Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 49
Sæl værak
ef sjá mættak
Búrfell og Bala
báða Lóndranga,
Aðalþegnshóla
ok Öndvert nes.
Heiðarkollu
ok Hreggnasa,
Dritvík og möl
fyr durum fóstru.
(Vísa Helgu – Bárðarsaga
Snæfellsás)
Þegar ég fór að leita eftir ein-
hverjum línum til að láta fylgja
þessum skrifum, þá var þetta eitt
af því fyrsta sem fyrir augun bar.
Snæfellsnesið og öll þess náttúra
var alltaf sterkur þáttur í lífi Ástu
Jónsdóttur. Á Arnarstapa ólst hún
upp í faðmi ástríkrar fjölskyldu.
Og þar var framtíðin ráðin með
kynnum hennar og Péturs. Og þar
voru líka bundin vinabönd sem ent-
ust æfina út.
Betri vinkonur en mömmu og
Ástu er vart hægt að hugsa sér.
Trygglyndi þeirra og virðingu
hvorrar fyrir annarri var hollt að
kynnast. Gleði mömmu og tilhlökk-
un á vorin þegar von var á Ástu
smitaði út frá sér, og það var eins
og hún kæmi með sumarið og sól-
ina með sér. Hlusta á þær rifja upp
æskuárin og kynni sín af fólki,var
fróðleikur. Vísur um mannlífið
undir Jökli kunni Ásta. Og eflaust
SIGURÁST
JÓNSDÓTTIR
✝ Sigurást (Ásta)Jónsdóttir fædd-
ist 28. ágúst 1914 á
Berghóli á Arnar-
stapa. Hún lést 26.
apríl síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Fossvogs-
kirkju 3. maí.
hafa fleiri en ég fengið
frá henni gullkorn á
tímamótum lífsins.
Hjartanlegar mót-
tökur hjá henni og
Pétri á Barónstígnum
gleymast aldrei. Alltaf
velkomin og veislu-
matur á borðum. Kær-
leikur Ástu til okkar
systkinanna var eng-
um dulinn og fyrir
hönd okkar þakka ég
allar góðar stundir.
Elsku Gunna,
Tommi, Ásta, Helga
og Hrefna, megi guð
vera með ykkur á þessum erfiðu
stundum.
Minning um yndislega konu lifir.
Sigrún Ársælsdóttir.
Ásta frænka mín er dáin komin á
efri ár. Margar minningar á ég um
Ásta frænku mína eins og hún var
ávallt kölluð. Hún var föðursystir
mín, vinkona og hluti af mínu lífi
frá því ég var barn. Mér er því
bæði ljúft og skylt að minnast
hennar í þessum fátæklegu orðum.
Ásta frænka var sjálfmenntuð kona
og með afburðum fróð og með stál-
minni. Það var eins og fletta upp í
alfræðiorðabók að tala við hana.
Það sem hún heyrði eða sá var
geymt. Hún mundi öll símanúmer,
mannanöfn og svo var hún ættfróð.
Ásta frænka var mikil handvinnu-
kona og var alltaf síprjónandi. Þeg-
ar ég var barn bjó hún til nælur
fyrir mig og Gunnu systur. Næl-
urnar voru vettlingar sem hún
prjónaði með stoppunálum og það
tók hana langan tíma að prjóna
þessa örsmáu vettlinga. Ásta
frænka hugsaði vel um sína nán-
ustu og vini. Hún fylgdist vel með
öllum fram á síðasta dag. Um-
hyggja hennar fyrir mér og mínum
var dýrmæt og hún hringdi oft til
að spyrja um líðan. Ég á eftir að
sakna að heyra ekki í henni.
Bið ég algóðan guð að blessa
minningu Ástu frænku og votta
fjölskyldu hennar samúð mína.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Svanborg Sumarrós
Tryggvadóttir.
Elsku amma mín, það
er komið að kveðju-
stund. Það er svo sárt að
þú sért farin af þessari
jörð en ég hugga mig við
þá von að þú munir vaka
yfir mér og passa mig og ástvini mína í
framtíðinni. Kannski áttu eftir að fæð-
ast aftur í öðrum líkama því að sál þín
var enn ung þó að líkami þinn hafi ver-
ið orðinn gamall. Þú varst svo yndisleg
manneskja, amma mín, hjartahlý og
góð. Ég man eftir heimsóknum mínum
á Hofsvallagötuna þegar ég var lítil.
Meðan þú og mamma sátuð inni í eld-
húsi lékum við Fríða systir okkur inni í
borðstofunni að alls konar smádóti
sem þú áttir. Spádómshæfileikar þínir
eru mér líka hátt í minni. Ég man eftir
stórum fjölskylduboðum þar sem allar
konurnar biðu í röðum inni í eldhúsi
með kaffibollana sína, alveg óðar í að fá
að vita hvað framtíðin bæri í skauti sér.
Ég var svo stolt af því að eiga ömmu
með svona sjaldgæfan hæfileika, já,
amma mín var spákona. Það var alltaf
nóg af selskap og ýmsum ferðalögum í
bollunum þínum. Ég fékk að njóta þess
heiðurs að búa hjá þér í íbúðinni þinni á
Hofsvallagötu. Ég bjó þar í ár þegar ég
var níu og tíu ára og líkaði það vel. Þótt
að það hafi verið þröng á þingi þennan
tíma og ég, mamma og pabbi höfum
þurft að deila herbergi saman var
þetta besti staður sem ég hef nokkurn
tímann búið á. Mér þykir svo vænt um
þetta hús og stóra portið í miðjunni,
HALLFRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Hallfríður Magn-úsdóttir (Fríða)
fæddist á Hellissandi
30. júlí 1918. Hún
lést á Elliheimilinu
Grund 27. apríl síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá
Fossvogskirkju 7.
maí.
þér þótti örugglega líka
vænt um það fyrst að þú
bjóst þar nánast alla
sambúð ykkar afa og al-
veg þangað til þú fluttir
á Grund. Aldrei hef ég
kynnst jafn kátri mann-
eskju og þér, amma mín.
Þú lést áhyggjur og erf-
iðleika ekki ná tökum á
þér og varst alltaf í góðu
skapi. Á þessum 18 ár-
um sem ég hef þekkt þig
man ég ekki eftir að hafa
séð þig í vondu skapi né
man ég eftir einu nei-
kvæðu orði koma úr
munni þínum. Þú varst samt mjög
sorgmædd þegar afi dó enda veit ég
ekki betur en að þið hafið átt mjög
lukkulegt hjónaband. Þú vildir öllum
vel og varst mjög barngóð, ég tók eftir
því í hvert skipti sem ég kom með
Heru Mist í heimsókn til þín og líka á
jólum síðustu ára þegar þú hafðir svo
gaman af því að tala við Heiðu Maríu í
rímum.
Elsku amma, þótt ég sé mjög sorg-
mædd yfir dauða þínum er ég ánægð
yfir því að þú fékkst að yfirgefa þenn-
an heim án þess að þurfa að þjást mik-
ið. Ég er svo þakklát fyrir að hafa náð
að koma til þín og vera hjá þér á loka-
stundu þinni í þessu jarðneska lífi.
Kæra amma, ég elska þig svo heitt
og sakna þín svo mikið. Ég kveð þig
nú, elsku amma mín, og vona að þú
sért búin að hitta Benna afa, Magnús
frænda og Guðjón Finn, bróður minn,
á nýja heimilinu þínu í himnaríki.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa.)
Þín dótturdóttir,
Borgný Haraldsdóttir.
TIL SÖLU
Blómabúð til sölu
Vegna sérstakra aðstæðna er ágæt blómabúð
í austurhluta Reykjavíkur til sölu. Verð 3,0 millj.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
Ársalir, fasteignamiðlun,
Lágmúla 5, sími 533 4200.
Garðplöntusala
Ísleifs Sumarliðasonar,
Bjarkarholti 2, Mosfellsbæ
auglýsir tré, rósir og runna.
Opið 10—19, sími 566 7315.
Opinn fundur
umhverfisráðuneytis og bæjarstjórnar
Seyðisfjarðar um hreinsun olíu úr
El-Grillo laugardaginn 12. maí 2001 í
Félagsheimilinu á Seyðisfirði kl. 16.00.
Dagskrá:
Fundarstjóri:
Jónas A. Þ. Jónsson, forseti bæjarstjórnar.
Setning: Ólafur Sigurðsson, bæjarstjóri.
Kynning á stöðu mála: Siv Friðleifsdóttir,
umhverfisráðherra.
Kynning á útboðs- og tilboðsferli:
Birgir Guðmundsson, Ríkiskaupum.
Kynning á framkvæmd hreinsunar:
Fulltrúar frá Riise Underwater
Enginering, Noregi (RUE).
Pallborðsumræður.
Þátttakendur í pallbori:
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, sem
jafnframt stjórnar umræðum, Ólafur Sigurðs-
son, bæjarstjóri, Ingimar Sigurðsson, formaður
nefndar um El-Grillo, Birgir Guðmundsson,
frá Ríkiskaupum og fulltrúi frá RUE.
Erindi fulltrúa RUE og þátttaka hans í pallborði
verður túlkuð á íslensku.
NAUÐUNGARSALA
STYRKIR
Minningarsjóður
Heiðar Baldursdóttur
Stjórn Minningarsjóðs Heiðar Baldursdóttur
auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum.
Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á
sviði sérkennslu, blöndun fatlaðra og ófatlaðra
barna og boðskipta. Í umsókn skulu koma fram
eftirfarandi upplýsingar:
1. Greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum
þess og áætlaðri framkvæmd.
2. Áætlun um upphaf og lok verkefnis og/eða
áfanga.
3. Sundurliðuð kostnaðaráætlun.
4. Aðrar upplýsingar, s.s. fyrirhuguð kynning
og nýting á niðurstöðum.
Greinargerð skilist til sjóðstjórnar að loknu
verkefni.
Umsóknir skulu berast stjórn sjóðsins fyrir
29. maí og skal senda þær til formanns
sjóðstjórnar, Þóru Kristinsdóttur, Kennara-
háskóla Íslands.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 1825118½ Vf.
I.O.O.F. 12 1825118½ Lf.
Sunnudagsferð 13. maí kl. 13:
Stóra-Sandvík — Eldvörp —
útilegumannakofarnir. 2.
áfangi Reykjavegarins. Aðeins
um 3 klst. ganga. Gefum öllum
tækifæri til að byrja núna í þess-
ari spennandi 10 ferða rað-
göngu.
Minjaferð í Krýsuvík og hvala-
skoðun er frestað.
Sjá heimasíðu: www.utivist.is
og textavarp bls. 616.
Fuglaskoðunarferð laugard.
12. maí kl. 9:00. Sést hafa allt
að 79 teg. Birtist sú 80. núna?
Fararstjóri Einar Þorleifsson,
verð 1.800. Samstarf FÍ, Hins
íslenska náttúrufræðifélags og
Fuglaverndarfélags Íslands. Allir
velkomnir.
Þorlákshöfn — Selvogur 13.
maí kl. 10:30. Um 4 klst ganga.
Fararstjóri Sigurður Kristjáns-
son, verð 1.800. Brottför í báðar
ferðir frá BSÍ og Mörkinni 6.
Hvítasunna með FÍ: Eiríksjök-
ull 1.—3. júní, Hvannadals-
hnúkur 1.—4. júní. Pantið
strax á skrifstofu, s. 568 2533.
Aukaferð á Víknaslóðir 23.
júlí, fólk af biðlistum hafi sam-
band sem fyrst. Aukatrússferð
um Laugaveginn í júlí.
www.fi.is, textavarp RUV bls. 619.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp á Höfðabraut 6, Hvammstanga,
mánudaginn 21. maí 2001 kl. 15.00:
JM 172 Dodge, árg. 1985 KJ 110 Massey Ferguson
RP 200 Welger árg. 1994
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Blönduósi, 10. maí 2001.
NAUÐUNGARSALA
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Nauðungarsölur
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu
1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 17. maí 2001 kl. 14.00 á eftir-
töldum eignum:
Borgarflöt 1A, Sauðárkróki, þingl. eign Lóns eignarhaldsfélags ehf.
Gerðarbeiðandi er Byggðastofnun.
M/b Bylgja SK-6, skrnr. 1819, þingl. eign Hofskeljar ehf. Gerðarbeið-
andi er Veiðarfærasalan Dímon hf.
Byrgisskarð, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Leifs Hreggviðs-
sonar. Gerðarbeiðandi er Búnaðarbanki Íslands hf.
Fornós 4, Sauðárkróki, þingl. eign Hlyns Guðmundssonar og Guðnýjar
Loftsdóttur. Gerðarbeiðandi er Alexander mikli hf.
Miðsitja, Akrahreppi, þingl. eign Jóhanns Þorsteinssonar og Sólveigar
Stefánsdóttur. Gerðarbeiðandi er Íbúðalánasjóður.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
9. maí 2001.
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Birting afmælis- og minningargreina