Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 38
LISTIR/KVIKMYNDIR
38 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Frumsýningar
DUNGEONS AND DRAGONS Regnboginn
CRIMSON RIVERS Stjörnubíó
SWEET NOVEMBER Bíóhöllin, Kringlubíó,
Nýja bíó Akureyri
BLOW Laugarásbíó, Háskólabíó
POKEMON 3 Bíóhöllin, Kringlubíó, Regnbog-
inn, Nýja bíó Akureyri, Nýja bíó Keflavík
Lalli Johns
Íslensk. 2001. Leikstjóri og handrit: Þorfinn-
ur Guðnason. Lífshlaup síbrotamannsins
Lalla í hálfan áratug, séð með vökulli linsu
eins okkar besta kvikmyndagerðarmanns.
Viðfangsefnið er sérkapítuli út af fyrir sig. Mr.
Johns er flottur á sinn hátt með skopskynið í
lagi. Óborganleg og gráglettin. Háskólabíó.
Memento
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Christopher Nolan. Aðalleikendur: Guy
Pierce, Carrie-Anne Moss, Joe Pantoliano.
Sérlega áhugaverð, um mann með ekkert
skammtímaminni. Frábærlega útsmogin og
úthugsuð, spennandi og fyndin. Bíóhöllin, Bíóborgin, Nýja bíó Keflavík.
Traffic
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Steven Soder-
bergh. Handrit: Stephen Gaghan. Aðalleik-
endur: Michael Douglas, Benicio Del Toro,
Don Cheadle, Luis Guzman. Yfirgripsmikil,
margþætt spennumynd um dópsmyglið frá
Mexíkó til Bandaríkjanna. Gædd mikilli frá-
sagnargleði og flestir kaflarnir trúverðugir í
heimildarmyndarstíl. Bíóhöllin, Bíóborgin.
Billy Elliot
Bresk. 2000. Leikstjórn: Stephen Baldry.
Handrit: Lee Hall. Aðalleikendur: Jamie Bell,
Julie Walters, Gary Lewis. Einföld, falleg og
fyndin mynd um baráttu 11 ára drengs fyrir
að fá að vera hann sjálfur, og pabba hans við
að finna einhverja von. Háskólabíó.
The Gift
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Sam Raimi.
Handrit: Billy Bob Thornton. Aðalleikendur:
Cate Blanchett, Giovanni Riblisi, Keanu
Reeves. Fínasta draugamynd frá Raimi og
Thornton, um konu með skyggnigáfu sem
hjálpar lögreglunni í morðmáli. Frábær leikur,
einkum hjá Riblisi og Blanchett. Háskólabíó.
Krjúpandi tígur – Crouching
Tiger…
Bandaríkin. 2000. Handrit og leikstjórn: Ang
Lee. Mögnuð ástarsaga frá Lee úr gamla
Kína, sem yfirvinnur þyngdarlögmálið í glæsi-
legum bardagaatriðum. State and Main
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit David
Mamet. Aðalleikendur Alec Baldwin, William
H. Macy. Skondin og skemmtileg mynd um
þegar stjörnur ráðast inn í smábæ og setja
allt á annan endann. Frábær leikarahópur en
Philip Seymour Hoffman er bestur. Háskólabíó, Regnboginn.
102 Dalmatians
Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Kevin Lama.
Handrit: Dodie Smith. Aðalleikendur: Glenn
Close, Alice Evans, Gerard Depardieu. Það
sópar að Close sem leikur Krúellu hina ægi-
legu af sannfærandi fítonskrafti og hundarnir
eru afbragð. Gott fjölskyldugrín. Bíóborgin, Kringlubíó.
Kirikou og galdrakerlingin
Frönsk. 1998. Leikstjórn og handrit: Michel
Ocelot. Aðalraddir: Óskar Völundarson, Stef-
án Karl Stefánsson, Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir. Einfalt ævintýri um gott og illt í frum-
skógum svörtustu Afríku. Góð fyrir yngstu
börnin. Háskólabíó.
Leiðin til Eldorado
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Eric Bergeron.
Handrit: Don Paul. Teiknimynd. Segir frá
tveimur svindlurum sem finna gulllandið El
Dorado. Útlitið fullkomið, eins og vænta má,
hið sama er ekki hægt að segja um söguna
eða tónlistina. Bíóhöllin.
Maléna
Ítölsk. Leikstjórn og handrit: Giuseppe Torna-
tore. Aðalleikendur: Monica Bellucci, Gius-
eppe Sulfaro. Leikstjórinn reynir að halda sig
í hjólförum Paradísarbíósins, en spólar nokk-
uð í ljúfsárri endurminningu unglingaásta.
Regnboginn.
Men of Honor
Bandarísk. 2000. Leikstjóri George Tillman,
Jr. Handrit: Scott Marshall Smith. Aðalleik-
endur: Robert De Niro, Cuba Gooding, Jr.,
Charlize Theron. Gamaldags mynd um þrá-
kálf sem brýtur blað í sögu sjóhersins og
kemst til metorða þar sem lituðum var áður
úthýst. De Niro og Gooding Jr. kraftmiklir og
sperrtir. Regnboginn.
Miss Congeniality
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Donald Petrie.
Handrit: Mark Lawrence. Aðalleikendur:
Sandra Bullock, Benjamin Bratt, Michael
Caine. Prýðileg gamanmynd um FBI-löggu
sem tekur þátt í fegurðarsamkeppni gegn
vilja sínum. Bíóhöllin.
Nýi stíllinn keisarans – The
Emperor’s New Groove
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Dindal.
Handrit: Thomas Schumacher. Það kveður
við nýjan tón í nýjustu Disneymyndinni, sem
fjallar um spilltan keisara sem breytist í
lamadýr og lærir sína lexíu. Bráðfyndin mynd
fyrir börn og fullorðna. Bíóhöllin, Kringlubíó, Regnboginn.
Pay It Forward
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mimi Leder.
Handrit: Leslie Dixon. Aðalleikendur: Kevin
Spacey, Helen Hunt, Haley Joel Osment.
Mynd um strák sem vill breyta heiminum, er
byggð á góðri og fallegri hugmynd. Þótt farið
sé yfir strikið í væmni hefur hún marga góða
punkta og leikurinn auðvitað afbragð. Bíóborgin.
Save the Last Dance
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Thomas Carter.
Handrit: Duane Adler. Aðalleikarar: Julia Stil-
es, Sean Patrick Thomas. Unglingamynd um
ballerínuna Söru sem lærir hipp hopp hjá
kærastanum. Reynt að taka á of mörgu í
mynd sem hefur þó ýmsa ágæta punkta og
leikararnir stórfínir. Kringlubíó, Háskólabíó.
Enemy At the Gates
Þýsk/Bresk. 2001þ Leikstjóri og handrit:
Jean-Jacques Annaud. Aðalleikendur: Jude
Law, Joseph Fiennes, Ed Harris. Nokkrar góð-
ar stríðssenur, tónlist og tjöld. Vont handrit
og Hollywoodtilbeiðsla. Laugarásbíó.
The Little Vampire
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Uli Edel. Hand-
rit: Angela Sommer-Brodenburg. Aðalleik-
endur: Jonathan Lipnicki, Richerd E. Grant,
Alice Krige. Þótt sagan af tveim vinum, hvor-
um úr sínum heiminum, sé góð í grunninn er
hún ekki nógu vönduð. Bíóhöllin.
Thirteen Days
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Roger Donald-
son. Handrit: Philip D. Zelikow. Aðalleik-
endur: Kevin Costner, Bruce Greenwood.
Vandlega gerð kvikmynd um framgang mála í
Hvíta húsinu í Kúbudeilunni 1962. Fróðleg,
en frekar leikin heimildarmynd en bíómynd.
Bíóhöllin.
Dracula
Bandarísk. 2000. Leikstjóri og handrit: Pat-
rick Lussier. Aðalleikendur: Justine Waddell,
Gerard Butler, Jonny Lee Miller. Fer bærilega
af stað en bætir alls engu nýju við eftir að
greifinn fer á stjá. Stjörnubíó.
Exit Wounds
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Andrzej Bartk-
owiak. Handrit Martin Keown. Aðalleikendur:
Steven Seagal, DMX. Bíóhöllin, Kringlubíó.
The Wedding Planner
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Adam Shank-
man. Handrit: Pamela Falk. Aðalleikendur:
Jennifer Lopez, Matthew McConaughey,
Bridget Wilson. Rómantísk gamanmynd sem
hefur ekki erindi sem erfiði, er dæmigerð
Hollywoodvella. Laugarásbíó.
Cherry Falls
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Geoffrey Wright.
Handrit: Ken Selden. Aðalleikendur: Brittany
Murphy, Michael Biehn, Gabriel Mann Leri.
Unglingahrollur, gerður samkvæmt formúl-
unni. Upp úr stendur agalegur leikur Micha-
els Biehn í hlutverki lögreglustjóra.
Regnboginn.
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir
UNGI Pokémon-þjálfarinn Ash
Ketchum og vinir hans ferðast til
hins fallega fjallabæjar Greenfield
þar sem þeir kynnast Unown, ein-
hverju undarlegasta fyrirbæri allr-
ar Pokémon-sögunnar.
Þetta er inntakið í þriðju Poké-
mon-myndinni sem frumsýnd er
hér á landi í dag með íslensku tali í
fimm kvikmyndahúsum. Framleið-
andi er Norman Grossfeld en leik-
stjóri Michael Haigney en þeir
gerðu einnig fyrri tvær Pokémon-
myndirnar fyrir bandarískan mark-
að. Þeir hafa verið samstarfsmenn í
fimmtán ár og þekkja vel hvor ann-
an og samstarfið var með miklum
ágætum að þeirra eigin sögn. Þeir
lokuðu sig af í mánuð og skrifuðu
handritið en í þetta sinn eru sagðar
tvær sögur í stað einnar áður.
Lengri myndinni, Spell of the
Unown, fylgir nefnilega 22 mínútna
löng mynd sem heitir Pikatjú og
Pitjú og segir frá ævintýrum Pik-
atjús og Pisjú-bræðranna.
Pokémon-fyrirbærið er hugar-
fóstur japanska náttúruunnandans
Satoshi Tajiri. Hann safnaði skor-
dýrum þegar hann var lítill og
fylgdist með hvernig þau umgeng-
ust hvert annað og þegar hann tók
að búa til tölvuleiki fyrir Nintendo
varð honum hugsað til hinnar
gömlu söfnunaráráttu sinnar, skor-
dýranna, og úr varð tölvuleikurinn
Pokémon.
Þegar gerð var bíómynd byggð á
tölvuleiknum sló hún öll aðsókn-
armet í Japan og varð gríðarlega
vinsæl í Bandaríkjunum en greini-
legt var að hinir ungu aðdáendur og
notendur tölvuleiksins höfðu mikinn
áhuga á að sjá hetjur sínar á hvíta
tjaldinu.
Úr öllu saman varð einskonar
Pokémon-æði. Leikirnir seldust
eins og heitar lummur, til varð
sjónvarpsþáttur um hetjurnar í
leiknum, bækur voru skrifaðar
byggðar á ævintýrum Ash og
félaga, tónlist og myndbönd fylgdu í
kjölfarið og nú hafa verið gerðar
þrjár bíómyndir.
Í nýju myndinni segir frá pró-
fessornum Spencer Hale, sérfræð-
ingi í Pokémon. Hann hefur unnið
að rannsóknum á dularfullum Poké-
mon sem kallast Unown. Hann er
gerður úr 26 einstaklingum sem eru
í laginu eins og stafirnir í stafrófinu
og geta séð drauma mannskepn-
unnar, hugsanir hennar og tilfinn-
ingar og breytt þeim í veruleika.
Svo gerist það að prófessorinn
hverfur skyndilega og enginn veit
hvað um hann hefur orðið. Ash
Ketchum, sem er á ferð með Brok
og Mistí ásamt Pikatjú, fréttir af
hvarfi prófessorsins þegar hann
kemur til bæjarins Greenfield og
ákveður að gera sitt til þess að pró-
fessorinn megi finnast.
Leikraddir: Grímur Gíslason, Friðrik
Friðriksson, Atli Rafn Sigurðarson,
Vigdís Pálsdóttir, Esther Casey, Arnar
Jónsson, Sturla Sighvatsson, Harald G.
Haralds, Kristrún Hauksdóttir, María
Ellingsen, Ólafur Egilsson ofl. Leik-
stjóri er Michael Haigney.
Enn frekari ævintýri Ash
Úr framhaldsmyndinni Pokémon 3 sem frumsýnd er á fimm stöðum.
Bíóhöllin, Kringlubíó, Regnboginn, Nýja
bíó Keflavík og Nýja bíó Akureyri frum-
sýna teiknimyndina Pokémon 3 með ís-
lensku tali.
Rannsóknarlögreglumaðurinn
Pierre Niemans (Jean Reno) og
lögreglumaðurinn Max Kerkerian
(Vincent Cassel) rannsaka tvö að-
skilin sakamál sem gerir þá um
síðir að samstarfsmönnum og úr
verður hið dularfyllsta morðmál,
óhugnanlegt og grimmdarlegt.
Pierre rannsakar hryllilegt morð
sem framið hefur verið í litlum há-
skólabæ, Guernon, sem stendur
við rætur frönsku Alpanna. Sama
dag og morðið er framið er lög-
reglumaðurinn og fyrrverandi bíla-
þjófurinn Max að rannsaka annað
mál í 300 kílómetra fjarlægð frá
Guernon. Nýnasistar hafa vanvirt
grafhvelfingu en í henni er að
finna nafn stúlkubarns sem hvarf
fyrir tveimur áratugum.
Fátt virðist sameiginlegt með
þessum tveimur málum en þegar á
líður leiða Pierre og Max saman
hesta sína. Fórnarlömb morðingja
taka að hrannast upp og fyrr en
varir eru félagarnir tveir komnir
upp í hæstu tinda Alpafjallanna
þar sem á sér stað blóðugt og mis-
kunnarlaust uppgjör.
Þannig er söguþráðurinn í
franska tryllinum Crimson Rivers
sem frumsýndur er í Stjörnubíói í
dag. Með aðalhlutverkin fara Jean
Reno og Vincent Cassel en leik-
stjóri er Mathieu Kassovitz.
Crimson Rivers er byggð á sam-
nefndri spennusögu sem kom út í
Frakklandi árið 1998. Framleið-
endur og leikstjórar sýndu fljótt
áhuga á að kvikmynda hana en
höfundur bókarinnar og maðurinn
sem skrifaði handrit myndarinnar,
Jean-Christophe Grange, vissi allt-
af hvern hann vildi sem leikstjóra;
Mathieu Kassovitz. Mathieu hafði
nokkru áður vakið mikla athygli í
Frakklandi fyrir mynd sína Hatur
eða La Haine og Grange þótti
hann kjörinn til þess að stýra
spennumynd byggðri á bók sinni.
Aðrar myndir Kassovitz eru
Métisse og Assassins en hann er
einn af áhugaverðustu leikstjórum
Frakka í dag. Þá er leikarinn Jean
Reno líklega einn þekktasti franski
kvikmyndaleikari samtímans.
Hann hefur leikið í fjöldanum öll-
um af frönskum myndum auðvitað,
helsti samstarfsmaður hans er Luc
Besson, en hann hefur einnig leik-
ið í Hollywood-myndum hin síðari
ár. Má þar nefna myndir eins og
Mission: Impossible, Ronin, þar
sem hann lék á móti Robert De
Niro, Godzilla, Leon og nú í sumar
kemur hann fram í spennumynd-
inni Rollerball.
Þekktustu myndir Reno í
Frakklandi eru Le Dernier Com-
bat, Subway, Nikita og Les Visi-
teurs.
Vincent Cassel er efnilegur leik-
ari af yngri kynslóð Frakka. Hann
hefur áður starfað með Kassovitz
en Cassel fór með eitt aðalhlut-
verkið í Hatri. Aðrar myndir hans
eru m.a. Jóhann af Örk (útgáfa
Lucs Bessons) og Le Doberman.
Leikarar: Jean Reno og Vincent Cass-
el. Leikstjóri: Mathieu Kassovitz
(Hatur, La Haine, Métisse og Assass-
ins).
Eltingaleikur í Ölpunum
Jean Reno mundar byssuna í frönsku spennumyndinni Crimson Rivers.
Stjörnubíó frumsýnir frönsku spennu-
myndina Crimson Rivers með Jean Reno
í aðalhlutverki. Leikstjóri er Mathieu
Kassovitz.