Morgunblaðið - 11.05.2001, Side 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL átök um skipun dómara eru talin vera í
uppsiglingu í Bandaríkjunum. George W. Bush
forseti er sagður hafa skotið fyrsta skotinu á mið-
vikudag, er hann tilnefndi kunna íhaldsmenn í
embætti alríkisdómara, en nokkrir öldungadeild-
arþingmenn demókrata hafa heitið því að leggja
stein í götu forsetans.
Bandarísku alríkisdómstólarnir eru áfrýjunar-
dómstólar og aðeins hæstiréttur er þeim æðri. Þeir
taka þátt í mótun lagahefðar varðandi ýmis um-
deild mál og skipun alríkisdómara getur því orðið
pólitískt hitamál, ekki síst þar sem öldungadeild
Bandaríkjaþings þarf að staðfesta tilnefningu
þeirra. Demókratar og repúblikanar eiga nú jafn
mörg sæti í deildinni og varaforsetinn Dick Chen-
ey fer þar með oddaatkvæði ef atkvæði falla jafnt.
Nokkrir þeirra sem Bush tilnefndi á miðvikudag
í embætti alríkisdómara eru yfirlýstir repúblikan-
ar og eindregnir íhaldsmenn, og demókratar hafa
hótað að koma í veg fyrir að tilnefningar þeirra
verði samþykktar. Telja demókratar þá reglu vera
í gildi að öldungadeildarþingmenn frá heimaríkj-
um hinna tilnefndu hafi neitunarvald um skipun
þeirra og hafa neitað að staðfesta tilnefningu Bush
á mönnum í embætti aðstoðardómsmálaráðherra
og ríkislögmanns nema þeirri reglu verði fram-
fylgt.
Repúblikanar saka demókrata á hinn bóginn um
að „halda öldungadeildinni í gíslingu“ og vilja ekki
kannast við að heimaþingmenn hafi raunverulegt
neitunarvald, aðeins rétt til umsagnar.
Tveir þeirra sem forsetinn tilnefndi eru fyrrver-
andi aðstoðarmenn íhaldssamra hæstaréttardóm-
ara. John Roberts vann fyrir William Rehnquist,
forseta hæstaréttar, og Jeffrey Sutton var aðstoð-
armaður Antonin Scalia. Bæði Rehnquist og Scalia
tilheyrðu meirihlutanum sem úrskurðaði George
W. Bush í vil og réð þannig úrslitum bandarísku
forsetakosninganna í desember sl. Þriðji maður-
inn, Miguel Estrada, rekur lögmannsstofu með
manni að nafni Theodore Olsen, sem flutti málið í
hæstarétti fyrir hönd Bush og er reyndar sá sami
og demókratar neita nú að skipa í embætti rík-
islögmanns. Fjórði maðurinn, Michael McConnell,
er kunnur fyrir baráttu sína gegn því að tengsl rík-
is og kirkju séu rofin.
Það er því ekki að undra þótt demókratar hafi
sitthvað við tilefningar Bush að athuga, en auk
augljósra tengsla við Repúblikanaflokkinn telja
þeir fjórmenningana standa fyrir íhaldssöm gildi
sem frjálslyndum mönnum eru sem eitur í beinum.
En forsetinn er þó talinn hafa sýnt pólitíska
kænsku með tilnefningu Roger Gregory, hörunds-
dökks dómara sem Bill Clinton setti í embætti til
eins árs og repúblikanar mótmæltu á sínum tíma,
auk annars blökkumanns, karls af suður-amerísk-
um uppruna og þriggja kvenna. Demókratar ættu
erfitt með að mótmæla tilnefningum þeirra.
Forsetinn lét ennfremur vera að tilnefna þrjá af-
ar umdeilda menn, sem demókratar höfðu sett sig
eindregið upp á móti; fulltrúadeildarþingmanninn
Christopher Cox og tvo aðra kunna íhaldsmenn. Þó
var haft eftir einum af ráðgjöfum forsetans að þeir
yrðu bara tilnefndir í dómaraembætti síðar.
Harðar deilur í vændum um hæstarétt
Um 100 af 844 stöðum alríkisdómara eru eða
verða senn lausar, en það þýðir að Bush hefur á
næstunni tækifæri til að skipa sína menn í 13%
embættanna. Því þykir ljóst að frekari átök um
dómaraskipanir séu í uppsiglingu.
Að minnsta kosti þrír hæstaréttardómarar eru
þar að auki líklegir til að láta af störfum áður en
kjörtímabil Bush er á enda runnið og deilan um
skipun alríkisdómaranna er aðeins talin forsmekk-
urinn að því sem þá er í vændum. Víst er að með til-
nefningum Bush gæti hlutfallið í réttinum breyst
þannig að íhaldsmenn, sem eru til dæmis mótfalln-
ir rétti kvenna til fóstureyðinga, réttindum sam-
kynhneigðra og jákvæðri mismunun, kæmust í
meirihluta.
The Wall Street Journal birti í gær sögu sem
varpar ljósi á alvarleika málsins. Bush er sagður
hafa boðið Robert Strauss, gömlum þungavigtar-
manni demókrata frá heimaríki sínu, Texas, í Hvíta
húsið á fyrstu dögunum í forsetaembættinu og beð-
ið hann að gefa sér aðeins eitt ráð í vegarnesti.
Strauss er sagður hafa svarað: „Farðu rakleitt upp
í hæstarétt og segðu dómurunum að þeir geti ekki
látið af störfum. Þú hefur nefnilega ekki efni á því
að lenda í deilum vegna skipunar hæstaréttardóm-
ara á fyrsta ári þínu í embætti.“
Miklar deilur um skipun dómara í uppsiglingu í Bandaríkjunum
Demókratar mótmæla til-
nefningum íhaldsmanna
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hét því í kosningabarátt-
unni að tilnefna íhaldssama menn
í dómaraembætti. Nú hefur hann
látið verða af því og uppskorið
hörð mótmæli demókrata.
AP
Bush forseti ásamt John P. Walters (t.v.) í
Rósagarðinum við Hvíta húsið í gær.
SORG og reiði greip um sig í Gana í
gær, er þúsundir vina og vanda-
manna fólks sem tróðst undir í
versta slysi sem orðið hefur á
íþróttakappleik í sögu landsins leit-
uðu í hópi slasaðra og látinna. Um
130 manns létu lífið í fyrradag, er
áhorfendur sem viðstaddir voru
knattspyrnuleik á aðalleikvangi höf-
uðborgarinnar Accra reyndu sam-
tímis að forða sér út, eftir að lögregla
skaut táragassprengjum inn í áhorf-
endaraðirnar í því skyni að stöðva
skrílslæti.
John Kufuor, forseti Gana, hélt
neyðarfund í gær til að reyna að fá
það á hreint hvort rétt væri að lög-
reglan hefði með ýktum viðbrögðum
hleypt þeirri atburðarás af stað sem
endaði með þessum ósköpum. Þetta
var í fjórða sinn á einum mánuði,
sem slíkt mannskætt slys verður á
íþróttaleikvangi í Afríku.
Hermenn áttu í gær fullt í fangi
með að halda aftur af þúsundum
manna sem vildu bera kennsl á
skyldmenni í hópi látinna og slasaðra
á þremur sjúkrahúsum í Accra.
Margir leyndu ekki reiði sinni í garð
lögreglunnar. Um 120 ungmenni
gerðu atlögu að lögreglustöð í út-
hverfinu Kotobabi, köstuðu steinum,
flöskum og málmhlutum og hrópuðu
meðal annars: „Lögreglumorðingj-
ar, þið munuð fá þetta borgað!“ Lög-
reglumenn hleyptu af skotum upp í
loftið til að dreifa reiðum múgnum.
Samkvæmt heimildum AFP-
fréttastofunnar létu að minnsta kosti
130 manns lífið í slysinu í fyrradag, en
samkvæmt opinberum tölum sem
heilbrigðisráðuneyti Gana birti var
tala látinna 123. Í tilkynningu ráðu-
neytisins var þó tekið skýrt fram, að
lík nokkurra manna sem létust kynnu
að hafa verið flutt heim af skyld-
mennum án þess að yfirvöldum bær-
ust upplýsingar þar um.
Elisabeth Ohene, talsmaður ríkis-
stjórnar Gana, sagði að svo virtist
sem lögregla hefði brugðist of hart
við, en nefnd yrði skipuð til að rann-
saka atburðarásina.
Járngrindur lokuðu fólk inni
Harmleikurinn varð síðla miðviku-
dags, eftir að Ganameistaraliðið Eik-
arhjörtu vann knattspyrnuleik með
tveimur mörkum gegn einu. Stuðn-
ingsmenn hins liðsins, Kumasi Ash-
anti Kotoko, byrjuðu að rífa upp sæti
í áhorfendastúkunum og grýta þeim
inn á leikvanginn og í átt að stuðn-
ingsmönnum Eikarhjartnanna. Lög-
reglan reyndi að binda enda á skríls-
lætin með því að varpa
táragassprengjum inn í hóp óláta-
belgjanna, en við það brast á ofsa-
flótti. Útgangar leikvangsins, sem á
að rúma 30.000 áhorfendur, voru þó
lokaðir. Það sem gerði ástandið sýnu
verra var að háar járngirðingar
skildu áhorfendasvæðið frá leikvang-
inum sjálfum, sem gerði það að verk-
um að troðningurinn varð þeim mun
meiri þar sem enginn gat hörfað úr
stúkunum inn á leikvanginn. Slíkar
grindur munu ekki samræmast
stöðlum alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins, FIFA.
Knattspyrnusamband Gana aflýsti
deildarmeistarakeppninni eftir
þessa hörmungaratburði.
Heimildir hermdu í gær, að Kufu-
or forseti, sem sjálfur var virkur
knattspyrnumaður á sínum yngri ár-
um og lék með Ashanti Kotoko-lið-
inu, myndi lýsa yfir þriggja daga
þjóðarsorg.
Talsmaður FIFA í París lét svo
ummælt í gær, að sennilega myndu
þessir atburðir hafa áhrif á áform
sem uppi eru um að halda heims-
meistaramótið í knattspyrnu í Afríku
á árinu 2010.
Lögregla
gagnrýnd
fyrir mistök
Reuters
Á þessari sjónvarpsmynd sjást áhorfendur í efri stúkum leikvangsins í Accra flýja undan táragasi í fyrrakvöld.
Accra. AFP, AP.
Um 130 manns fórust í harmleiknum á knattspyrnuleikvanginum í Afríkuríkinu Gana
MANNRÉTTINDASAMTÖK
létu í gær í ljósi áhyggjur af því
að tjáningarfrelsi væri í voða í
Hong Kong, eftir að kínversk
stjórnvöld brutu á bak aftur mót-
mæli vegna komu forseta lands-
ins, Jiang Zemin, á alþjóðlega
efnahagsráðstefnu í borginni.
Þriggja daga ráðstefnunni lauk
í gær, en hana sótti meðal annars
Bill Clinton, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti. Jiang Zemin ávarp-
aði ráðstefnuna á þriðjudag og
varð fjöldi manna til að mótmæla
komu hans, þar á meðal lýðræð-
issinnar og meðlimir trúarhreyf-
ingarinnar Falun Gong. Lögregla
kom í veg fyrir að friðsamir mót-
mælendur gætu komið skoðunum
sínum á framfæri og var sögð
hafa tekið einkar harkalega á
meðlimum Falun Gong. Hreyf-
ingin er bönnuð í Kína en hefur
verið leyft að starfa í Hong Kong.
Alþjóðaráðstefna í Hong Kong
Mótmæli brotin
á bak aftur
Hong Kong. AFP, AP.
FJÓRIR Svíar og jafnmargir
Norðmenn munu keppa um
það hvor hópurinn verður
fljótari á skíðum yfir Græn-
landsjökul í maí. Báðir hóparn-
ir hyggjast reyna að slá núver-
andi met, sem er 11 dagar og
16 klukkustundir. Leiðin er
rétt um 600 km og liggur frá
Syðri-Straumfirði til Amm-
assalik.
Svíarnir sem munu reyna
við metið eru allir 27 ára og
gegndu herþjónustu saman,
voru í fallhlífahersveitinni, að
því er segir í frétt TT-frétta-
stofunnar. Einn þeirra, Henrik
Rünell, hefur áður sett heims-
met í göngu á Norðurpólinn.
Þeir leggja í hann 20. maí nk
og norska liðið um svipað leyti.
Kapphlaup
yfir Græn-
landsjökul
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.