Morgunblaðið - 11.05.2001, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 11.05.2001, Qupperneq 72
DAGBÓK 72 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Sten Odin kemur í dag, Wilke, Mánafoss og Dirk-Dirk fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss, Reksnes og Novos Passky fóru í gær. Mannamót Aflagranda 40. Handa- vinnusýning. Sýning á munum sem unnir hafa verið í félags- og þjón- ustmiðstöðinni Afla- granda 40 verðu í dag og á morgun 11. og 12. maí frá kl. 13–17, bútasaum- ur, útsaumur, fatasaum- ur, hekl, prjón, myndlist, leirlist, postulínsmáln- ing, bókband og fleira. Tónlista alla dagana, danssýning, hátíðarkaffi frá kl. 13–17 báða dag- ana. Allir hjartanlega velkomnir. Vegna handavinnusýning- arinnar fellur boccia nið- ur mánudaginn 14. maí, og bingó föstudaginn 11. maí. Árskógar 4. Kl. 13 opin smíðastofan, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9 bókband, kl. 9– 16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 13 vefnaður og spilað í sal. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðjud. og fimmtud. kl. 13–16.30, spil og föndur. Pútttímar í íþróttahús- inu að Varmá kl. 10–11 á laugard. Jóga kl. 13.30– 14.30 á föstud. í dval- arheimilinu Hlaðhömr- um. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014 kl. 13–16. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Kl. 9 böðun, hárgreiðslustofan og handavinnustofan op- in, kl. 9.45 leikfimi, kl. 13.30 gönguhópur. Félagsstarfið Furu- gerði1. Kl. 9 aðstoð við böðun, smíðar og út- skurður, kl. 12 hádeg- ismatur, kl .14 bingó kl. 15 kaffiveitingar. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjá- bakka) kl. 20.30. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 „opið hús“, spilað á spil. Messa fellur niður í dag, en verður föstudaginn 18. maí. Handavinnusýn- ing, basar og kaffisala verður laugard. 12. og sunnud. 13. maí, opið kl. 13–17. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Mánud. 14. maí: boccia kl. 10.30, leikfimi kl. 12.10, skyndi- hjálp kl. 14, þriðjudag 15. maí: skyndihjálp kl. 14. Miðvikudag 16. maí spilað í Holtsbúð kl. 13.30. ATH. breyttan dag. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Tréútskurður í Flens- borg kl. 13 myndment, kl. 13.30 brids. Á morg- un, laugardagsgangan kl. 10. Ferð á Njáluslóðir fimmtudaginn 7. júní nk. Skráning hafinn, allar upplýsingar í Hraunseli sími 555 0142 Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10–13. Matur í hádeginu. Mánudagur: Söngvaka kl. 20. ath. breyttan tíma, óvænt uppákoma. Göngu-Hrólfar koma í heimsókn. Stjórnandi Gróa Salvarsdóttir. Þriðjudaginn 29. maí verður farin stutt vor- ferð í Hafnarfjörð og Heiðmörk. Brottför frá Glæsibæ kl. 13. Leiðsögn Páll Gíslason og Pálína Jónsdóttir. Skráning hafin 6.–8. júní ferð til Vestmannaeyja. Skoð- unarferðir um eyjuna. Gisting á Hótel Þórs- hamri. Nokkur sæti laus. Silfurlínan opin á mánu- dögum og miðviku- dögum kl. 10–12. Ath. Skrifstofa FEB er opin frá kl. 10–16. Upplýs- ingar í síma 588 2111. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9–12 mynd- list, kl. 13 opin vinnustofa, kl. 9.30 gönguhópur, kl. 14 brids. Gerðuberg, kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasalur opinn Veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Allir vel- komnir. Allar upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 13 bókband, kl. 9.15 vefnaður. Vor- sýning á handavinnu unna í félagsheimilinu verður laugardaginn 12. maí og sunnudaginn 13. maí frá kl. 14–18 báða dagana. Á laugardaginn verður auk þess hand- verksmarkaður opinn frá kl. 14–18. Söngvinir taka lagið kl. 15 og lík- amsræktarhópur sýnir kl. 16. Sunnudaginn 13. maí verða hagleiks- smiðjur í gangi frá kl. 15–16 þar sem unnið verður m.a. að jap- önskum pennasaum, postulínsmálum, gler- skurði og vatnslita- málun. Allir velkomnir. Vöfflukaffi. Hraunbær 105. Kl. 9–12 baðþjónusta og út- skurður, kl. 9–17 hár- greiðsla, kl. 9–12.30 bútasaumur, kl. 11 leik- fimi og spurt og spjallað. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 baðþjónusta og hár- greiðsla, kl. 9–12.30 bútasaumur, kl. 11 leik- fimi. Norðurbrún 1. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9–12.30 út- skurður, kl. 10 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 handavinna, kl. 13 sungið við flygilinn, kl. 14.30 dansað í aðalsal. Vorsýning verður í félags- og þjónustu- miðstöðinni dagana 10, 11 og 12. maí frá kl. 13– 17. Sýndir verða munir sem unnir hafa verið í vetur. Tréútskurður, glerlist, postulínsmálun, myndlist og almenn handavinna. Einnig verður kórsöngur, dans- sýning og leikfimi. Föstudaginn 11. og laug- ardaginn 12. maí verður Ragnar Páll við hljóm- borðið frá kl. 13–17. Föstudaginn 11. maí kl. 15 syngja Hvannirnar undir stjórn Sigur- bjargar Petru Hólm- grímsdóttur. Laug- ardaginn 12. maí kl. 15 sýna nemendur Sigvalda dans. Veislukaffi alla dagana. Allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9.30 morg- unstund, Önnur starfs- semi fellur niður. Handavinnusýning verð- ur föstudaginn 11. maí og laugardaginn 12. maí, og er opin frá kl. 13– 16.30 báða dagana. Allir velkomnir. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Spilað kl. 13.15. Allir eldri borgarar vel- komnir. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Rútan á „Syngjandi í rigningunni“ í Þjóðleik- húsinu í kvöld leggur af stað frá Gullsmára kl. 19.20 en frá Gjábakka kl.19.30. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laugardögum. Kiwanisklúbburinn Geysir í Mosfellsbæ heldur spilavist í kvöld kl. 20.30 í félags- heimilinu Leirvogs- tungu. Kaffi og meðlæti. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum (ca 16–25 ára) að mæta með börnin sín á laug- ardögum kl. 15–17 á Geysi, Kakóbar, Að- alstræti 2 (Gengið inn Vesturgötumegin). Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Borgfirðingafélagið í Reykjavík verður með sitt árlega kaffi fyrir 60 ára og eldri á Hallveig- arstöðum sunnudaginn 13. maí. Húsið opnað kl. 14.30. Parkinsonsamtökin á Íslandi halda félagsfund laugardaginn 12. maí nk. í sal Öryrkjabandalags- ins, Hátúni 10, 9. hæð kl. 14. Ásgeir B. Ellertsson, yfirlæknir á Grens- ásdeild, flytur erindi sem kallast hver er með- ferðin á parkinson- sjúkdómnum í dag. Kynning á tímastilltu lyfjaboxi. Skemmtiatriði. Kaffiveitingar. Barðstrendingafélagið hyggst endurvekja sam- komur sínar með skemmtun í Hamraborg 11, Kópavogi, uppi, laug- ardaginn 12. maí kl. 22. Vonast er til að sem flestir mæti. Í dag er föstudagur 11. maí, 130. dagur ársins 2001. Lokadagur, kóngsbænadagur. Orð dagsins: Það sem sáð var í grýtta jörð, merkir þann, sem tekur orðinu með fögn- uði, um leið og hann heyrir það. (Matt. 13, 20.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Víkverji skrifar... VÍKVERJA fannst einkarskemmtilegt að heyra af sjálf- boðavinnu barna við að kenna eldri borgurum á tölvur. Þannig vill til að Víkverji er þess fullviss að sú kyn- slóð barna sem nú er að alast upp hefur allt annað viðhorf til rafræns umhverfis en við hin sem eldri er- um. Þegar fjárfest var í nýrri tölvu á heimili Víkverja fyrir skömmu var ljóst að foreldrarnir höfðu alveg misst það forskot sem þau ímynd- uðu sér að þau hefðu á yngsta fjöl- skyldumeðliminn. Eftir áralanga þjálfun á leikjatölvum af ýmsu tagi – sem var að sjálfsögðu háð öllum þeim takmörkunum sem meðvitaðir foreldrar geta upphugsað – sigldi hann beina leið inn í þann töfraheim sem kynntur var í auglýsinga- bæklingnum. Víkverja fannst það tilfinnanlega sárt, þar sem hann hafði sjálfur gert ítrekaðar tilraunir til að komast á Netið með nýstár- legri „mús“ sem lét illa að stjórn. x x x FYRST komið er inn á hið raf-ræna svið er jafngott að við- urkenna að Víkverji er einn þeirra sem hefur orðið tíðrætt um andleg- an styrk þeirra sem ekki nota far- síma. Sannleikurinn er þó auðvitað sá að hann hefur stundum á neyð- arstundu fengið slík tól lánuð og alltaf átt í mesta basli við að ná sambandi; vaðið í villu í gegnum skipanir, símaskrár og veðurfréttir, í einfaldri tilraun til að hringja á leigubíl. Öðru máli gegnir um fyrrnefndan ungling Víkverja sem loks herjaði gemsa út úr foreldrum sínum um síðustu jól og hefur nú tekist að tæma alla möguleika hans og veltir fyrir sér möguleikum á „kynslóða- skiptum“. x x x EFTIR að Víkverji hafði rekiðmikinn áróður fyrir því að amman í fjölskyldunni lærði að nota tölvupóst (sem hann er blessunar- lega fær um að nota sjálfur) varð Víkverji að viðurkenna að honum varð ekkert ágengt við að kenna ömmu á tölvuna, hvað þá póstkerfið. Það var eins og óræðar tæknilegar skýringar Víkverja væru beinlínis til þess að flækja málið og hreint ekki til þess fallnar að gera þennan eldri nemanda færan um að fóta sig á rafrænum refilstigum. Þegar ung- lingurinn tók kennsluna að sér var eins og öll ljón vikju úr veginum. Hann á því allan heiður af atkvæða- miklum tölvusamskiptum ömmu sinnar, við ættingja víða um heim. x x x ÞAÐ má kannski geta þess svonatil gamans að amma hringdi al- gjörlega að tilefnislausu í Víkverja um daginn – úr farsíma. Víkverji lét sér fátt um finnast, undir vökulu augnaráði unglingsins sem greini- lega skipulagði samsærið. Það varð hins vegar til þess að Víkverji fór að velta því fyrir sér hvort ekki væri hægt að virkja eldri borgara, á sama hátt og börnin, til þess að kenna þeim síðarnefndu eitthvað uppbyggilegt. Eldri borg- arar búa yfir miklum fróðleik, lífs- reynslu og verkkunnáttu, sem jafn- vel er hætta á að hverfi úr samfélaginu. Börnin gætu því mikið af þeim lært. Áður fyrr bjuggu kyn- slóðirnar í meira návígi hver við aðra og slíkur vísdómur seytlaði átakalaust frá kynslóð til kynslóðar. Má ekki skapa vettvang fyrir slíkt flæði á nýjan leik þar sem menning- arauði hversdagslífsins væri komið til skila? MIKIÐ er það nú lítið sem ríkisstjórnin ætlar að skammta öryrkjum og elli- lífeyrisþegum núna. Þegar búið er að taka skatt af þessari hungurlús verður ríkið búið að ná megninu af þessu til baka. Ég er sam- mála Ólafi Ólafssyni, fyrr- verandi landlækni, sem sagði að litið væri á þetta fólk sem annars flokks borgara. Það sagði við mig kona um fertugt að hún kviði fyrir því að eldast og verða gömul kona í þessu sam- félagi sem býr svona illa að eldra fólki. Styðjum öryrkja í þeirra baráttu. Við, sem fullvinn- andi erum, vitum ekki hve- nær eitthvað kemur fyrir okkur og við getum orðið öryrkjar. Ef svo færi væri það ávísun á fátækt. Sama dag og fréttir komu um hækkanir til öryrkja og aldraðra var tilkynnt um hækkun til hinna háu herra og var það engin smáhækkun. Mér hefur verið sagt að Félagsþjón- ustan vísi frá sér fólki sem þangað leitar, til hjálpar- stofnana vegna þess að við- miðunarmörkin eru 62.418 kr. því ef fólk fer yfir þessi mörk fær það enga aðstoð. Hver lifir af slíkri upphæð núna þegar sífelldar hækk- anir á matvöru, bensíni og fleiru dynja á okkur og þetta gerist í landi góðær- isins. En hvar er góðærið? Það er ekki furða að af- gangur sé í ríkiskassanum. Þetta ástand er algjörlega óþolandi og ég vona að þeir sem eru mér sammála, láti í sér heyra. Stöndum vörð um okkur sjálf. Grímur. Þakkir til Gylfa Gröndals MIG langar í örfáum orð- um að lýsa ánægju minni með bók Gylfa Gröndals, Steinn Steinar – Leit að ævi skálds. Þetta er frá- bær bók og um leið skemmtileg lesning um ævi og lífsbaráttu sérstæðs listamanns, sem bjó við erfiðar aðstæður alla sína ævi. Við sem munum Stein Steinarr og fylgdumst með honum sem skáldi, sjáum hér hans erfiðu baráttu fyrir daglegum þörfum, en kannski eru ljóð hans ein- mitt fyrir það svona áleitin. Snilldin er alltaf augljós og leynir sér aldrei í ljóðun- um, sama hvert yrkisefnið er. Hafðu þökk fyrir, Gylfi Gröndal. Guðveig Bjarnadóttir, Skaftafelli. Frábærir tónleikar MIG langar að þakka Þór- unni Björnsdóttur og manni hennar fyrir frá- bæra kórtónleika sem haldnir voru í Háskólabíói, sunnudaginn 6. maí sl. Þarna sungu t.d. litlir drengir lagið Hraustir menn og gerðu það af hreinni snilld. Mig langar að senda þeim hjónum innilegt þakklæti. Sæmundur Þorsteinsson. Hvað eru sykruð sætuefni? ELÍS hafði samband við Velvakanda og vildi benda á eftirfarandi. Hann er sykursjúkur og kaupir oft Capri epla cider. Í Sam- kaupum hefur epladrykk- urinn allt í einu hækkað úr 198 kr. í 280 kr. Í Fjarð- arkaupum kostar hann 199 kr. og í Nóatúni 198 kr. Hvernig stendur á þessari hækkun? Þegar hann fór að spyrjast fyrir um hækk- unina hjá Samkaupum var honum sagt að sá sem stjórnaði verðlaginu vildi hafa þetta svona. Einnig vildi hann benda á að í KEA-skyrinu væru sykruð sætuefni. Hann mældi sig áður en hann neytti skyrsins og á eftir. Hann hækkaði úr átta mælieiningum í sextán á tveimur tímum. Skyrið er ein sykurleðja. Hvað eru sykruð sætuefni? Tapað/fundið Heyrnartæki tapaðist HEYRNARTÆKI tapað- ist á tímabilinu frá 30. apríl til 3. maí sl. Tækið er húð- litað, pínulítið og því er stungið inn í hlustina. Skilvís finnandi er vinsam- legast beðinn að hafa samband í síma 551-0121. Dýrahald Sparta fannst á Laugavegi LJÓSGRÁR angóraköttur fannst á Laugavegi fyrir um það bil sex vikum. Hún er 7–8 mánaða gömul læða og heitir Sparta. Vinsam- legast hafið samband í síma 861-7450. Kettlinga vantar heimili FALLEGIR hvítir átta vikna kettlingar, læða og högni, fást gefins á gott/ góð heimili. Upplýsingar í síma 561-0336. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Ávísun á fátækt K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 veglyndi, 4 tengdamað- ur, 7 fiskur, 8 heitis, 9 bók, 11 askar, 13 ljúka, 14 dugnaðurinn, 15 laut, 17 hornmyndun, 20 auli, 22 gímalds, 23 hreyfist hægt áfram, 24 ránfugls, 25 sterti. LÓÐRÉTT: 1 sjúkdómurinn, 2 hljóð- færi, 3 hreyfist, 4 grobb, 5 látin af hendi, 6 aftur- enda, 10 starfið, 12 rán- dýr, 13 bókstafur, 15 hlýða, 16 mynnið, 18 erf- ið, 19 nam, 20 spil, 21 slæmt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 skynjaðir, 8 bolur, 9 aulum, 10 ull, 11 iðnum, 13 lerki, 15 leggs, 18 salur, 21 kát, 22 glata, 23 amman, 24 flekklaus. Lóðrétt: 2 kolin, 3 nýrum, 4 aðall, 5 illur, 6 obbi, 7 smái, 12 ugg, 14 efa, 15 laga, 16 gjall, 17 skark, 18 stall, 19 lömdu, 20 ræna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.