Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 78
FÓLK Í FRÉTTUM
78 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ leið yfir átta manns áfyrstu tónleikum Sigur Rós-ar í New York þann 8. maí sl.
Það var þó ekki ljóst daginn eftir,
hvort aðdáendurnir misstu meðvit-
und vegna hitasvækjunnar, ölvunar
eða af einskærri hrifningu. En eitt
var öruggt: Sigur Rós krafðist al-
gjörrar athygli hvers einasta af hin-
um 800 áheyrendum.
Það er sjaldgæft að áheyrendur á
rokktónleikum á Manhattan hlusti
agndofa í fullkominni þögn. Þó gerð-
ist það hvað eftir annað á tónleikum
Sigur Rósar, sem stóðu í tæpa tvo
klukkutíma, á Irving Plaza, sem er
dansstaður neðarlega á Manhattan.
Rödd Jóns Þórs Birgissonar gítar-
leikara bergmálaði úr djúpinu og í
hinum löngu þögnum, sem voru inn á
milli mátti heyra saumnál detta. Það
var meira að segja dauðaþögn á
barnum aftast í salnum, þegar Jón
Þór söng hluta af ,,Svefn-G-Englum“
beint í hljóðdósina á gítarnum í fylgd
með nokkrum hljómum úr hljóm-
borði Kjartans Sveinssonar og
,,ping-i“ frá xýlófóninum. Það stefndi
í enn magnþrungnara kvöld, þegar
hljómsveitin tók, án nokkurrar við-
vörunar, að spila hávær, þétt stef og
Jón Þór strauk með boganum stunur
úr gítarnum við drynjandi bassaleik
og trommuslátt þeirra Georgs Hólm
og Orra Páls Dýrasonar.
Sigur Rós spilar ekki hefðbundið
amerískt rokk og ról. Væru þeir ekki
með magnara og trommur, mætti
segja að tónlist hljómsveitarinnar
væri alls ekki rokk og ról, en minnti
frekar á ótrúlega teygjanlegar sym-
fóníur. Strengjakvartett spilaði með
í níu lögum af þeim ellefu, sem sveit-
in flutti og hinar öguðu strokur
kvartettsins sköpuðu glæsilega and-
stæðu við grófar strokur Jóns Þórs
sem minntu á öskur úr nauti eða fíl.
Stundum virtist manni tónlist Sigur
Rósar svo viðkvæm, að það væri
hægðarleikur að eyðileggja hana
með auglýsingaskrumi. Jón Þór
syngur eins og engill af óræðu kyni,
röddin er ótrúlega há, ómögulega
fullkomin. Í laginu ,,Ný Batterí“
héngu tónarnir í loftinu eins og gler-
kutar: beittir, hljómandi og við-
kvæmir.
Sigur Rós og tónlist þeirra náðu til
Ameríku heilu og höldnu og hefur
ekki sakað þrátt fyrir vaxandi at-
hygli fjölmiðla og hljómplötuútgáfa á
síðustu mánuðum. Hljómsveitin er
hér í stuttri heimsókn og mun halda
5 tónleika, hinir fyrstu voru á Coach-
ella hátíðinni, í eyðimörk í nágrenni
Los Angeles, og Sunnudagsblað
New York Times birti stóra grein
um hana. Mikið hefur verið rætt og
ritað um hinn harða slag útgáfufyr-
irtækja, sem lyktaði með því að Sig-
ur Rós gekk til samninga við MCA-
útgáfufyrirtækið, þar sem Sigur Rós
náði að semja um algert frelsi til
lagasmíða og rétt til að syngja á ís-
lensku. Tónleikar Sigur Rósar í New
York voru hreint frábærir. Þá átti
upphaflega að halda í Angel Orens-
anz Foundation Center, sem er 150
ára gömul fyrrverandi sýnagóga á
Lower East Side, þar sem The
Verve héldu sína alræmdu sýru-sýn-
ingu árið 1993. En vegna mikillar
eftirspurnar eftir miðum neyddist
Sigur Rós til að flytja tónleikana yfir
á Irving Plaza og allt seldist upp.
Þrátt fyrir kynningu og talsverða
sölu á Ágætis byrjun, voru áheyr-
endur fyrst með á nótunum þegar
lög af ,,Svefn-G-Englum“ voru spil-
uð. Tónlist Sigur Rósar hefur ekki
verið mikið flutt á öldum ljósvakans
(en 2. maí sl. spilaði hún nokkur lög
,,live“ í upptökusal útvarpsstöðvar-
innar KCRW í Los Angeles). Sigur
Rós spilaði einungis fjögur lög af
Ágætis byrjun. Hin voru annað
hvort ný eða ókunnugleg, þeirra á
meðal var hinn áhrifaríki jarðarfar-
arsálmur hljómsveitarinnar ,,Dánar-
fregnir og Jarðarfarir“ og tvær frá-
bærar útsetningar af gömlum rímum
með kvæðamanninum Steindóri
Andersen. Ég heyrði Steindór og
hljómsveitina flytja þessi lög í októ-
ber sl. í Íslensku óperunni í Reykja-
vík og ég varð yfir mig hrifinn af
þessum samruna gamals rímnalags
og rafmagnaðrar einlægni.
Steindór Andersen sté á svið Irv-
ing Plaza með virðuleik og fyllti sal-
inn með sinni þunglyndislegu bari-
tón rödd og úr varð ástríðuþrunginn
samhljómur við brothættar útsetn-
ingar Sigur Rósar.
Það aðdráttarafl, sem rödd Jóns
Þórs og gítarstrokur hans búa yfir fá
mann auðveldlega til að gleyma að
Sigur Rós er í raun og veru hljóm-
sveit, þar sem hann er aðeins einn af
fjórum frábærum og frumlegum tón-
listarmönnum. Georg Hólm er jafn
nauðsynlegur þegar hann spilar ekki
og þegar hann spilar með. Bassaleik-
ur hans í ,,Dánarfregnir og jarðar-
farir“ var ótrúlega spar; hann spilaði
aðeins til að auka á áhrif sveiflunnar.
Orri Páll Dýrason spilaði frábærlega
á trommurnar með burstum og kjuð-
um, keyrði lögin áfram af ákafa og
krafti án þess að yfirgera. Symbal-
sláttur hans í ,,Hafsól“ jók við ógn-
ina, sem hljómaði úr bóleró-takti
Georgs Hólm, sem hann sló á bassa-
strengina með kjuða.
Kjartan Sveinsson er kannski
leynivopn Sigur Rósar. Hann spilar
á hljómborð og stundum gítar og
hann fyllti upp þrungnar þagnir
Jóns Þórs með mjúkum tónum og
kirkjulegum hljómum sem hljómuðu
sorgþrungnir án þess að þrengja að
söngvaranum. Því hefur verið haldið
fram að rokkið sé staðnað og ekki
hægt að spila neitt nýtt á rafmagns-
gítar, en það verður að segjast að ný-
stárlegur leikur Jóns Þórs á hljóð-
færið er gleðiefni. Fyrstu fimm
mínútur tónleikanna strauk hann
boganum yfir gítarinn og hélt svo yf-
ir í ,,Ný batterí“ þar sem honum
tókst að blanda saman angistinni úr
Low með David Bowie og sólói
Jimmys Page (Led Zeppelin) úr
,,Dazed and Confused“ og gera úr
því sitt eigið gullkorn.
Aukalagið var hið nýja ,,Popp-
song“, fullkominn endir á tónleikun-
um og Orri Páll lauk þeim með því að
sparka trommusettið niður, alger
„rokk og ról“ endir í anda Keith
Moons, ca ’66. En Sigur Rós, sem
gefur klisjunum langt nef, komu aft-
ur inn á svið og luku tónleikunum
með stæl – bogum var strokið yfir
strengjahljóðfærin og Steindór And-
ersen söng. Þegar út var komið stóð
þar ungur maður og útdeildi auglýs-
ingum um útgáfu Ágætis byrjunar:
,,Platan kemur út eftir tvær vikur“
hrópaði hann.
Sigur Rós komast brátt að því,
hvort þeir verða næsta ,,æðið“ í Am-
eríku. Þeir sönnuðu að minnsta kosti
í kvöld, að þeir eru það ,,æðisleg-
asta“ sem rokkað hefur í langan
tíma.
Þýðing: Ingveldur
Róbertsdótt ir
Morgunblaðið/Suzanne Plunkett
Sigur Rós: Irving Plaza, New York, þriðjudaginn 8. maí 2001.
David Fricke, aðstoðarritstjóri Rolling Stone,
fjallar um hljómleika Sigur Rósar sem fram fóru í
New York á þriðjudaginn var.
Englar af
óræðu kyni