Morgunblaðið - 16.05.2001, Page 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 45
Nýttu
tímann vel!
Nýsköpun 2001 er nú á fullri ferð og enn er nægur tími fyrir þau sem láta
ekkert stoppa sig!
Þú hefur tíma til 31. maí til að skila okkur viðskiptaáætlun eða
hugmyndalýsingu (Evrópukeppnin).
Það eru ekki bara peningaverðlaun í boði, heldur fá allir, sem senda
fullnægjandi viðskiptaáætlun, vandaða umsögn sérfræðinga. Einnig verða valdir
fulltrúar Íslands í sérstaka Evrópukeppni um viðskiptahugmyndir.
Skráðu þig núna, það er án skuldbindinga!
Skilafrestur er til 31. maí nk.
Nánari upplýsingar fást í síma 510 1800
og á www.spar.is/n2001.
Fyrirspurnir með tölvupósti sendist á nyskopun@spar.is
SEX Kiwanisklúbbar í Garðabæ,
Hafnarfirði og Kópavogi stóðu fyr-
ir skemmtun fatlaðra í Kirkjuhvoli,
safnaðarheimili Vídalínskirkju á
sunnudaginn var.
Skemmtunina sóttu um 200
manns, fatlaðir, aðstandendur
þeirra og aðstoðarfólk og tókst
skemmtunin vel. Dansað var af
mikilli innlifun við tónlist hljóm-
sveitarinnar „Í svörtum fötum“.
Einnig sá Felix Bergsson um
skemmtiþátt og línudansflokkurinn
„Gylltu skeifurnar“ dönsuðu og
kenndu línudans. Kiwanis-
klúbbarnir nutu stuðnings fjöl-
margra aðila við að halda skemmt-
unina, þ.á m. Svæðisskrifstofu
Reykjaness, Vífilfells, Sól-Víkings,
Landssímans, heildverslunar Ás-
bjarnar Ólafssonar, Kökubankans í
Garðabæ, Osta- og smjörsölunnar,
Holtakjúklinga, Ferðaþjónustu fatl-
aðra, Atla og Gunnars, Garðasókn-
ar, Stjörnusnakks, TM-trygginga
og Sínawikkvenna í Garðabæ.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Felix Bergsson söng nokkur lög sem gestirnir gátu tekið undir í.
Skemmtun fyrir fatlaða
HALDINN verður kynningarfundur
um niðurstöður verkefnisins Þróun
efnavöktunarkerfis til varnar mann-
virkjum við umbrot í jökli og á lands-
neti til vöktunar, sem nú er nýlokið.
Fundurinn verður haldinn í fundar-
sal Orkustofnunar í Reykjavík á
morgun, fimmtudaginn 17. maí, kl.
14. Orkustofnun, Raunvísindastofn-
un Háskólans og Vegagerðin hafa
unnið sameiginlega að verkefninu
með tilstyrk frá Tæknisjóði Rann-
sóknarráðs og Viðlagatrygginga-
sjóði.
Efnavöktunarkerfið miðast að því
að koma á sjálfvirku efnavöktunar-
kerfi vegna jökulhlaupa og flóða frá
eldsumbrotum í Vatnajökli og Mýr-
dalsjökli. Það byggist á því að við eld-
gos eða aukna jarðhitavirkni undir
jöklum verða gjarnan efnabreyting-
ar í jökulám áður en vart verður við
verulega aukningu rennslis. Áður en
eldsumbrot hefjast verður oft vart
aukinnar jarðhitavirkni og aukins
gasútstreymis vegna kvikuinnskota
og efnabreytingar af þessum sökum
endurspeglast í efnasamsetningu
jökulvatns þaðan.
Í Skeiðarárhlaupum hefur til
dæmis lengi verið þekkt að oft verður
breyting á efnainnihaldi vatns nokkr-
um vikum áður en hlaup hefjast.
Bakgrunnsgögn vantaði um efna-
samsetningu jökulánna og tengsl við
rennsli þegar aðstæður eru eðlilegar.
Fyrsti áfangi verkefnisins var því að
afla slíkra bakgrunnsgagna um árs-
tíðasveiflur í efnastyrk í þeim ám þar
sem talin er mest flóðahætta. Styrk-
ur efna og breytingar á honum
reyndust mjög mismunandi í þessum
ám og hafa fengist mjög góð gögn til
að byggja á vöktun í framtíðinni.
Í síðari áfanga verkefnisins voru
settir upp nokkrir leiðnimælar í til-
raunarekstri samhliða eldri vatns-
hæðarmælum og jafnframt hófust
tilraunir með hönnun og uppsetningu
vöktunarkerfisins og þróun hugbún-
aðar ásamt vefsíðugerð sem tryggir
almennan aðgang að gögnunum.
Vegna umbrotanna í Vatnajökli
var breytt nokkuð frá áætlun um
uppsetningu tilraunastöðva og í kjöl-
far goss í Grímsvötnum í desember
1998 var sett upp stöð í Skeiðará með
sérstökum stuðningi frá Vegagerð-
inni. Sumarið 1999 voru svo reistar
stöðvar í Skaftá við Sveinstind og í
Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði. Þá
hefur ríkisstjórnin kostað uppsetn-
ingu og rekstur nokkurra stöðva í
vatnsföllum kringum Mýrdals- og
Eyjafjallajökul vegna jarðhræringa
þar, segir í fréttatilkynningu.
Á kynningarfundinum verða nið-
urstöður verkefnisins kynntar í
stuttu ávarpi verkefnisstjóra,
Hrefnu Kristmannsdóttur. Sverrir
Ó. Elefsen tæknifræðingur mun
kynna vöktunarnetið og síðan verður
unnt að skoða kerfið í tölvu á vefnum
(http://vmkerfi.os.is). Jafnframt
verður veggspjaldasýning á niður-
stöðum.
Efnavöktunarkerfi til varnar
mannvirkjum við umbrot í jöklum
Kynningarfund-
ur um niður-
stöður verkefnis
ALÞJÓÐLEGI fjarskiptadagurinn
er 17. maí nk. Til hans hefur verið
efnt árlega að frumkvæði Alþjóða-
fjarskiptasambandsins (ITU) og er
þema ársins 2001 „Netið: áskorun,
tækifæri og framtíðarhorfur“.
Hlutverk ITU, sem er ein af und-
irstofnunum Sameinuðu þjóðanna,
er fyrst og fremst að tryggja öllum
jarðarbúum aðgang að ákveðinni
grunnþjónustu í fjarskiptum og
samhæfa tækniþróun á því sviði.
Samhæfing og samtenging fjar-
skiptakerfa heimsins, sem er aug-
ljós forsenda þess að hvers konar
fjarskipti geti átt sér stað milli
landa, hefur frá upphafi verið meg-
inhlutverk ITU. Öll ríki heims eiga
aðild að samtökunum og er Póst- og
fjarskiptastofnun formlegur aðili Ís-
lands í þeim.
Þema ársins að þessu sinni var
valið vegna hinna miklu áhrifa sem
Netið hefur hjá öllum þjóðum heims
þar sem nýjar aðferðir hafa komið í
stað hefðbundinna vinnubragða á
ýmsum sviðum og kallar sú þróun á
nýjar reglugerðir í síbreytilegu um-
hverfi fjarskiptanna. Í tilefni dags-
ins hvetur ITU til almennra um-
ræðna um eftirfarandi málefni:
·Hvernig getur Netið stuðlað að
aukinni þróun og hvað er hægt að
gera til að hlúa að þróun Netsins?
Hvaða vandamál getur það skapað?
·Hvernig er hægt að efla notkun
Netsins hvarvetna í samfélaginu?
·Hvernig má nýta Netið í ákveðinni
grunnþjónustu, svo sem innan
heilsugæslunnar og í menntamál-
um? ·Stuðla lög og reglugerðir að
sambærilegum aðgangi að Netinu
um allt land? ·Hvernig er hægt að
ryðja úr vegi hindrunum sem hefta
útbreiðslu og notkun Netsins og
takast jafnframt á við þær áskor-
anir og möguleika sem stofnanir og
fyrirtæki standa andspænis á þess-
um vettvangi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Þeim sem hafa áhuga á að kynna
sér starfsemi Alþjóðafjarskiptasam-
bandsins og efni sem tengjast al-
þjóðlega fjarskiptadeginum 2001 er
bent á heimasíður ITU (http://
www.itu.int) og Póst og fjarskipta-
stofnunar (http://www.pta.is).
Alþjóðlegi fjarskipta-
dagurinn 17. maí
Rangt farið
með föðurnafn
Í greininni „Safna fyrir langveik
börn“ fimmtudaginn 10. maí sl, var
rangt farið með föðurnafn eins
drengjanna er nefndir voru, rétt
nafn drengsins er Halldór Rúnar
Hafliðason.
Krossgátan
Í seinasta dagskrárblaði 9. maí
víxluðust tölur undir dálknum Lóð-
rétt. Það sem var númer 23 á að vera
21, númer 24 á að vera 23 og 25 á að
vera 24.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
VIÐ Flókagötu 8 var ekið á bif-
reiðina ZJ 945, sem er rauð
Peugeot-fólksbifreið, en sá sem
það gerði fór af vettvangi án þess
að tilkynna það lögreglu eða
hlutaðeiganda. Er talið að þetta
hafi átt sér stað frá kl. 19.30 12.
maí sl. til kl. 11.30 13. maí. Þeir
sem frekari upplýsingar geta
gefið eru beðnir um að snúa sér
til lögreglunnar í Reykjavík.
Vitni vantar
Borgartúni 28, 562 2901
www.ef.is
OSO
hitakútar
úr ryðfríu stáli
30 ára frábær reynsla á
þúsundum íslenskra heimila
30/50/100/120/200 eða 300 lítra
Blöndunar- og öryggisloki fylgir
20% orkusparnaður
Hagstætt verð
ISO 90
02
Frábæ
r endi
ng!
Mikið úrval af
brjóstahöldurum
verð frá kr. 700
Mömmubrjósta-
haldarar kr. 1900
Úrval af náttfatnaði
fyrir börn og fullorðna
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433