíðinni þannig að þjónusta þeirra verði enn betri. Við- ræður í þá veru standi yfir. „Með sameiningunni var komið upp sameiginlegu fagráði um þessa mæðravernd. Þar með er treyst rækilega í sessi þetta nána samstarf og ég verð að segja að það gengur ákaflega vel. Það er nauðsynlegt að hafa samstarf þessara fagaðila náið þannig að sérþekking beggja nýtist sem best,“ segir Guðmundur. Guðmundur segir að sameining mæðradeildanna hafi átt að gerast hraðar. Lengri tíma hafi tekið að breyta húsnæðinu við Barónsstíg en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ný miðstöð mæðraverndar FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÆSTIRÉTTUR hefur gert útgerð- arfélaginu Þormóði ramma-Sæbergi að greiða sjómanni rúmar 230 þúsund krónur auk dráttarvaxta frá árinu 1995 vegna uppgjörs á aflahlut í rækjuveiðum á árunum 1995–1996. Ágreiningur var á milli útgerðar- félagsins og sjómanna um útreikning aflaverðmætis og úrskurðaði Félags- dómur m.a. 1997 að útgerðin hefði brotið kjarasamninga á sjómönnum með svonefndum „tonn á móti tonni“- viðskiptum. Sjómaðurinn, sem rak málið fyrir Hæstarétti, var skipverji á rækjutog- aranum Baldri EA, sem nú heitir Hvannaberg ÓF. Skipið var í eigu út- gerðarfélagsins Sæbergs sem síðar sameinaðist Þormóði ramma. Deilan snýst um útreikning á aflahlut sjó- mannsins á tímabilinu 18. júlí 1995 til 21. mars 1996. Ágreiningur stóð um útreikning aflaverðmætis þess hluta rækjunnar, sem fór í frekari vinnslu sem iðnaðar- rækja. Fyrir iðnaðarrækjuna fékk út- gerðarfyrirtækið 115.000 krónur í peningum fyrir hvert tonn ásamt hálfu tonni af aflamarki í rækju, sem fyrirtækið skuldbatt sig til að landa hjá kaupandanum á móti jafnmiklu af eigin aflamarki. Var um svokölluð „tonn á móti tonni“-viðskipti að ræða. Uppgjör sitt við sjómenn miðaði fyr- irtækið aðeins við peningagreiðslurn- ar en tók ekkert tillit til aflamarksins. Með dómi Félagsdóms í mars 1997 var kveðið á um það, að útgerðarfyr- irtækið hefði brotið kjarasamning að- ila með því að taka ekki tillit til verð- mætis móttekins aflamarks fyrir seldan afla við tilgreiningu heildar- skiptaverðmætis. Í kjölfarið greiddi fyrirtækið sjómanninum 208.311 krónur til viðbótar þeirri fjárhæð, sem hann hafði áður fengið. Var skiptaverðið miðað við meðalverð frosinnar rækju á þeim tíma, sem henni var landað, samkvæmt niður- stöðu úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna, og reiknaður mismun- ur þess verðs og þeirrar peninga- greiðslu, sem fyrirtækið fékk fyrir landaðan afla. 20 önnur sambærileg mál Sjómaðurinn taldi hins vegar að miða bæri skiptaverðmætið við mark- aðsverð móttekins aflamarks, auk beinnar peningagreiðslu. Fram kem- ur í Hæstarétti að málið hafi verið þingfest 1997 ásamt tuttugu öðrum sambærilegum málum. Tvö málanna voru tekin út úr og rekin í héraði og fyrir Hæstarétti meðan önnur mál biðu í óákveðnum fresti. Í dómum Hæstaréttar 1999 í fram- angreindum tveimur málum var tekið fram, að útgerðarmaður skyldi tryggja skipverjum hæsta gangverð fyrir fiskinn samkvæmt kjarasamn- ingi aðila. Ekki lægi fyrir, að unnt hefði verið að fá hærra verð fyrir hinn umdeilda hluta aflans en það meðal- verð, sem Þormóður rammi-Sæberg byggði endanlegt uppgjör sitt við stefnda á, og var fyrirtækið sýknað af kröfum sjómanns. Að gengnum framangreindum dómum Hæstaréttar fór sjómaðurinn í þessu máli fram á frest til að fá dóm- kvadda sérfróða matsmenn til að meta hvort unnt hefði verið að fá hærra verð fyrir hinn umdeilda afla. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að samkvæmt niðurstöðu matsgerðar hafi gangverð verið mun hærra en meðalverð það sem Þormóður rammi-Sæberg notaði við endanlegt uppgjör sitt við sjómanninn og taldi Hæstiréttur það vera andstætt kjara- samningi að miða við það, enda skyldi útgerðarmaður tryggja skipverjum hæsta gangverð fyrir fiskinn. Talið var að fyrirtækið hefði ekki sýnt fram á hvaða verð fékkst raunverulega fyr- ir aflamarkið og ekki leitt líkur að því, að það hefði verið lægra en kveðið var á um í matsgerðinni. Var því fallist á kröfur sjómannsins. Gert að miða aflaverð- mæti við markaðsverð Morgunblaðið/Kristján Sigurður Skúlason og Guðni Þorsteinn Arnþórsson voru að vonum ánægðir með smíðina. STARFSMENN Skógræktar rík- isins í Vaglaskógi smíðuðu í vetur fimm borð með bekkjum úr ís- lensku lerki. Sigurður Skúlason skógarvörður sagði að starfs- menn hefðu tekið efniviðinn með sér heim eftir að þeir unnu við grisjun í Ásbyrgi síðasta haust. Lerkið var gróðursett í Ásbyrgi á árunum 1951 til 1954 og var um 8 metra hátt þegar það var fellt á liðnu hausti. Borðunum fimm verður komið fyrir á vinsælum gönguleiðum í Vaglaskógi fyrir sumarið og geta gestir skógarins notið þess að hvíla lúin bein og snæða nesti sitt við hin íslensku lerkiborð. Sigurður sagði að tilgangurinn með smíðinni væri meðal annars að sýna hvernig hægt væri að nýta efniviðinn sem fæst úr lerki- trjánum. Borð úr hálfrar ald- ar gömlu lerki Rannsókn lokið á lyfjastuldi LÖGREGLAN á Akureyri lauk í gær rannsókn á þjófnaði á lyfjum úr læst- um hirslum á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Málsgögn verða nú send sýslumanni sem tekur ákvörðun um hvort ákært verði í málinu. Lyfin sem var stolið voru sterk eft- irlitsskyld lyf en í þann flokk falla m.a. sterk verkjalyf. Lyfjunum var stolið úr læstum skápum en engin merki voru um innbrot og því var talið öruggt að skáparnir hefðu verið opn- aðir með lykli. 3,5 milljóna sekt fyrir skattsvik HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær tæplega fimmtugan mann í tveggja mánaða skilorðsbund- ið fangelsi og til að greiða 3,5 milljónir í sekt til ríkissjóðs en maðurinn hélt hvorki bókhald vegna starfsemi fyr- irtækis síns né greiddi hann rúmlega 1,7 milljónir í virðisaukaskatt eins og honum var skylt. Greiði maðurinn ekki sektina innan fjögurra vikna verður hann að sitja tvo mánuði í fangelsi. Haldi maðurinn skilorð fell- ur refsingin niður eftir tvö ár. Maðurinn var einnig sakfelldur fyr- ir að halda ekki bókhald, varðveita ekki bókhaldsgögn og semja ekki árs- reikninga. Maðurinn játaði á sig ákæruatriðin en brotin voru framin á árunum 1995–1997. Í dóminum kemur fram að árið 1998 var maðurinn dæmdur til að greiða fimm milljónir í sekt vegna brota á lögum um virðisaukaskatt og lögum um tekju- og eignaskatt. Þá var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Jón Finnbjörnsson héraðsdómari kvað upp dóminn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.