Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 21
UNGMENNAFÉLAG Íslands stóð
fyrir nokkru fyrir námskeiði í Stykk-
ishólmi sem nefnist Leiðtogaskólinn.
Námskeiðið er einnig í samvinnu við
Imrpu Iðntæknistofnunar og Ný-
sköpunarsjóð. Leiðtogaskólinn er
ætlaður leiðtogum og stjórnendum í
félagsstarfi, atvinnulífi og sveitar-
stjórnum.
Skólinn skiptist í tvo hluta, fyrri
hlutann sem fór fram núna og svo síð-
ari hlutann sem fer fram í haust. Í
fyrri hluta var farið yfir samskipti og
framkomu, almannatengsl, sjón-
varpsframkomu og fleira. Í seinni
hluta verður fjallað m.a. um virkjun
fólks, frumkvöðlastarf og stjórnun.
Umsjónarmaður skólans er Jó-
hann Haukur Björnsson. Það kom
fram hjá honum að námskeiðið er
haldið á þremur stöðum á landinu, í
Mývatnssveit, á Selfossi og í Stykk-
ishólmi. Fyrri hluti námskeiðsins stóð
yfir í 2 daga og fór námskeiðið fram á
Fosshóteli í Stykkishólmi. Fullbókað
var á námskeiðið og komu þátttak-
endur frá Vesturlandi, Vestfjörðum
og Norðurlandi vestra. Þeir eru 30 og
koma sem fulltrúar sveitarstjórna,
félaga og samtaka.
Jóhann segir að leiðtogahlutverkið
sé mjög mikilvægt. Fólk fæðist ekki
tilbúið í hlutverkið og því er nauðsyn-
legt að það fái þjálfun, fræðslu og
hvatningu frá þeim leiðbeinendum
sem hafa mesta þekkingu og reynslu
á því sviði. Þátttakendur fá auðveld
en hagnýt verkefni sem þeir eiga að
leysa í sumar og gera skil þegar þeir
hittast aftur í haust.
Kennslan er aðallega í formi fyr-
irlestra og eru leiðbeinendur 12 úr
ýmsum áttum. Jóhann Haukur er
mjög ánægður með hvernig til hefur
tekist á námskeiðinu í Stykkishólmi.
Þátttakendur náðu mjög vel saman
og eftir fyrri daginn voru þeir orðnir
eins og ein stór fjölskylda. „Það er
greinilegt að þörf er á svona nám-
skeiðum,“ sagði Jóhann Haukur.
Leiðtoganámskeið
Ungmennafélagsins
Stykkishólmur
ÁSGERÐUR Pálsdóttir frá Geita-
skarði var kosin formaður stéttar-
félagsins Samstöðu sem nær yfir
Húnavatnssýslur en talið var úr
póstkosningu á mánudagskvöld. Ás-
gerður hlaut 207 atkvæði sem eru
48% greiddra atkvæða.
Auk Ásgerðar voru í framboði þau
Þröstur Líndal frá Skagaströnd sem
hlaut 125 atkvæði og Hólmfríður
Bjarnadóttir á Hvammstanga en 94
greiddu henni atkvæði. Þátttakan í
kosningunum var 58% og skiluðu 5
auðu.
Ásgerður Pálsdóttir tekur form-
lega við formannsembættinu af
Valdimar Guðmannsyni, marg-
reyndum verkalýðsforingja, á aðal-
fundi Samstöðu.
Ásgerður
Pálsdóttir
formaður
Samstöðu
Blönduós
GERLAR hafa fundist í neysluvatni
Menntaskólans á Egilsstöðum.
Gerlafjöldi reyndist yfir leyfilegum
mörkum við mælingu og hefur Heil-
brigðiseftirlit Austurlands fylgst ná-
ið með og tekið ný sýni sem ítreka
fyrri niðurstöðu. Um er að ræða
hættulausa gerla þó svo að magn
þeirra sé óviðunandi.
Heilbrigðiseftirlitið hefur tekið
sýni úr veitukerfum bæjarins og er
það vatn í lagi. Því er talið fullvíst að
mengunin sé bundin við skólann, en
tengist ekki vatnsbólum Egilsstaða.
Mengunin gæti stafað af stöðnu
vatni úr pípulögnum skólans eða ver-
ið vegna skemmda á þeim.
Gerlar yfir
mörkum í
neysluvatni
ME
Egilsstaðir
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
Þakrennur
og rör
frá...
Þakrennur
♦ ♦ ♦