Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 31

Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 31 HIN nytsama og elskulega íð, bútasaumur, virðist mál málanna meðal iðjusamra kvenna nú um stundir, sem rýnirinn hefur orðið meira en var við á undangengnum árum. Eðlilega kom að því að sam- tök áhugafólks á landsvísu væru stofnuð, sem gerðist 28. nóvember á fyrra ári og mættu á stofnfund- inn 150 manns, og þótt félagið sé ekki nema rúmlega hálfs árs gam- alt eru skráðir félagar orðnir 330! Hinar vösku konur láta svo verkin sína merkin, sem er hið eina rétta um skapandi athafnir, þannig hafa þær fyllt sýningarými Ráðhúss Reykjavíkur teppum af öllum mögulegum stærðum og komust færri en vildu. Sýningin stendur stutt og nokkur fljótfærn- isbragur yfir framkvæmdinni í heild, einnig varðandi uppheng- inguna þó engin stórslys hafi átt sér stað, sýningin meira að segja falleg í heildina en nokkuð sund- urlaus, skrifast þó einnig á reikn- ing hins vandmeðfarna rýmis. Engin boðskort send út en sýning- arskrá merkilega skilvirk. Margt má afsaka, þegar um frumraun er að ræða, en leitast við að draga fram kostina. Þannig vísar það frekar til sköpunargleði og mis- kilnings á hinu raunsanna eðli bútasaums, að sumir gerendur fara að tækninni líkt og um hreint málverk eða veggteppi sé að ræða. Rýrir ekki árangurinn í sjálfu sér, en í sumum tilvikum naumast í takt við bútasaumsferlið eins og það er hreinast og ómengaðast. Og þótt skreytikenndin sé á stundum einum of og yfirstærðirnar vafa- samar, þá er merkilega mikið um árangur yfir meðallagi og vel það og það sem meira er um vert koma gild persónueinkenni fram í sum- um teppana. Alveg öruggt að sum þeirra nytu sín betur í öðru og hlý- legra rými þannig að vísun til ein- stakra eftir eina yfirferð og í tíma- hraki er meira en vafasöm. Kemst þó ekki hjá því að viðurkenna að augun leituðu endurtekið til verka eins og nr. 3., Gæsagestir, 2000, eftir Heidi Kristiansen, sem ein- kennist af mjög lífrænu hryni ljósra rauðbleikra millitóna, Crazy Quilt, 2000, eftir Sigrúnu Haralds- dóttur, sem er mjög dularfullt og aðlaðandi í sínu dökka og mjúka yfirbragði, leiðir hugann jafnt að einhverju austrænu og femme fatale, Hringteppið hennar Söru, 2001, eftir Signýu Ólafsdóttur, sem er afar vel og nostursamlega unnið í ríku og formsterku milli- tónahryni, mettað hlýju og elsku, Án titils, 2000, eftir Sigríði Braga- dóttur, sem býr yfir mjög sterkum form- og litrænum byggingarlög- málum er leiða hugann að rúss- nesku konstruktívistunum, loks, Ferningar og þríhyrningar, 2000, eftir Unni Eiríksdóttur sem er af- ar hreint og klárt í form- og lita- hryni. Framtakið í heild mjög virðing- arvert og ber að óska félaginu vel- farnaðar og langlífi. Mislitt Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson Sigrún Haraldsdóttir, Crazy Quilt, 2000. Bragi Ásgeirsson LIST OG HÖNNUN R á ð h ú s R e y k j a v í k u r BÚTASAUMSTEPPI ÍSLENZKA BÚTASAUMS- FÉLAGIÐ Opið virka daga kl. 10–19 og 12–18 um helgar. Til 13. maí. Aðgangur ókeypis. FÉLAG íslenskra há- skólakvenna heldur sinn árlega vorfund í Þingholti á Hótel Holti 17. maí kl. 19.30 Að sögn Geirlaugar Þor- valdsdóttur formanns félagsins hefur skap- ast sú venja und- anfarin 6 ár að kynna á þessum fundum eitt- hvert land innan al- þjóðasamtaka háskóla- kvenna með sérvöldum matseðli og fyrirlestrum um þjóð- félagshætti, menningu og stöðu kvenna í landinu. „Hingað til höfum við kynnt Japan, Mexíkó, Indland, Egyptaland, Kína og Hong Kong. Nú ætlum við að kynna Kanada og verða kanadískir sérréttir á borðum en fyrirlesari kvöldsins verður Guð- jón Arngrímsson og mun hann tala um Vesturfarana. Guðjón er manna fróðastur um landnám Íslend- inga í Kanada og hef- ur skrifað bækur og gert sjónvarpsþætti um þetta efni. Þessir fundir, eins og reynd- ar allir fundir og nám- skeið sem haldin eru á vegum félagsins, eru opnir öllum. Fólk hef- ur sýnt þessum land- kynningarkvöldum okkar mikinn áhuga og hafa færri komist að en vilja. Það er því nauðsynlegt að skrá sig með góðum fyrirvara til að tryggja sér miða,“ segir Geir- laug Þorvaldsdóttir, formaður Félag íslenskra háskólakvenna. Félag íslenskra háskólakvenna Vorfundur helg- aður Kanada Guðjón Arngrímsson ANNA Þ. Guðjónsdóttir opnar sýn- ingu á málverkum í Listasalnum Man, Skólavörðustíg 14, á laugardag kl. 16 og stendur hún til 27. maí. Málverk í MAN LÁRA Bryndís Eggertsdóttir leikur á orgel Hjallakirkju á sunnudag kl. 17. Lára leikur prelúdíu og fúgu í G dúr BWV 541 og Tríósónötu nr. 4 í e moll BWV 528 eftir Johann Seb- astian Bach. Einnig leikur hún IX. þáttinn úr fæðingu frelsarans „La Nativite du Seigneur“ eftir franska orgelleikarann Olivier Messiaën. Lára, sem er fædd árið 1979, lauk 8. stigsprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1998 og lýkur kantorsprófi með 8. stigi í orgelleik frá Tónskóla þjóðkirkjunnar nú í vor. Orgeltónlist í Hjallakirkju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.