Morgunblaðið - 16.05.2001, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 11
B E I N T L E I G U F L U G M E Ð F L U G L E I Ð U M
Ógleymanleg vikuferð til Prag, föstudaginn 3. ágúst
Fararstjórar: Emil Örn Kristjánsson og Pétur Gauti Valgeirsson
61.800
Bókunarsími 511-1515
REGLULEGT LEIGUFLUG TIL PRAG FRÁ ÁRINU 1996.
ÖLL ALMENN FERÐAÞJÓNUSTA. TILBOÐ Í EINSTAKLINGS- OG HÓPFERÐIR UM ALLAN HEIM.
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www.gjtravel.is
netfang: outgoing@gjtravel.is
TÖFRANDI,
FALLEG OG FRÆG
Beint til höfuðborgar Tékklands
Eftir rúmlega 3ja klukkustunda flug, lendum
við í Prag, höfuðborg Tékklands kl. 03:35
aðfararnótt laugardagsins 4/8. Frá flugvelli
er haldið til Hotel Olympik Garni, þar sem
við dveljum næstu vikuna.
Margrómuð og töfrandi
Þessi sögufræga borg, sem skartar ein-
stökum byggingarstílbrigðum ólíkra tíma í
samhljómi við sögusvið aldanna á söfnum, í
kirkjum, tónleikahöllum, á bjórstofum, veit-
ingahúsum og í stórmerkilegri menningar-
sögu þjóðarinnar - tekur okkur opnum
örmum.
Ein fegursta borg veraldar
Allir sem hafa komið til Prag, vitna um
töfrandi glæsileika borgarinnar. Þar er margt
að sjá, hvort heldur á strætum hennar,
í þröngum húsasundum gamla bæjarins, í
kastalahverfinu eða á Karlsbrúnni í fótspor-
um hershöfðingja, þjóðarleiðtoga, lista-
manna og almúgans fyrr á öldum. Elsti hluti
borgarinnar hefur verið friðlýstur af Samein-
uðu þjóðunum sem menningararfleifð
mannkyns.
Menning og mannlíf
Í Prag birtist nútíð og fortíð ljóslifandi í skap-
andi menningu sem endurspeglast í öflugu
tónlistar- og listalífi borgarinnar. Við getum
útvegað aðgöngumiða að ýmsum list-
viðburðum s.s. í Ríkisóperunni, Þjóðleik-
húsinu , Gosbrunnagarðinum og hjá
Sinfóníunni í Prag svo eitthvað sé nefnt.
Ódýr en góður matur
Veitingahúsin sem eru mörg og fjölbreytileg,
bjóða þjónustu sína á mun lægra verði en
við eigum að venjast. Þar eru alþjóðlegir
staðir í bland við þjóðlega Tékkneska staði.
Meira að segja er þar íslenski veitingastað-
urinn; Reykjavík.
Verslanir - góð kaup
Í Prag er fjölbreytt úrval alþjóðlegra
vörumerkja auk tékkneskra gæðavara eins
og kristalsins sem landið er þekktast fyrir.
Hvergi í veröldinni er meira úrval og
hagstæðara verð.
Skoðunarferðir - íslensk leiðsögn
Auk skoðunferðar um borgina, sem er um
4ra klst. rútu- og gönguferð, verða seldar
dagsferðir til Karlstejn-kastalans, til Terezín-
virkisins, Ceský Krumlov og Kutna Hora.
Hótel á góðum stað
Við gistum á Hótel Olympik Garni, 270 her-
bergja hóteli í námunda við miðbæinn.
Neðanjarðarlestarstöð er við hótelið. Allur
aðbúnaður er til fyrirmyndar, þjónustan góð
og herbergin vel búin.
Aðeins 61.800 kr. á mann
Innifalið:
Beint flug Keflavík-Prag-Keflavík, flugvallaskattar,
akstur til og frá flugvelli erlendis, gisting á Hotel
Olympik Garni, morgunverður, skoðunarferð á
fyrsta degi og íslensk fararstjórn.
Aðrar skoðunarferðir eru seldar sérstaklega
JÓNAS Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, segir að
Sjómannafélag Eyjafjarðar hafi
eyðilagt þá fyrirætlun Sjómanna-
sambandsins að ná samningum í
kjölfar þeirrar ákvörðunar að aflýsa
verkfalli, þar sem Sjómannafélag
Eyjafjarðar tók þá ákvörðun að af-
lýsa ekki verkfalli félagsmanna þess.
„Við ætluðum að reyna að koma á
samningum með því að aflýsa en ég
sé ekki annað en að í Sjómannasam-
bandinu sé Sjómannafélag Eyja-
fjarðar búið að eyðileggja það. Þeir
hafa klofið sig frá þessu. Það verður
gagngert til þess að það verða sett
lög á okkur hina, sem erum ekki
lengur í verkfalli. Ég held að þetta sé
pólitískt plott,“ segir Jónas.
Gerir ráð fyrir að
skipin fari til veiða í kvöld
Hann segist ekki gera sér grein
fyrir hvers konar lög verði samþykkt
á Alþingi en kveðst gera ráð fyrir að
flotinn muni halda á miðin í kvöld.
„Útvegsmenn komu aldrei að
samningaborði til að semja. Það
sýndi sig best þegar þeim var boðinn
kjarasamningur áður en verkfall
skall á sem innihélt slysatryggingu
fyrir karlana, séreignaréttindi í líf-
eyrissjóði og hækkun kauptrygging-
ar eins og almennt hefur gerst. Það
var ekkert annað í pakkanum. Fyrst
þeir vildu þetta ekki held ég að þeir
hafi aldrei ætlað að semja. Það er bú-
ið að semja um þetta við alla aðra
launþega og aðra sjómenn,“ sagði
Jónas.
Eyfirðingar
hafa eyðilagt
áform okkar
Formaður Sjómanna-
félags Reykjavíkur
SJÓMANNAFÉLAG Eyjafjarðar
ákvað í gær að aflýsa ekki yfir-
standandi verkfalli. „Við teljum
bara að við séum betur komnir með
gerðardóminn og fáum þá inn
slysatrygginguna og annað, heldur
en að aflýsa verkfallinu og vera
áfram á gömlu kjarasamningunum
næstu fjögur og hálft ár,“ sagði
Konráð Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar, í samtali
við Morgunblaðið.
Hann vísaði því á bug að þessi
ákvörðun um að halda verkfallinu
til streitu væri til marks um að
samstaða sjómannafélaganna hefði
rofnað. „Þetta er bara sjálfstæð
ákvörðun Sjómannafélags Eyja-
fjarðar,“ sagði Konráð.
Hann sagði að nú mætti vænta
þess að lög yrðu sett. „Framhaldið
verður bara að það verður skipaður
gerðardómur. Við höfum tíma fram
að mánaðamótum til þess að reyna
að ná samningum og síðan hefur
þessi dómur mánuð til þess að
klára dæmið. Þetta verður svona,“
sagði hann.
Aðspurður hvort þær breytingar
sem gerðar voru á frumvarpinu í
fyrrakvöld hefðu skipt máli í þessu
sambandi, sagði hann svo ekki vera.
Sjómannafélags Eyjafjarðar
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem félagið mótmælir harðlega því
gerræði sem felst í samþykkt laga
um kjaramál fiskimanna og fleira
sem sviptir sjómenn samnings- og
verkfallsrétti, eins og komist er að
orði.
„Verði þetta frumvarp að lögum
munu félagsmenn Sjómannafélags
Eyjafjarðar verða sviptir grundvall-
armannréttindum, sem þeim eru
tryggð í íslenskum lögum, stjórnar-
skrá lýðveldisins og alþjóðlegum
sáttmálum, sem íslenska ríkið hefur
skuldbundið sig til að hlíta.
Félagsmenn Sjómannafélags
Eyjafjarðar yrðu með þessu jafn-
framt sviptir rétti til að taka sjálf-
stæðar ákvarðanir um kjarasamn-
ingsbundin réttindi sín. Í frumvarpi
ríkisstjórnarinnar er einnig gert
ráð fyrir verulegri kjaraskerðingu
sjómanna auk þess sem mælt er
fyrir um afnám gildandi laga, sem
beinlínis er ætlað að tryggja rétt-
indi félagsmanna,“ segir ennfremur
í yfirlýsingunni.
Erum betur settir með gerðardóm
SAMNINGANEFND Farmanna-
og fiskimannasambandsins sam-
þykkti einróma eftir hádegi í gær að
aflýsa ekki yfirstandandi verkfalli
fyrr en samningur við samtök út-
vegsmanna hefði náðst.
Í yfirlýsingu FFSÍ í gær er skorað
á ríkisstjórnina að draga lagafrum-
varpið um kjaramál fiskimanna o.fl.
til baka og veita samningsaðilum
svigrúm til að ljúka deildunni með
samningi. „Ef ekki er orðið við þess-
ari ósk skorar samninganefndin á
Alþingi Íslendinga að hafna laga-
frumvarpinu.
Verði frumvarpið samþykkt á Al-
þingi lýsir Farmanna- og fiski-
mannasamband Íslands fullri ábyrgð
á hendur stjórnvalda,“ segir í yfir-
lýsingunni.
Sjómannafélögin hvert
á sínum samningnum
Grétar Mar Jónsson, formaður
sambandsins, sagði að það hefði ver-
ið einróma ákvörðun samninga-
nefndarinnar að láta reyna á áfram-
haldandi verkfall í þeirri von að
lagafrumvarpið yrði dregið til baka.
Hann sagði að sú staða væri nú
komin upp að sjómannafélögin yrðu
hvert á sínum samningnum. Þau
félög sem ekki hefðu aflýst verkfalli
fengju á sig gerðardóm, Vélstjóra-
félagið yrði með þann samning sem
það gerði í síðustu viku, eða „Lax-
dælu“, eins og Grétar kallar samn-
inginn, og síðan yrðu aðildarfélög
sjómannasambandsins væntanlega
áfram á gömlu kjarasamningunum.
Telur ósennilegt að samningar
takist á hálfum mánuði
„Við munum búa okkur undir það
núna að mæta fyrir gerðardóm. Það
verður sjálfsagt ekki hægt að ná
samningi á þeim hálfa mánuði sem er
til stefnu, þótt við vonum að það tak-
ist, en það þurfa þá að verða um-
skipti hjá viðsemjendum okkar svo
það geti orðið,“ sagði Grétar Mar.
Ekki hafði verið boðað til sátta-
fundar í deilunni þegar Morgunblað-
ið talaði við Grétar Mar í gær.
Hann kvaðst gera ráð fyrir að flot-
inn héldi til veiða í dag í kjölfar laga-
setningar Alþingis.
Spurður álits á þeim breytingum
sem gerðar voru á frumvarpinu í
sjávarútvegsnefnd á milli fyrstu og
annarrar umræðu sagði Grétar að
þar væri um mjög litlar breytingar
að ræða. „Við hefðum viljað sjá meiri
breytingar, en lög eru lög og þetta er
því eins og þegar maður er spurður
að því hvort hann vilji frekar láta
skjóta sig eða hengja,“ sagði hann.
Segir útvegsmenn aldrei hafa
ætlað sér að semja
Grétar Mar segir að kjaradeilan
hafi þróast eins og búast mátti við
þar sem útvegsmenn séu ófáanlegir
til að ganga frá samningum. „Þeir
hafa aldrei ætlað sér að semja við
okkur um eitthvað. Þeir eru tilbúnir
að hlaupa á einhvern svona samning
eins og Helgi [Laxdal] gerir, sem fel-
ur bara í sér beina kauplækkun. Það
sem við og Sjómannasambandið höf-
um viljað forðast er að lenda á samn-
ingi Helga því hann er bara bein
kauplækkun, bæði í gegnum mönn-
unarmálin, og eins í gegnum fisk-
verðsmálin.“
Grétar Mar gerði ráð fyrir að
verða kallaður fyrir sjávarútvegs-
nefnd í nótt vegna umfjöllunar
nefndarinnar um frumvarpið fyrir
þriðju og síðustu umræðu þingsins.
Farmanna- og fiskimannasambandið ákveður að aflýsa ekki verkfalli
Frumvarpið verði
dregið til baka