Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 65
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 65
K
O
R
T
E
R
fyrra að öðru leyti en því að nú þurfa
öll hross sem koma til dóms að vera
einstaklingsmerkt, þ.e. frostmerkt
eða örmerkt. Skal þeirri merkingu
vera lokið þegar hrossin eru skráð á
sýningarnar.
Nú verður ekki miðað við sér-
staka lágmarkseinkunn inn á yfir-
litssýningarnar heldur verður heim-
ilt að mæta á þær með öll hross sem
verða hæfileikadæmd.
Þá er minnt á að allir stóðhestar
sem koma til sýningar skulu blóð-
prófaðir með tilliti til ætternis. Þessi
ætternispróf eru nú umráðamönn-
um stóðhesta að kostnaðarlausu
vegna rannsóknarverkefnis um
erfðabreytileika í íslenska hrossa-
stofninum.
Kynbótasýningar verða sem hér
segir sumarið 2001:
Reykjavík 21.–27. maí
Hella 28. maí–9. júní
Vindheimamelar 30. maí–2. júní
Húnaver 5.–6. júní og 8. júní
Melgerðismelar 7.–9. júní
Hornafjörður 11. júní
Stekkhólmi 13.–15. júní
Borgarnes 11.–16. júní
FM á Vesturlandi 6.–8. júlí.
Síðsumarsýningar:
Vindheimamelar 3.–4. ágúst
Borgarnes 10. ágúst
Hella 27.–31. ágúst.
Allar nánari upplýsingar um kyn-
bótasýningarnar eru á
www.bondi.is/wpp/bondi.nsf/pages/
hrossaraekt.
NÚ styttist óðum í að eigendur kyn-
bótahrossa leiði hross sín fyrir dóm
og verður fyrsta kynbótasýningin,
fyrir utan vorsýningarnar um dag-
inn, í Reykjavík dagana 21.–27. maí
nk. Alls verður boðið upp á sýningar
á átta stöðum á landinu fyrir utan
Fjórðungsmótið á Kaldármelum í
byrjun júlí. Auk þess verða síðsum-
arsýningar í ágúst á þremur stöðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ágústi Sigurðssyni hrossaræktar-
ráðunauti á heimasíðu Bændasam-
takanna er ekki fyrirfram vitað um
þátttöku í sýningunum og verður
sýningardögum fjölgað ef hún verð-
ur mikil.
Skipulag og framkvæmd sýning-
anna verður með sama sniði og í
Styttist í kynbóta-
sýningar sumarsins
UNDIRBÚNINGUR heims-
meistaramótsins í Austurríki
gengur samkvæmt áætlun og
er búist við 150 þátttakendum
á mótinu sem fer fram á
Stadl Paura 12.–19. ágúst.
Eftirfarandi þátttökuþjóðir
innan FEIF hafa tilkynnt
þátttöku: Ísland, Danmörk,
Þýskaland, Færeyjar, Finn-
land, Frakkland, Bretland,
Ítalía, Lúxemborg, Holland,
Noregur, Austurríki, Svíþjóð,
Sviss og Bandaríki Norður-
Ameríku.
Samkvæmt upplýsingum á
heimasíðu FEIF hafa verið
gerðar sérstakar ráðstafanir
vegna bresku þátttakend-
anna. Ef svo færi að vegna
gin- og klaufaveikinnar yrði
hrossum frá Bretlandi ekki
leyft að koma inn í Austurríki
verður bresku þátttakendun-
um útveguð hross í Austur-
ríki.
Gæti
þurft að
útvega
Bretum
hross fyr-
ir HM