Morgunblaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 40
MINNINGAR
40 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ólafur Hólmfæddist í Reykja-
vík 5. janúar 1931.
Hann andaðist á
heimili sínu 7. maí sl.
Foreldrar hans voru
Friðbjörn Hólm
Friðbjörnsson,
rennismiður úr
Reykjavík, f. 13. maí
1909, d. 27. apríl
1982, og Sigurlaug
Hólm Ólafsdóttir,
húsmóðir og verka-
kona úr Reykjavík,
f. 12. apríl 1908, d.
18. september 1990.
Systkini Ólafs eru: Karl, rekur
hreingerningafélagið Hólmbræð-
ur, f. 16.3. 1932, Björgvin kerf-
isfræðingur, f. 19.11. 1934, d. 3.4.
1999, Árni, starfsmannastjóri og
doktor í sálarfræði, f. 3.12. 1935,
d. 28.6. 2000, Friðbjörn, kennari,
f. 9.5. 1937, Helgi, kennari, f.
18.3. 1941, Svala, starfsmanna-
stjóri í Danmörku, f. 7.5. 1943,
Mjöll, söngkona og skrifstofu-
maður, f. 19.7. 1944, og Sigurður
bókhaldari, f. 16.7. 1946. Ólafur
kvæntist Svölu Ásbjörnsdóttur
frá Vestmannaeyjum, f. 22.6.
1931. Þau skildu 1960. Sonur
Svölu, Ásbjörn Eydal kerfisfræð-
ingur, f. 27.1. 1948 er kjörsonur
Ólafs. Ólafur var í sambúð með
Ester Georgsdóttur, húsmóður
og verkakonu úr
Reykjavík, f. 28.2.
1931, d. 17.10. 1988.
Dætur þeirra eru
Lilja nemi, f. 1.9.
1962, og Sigurlaug
húsmóðir, f. 24.4.
1969. Ólafur var í
sambúð með Ásdísi
Valdimarsdóttur,
gæslukonu úr
Reykjavík, f. 11.
ágúst 1927, börn
þeirra eru Fjóla,
snyrtifræðingur, f.
26. júlí 1963, og
Friðbjörn, tækni-
fræðingur, f. 9. maí 1966. Ólafur
á ellefu barnabörn.
Ólafur var í sveit í þrjú ár á
unglingsárunum og byrjaði eftir
það að vinna við múrverk. Hann
stofnaði hreingerningafélagið
Hólmbræður ásamt bræðrum sín-
um. Ólafur tók landspróf í Hlíð-
ardalsskóla, fór síðan í Kennara-
skóla Íslands og lauk þar prófi
árið 1959. Ólafur vann við hrein-
gerningar með þessu, þó aðal-
lega á sumrin. Hann hóf kennslu
við Miðbæjarskólann árið 1959
og kenndi þar til ársins 1969 og
síðan við Austurbæjarskólann
allt þar til í byrjun árs 1994.
Útför Ólafs fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Elsku besti pabbi minn. Nú ert
þú horfinn úr þessum heimi og ég
er viss um að mamma tekur á móti
þér. Ég á aldrei eftir að gleyma þér
pabbi. Þú áttir alltaf svo stóran og
mikinn sess hjá mér. Ég leit svo
upp til þín pabbi og var mikil
pabbastelpa. Þú, þessi stóri og
sterki pabbi, sem verndaði mig og
ég gat treyst á. Ég gleymi heldur
aldrei hversu glaðvær þú varst og
kátur maður. Þú varst mikill keppn-
ismaður, þar vorum við svo sann-
arlega lík. Við fórum oft í alls konar
keppni eins og að hitta ofan í dollur,
pílukast, að spila, ráða krossgátur
og ýmsar aðrar þrautir. Ég gleymi
heldur ekki þegar þú fórst með okk-
ur systkinin að veiða í Hafnarfjarð-
arhöfn, það var ósjaldan. Ég gleymi
heldur aldrei því að þú tókst alltaf
upp hanskann fyrir lítilmagnann.
Einnig hversu góður, viðkvæmur og
blíður maður þú varst. Alltaf gat ég
leitað til þín þegar mér leið illa eða
illa stóð á. Þú stappaðir stálinu í
mig og hvattir mig áfram og hrós-
aðir mér. Síðustu vikurnar leið þér
mjög vel, varst mjög kátur, ánægð-
ur og lékst á als oddi. Ekki hefði ég
trúað því að þú myndir deyja svona
fljótt. Þetta var mikið reiðarslag
fyrir mig, en þó er huggun í því að
þú yfirgafst þennan heim á heimili
þínu, sem þér þótti svo vænt um.
Ég sakna þín svo mikið elsku pabbi
minn og sorg mín er mikil. Ég er
þakklát fyrir allan þann tíma sem
ég átti með þér og að hafa þekkt þig
pabbi minn, þú sem gafst svo mikið
af þér. Ég á aldrei eftir að gleyma
þér pabbi og geymi yndislega minn-
ingu þína í hjarta mínu um alla ei-
lífð. Ég kveð þig með þessum orð-
um.
Nú skilja leiðir okkar um sinn,
en minningin lifir enn.
Tárin drjúpa niður um kinn,
sorg og söknuður í senn.
Guð geymi sál og líkama þinn,
þú hjartað mitt fylltir auð.
Ég sendi þér kveðju, pabbi minn,
án þín hefði ævin verið snauð.
(Lilja Hólm.)
Guð blessi þig elsku pabbi og
geymi. Þín dóttir,
Lilja.
Elsku besti pabbi minn. Þú horf-
inn ert úr augsýn minni og kominn
yfir í annan heim. Ég átti ekki von á
því að þú yfirgæfir okkur svona
snögglega þar sem þú varst búinn
að vera svo hress, þá sérstaklega
síðustu vikuna sem þú dvaldir í þín-
um líkama. Gönguferðir niður
Laugaveginn, sundferðir og níuhol-
urnar sem þú tókst með stæl er þú
fórst í þína síðustu golfferð nokkr-
um dögum áður en þú fórst héðan.
Ég minnist sjötugsafmælisins þíns
sem við héldum fyrr á þessu ári.
Tárin féllu frá þér þar sem þú
gladdist svo mikið yfir að hafa alla
þínu nánustu og öllumljóðunum sem
ort voru til þín. Aldrei mun ég
gleyma hvað góður þú varst við
drengina mína tvo og mikill félagi
sem þú varst honum Birki mínum.
Hann mun sakna þín sárt. Þú varst
mikill vinur minn og ég er þakklát
yfir því hve náin við vorum.
Það er mér mikill heiður að hafa
verið hjá þér þá stund er þú yf-
irgafst þinn líkama og hélst á brott
á annan stað. En mikið á ég eftir að
sakna þín þar sem þú skipaðir svo
mikinn sess í mínu lífi. Guð blessi
þig og varðveiti minningu þína.
Þín dóttir,
Sigurlaug Hólm.
Leiddir þú forðum
lítinn dreng.
Titrar við ómur
af tregastreng.
Safnast í vestri
svipþung ský.
Veturinn nálgast
með veðragný.
Berst fyrir laufsegli
ljóð til þín:
Kemst yfir hafið
kveðjan mín?
(Ólafur Jóhann Sigurðsson.)
Aðfaranótt mánudags 7. maí
barst mér sú frétt að þú værir dá-
inn. Þessa dimmu, hvössu og rign-
ingasömu nótt var líkt og tíminn
stæði kyrr. Þú varst horfinn úr lif-
enda lífi svo óvænt og með svo
snöggum hætti að erfitt var að trúa
hvað raunverulega hafði gerst.
Það er gott til þess að vita að þú
hafir látist í faðmi þinna nánustu en
ekki einn og að þetta hafi tekið
skjótt af. Sú kveðjustund sem ég
átti með þér pabbi minn og systrum
mínum þessa svipþungu nótt er mér
ákaflega kær.
Þrátt fyrir að þú hafðir stuttu áð-
ur en ég kom tekið þér nýja för fyr-
ir hendur þá fundum við öll sterk-
lega fyrir návist þinni. Þessi nána
stund sem við áttum saman hefur
styrkt okkur öll í að takast á við
þann mikla missi sem brotthvarf
þitt er fyrir líf okkar.
Margar minningar hafa komið
upp í huga mér síðustu daga og er
mér minnistætt hversu ljúfur og
góður þú varst okkur börnunum.
ÓLAFUR
HÓLM
!"
#$
# %
&
' ( "$'))
!" #! $ ## %& '(!$ (!
')!!# (!
"(* !% $ ##
! $ !!%& $ ##
" #! +( #! $ ##
%& %& (!
(, - #!
) * "$
"$
&+
./01
+%
'%
2-!3#44
%$ &$%
#$
,
+ $ !5!!5 , $ ##
+ !!5 , (! 6% 7)
/!! 2!$5 , $ ## ! !! (!
#&-!! . , (!
* #',5 , (!
5 , 8 2! (!
-
9 96
6'"'% & -2($ )
%
$#$
.,/
$ (# ($"
, #!$!$
) *
$
&"$
*
.
6
& 3 : !!(3!!
&('%#"$
,
! $ #!!!$ $ ##
! $ -
! $ ##
#2 2! $ ##
;)!$ #!
$ - -) " #-! (!
3 6!8#<!!
6 *#!!=" #-!
! !!
-) + * ##! #&!5!!
(#!! ##
) * "$
( 55>%
'%?
-, # )
-) . ) #, (#
0 1 2
$
( !(!
(* #(!
!!5 ! $ ##
, ! $ ## ##(
.6
6
& -#!
$ )!3&,
!
'334
5$
4
6 ,
7(
$
2 @#2! $ ##
- (%
$ $
$
6
'
>6
, ))A
"&
% $ $
6 ,
" # $ $ ##
.!! < 9 !" #-! $ ##
6 *#. 6! $ ## )!!" #-! (!
!( 6! (! 2-& , ., $ ##
" #!
6! $ ## , B )!$ $ ##
$ 6! (! &! $ , $ ##
'!6! (!
-) 6! (! " ! ! $ ##
+( #!!" 6! (! "(* !6 & $ ##
+( #!!. 6! (! 6 ' .!! $ ##
93 ! 6! (! 2 @#B !$ ##
* !*3 !(* !* !*3 !
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Birting afmælis- og
minningargreina